Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 Spumingin Fylgistu með íþróttum í vetur? Guðmundur Árni Magnússon: Já, ég fylgist með handboltanum. Snævar Már Jónsson: Já, körfubolt- anum. Ólöf Dröfn Eggertsdóttir: Stundum með fótboltanum. Dídí Jónasdóttir: Nei. Steinunn Guðmundsdóttir: Nei, frek- ar lítið. Sonja Dröfn Helgadóttir: Já, stund- um. Lesendur Þjóðfélagsleg óáran við suðupunkt: Fátt til bjargar úrþessu Eyjólfur Jónsson skrifar: Eg fullyrði að í fáum öðrum þjóðfé- lögum séu jafn mörg deilumál í einu uppi á borðinu og okkar þjóðfélagi. Það er ekki bara að deilt sé um vöxt og viðgang helstu þátta þjóðfélags- gerðarinnar, svo sem hvernig eigi að standa að skattlagningu, eignaraðild auðlinda eða aðstoð við lasburða og lítilmagna. Hér eru bókstaflega átök á átök ofan allan ársins hring um hvaðeina sem ber á góma, jafnvel vegna fréttaflutnings af ómerkileg- astu hlutum. Og sum tilefnin eru til umræðu ár eftir ár og alltaf með jafn heiftúðlegum hætti. Má þar nefna áfengismál, umferöarmál og enn fleiri sem hafa verið afgreidd fyrir áratugum í venjulegum þjóðfélögum. Stjórnmál og fjármál, og þó frekar þessi tvö mál samtengd, hefur alltaf borið hæst hér. Kannski eðlilegt, því íslendingar hafa lengi trúað því að peningar, jafnvel fjárhagsleg afkoma einstakhnga og heilu byggðarlag- anna mótist af stjórnmálunum og engu öðru. Þetta er þó reginmisskiln- ingur að mínu mati og margra ann- arra. Einstaklingsframtakið og eigið hugvit hefur skilað mestum arði, óháð stjórnvöldum á hverjum tíma eða pólitískum straumum. Eins og sannast hefur, a.m.k. í löndunum í hinum vestræna heimi. En hér er annað uppi á teningnum. - Við reynum að tengja alla þætti stjórnmálum og einstaklingum inn- Eru kosningar þá óþarfar eftir allt? an þeirra. Þeir bera ábyrgðina, segja menn. Þeir eiga að „skaffa", sjá fyrir okkur hinum. Eða að minnsta kosti að „skapa réttu skilyrðin" fyrir út- gerðina, fyrir iðnaöinn, fyrir verka- lýðinn, fyrir opinbera starfsmenn. Fyrir þessar 260 þúsund hræður sem hér búa. Já, hvílíkt vald hafa þeir sem komast í stjórnmálin! Er það þess vegna sem menn fást til að fara til þings þótt launin séu með því allra lægsta sem gerist? Það hljóta þá að vera einhver önnur laun til viðbótar. Þaö skyldi þó ekki vera! Hafa þá þingmenn, að ekki sé talað um ráð- herra, ráðstöfunarrétt á milljónatug- um eða ennþá meiru, bara svona án nokkurs eftirlits? Mitt mat er að nú sé óáranin hér á landi komin við suðupunkt og fátt verði til bjargar úr þessu. Almenn- ingur mætti prófa að láta lönd og leið afskipti af stjórnmálum, og leyfa áhugamönnum á því sviði að bítast um þau innbyrðis. Prófkjör og kosn- ingar hafa hvort eð er ekkert að segja lengur í þjóðfélagi eins og hinu ís- lenska. Ósvíf ni f lugmanna engin takmörk sett? Norðlendingur skrifar: Ósvífni íslenskra hátekjumanna virðast engin takmörk sett. Það sannaðist heldur betur í fréttatíma Stöðvar 2 fyrir nokkru þegar formað- ur Félags íslenskra atvinnuflug- manna heimtaði að verkalýðsfélögin og ferðaskrifstofa hérlend hjálpuðu flugmönnum að berja á flugfélaginu Atlanta. Það er í meira lagi furðulegt að gullkálfarnir í FÍA skuli telja sér sæma að fara fram á það að íslenskt láglaunafólk komi þeim til hjálpar í kolólöglegu verkfalli þeirra. Flugmenn hafa einhliða lýst yfir stríði á hendur Atlanta sem virðist þaö eitt hafa til saka unnið að vera óvenju skynsamlega rekið fyrirtæki á íslenskan mælikvarða. Það er að minnsta kosti einsdæmi að boðað sé til verkfalls án þess að viðræður af nokkru tagi hafi áöur farið fram. - Og það er grátbroslegt aö flugmenn, sem svífa um á margföldum verka- mannalaunum, skuli nú allt í einu biðja um samstööu ineð láglauna- fólki. Hvenær hafa flugmenn sýnt áhuga á kjörum annarra - eða yfir- leitt öðru en eigin hag? Þessir gulldrengir eru búnir að hafa nógu mikil áhrif í stjórn Flug- leiða í gegnum tíðina þótt þeir verði ekki látnir komast upp með að þjösn- ast á Atlanta líka. Atlanta er einn af fáum lífvænlegum vaxtarsprotum i fábreyttri flóru íslenskra flugfélaga. - íslenskt launafólk eða fyrirtæki þess eiga ekki að taka þátt í ólöglegri aðför að því. Hringbrautin fær „eyru“: Hroðaleg mistök „Spor afur á bak í umferöarmenn- ingu borgarinar." - Á Hringbraut- inni. Hringið í síma milli kl. i4og 16 - eða skríflð Nafn og símanr. verður að fylgja bréfum Alfreð skrifar: Ökumönnum hér í Reykjavík hefur orðið tíðrætt um framkvæmdir á Hringbrautinni, vestan Melatorgs og að sjávarsíðunni í norðri. Fram- kvæmdir þessar eru búnar að standa yfir frá því snemma sumars og enn er þeim ekki að fullu lokið! Þama er um hroðaleg og dýr hönnunarmistök að ræða. Góð og bein gata er nú orð- in hlykkjótt og „eyru“ komin á hvert gangstéttarhorn. Auk þess hafa bílastæði meðfram götunni verið færð yfir á gagnstæðan götuhelming frá því sem áður var og hefur því mikil hætta skapast, bæði fyrir þann ökumann sem er á ferð- inni og hinn, sem stansar til að leggja bíl sínum. Ég á alveg eins von á því að skyndilega opnist dyr á kyrrstæð- um bíl sem er nýkominn í stæði og sá sem kemur akandi rífi hurðina af þeim kyrrstæða. Með því að leggja vinstra megin þegar ekið er norður- eftir voru alhr miklu öruggari. Svo eru það „eyrun“ sem þrengja götuna. - Með þeim verða ökulínurn- ar hlykkjóttar og vart hægt að taka lengur beygju nema með sérstökum tilfæringum, og nánast að stöðva alla umferð á eftir. - Hér hefur verið stig- ið spor aftur á bak í umferðarmenn- ingu borgarinnar. Snorrabraut er nú hka ofurseld sömu aðgerð og verður illfær á næstunni. - Ef þessar fram- kvæmdir eru meðal þeirra sem lán- taka snýst um þessa dagana hjá nýrri borgarstjórn þá má sleppa hvoru tveggja, lántökunum og fram- kvæmdunum. Siðferðiðtil Ríkisendurskoðunar -líkaprestsmálið N.Á. skrifar: Mér flnnst al veg frábært að geta kastað öllum syndum, pólitískum og siðferðislegum, til Ríkisendur- skoðunar. Þarna brást biskupi bogalistin i siðferðismáli prests- ins á Seltjarnarnesi. - Nú þarf Ríkisendurskoðim að láta hanna eyðublað fyrir umsækjendur að siðferðisvottorði. Þeir munu sækja stift í þau, siðgæðisskúrk- arnir. TekundirmeðÁrna Pétur Magnússon hringdi: Ég tek undir skrif Árna Ragn- ars Árnasonar alþingismanns í grein í DV sl. mánudag um aðild okkar aö ESB og úttekt Háskól- ans á henni. Hann bendir rétti- lega á að viðar en í ESB-löndun- um getum \1ð íslendingar tryggt viðskiptahagsmuni okkar, t.d. með samstarfi við bandarísk fyr- irtæki og friverslun við stjórn- völd vestanhafs. - Slíka samninga gerum við ekki ef við gengjum í ESB. Geirsemji Siguijón Gunnarsson skrifar: Nú er mál að linni vandræða- gangi út af Smugunni og Sval- barðasvæðinu. Niðurstaða verð- ur að fást, þannig að við Sslend- ingar getum verið fuhsæmdir af. Norðmenn virðast hafa farið sínu fram, sett reglugerð og hvaðeina og leitað eftir stuðningi Evrópu- bandalagsins. - Nú þarf gera út af örkinni menn sem kunna að semja og ná árangri. Mér finnst aughóst að _fá til þess Geir H. Haarde alþm., en hann hefur sýnt hæflleika umfram aðra til að ná góðum samningum í viðkvæmum málum, t.d. sáttum á mihi þing- flokkanna um formennsku í nefndum Alþingis, samkomulagi mihi handboltamanna og Reykja- víkurborgar um húsnæðisvanda HM. Hann hefur gegnt trúnaðar- störfum fyrir Alþjóðaþing- mannasambandið og var nýlega kosinn framkvæmdastjóri þess. Hann stóð sig lika frábærlega vel í umræðuþætti í norska sjón- varpinu nýlega. Ég skora á ríkis- stjómina að fá Geir th að leiða viöræður af íslands hálfu við Norðmenn á næstunni. Hverstelur? Jóhann skrifar: Það er mikiö talað um skatt- svik. Að ríkið tapi árlega háum upphæöum vegna þeirra. Þetta er auðvitað ekki gott. En hvaö gerir ríkið sjálft? - Það gefur sannariega fordæmi. Margar eignir einstaklinga (ég þekki ekki til félaga) eru metnar til skatts á kaupverði, a.m.k. ghdir það um bíla. Bíll sem keyptur var á eina mihjón er skráður þannig á skatt- skýrslu á meðan sami eigandi er með hann. Jafnvel þótt söluverð bilsins sé komiö niöur í 200 þús. kr. er greiddur af honum eignar- skattur eins og hann væri mihjón króna virði! Hvað á að kalla þetta? Er hér um þjófnað að ræða án þess að nokkur segi orð? Það væri fróðlegt að láta reikna út hve mikíð ríkið hefur árlega af okkur með þessu fyrirkomulagi. Spólurum vímuefm Katrín hringdi: Hringt var í mig nýlega og ég spurð hvort ég vildi kaupa spólur eða geisladiska með alhliða upp- fræðslu um vímuefni. - Ég kvað nei við og kvaddi. Litlu siðar var enn hringt og þá talað við mann- inn miirn sem svaraði á sömu lund. 1 þetta sinn var spurt um nafn mitt um leið og hans. Við höfnuðum þessu boði og finnst einkennilegt að menn skuh standa svona að málum. Þetta er ekki rétti mátinn th að kynna söluvöru.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.