Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 41 Memiing Gegnumlýsingar - á sýningu Gunnars M. Andréssonar í Galleríi 11 Á fimmta og sjötta áratugnum leituðu listamenn gjarnan út í himingeiminn að viðfangsefnum. Gervi- tungl og tunglferðir voru í tísku og áhrif landafund- anna hinna nýju urðu kveikjan að mörgu málverkinu. Nú er öldin önnur og hinn innri geimur er viðfangs- efni margra listamanna. Þar er ýmist um að ræða sér- hannaða veröld sýndarveruleikans eða vísindalega viðleitni til að skrásetja leyndardóma lífsins hið innra. Gunnar Magnús Andrésson, sem nú sýnir verk sín í Galleríi 1 1 við Skólavörðustíg, er á þessari síðar- nefndu bylgjulengd. Hann sýndi í Nýlistasafninu fyrir rúmu ári verk sem byggðust m.a. á skyggnusýningu smásjárstækkaðra blóðdíla á sellúlósasíum og form- teikningum á röntgenfilmur, ljósmyndapappír og blý. Að leiða í Ijós Gunnar Magnús heldur sig að mestu leyti á svipuð- um nótum á þessari sýningu, þó hún sé að vísu með mun einfaldara sniði. Að þessu sinni sýnir Gunnar eingöngu röntgenfílmur en viðfangið er býsna óvenju- legt líkt og fyrr; bækur, neysluvörur og plöntur. Gunn- ar tekur þarna hversdagslega hluti og sýnir á þeim hlið sem vekur ósjálfrátt spurningar um dauðann og önnur tilvistarstig. Listamaðurinn er þarna að nokkru í hlutverki vísindamanns sem gegnumlýsir til að kanna krankleika. Gunnar gegnumlýsir hins vegar með það eitt að markmiði að leiða í ljós það sem dulið er sjónum. Hann hengir röntgenfilmur meö girni upp í loft salanna og býr þannig til innsetningar sem nán- ast svífa í rýminu. Magnað Ijósaspil Hvað fyrsta liðinn, bækur, áhrærir er býsna lítið sem þar kemur í ljós við röntgenskoðun. Það er greinilega Myndlist Ólafur J. Engilbertsson ekki vinnandi vegur að lesa bækur á þennan hátt, því miður fyrir flettilata. Hvað neysluvarningnum við- kemur er hins vegar athugunarefni hversu lítið þarf til að pappír, og letur um leið, hverfi með öllu. Frá sjónarhóli röntgenfilmunnar er bókaþjóðin því nánast á vergangi. Að vonum eru hin lífrænu innkaupastykki hvað áhugaverðust í gegnumlýsingu; sviðahausar, kjúklingur, hryggur og humar. í innri sal gefur að líta þann hluta sýningarinnar sem hefur hvað mestan slag- kraft. Þar er um að ræða gegnumlýstar plöntur, jafnt úr hafdjúpum sem af yfirborði jarðar. Það sém gerir innsetninguna svo athygliverða er möguleikinn á lýs- ingu utan frá þar sem tré eru til að bregða skuggum á filmurnar innifyrir. Væntanlegum sýningargestum er ráðlagt að líta á sýninguna einhvern sólardaginn síðdegis til að fá notið þessa magnaða ljósaspils sem náttúran, listin og tæknin sameinast um að búa til. Sýning Gunnars Magnúsar Andréssonar í Galleríi 11 lýkur fimmtudaginn 13. október. Tilkyimingar Eyf irðingafélagið - félagsvist Fjrrsta spilakvöld af funrn fyrir áramót veröur annað kvöld aö Hallveigarstöðum kl. 20.30. Aðgangur öllum opinn. Kór Hjailakirkju í Kópavogi Nú er vetrarstarfið hafið af krafti. Fram undan er söngur við guöþjónustur og jólatónleikar á jólafóstu. Æfingar eru á þriðjudagskvöldum kl. 20-22. Okkur bráðvantar karlaraddir, bæði tenóra og bassa. Nánari upplýsingar gefa: Oddný Þorsteinsdóttir organisti í síma 43247 og Vilborg Guðmundsdóttir kórformaður í síma 641599. Félag eldri borgara í Rvík og nágrenni Kóræfing kl. 17-19 í dag í Risinu. Dansaö á fimmtudagskvöldum kl. 20 í Risinu. Dansbandið - Sveitin milli sanda sér um tónlistina. Ingveldur Ýr og Kristinn Örn í Operunni Fyrstu tónleikar á nýju starfsári Styrkt- arfélags íslensku óperunnar eru í dag, miðvikudaginn 5. okt., kl. 20.30 í íslensku ópenmni. Þar koma fram Ingveldur Ýr Jónsdóttir messósópran og Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari. A efnisskránni verða íslensk sönglög, Ijóð eftir Manuel de Falla, ariur úr óperum eftir Richard Strauss, Rossmi og Bizet, auk ýmissa erlendra laga, m.a. úr þekktum söngleikj- um. ITC-deildin Korpa, Mos- fellsbæ heldur kynningarfund í kvöld kl. 20 í safhaöarheimili Lágafellssóknar. Fund- urinn er opinn öllum. Upplýsingar veitir Guörún í síma 668485. Bólstaðarhlíð 43 Félags- og þjónustumiðstöð aldraðra. Dansaöur veröur Lance á fimmtudögum frá kl. 14-15. Allir velkomnir. Listþjá Ifun fyrir fagfólk í nóvember veröur haldið námskeiðið Listþjálfun fyrir fagfólk (art therapy). Námskeiðið er ætlað fagfólki sem er áhugasamt um að nota listsköpun í starfi með skjólstæðingum sínum. Þátttakend- ur þurfa ekki að hafa reynslu af listsköp- un. Námstiihögun er fyrirlestrar, um- ræður, myndir skoðaðar og verklegar æfmgar. Leiðbeinandi á námskeiðunum er Unnur Óttarsdóttir sem er listþjálfi (art therapisti) að mennt og gefur hún nánari upplýsingar í síma 22072. Norræna húsið í kvöld kl. 20.30 verður dagskrá í Nor- ræna húsinu þar sem samíska skáldið Rauni Magga Lukkari kynnir verk sín og les upp ásamt Einari Braga rithöf- undi. Rauni Magga Lukkari var fulltrúi Sama á Bókmenntahátíö í Reykjavík 1987. Aðgangur er ókeypis og aUir vel- komnir á dagskrána. Fíkn og bati Námskeið og fyrirlestur á vegum Nám- undi, Ánanaustum 15, 3. hæð. Dagana 14.-16. október verður námskeið fyrir uppkomin böm alkóhóUsta og annarra fikla. Föstud. 20-22. Laugard. 12-17. Sunnud. 9-14. Þátttökugjald 6.800 kr. (Leiðbeinendur Ásta Jósafatsdóttir og Vésteinn Líðvíksson). Fimmtudaginn 6. október kl. 20 heldur Vésteinn fyrirlestur sem nefnist „Fíknin og fjölskyldan". Að- gangseyri er 500 kr. Upplýsingar og skráning á námskeiðið er í símum 19106 (Ásta) og 16707 (Vésteinn). Hringskuggar Bókmenntafélagið Hringskuggar hefur gefið út ljóðabókina „Rauðhjallar" eftir Baldur Óskarsson. Þetta er níunda ljóða- bók skáldsins en sú fyrsta kom út árið 1966. „Rauðhjallar" er 87 bls. að stærð. í bókinni em 40 frumort ljóð og 15 þýðing- ar, m.a. á ljóðum eftir Lorca og fom kín- versk skáld. Kápumynd bókarinnar er eftir Gylfa Gíslason. Verð þessarar bókar í verslunum er 1.478 kr. en 1.000 kr. til félagsmanna Hringskugga. Félag eldri borgara í Hafnar- firði Farið verður í heimsókn að Sólheimum í Grímsnesi fóstudaginn 7. október kl. 13. Þátttöku þarf að tifkynna sem fyrst í sím- um 50176 (Kristín) og 51020 (Ragna). Félagsstarf aldraðra, Furugerði 1 AUir velkomnir, 67 ára og eldri. Tónleik- ar verða fimmtudaginn 6. október kl. 14. Sigurður Björnsson óperusöngvari kynn- ir líf og störf tónskáldanna Rossinis og Schuberts. Ópemsöngkonan Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngur. Undirleik annast Steinunn B. Ragnarsdóttir, píanó, og Óskar Ingólfsson, klarinett. Hafnargönguhópurinn í miðvikudagskvöldgöngu Hafnargöngu- hópsins 5. október verður farið frá Hafn- arhúsinu kl. 20 og gengið með Tjöminni suður í Vatnsmýrina og til baka um Landakotshæðina. Allir em velkomnir í ferð með Hafnargönguhópnum. Tapad fimdið Gleraugu í brúnu hulstri töpuðust föstudaginn 30. september á Seltjarnamesi. Upplýsingar í síma 616032. Gleraugu fundust Gleraugun em með krómaðri umgjörð og fundust að Stóragerði 9. Eigandi getur fengið frekari upplýsingar í síma 30979. Ungbarnaheilsufarsbækur sem vora tvær saman í plasti töpuðust frá Heilsugæslustöð Hlíðasvæðis 28. sept- ember, líklega í Drápu-, Löngu-, Hamra- eða Stigahlíð. Finnandi hafi samband í síma 15778. Starfaldraðra Neskirkja: Félagsstarf aldraðra: Opið hús í dag kl. 13-17 í safnaðarheimili kirkj- unnar. Fótsnyrting og hárgreiðsla á sama tíma. Litli kórinn æfir kl. 16.15. Nýir söngfélagar velkomnir. Umsjón: Inga Backman og Reynir Jónasson. Nýir söng- félagar velkomnir. Víðtæk þjónusta fyrir lesendur og auglýsendur! Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn. Leikhús Áskirkja: Samverustund fyrir foreldra ungra bama í dag kl. 13.30-15.30. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.00. Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund í dag kl. 12 á hádegi. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnaðar- heimilinu eftir stundina. 10-12 ára starf (TTT) kl. 17 í dag. Ten-Sing unglingastarf 1 kvöld kl. 20. Bústaðakirkja: Félagsstarf aldraðra í dag kl. 13.30-16.30. Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10. Leikið á orgelið frá kl. 12.00. Léttur há- degisverður á kirkjuloftinu á eftir. Fella- og Hólabrekkusóknir: Helgistund í Gerðubergi fimmtudaga kl. 10.30. Grensáskirkja: Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.00. Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyrirbæn- ir í dag kl. 18. Hjallakirkja: Samverustund fyrir 10-12 ára börn í dag kl. 17. Kópavogskirkja: 10-12 ára starf í Borg- um í dag kl. 17.15-19. Kyrrðar- og bæna- stund kl. 18. Langholtskirkja: Aftansöngur kl. 18.00. Neskirkja: Bænamessa kl. 18.20. Guö- mundur Óskar Ólafsson. Seljakirkja: Fyrirbænastund í dag kl. 18. Æskulýðsfundur í kvöld kl. 20. Seltjarnarneskirkja: Kyrrðarstund kl. 12.00. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimil- inu. Nauðungarsala á lausafjármunum Eftirtaldar bifreiðar og annað lausafé verður boðið upp við lögreglustöðina á Blönduósi föstudaginn 14. október nk. kl. 17.00. FS-364 IÖ-920 IB-027 M-3699 GÞ-368 JT-234 HD-044 DG-893 HZ-501 BE-800 GT-217 IC-378 JA-769 FS-876 FF-950 GL-173 GÖ-088 GV-883 KC-921 IB-027 FY-208 tjaldvagn, TA-740 tengivagn, YP-202 tengivagn, IT-783 bifhjól, FP-550 bifhjól, KU-491 dráttarvél MX-322 dráttarvél, UH-968 dráttarvél, PL-575 dráttarvél, ZK-745 dráttarvél, TL-568 dráttarvél, ÞE-032 fjórhjól, TD-200 jarðýta. Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Blönduósi 4. okt. 1994. ÞJÓDLEIKHÚSID Sími 11200 Litlasviðiðkl. 20.30. DÓTTIR LÚSIFERS eftir William Luce Frumsýning föd. 7/10, uppselt, Id. 8/10, örfá sæti laus, föd. 14/10, Id. 15/10. Stóra sviðið kl. 20.00 VALD ÖRLAGANNA eftir Giuseppe Verdi 6. sýn. Id. 8/10, uppselt, 7. sýn. mán. 10/10, uppselt, 8. sýn. mvd. 12/10, uppselt. NÆSTA SÝNINGARTÍMABIL. Föd. 25/11, uppselt, sud. 27/11, uppselt. þrd. 29/11, nokkur sæti laus.föd 2/12, örfá sæti laus, sud. 4/12, nokkur sæti laus, þrd. 6/12, fid. 8/12, Id. 10/12, örlá sæti laus. Ósóttar pantanir seldar daglega. GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson Á morgun, fid. 6/10, uppselt, Id. 15/10, sud. 16/10. GAUKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman Föd. 7/10, sud. 9/10, föd. 14/10. Smiðaverkstæðið kl. 20.00 SANNAR SÖGUR AF SÁLARLÍFISYSTRA eftir Guðberg Bergsson i leikgerð Viðars Eggertssonar. Föd. 7/10, Id. 8/10, fid. 13/10, föd. 14/10. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti simapöntun- um alla virka daga frá kl. 10.00. Græna línan 99 61 60. Bréfsími 61 12 00. Símil 1200-Greiöslukortaþjónusta. <3J<» LEIKFELAG M«Ugj| REYKJAVÍKUR VH Litla svið kl. 20.00 r ÓSKIN (G ALD R A-LOFTU R) eftir Jóhann Sigurjónsson í kvöld, örfá sæti laus. Fimmtud. 6. okt., uppselt. Föstud. 7. okt., uppselt. Laugard. 8. okt., uppselt. Sunnud. 9. okt., uppselt. Míðvikud. 12. okt., örfá sæti laus. Fimmtud. 13. okt., uppselt. Föstud. 14. okt., uppselt. Laugard. 15. okt. Sunnud. 16. okt., örfá sæti laus. Miðvlkud. 19. okt., uppselt. Fimmtud. 20. okt., uppselt. Laugard. 22. okt., uppselt. Sunnud. 23. okt., uppselt. Stóra svið kl. 20. LEYNIMELUR13 eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage. 9. sýn. fimmtud. 6. okl., blelk kort gilda, 10. sýn. Id. 7/10, fáeln sæti laus, 11. sýn. Id. 8/10, fimmtud. 13/10. Stóra sviö kl. 20. íslenska leikhúsið Býr íslendingur hér - minningar Leifs Muller Sunnud. 16/10, aöeins þessi eina sýning. M iðasala er opin alladaganema mánudaga frá kl. 13.00-20.00. Miða- pantanir i síma 680680 alla virka daga frákl. 10-12. Munið gjafakortin, vinsæl tækifærisgjöf. Greiðslukortaþjónusta. Leikfélag Reykjavikur- Borgarleikhús Leikfélag Akureyrar KARAMELLUKVÖRNIN KAJAMEl, KVORNIN Gamanleikur með söngvum fyrir alla fjölskylduna! Laugard.8. okt. kl. 14. Sunnud. 9. okt. kl. 14. BAR PAR Tveggja manna kabarettinn sem sló i gegn á siðasta leikári! Sýnt í Þorpinu, Höfðahlið 1 Laugard. 8. okt. kl. 20.30. TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDII Kortasala stendur yfir! AÐGANGSKORT kosta nú aðeins kr. 3.900 og gilda á þrjár sýningar: ÓVÆNT HEIMSÓKN eftir J.B. Pri- estley Á SVÖRTUM FJÖÐRUM eftir Davíð Stefánsson og Erling Sigurðarson ÞAR SEM DJÖFLAEYJAN RÍS eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnars- son Frumsýningarkort fyriralla! Stórlækkað verð. Við bjóðum þau nú á kr. 5200. Kortagestir geta bætt við miða á KARMELLUKVÖRNINA fyrir aðeins kr. 1000. Miðasala í Samkomuhúsinu er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga fram að sýn- ingu. Sími 24073. Simsvari tekur við miðapöntunum utan afgreiðslutima. Greiðslukortaþjónusta. Safnaöarstarf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.