Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1994, Qupperneq 24
32
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994
Sviðsljós
Veiðimaðurinn:
Konum veitt verðlaun
fyrir stærstu fiskana
Sigríður Guðmundsdóttir með lax-
inn úr Laxá í Aðaldal.
„Þetta er í annaö sinn sem viö veit-
um verðlaun fyrir stærsta laxinn og
silunginn sem kvenmenn veiða. En
þaö er besti fataframleiðandinn,
John Partridge," sagöi Paul O’Kefif í
versluninni Veiðimanninum í sam-
tali viö DV.
Þaö var Guðbjörg Jóna Magnús-
dóttir sem veiddi stærsta silunginn í
Veiöivötnum en Sigríður Guðmunds-
dóttir veiddi stærsta laxinn. Fiskur
Guðbjargar var 80 sentímetrar og
5500 grömm. En fiskur Sigríðar var
103 sentímetrar og 10.500 grömm.
Þetta var mjög vel vigtað eins og
þessar tölur gefa til kynna.
„Við ætlum að halda þessa keppni
á hverju ári hér eftir enda er þátttak-
an mjög góö og konur veiða oft vel
af fiskum," sagði Paul í lokin.
Guðbjörg Jóna Magnúsdóttir með urriðann úr Veiðivötnum .
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir:
Káisnesbraut 45, neðri hæð, þingl. eig. Hilmar Antonsson, gerðarbeiðend-
ur Búnaðarbanki íslands og Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna, 1. nóvember
1994 kl. 15.00.
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Uppboð
Framhald uppboðs á neðangreindri eign verður háð á henni sjálfri sem
hér segir Gilsbakki 1, Neskaupstað, þingl. eig. Finnbogi Birgisson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og
Lífeyrissjóður Austurlands, 31. október 1994 kl. 14.00.
SÝSLUMABURINN í NESKAUPSTAÐ
Kosningaskrifstofa
Katrínar Fjeldsted
læknis
Ingólfsstræti 5, 2. hæð
Opið virka daga 16-21 og 13-18
um helgar
Símar 22366, 22360 og 22144
Katrínu í eitt af efstu sætunum!
Aðaltölur:
LfTTi
Vinning miðviki istölur r
JOIUIUI jdaqinn: 26. október
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
D 6 af 6 0 49.370.000
9 0 1.735.675
0 5af 6 0 232.174
Q 4 af 6 177 2.086
5 647 245
Jlfluinningur er tvöfaldur næst
,35) (46) (47)
BÓNUSTÖLUR
@@(§)
Heildarupphæð þessa viku:
51.865.586
á ísi.: 2.495.586
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI 91- 6815 11
LUKKULlNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FVRIRVARA UM PRENTVILLUR
Sviðsmynd úr leikritinu Trúðar.
Trúðar - trega-
blandið skop
Fyrsta sýning leikársins í Nemendaleikhúsinu er
um margt óvenjuleg. Trúðar heitir hún og í kynningu
segir að ekki sé unnið með ákveðið handrit, heldur
sé svigrúm til að spila af fingrum fram og breyta ferli
sýningarinnar í hvert sinn. Engar tvær sýningar eiga
að vera eins!
Búningar eru líka mismunandi. Eitt kvöldið eru leik-
endurnir fimm með svartar grímur, annað kvöld í
skrautlegum búningum og svo geta þau verið eins og
á sýningunni, sem ég sá: Með hefðbundna andlitsmáln-
ingu trúðsins og eldrautt kúlunef. Svartur litur og
hvítur ríkja í búningunum í þeirri leikgerð og þungt
rautt flostjald myndar bakgrunn. Annað þarf ekki.
í leikskrá segir Mario Gonzalez leikstjóri eitthvað á
þá leið um hina ævafornu list trúðsins að hún snúist
um gleðina í harmleiknum og tregann í skopleiknum.
„Það er ekki hlutverk trúðs að koma okkur til að
hlæja, heldur að miðla okkur einhveiju og upplýsa
okkur og síðan - þótt það sé alls ekki ásetningur hans
- að koma okkur til að hlæja.
Hláturinn verður til þegar hlutimir ganga ekki upp
eins og hann hafði hugsað sér þá.“
Útskriftarnemar Leiklistarskóla íslands eru fimm
að þessu sinni, Bergur Þór Ingólfsson (Úlfar), Halldóra
Geirharðsdóttir (Barbara), Kjartan Guðjónsson (Moli),
Pálína Jónsdóttir (Magnea) og Sveinn Þórir Geirsson
(Búri). Hlutverkin eru öll svipuð að vægi en hver trúð-
ur fær sitt sérstaka yfirbragð eða karakter og spinnur
út frá því.
Þau koma ýmist fram öll saman (og taka þá gjarna
lagið) eða eitt og eitt í einu og fara þá með sinn eigin
texta, eða einhver „númer“, kannski ljóð eða þekkt
brot úr klassískum leikritum. Hver hreyfing er öguð
Austurrískt kvöld
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt fyrstu áskriftartón-
leika sína í rauðu röðinni í gærkvöld í Háskólabíói.
Þar heyrðust verk eftir höfunda sem allir eiga það
sameiginlegt að vera fæddir eða hafa starfað mestan-
part í Austurríki.
Fyrst hljómaði Sinfónía nr. 35, K. 385, eða hin svo-
kallaða „Haffner“-sinfónía Mozarts. Hljómsveitar-
stjórinn, Richard Bernas, sem er fæddur í Bandaríkj-
unum, en hefur nú starfað um árabil í Lundúnum,
stjómaði verkinu af röggsemi og nákvæmni og svar-
aði hljómsveitin honum vel.
Fiðlukonsertinn Formgerð II eftir Herbert H. Ágústs-
son var næstur á efnisskránni. Herbert er okkur 'að
góðu kunnur sem homleikari í SÍ og fyrir margvísleg
tónlistarstörf. Fiðlan mun hafa verið hans fyrsta hljóð-
færi og því hvati þess að hann skrifaði fyrir það kon-
sert. Nú em um það bil þrettán ár síðan Guðný Guð-
mundsdóttir frumflutti þennan konsert Herberts og
því fróðlegt að heyra hann á ný. Verkið er einþáttung-
ur, með langri kadensu og eftirspih, eða Coda. Fiðlu-
hlutverkið er mjög umfangsmikið og er verkið ailt
kunnáttusamlega skrifað. Guðný lék konsertinn af
krafti og innlifun og samstarf hennar og hljómsveitar-
stjórans virtist með ágætum.
Eftir hlé lék hljómsveitin - að sjálfsögðu verulega
stækkuð - Sinfóníu nr. 1 í D-dúr eftir Gustav Mahler.
Mahier samdi þetta mikla tónverk innan við þrítugt
og því ekki að undra að eftir nokkur vonbrigði með
frumflutninginn, gerði hann breytingar á verkinu og
stjórnaði því síðan sjálfur í breyttri mynd þremur
áram eftir frumflutninginn, árið 1892. Það er fremur
létt yfirbragð á þessu stóra verki enda sækir Mahler
Tónlist
Áskell Másson
m.a. efnivið sinn í Lándler og austurríska þjóðlaga-
hefð. Með hverjum þætti hafði hann sérstök kaflaheiti
sem áttu að vera lýsandi fyrir innihald þeirra, svipað
og hann gerði síðar í þriðju sinfóníu sinni en hann
fjarlægði þau þegar fram liðu stundir þar sem honum
fannst sem þau gætu vakið ranghugmyndir um verk-
ið. Hljómsveitin lék verkið í heild vel þótt nokkurrar
ónákvæmni gætti, einkum í þriðja þættinum. Slag
Richard Bernas er létt en ákveöið og tókst honum aö
hrífa hljómsveitina með sér í átökum lokaþáttarins
þannig að mikla hrifningu vakti.
Leiklist
Auður Eydal
og samhæfð textanum.
Tónlistarflutningur og söngatriði eru þrautþjálfuð
undir stjóm Ferenic Utassy og Jóns Ólafssonar. Mús-
íkin setti óneitanlega einkar skemmtilegan svip á upp-
færsluna og lyfti stemningunni.
Það sem helst ber þó til tiðinda í þessari sýningu er
innlifun leiklistarnemanna í hlutverk trúðsins, innlif-
un sem bendir til mikillar og vandaðrar grunnvinnu.
Það eru engin læti eða gassagangur í uppfærslunni,
hún er miklu fremur seigfljótandi og tileinkun leikend-
anna á aldagamalli hefð trúðleiksins er vel og nostur-
samlega útfærð.
Þessi hefð er okkur fjarlæg og skopskyn okkar er
eins og dæmin sanna gjarna á groddalegu nótunum.
Einmitt þess vegna er sérstakur fengur í því að fá jafn-
góða listamenn og hér hafa verið að verki til að ljúka
upp leyndarmálum hins sanna trúðleiks.
Vinnubrögðin við sýninguna eiga væntaniega eftir
að nýtast leiklistarnemunum vel og skila árangri í
leikhúsinu seinna meir.
Nemendaleikhúsið sýnir i Lindarbæ:
Trúðar
Leikstjóri: Mario Gonzalez
Aðstoðarleikstjórar: Olivier Antoine og Rafael Bianciotto
Tæknimaður og lýsing: Egill Ingibergsson
Hljóð: Rafael Bianciotto