Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1994, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1994, Side 13
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994 Fréttir Hugleiðingar héraðsdómara um meðferð kynferðisbrotamála: Vill tryggja fómar- lömbum málsvara „Þeir sem fjalla um mál þessi sjá að brotaþolum er það mikil raun að þurfa að mæta fyrir dómi og skýra frá reynslu sinni. Lagt er til að nú þegar verði hugað að réttarstöðu fórnarlamba kynferðisbrota og þeim tryggður réttur til málsvara með svipuðum hætti og tíðkast í dönskum rétti," segir Hjörtur 0. Aðalsteins- son, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, í grein sem birtist í tímariti Lögfræðingafélagsins og ber heitið „Hugleiðingar um kynferðis- brot í ljósi lagabreytinga og nýlegra dóma“. Hér á landi er réttarstaða fórnar- lamba í kynferðisbrotamáium sú sama og réttarstaða annarra vitna í opinberu máli að öllu leyti nema því að fórnarlambið má koma að bótakr- öfú og kröfu um bætur vegna kostn- aðar sem getur hlotist af gagnaöflun og fleiru. í Danmörku hefur fórnarlambið hins vegar rétt á að fá skipaðan mál- svara. Þar eru sérákvæði um lög- mannsaðstoð til fórnarlambs í kyn- ferðisbrotamálum og nokkrum Tvöskipfariní loðnuleiðangur Rannsóknarskipin Ariu Frið- riksson og Bjami Sæmundsson héldu í fyrrakvöid í loðnuleit og er áformað aö leiðangurinn standi yfir fram í miöjan nóvemb- er. Leitað verður að loðnu aUt umhverfis landið og einnig á Grænlandssundi. Um það hafði verið rætt að loðnuskip tækju einnig þátt í þessum leiðangri, en af því varö ekki. Nær engin loðnuveiði hefur verið undanfarnar vikur og menn eru að verða svartsýnir á fram- haldiö. „Já, mönnum finnst biðin óneitanlega vera orðin löng og ýmsir telja að þaö veröi engin loðnuveiði fyrr en eftir áramót. Hins vegar bíða allir spenntir eft- ir niðurstöðum ur þeim leiðangri sem nú er hafmn og vonandi líöur ekki á löngu þar til loðnan finnst að nýju,“ sagði Sveinn Jónsson hjá Félagi fiskimjölsframleiö- enda. Um þetta leytií fyrra var loðnu- veiöin orðin 430 þúsund tpnn en hún er mun minni nú. í fyrra datt hins vegar botninn úr veiö- unum í nóvember og desember og veiddust ekki nema um 20 þúsund tonn i þessum mánuðum tveimur. flokkum ofbeldisbrotamála. „Samkvæmt lögunum leiðbeinir lögreglan brotaþola um heimild hans til að krefjast skipunar lögmanns sér til aðstoðar og kemur kröfu hans til viðeigandi dómstóls. Málsvari brota- þola á rétt á að vera viðstaddur yfir- heyrslur yfir honum, bæði hjá lög- reglu og í dómi, og getur lagt spum- ingar fyrir hann. Málsvarinn á rétt á að kynna sér skýrslur brotaþola hjá lögreglu og eftir útgáfu ákæru getur málsvarinn kynnt sér önnur þau gögn sem lögreglan hefur lagt fram. Málsvarinn má ekki án sam- þykkis lögreglu afhenda eða kynna brotaþola eða öðmm þau gögn sem hann hefur undir höndum og varða rnálið," segir í greininni. Orð gegn orði í greininni segir Hjörtur enn frem- ur að oft sé erfitt að sanna kynferðis- brot enda sjaldan vitnum til að dreifa. Sakborningar beri því oft við að mök hafi átt sér stað með sam- þykki viökomandi og stendur þvi orð gegn orði. Því þurfi oft að byggja á öðrum atriöum. Eftir að hafa skoðað dóma sem gengið hafa nýlega í málum af þeim toga sem hér er fjallað um er niður- staða Hjartar að refsingar fyrir kyn- ferðisbrot hafi „þyngst á allra síðustu árum og lætur nærri að segja megi að algengasta refsing fyrir nauðgun sé nú 18 til 24 mánaða fangelsi". Hjörtur vitnar til anníirrar úttektar frá árinu 1989 og þar er niðurstaðan sú að algengasta refsing fyrir nauðg- un sé óskilorðsbundið fangelsi í 12 til 18 mánuði. Segir Hjörtur jcifnframt að miska- bætur sem dæmdar hafi verið nýver- iö hafi einnig hækkað en eins og DV greindi er nú að störfum nefnd sem kannar hvort æskilegt sé aö koma á ríkisábyrgð á miskabótum. „Að lokum má benda á það að ef til vill geta dómarar einna best svar- að gagnrýni á störf sín meö þvi að benda á ákvæði 61. gr. stjómarskrár íslenska lýðveldisins þar sem segir að dómendur skuh í embættisverk- um sínum fara einungis eftir lög- um,“ endar Hjörtur á að segja í grein sinni. íris og Ragnheiður með syni sína á fæðingardeildinni. DV-mynd Garðar Saman á ólympíuleikum - saman á fæðingardeild Garðar Guðjónsson, DV, Akranest íþróttakonurnar Ragnheiður Run- ólfsdóttir og íris Grönfeldt hafa átt ýmislegt sameiginlegt um dagana. Þær kepptu fyrir ísland á ólympíu- leikunum í Seoul í S-Kóreu 1988 og stunduðu nám við sama háskólann í Bandaríkjunum. Nýlega voru þær samtímis á fæðingardeildinni á Sjúkrahúsi Akraness. Áttu báðar drengi með fárra daga millibili. Ragnheiður og iris, sem settu fjölda íslandsmeta í sundi og fijálsum íþróttum á árum áður, eru hættar keppni að minnsta kosti um sinn en ekki afskiptum af íþróttum. Ragn- heiður þjálfar sundfólk í MosfeUsbæ og er jafnframt æskulýðsfuUtnii bæj- arins. íris, methafi í spjótkasti, starf- ar við íþróttamiðstöðina í Borgamesi þar sem hún býr. Hvort drengjanna tveggja bíður svipaður frami í íþróttum og mæðra þeirra skal ósagt látið en þess má geta að maður írisar er einnig á kafi í sportinu - leikur með Borgnesing- um í úrvalsdeUdinni í körfubolta. 13 * Humarsúpa * Ofnbakaöur lambahryggur með rauövínssósu * Súkkulaðifrauð með hindberjasósu Kr. 1.950 Einnig 5 rétta sœlkeramatseðill á aöeins kr. 2.250 Nýr spennandi a la carte matseðill í hádeginu óð ~J~í(JtllTlTl) mán.-föst. Laugavegi 178 Opið öll kvöld vikunnar Borðapantanir í sírtia 88 99 67 Frábært verð 1.990 St. 41-45 brúnt leður Skemmuveg 32, sími 75777. Opið mán.-föst. 12-18, lau. 10-12 LÁnU EKKI 0F MIKINN HRADA VALDA ÞÉR SKAÐA! VrAð Með dug og áræðni komumst við langL Lára Margrét Ragnarsdéttir, alþingismaður er kona sem þorir. Kosningaskrifstofa Láru Margrétar er opin á Lækjartorgi, Hafnarstræti 20, 2. hæð, alla virka daga kl. 16 - 22, laugardaga og sunnudaga kl. 13 -19. Símar: 2 49 08, 2 49 12 og 2 49 14. Stuðningsmenn. Lára Margrét í sætið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.