Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1994, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994
Fréttir_______________________________________________________________________________________dv
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik:
Beinn tölvuinnsláttur
f lýtir talningunni
um 15 þúsund flokksmönnum býöst aö velja um 14 frambjóðendur
„Undirbúningur prófkjörsins hef-
ur gengið mjög vel. Vonandi verður
veðrið gott og þátttakan mikil. Nú
veröur í fyrsta sinn í Reykjavík talið
upp úr kjörkössunum með innslætti
í tölvur. Við reiknum því með hrað-
virkari talningu og að úrslitin hggi
fyrir mikið fyrr en áður. Úrslitin
ættu jafnvel að geta legið fyrir á mið-
nætti aðfaranótt sunnudags," segir
Ágúst Ragnarsson á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
vegna alþingiskosninganna í vor fer
fram í dag og á morgun. í dag verður
kosið í Valhöll frá klukkan 13.00 til
21.00 en á morgun veröur kosið á
fimm stöðum í borginni frá klukkan
10.00 til 19.00, í Valhöll, á Hótel Sögu,
í Hraunbæ 102B, Álfabakka 14A og
Hverafold 1-3.
í gær höföu um 300 manns tekið
þátt í utankjörstaðaatkvæðagreiðslu.
Prófkjörið er opið öllum flokks-
mönnum en þeir sem skrá sig inn í
flokkinn meðan á atkvæðagreiðslu
stendur þurfa að hafa kosningarétt
þann 8. apríl þegar þingkosningarn-
ar fara fram.
Að sögn Ágústs voru tæplega 15
þúsund manns á kjörskrá þegar
henni var lokað í gær en ljóst er að
þeim mun fjölga eitthvaö í dag og á
morgun. Undanfama daga hefur
flokksmönnum fjölgað um nokkur
hundruð, einkum vegna atkvæða-
smölunar frambjóðenda. Samkvæmt
heimildum DV skiptast nýju flokks-
mennimir nokkuð jafnt milli þeirra
frambjóðenda sem hæst stefna í pró-
kjörinu.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er
bindandi ef meira en helmingur
flokksmanna tekur þátt í því. Varð-
andi einstök sæti er prófkjörið bind-
andi ef viökomandi fær meira en
helming greiddra atkvæða. Skiptir í
þvi sambandi ekki máli hvaða sæti
viðkomandi frambjóðandi nær. Lík-
ur eru á aö röðun í 10 efstu sætin
verði bindandi sé tekið mið af fyrri
prófkjörum flokksins.
Jólasveinn i glugga Heimilisiönaðarfélagsins í Hafnarstræti i Reykjavik vakti athygli Ólafs Vals Sigurðssonar, 2
ára, þegar hann var á ferð niðri i bæ með föður sinum. Þetta er fyrsti jólasveinninn sem sést hefur að þessu
sinni enda eru nær tveir mánuðir tii jóla. DV-mynd BG
Stórir kjötframleiöendur í Bandaríkj unum í samningaviðræðum við íslendinga:
Lambakjötið í prófun
f yrir hollustumarkað
- hugmynd að sölu á þrjú til fimm hundruð tonnum á ári á góðu verði
„Heildarsala okkar á lambakjöti
er þrjú til fimm hundruð tonn á ári
en það getur aukist. Ég reikna með
niðurstöðum eftir tvær vikur,“
sagði Melvin Coleman yngri sem
rekur búgarð í Denver í Colarado
þar sem framleitt er kjöt fyrir svo-
kallaöan hollustumarkað. Melvin
og faðir hans hafa veriö í samn-
ingaviðræðum við íslendinga, þar
á meðal Goða hf„ um sölu á lamba-
kjöti til Bandaríkjanna.
Melvin sagði aö lambakjöt frá ís-
landi væri bæði í skurð- og bragð-
prófunum í Bandaríkjunum. Hann
vildi ekki gefa upp hver kaupandi
kjötsins yrði ef af kaupum frá ís-
landi yrði. Þó er ljóst að það verður
á svokölluðum hollustumarkaöi, til
dæmis til Natural Supermarkets.
Á búgarði Melvinfeðga er um 500
nautgripum slátrað á dag og hafa
þeir um 80 prósent hlutdeild í kjöt-
sölu á hollustumarkaðinn í Banda-
ríkjunum. Verðið sem greitt er fyr-
ir vörur á þessum markaði, sem
gjarnan er nefridur „lifrænn", er
mun hærra en á almennum mark-
aði enda þar um náttúrulegar af-
urðir að ræða þar sem bætiefni og
efnameðhöndlun er litil sem engin.
Baldvin Jónsson hjá markaös-
nefnd Búnaðarsambands íslands
sagði í samtali við DV í gær að hér
væri um prófanir að ræða - menn
væru að vinna heimavinnuna
núna.
„Þetta er ekki komið á sölustig
ennþá, þetta á eftir að fara í gegn-
um gæðastjórnun og fleira," sagði
Baldvin. Melvin Coleman eldri var
á íslandi í byijun október. Þá var
hugmyndin að fá indíánaflokk til
landsins og slátrara til að sýna
vinnubrögð sín, m.a. í verslunum
Hagkaups. Ekkert varð af því en
Coleman sýndi því mikinn áhuga
að sýna skurð á bandarísku nauta-
kjöti. Hann hafði mikinn áhuga á
íslenska lambakjötinu og eyddi
miklum tíma í samningaþreifingar
við kjötframleiðendur hér á landi.
Prófkj örsbaráttan:
Barist um
atkvæðin
Baráttan um atkvæði í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hef-
ur magnas't dag frá degi. Af frambjóð-
endunum 14 hafa 9 opnað kosninga-
skrifstofur með samtals um 40 kosn-
ingasímum. Greinaskrif og auglýs-
ingar setja nokkurt mark á kosn-
ingabaráttuna og er ljóst að próf-
kjörsslagurinn mun kosta frambjóö-
endurna milljónir króna þegar allt
er tínt til.
Nokkuð öruggt þykir að Davíð
Oddsson og Friðrik Sophusson nái
kjöri í efstu sætin í prófkjörinu en
harður slagur er milli þeirra Bjöms
Bjarnasonar, Geirs H. Haarde og
Sólveigar Pétursdóttur um þriöja
sætið sem Björn skipar nú. Þá velta
menn vöngum yfir því hvort nýlið-
arnir Markús Örn Antonsson, Katrín
Fjeldsted, Ari Edwald og PétUr
Blöndal nái öruggum sætum. Nýlið-
arnir Ari Gísli Bragason, Ásgerður
Jóna Flosadóttir og Guðmundur
Oddsson eru taldir eiga á brattann
að sækja. Alþingismennimir Guð-
mundur Hallvarðsson og Lára
Margrét Ragnarsdóttir þykja líkleg
til aö ná kjöri í örugg sæti.
Hestur fyrir
bifreið
Hestur varð fyrir bifreið á þjóð-
veginum skammt sunnan Dalvíkur í
gærmorgun og þurfti að aflífa hann
eftir áreksturinn.
Hesturinn var m.a. fótbrotinn og
án efa talsvert illa farinn á höfði,
enda hafnaði hann fyrst á framhorni
bifreiðarinnar, kastaðist síðan upp á
vélarhlífina og höfuð hestsins braut
framrúðuna. Aflífa þurfti hestinn en
lögreglan hafði engar upplýsingar
um hver væri eigandi hans. Bifreiðin
var talsvert skemmd en ökumaður
slapp án meiðsla.
Tölva skólastjórans í Keflavík:
Var við útidyrnar
á sunnudagsmorgun
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Það er alveg ömggt að greinin sem
birtist í DV á laugardag hefur vakiö
þjófana til umhugsunar. Ég er í sjö-
unda himni að fá tölvuna mína aftur
- fínpússaða og allt í henni ósnert.
Einhverjir sem þekkja til hér hafa
veriö þarna að og ég þakka þeim fyr-
ir að skfla tölvunni. Batnandi mönn-
um er best aö lifa,“ sagði Kjartan
Már Kjartansson, skólastjóriTónlist-
arskóla Keflavíkur.
Tölva sem tekin var úr herbergi
hans í skólanum á dögunum er kom-
in fram. Hún var viö útidyrnar hjá
honum þegar hann opnaði þær á
sunnudagsmorgun, alveg óskemmd
í plastpoka.
Fyrrum sölustjóri kærður
Stjóm Lífeyrissjóðs starfsmanna
Áburðarverksmiðju ríkisins hefur
farið fram á þaö við Rannsóknarlög-
reglu ríksins að hún rannsaki meint-
ar sakir á hendur fyrmrn sölustjóra
verksmiðjunnar sem jafnframt var
fjárvörsluaðili lífeyrissjóðsins.
Stjórnendur verksmiðjunnar telja
að maðurinn hafi farið verulega út
fyrir heimfldir sínar og ákvæði
reglugerðar sjóðsins um kaup á
óveðtryggöum veröbréfum frá júní
1993. Samkvæmt upplýsingum DV er
hér um tugi mflljóna króna að ræða.