Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1994, Blaðsíða 14
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994
14
Frjálst,óháö dagblað
Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð i lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Prófkjör þurfa að breytast
Sjálfstæðismenn efna til prófkjörs milli frambjóðenda
sinna í Reykjavík um þessa helgi. Sagt er að lítill áhugi
sé á þessu prófkjöri og athygli vekur hversu fáir gefa
kost á sér. Einungis fjórtán eru skráðir til leiks, þar af
eru þrír sem falast eftir kosningu í neðri sæti. Þeir eru
ekki í alvöruframboði. Minnt skal á að Sjálfstæðisflokk-
urinn fékk níu menn kjörna á þing í síðustu kosningum
í Reykjavíkurkjördæmi.
Prófkjörið virðist því fyrst og fremst snúast um röð
frambjóðendanna og sá háttur hefur verið tekinn upp
að frambjóðendur velja sér sæti og biðja kjósendur um
að greiða sér atkvæði samkvæmt þeim pöntunum. Þann-
ig er ekki nema einn sem sækist eftir fyrsta sæti, einn
sem sækir um annað sæti og þrír eða fjórir sækjast eftir
þriðja og fjórða sæti. Og svo koll af kolli.
Þessi pöntunaraðferð er afskræming á prófkjöri og
tilgangi þess. Úrslitin eru ákveðin fyrir fram í efstu sæt-
unum. Sömuleiðis má í sjálfu sér einu gilda fyrir kjósend-
ur hvort þingmenn þeirra sitja í þriðja, fjórða eða fimmta
sæti til eða frá, þegar nokkuð tryggt er að allir þeir sem
þau sæti skipa eru nánast öruggir um kosningu til þings.
Af hverju hefur verið aflögð sú gamla og gilda aðferð
að leyfa kjósendum að krossa við nöfn þeirra frambjóð-
enda sem þeir vilja hafa á listanum og síðan ræður fjöldi
atkvæða hvers og eins hvaða sæti hann tekur?
Ekki skal gert lítið úr prófkosningum almennt. Þær
eru lýðræðisleg aðferð ef rétt er staðið að þeim. En sann-
leikurinn er sá að færri og færri fást í slík prófkjörsfram-
boð og áhugi kjósenda fer þverrandi. Meðal annars vegna
þess að val þeirra er takmarkað af fyrir fram gerðum
pöntunarhsta. Svo ekki sé talað um kostnað sem hver
og einn frambjóðandi hefur af próf'jörsbaráttunni.
Um þessar mundir er aftur komin hreyfmg á breyting-
ar á kosningalögum og það er fagnaðarefni að ungt fólk
í öllum stjómmálaflokkum hefur sameinast um þá kröfu
að jafna atkvæðavægi. Ef menn meina eitthvað í alvöru
með að breyta kjördæmaskipan og kosningum, hvers
vegna þá ekki að athuga þá aðferð sem þekkist erlendis,
að sameina val á flokki og frambjóðendum í sjálfum þing-
kosningunum? Með öðrum orðum að raða frambjóðend-
unum ekki fyrir fram heldur láta það haldast í hendur
að kjósandinn krossi við flokkslista og raði síðan eftir
númeraröð þeim frambjóðendum á flokkslistanum sem
tilnefndir eru.
Þessi aðferð hefur marga kosti. Prófkosningar milli
einstakra frambjóðenda færast þá inn í sjálfar þingkosn-
ingamar. Allir kjósendur viðkomandi flokks standa þá
frammi fyrir að velja röð frambjóðenda. Krafturinn sem
venjulega skapast í kringum einstaka frambjóðendur í
prófkosningum nýtist flokknum og með því að kjósendur
þurfa hvort tveggja, að velja frambjóðendur og flokk, er
komið í veg fyrir smölun fólks í prófkosningum, sem síð-
an kýs jafnvel allt annan flokk þegar til sjálfra þingkosn-
inganna kemur.
Sömuleiðis er æskilegt að skipta landinu upp í ein-
menningskjördæmi þannig að kjósendur velji sér sína
þingmenn og standi þeim nærri, frekar en þær hstakosn-
ingar sem nú viðgangast og hafa það í för með sér, til
að mynda hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík, að efstu
menn þurfa lítið sem ekkert að hafa fyrir kosningu og
fjarlægjast af þeim sökum kjósendur og kjósendur þá.
Þá verða prófkosningar ekki nánast formsatriði eins og
reynslan og þróunin sýnist vera hjá reykvískum sjálf-
stæðismönnum. EUert B. Schram
„Hlutverk herstöðvarinnar í Keflavík mun úreldast á fáum árum, hvað sem allri óskhyggju liður,“ segir Gunn-
ar m.a. í greininni.
Vísindin ef la
alla dáð
Það er eðli fréttaskýrenda, eins
og annarra sem telja sig vinna á
„vísindalegan" hátt að uppfræðslu
almennings, að elta rófuna hver á
öðrum. Það sem þeir hafa á einn
eða annan hátt meðtekið sem hinn
eina rétta sannleika setja þeir á
prent sem sannleika og vitna hver
í annan - og ef almenningsálitið er
þeim hliðhollt er það viðurkennt
sem hið eina rétta.
Oftrú almennings á fréttaskýr-
endum, þeirra á meðal sjálfum
mér, ætti ekki að ganga of langt því
að viðfangsefnið er svo yfirgengi-
lega umfangsmikiö að enginn nær
yfirsýn, jafnvel þótt hann hafi, eins
og ég sjálfur, velt þessum hlutum
fyrir sér í hartnær 40 ár.
Þetta var auöveldara á tímum
kalda stríðsins, þegar heimurinn
skiptist í svart og hvítt og menn
tóku afstööu með eða á móti því
sem þeir töldu gott eða illt. - Nú
er allt breytt en ekki hafa allir átt-
að sig á því og halda í það gamla.
Jahn Otto
Jahn Otto Johansen, gamall vin-
ur minn og ferðafélagi um leynileg-
ustu hernaðar- og kjamorkustofn-
anir Bandaríkjanna fyrir 20 árum,
virðist fastur í gamla farinu.
Það minnir á það þegar sá mikh
hugsuður Aristóteles komst aö
þeirri niðurstöðu að konur hefðu
tveimur tönnum færra í munni en
karlmenn. Þetta var svo viður-
kenndur sannleikur í nær 2000 ár
að engum datt í hug að telja tenn-
urnar í kvenfólki fyrr en á 18. öld,
og jafnvel eftir það vom fræði Ar-
istótelesar viðurkenndur vísdómur
í kennslubókum í læknisfræði
Kjallarinn
Gunnar Eyþórsson
blaðamaður
fram á 20. öld.
Eitthvað svipaö virðist Jahn Otto
vera að hugsa þegar hann heldur
því óhikað fram að hemaðarmikil-
vægi íslands hafi aukist við hrun
Sovétríkjanna, þvert á allt sem lýt-
ur að þeirri hemaðarstrategíu sem
við þekkjum báðir. En Noregur á
landamæri að Rússlandi og Norð-
mönnum stendur skiljanlega
stuggur af Rússum. - Þar með er
ekki sagt aö þetta gildi um ísland.
Kafbátar
Jahn Otto gengur út frá því sem
vísu að Rússar stefni að hernaðar-
ítökum á Atlantshafi og hlutverk
íslands í kafbátaleit sé því óbreytt.
Það stenst einfaldlega ekki. Rússar
era landveldi, þeirra aðalóvinur er
Þýskaland og fiotaveldi þeirra
stendur á Kyrrahafi.
Frjálsar sighngar mihi Kúrileyja
og hlutleysi Japans eru mikiu
meira lífshagsmunamál fyrir
Rússa en nokkru sinni Kólaskagi.
Þær herstöðvar voru og eru vam-
arstöðvar. Kafbátarnir þar áttu að
vera nauðvöm því að eins og Jahn
Otto ætti að vita er öll hernaðar-
uppbygging Sovétríkjanna fyrrver-
andi fyrst og fremst vamarupp-
bygging, sprottin upp úr vanmeta-
kennd hvað Bandaríkin varðar.
Hlutverk herstöðvarinnar í
Keflavík mun úreldast á fáum
ámm, hvað sem aUri óskhyggju Uð-
ur. Vísindin efla að sönnu aUa dáð
en Aristóteles er ekki rétta fyrir-
myndin nú á tímum.
Gunnar Eyþórsson
„ Jahn Otto gengur út frá því sem vísu
að Rússar stefni að hernaðarítökum á
Atlantshafi og hlutverk íslands í kaf-
bátaleit sé því óbreytt. Það stenst ein-
faldlega ekki.“
Skoðanir annarra
ESB í umræðuna
„Auðvitað er ESB-máUð á dagskrá. Um það em
þingmenn Sjálfstæðisflokksins sammála - að for-
manninum undanskUdum. ... ESB-máUð er á dag-
skrá hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins, og gott bet-
ur: Nýleg skoðanakönnun Morgunpóstsins leiðir í
ljós, að meirihluti sjálfstæðismanna viU aðUd ísíands
að Evrópusambandinu. Flokksformaðurinn getur
ekki trakterað þetta fólk á því að máUð sé ekki tU
umræðu." Úr forystugrein Alþbl. 27. okt.
Menntakerfi í svelti
„íslendingar hafa dregið of lengi að koma sér upp
raunverulegri stefnu í menntamálum sem tengist
atvinnulífi þjóðarinnar og eðU þess.... Menntakerf-
ið hefur því bæði verið í fjár- og hugmyndasvelti og
umræöur um það fremur snúist um smáatriði en
stefnumótun..Kjör kennara em hér líka bágbor-
in og ekki er hægt að húast við því að bestu vísinda-
menn þjóðarinnar muni tíl eiUfðamóns vinna í hálf-
gerðri sjálfboðavinnu við Háskóla íslands og 'aðrar
menntastofnanir þegar þeim bjóðast betri kjör og
betri vinnuaðstaða í öðmm löndum.“
Úr forystugrein Viðskiptablaðsins 26. okt.
Vaxtastefnan
„Við verðum að gera okkur grein fyrir því að þeg-
ar markaðurinn opnast alveg gagnvart útlöndum er
í raun miklu minna sem Seðlabanki og ríkisstjóm
geta gert til að halda vöxtum lægri en þeir eru í
kringum okkur. Þetta verður einn markaður og verð-
bréfasjóðir hér auka eflaust viðskipti sín með erlend
verðbréf, meðal annars skammtímaverðbréf. Ég held
því að þetta fari í verulegum mæU úr okkar höndum,
nema helst vextir í bankakerfinu sem einstaklingar
verða að þola, þvi þeir eiga miklu óhægari aðgang
að erlendum lánum.“
Steingrimur Hermannsson seðlabankastj. í Mbl. 27.
okt.