Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1994, Page 25
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994
33
x>v_____________Afmæli
Valdís Skúladóttir
Valdís Skúladóttir húsmóðir, Ægis-
götu 39, Vogum, Vatnsleysustrand-
arhreppi, er fertug í dag.
Starfsferill
Valdís fæddist í Keflavík og ólst
þar upp. Hún fluttist síðan í Voga á
Vatnsleysuströnd og hefur stundað
þar verslunarstörf, unniö við leik-
skóla í Vogum og við ræstingu á
Keflavíkurflugvelli en verið heima-
vinnandi húsmóðir síðustu tvö árin.
Fjölskylda
Valdis giftist 22.9.1973 Pétri A.
Péturssyni, f. 20.12.1952, verkstjóra.
Hann er sonur Péturs G. Jónssonar
og Huldu Biering í Reykjavík.
Sonur Valdísar og Péturs eru
Andres Skúli Pétursson, f. 5.8.1971,
bílstjóri í Sandgerði, en sambýlis-
kona hans er Matthiidur Ólöf Guð-
mundsdóttir og sonur þeirra Árni
Steinar, f. 12.9.1992.
Hálfsystkini Valdísar, sammæðra,
eru Anna Skúladóttir, f. 18.10.1943,
d. 1.2.1991; Sigurjón, f. 12.9.1945,
bílstjóriíKeflavík.
Hálfsystir Valdísar, samfeðra, er
Sjöfn Skúladóttir, f. 2.9.1944, hús-
móðiríReykjavík.
Alsystkini Valdísar eru Ingólfur
Skúlason, f. 9.6.1949, sjómaður í
Bandaríkjunum; Guðrún Kristín
Valdís Skúladóttir.
Skúladóttir, f. 14.9.1951, húsmóðir í
Bandaríkjunum; Ólafur Th. Skúla-
son, f. 14.6.1953, sjómaður í Reykja-
vík; Eiríkur Skúlason, f. 7.2.1959,
verkamaður í Bandaríkjunum;
Rúnar Skúlason, f. 7.2.1959, d. 7.2.
1993; Kolbrún Skúladóttir, f. 21.9.
1960, húsmóöir.
Foreldrar Valdísar voru Skúli Vig-
fússon, f. 9.12.1907, d. 1.7.1982, bíl-
stjóri í Keflavík, og Inga Ingólfsdótt-
ir, f. 27.11.1925, d. 17.8.1983, hús-
móðir.
Valdís er að heiman á afmælisdag-
inn.
Stjórnmálafræðinemar
í heimsókn hjá DV
Um fjörutíu stjórnmálafræöinemar við HÍ heimsóttu DV á dögunum. Þar
var farið yfir sögu blaðsins og starfsemi. Þeir starfsmenn DV sem stjórn-
uðu fundinum voru Páll Stefánsson auglýsinga- og sölustjóri, Sigríður Sig-
urðardóttir markaðsfulltrúi og Jóhanna Jóhannsdóttir, deildarstjóri Síma-
torgs DV. Háskólanemarnir voru mjög áhugasamir og kom raunar á óvart
hve tölvuvædd vinnslan er á dagblaði sem DV. DV-mynd ÞÖK
Tilkyimingar
Hana-nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað
molakafB.
Félag eldri borgara
í Rvík og nágrenni
Félagsvist kl. 14 í dag og dansað til kl. 20
í kvöld i Risinu. Göngu-Hrólfar fara frá
Risinu kl. 10 laugardagsmorgun.
Leiðrétting við
kjallaragrein Krist-
jóns Kolbeins
í kjallaragrein Kristjóns Kolbeins,
Sjö milljón dagsláttur, miðvikudag-
inn 26. okt. urðu mistök í setningu
greinarinnar. - Réttur birtist því
kaflinn hér að neðan.
Sú fullyrðing að einn hnaus sé orð-,
inn að tuttugu og fimm hektara
breiðu er ekki alls kostar rétt, því
fimm árum síðar sáði Ragnar í
Skaftafelli úlfabaunum efst í brekku
inni í Morsárdal. Hvorki er ástæða
að gera veður út af baunagrasi og
eyrarrós sem lúta í lægra haldi fyrir
úlfabaununum né fyrr nefndri tutt-
ugu og fimm hektara breiðu. Mætti
að ósekju vera tuttugu og flmm þús-
und hektarar þótt löngum sé blá og
ættuð að vestan.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á morgun, laugardaginn 29.
október kl. 14, í Húnabúð, Skeifunni 17.
Verðlaun og veitingar.
Borgfirðingafélagið í Rvík
Spiluð verður félagsvist á morgun, laug-
ardaginn 29. október kl. 14 á Hallveigar-
stöðum. Allir velkomnir.
Breiðfirðingafélagið
Félagsvist verður spiluð sunnudaginn 30.
okt. kl. 14 í Breiðfirðingabúð, Faxafeni
14. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Átthagafélag Strandamanna
heldur árlegan haustfagnað félagsins í
Ártúni laugardaginn 29. okt. og hefst
hann kl. 22. tfljómsveit hússins leikur
fyrir dansi. Mætum öll og takið með ykk-
ur gesti.
Einkaklúbburinn
Einkaklúbbsfélagar eru boðnir sérstak-
lega velkomnir á afmælishátið Casa-
blanca í kvöld. í boði verða veitingar fyr-
ir klúbbfélaga frá 11-12. Frítt er inn gegn
framvísun skírteinis. Fréttabréf einka-
klúbbsins er komið út og eru þeir klúbb-
félagar sem ekki fá fréttabréfið af ein-
hverjum ástæðum á næstu dögum beðnir
að hafa samband í síma 22020.
Hrekkjalómavaka
verður haldin í upplýsinga- og menning-
armiðstöð nýbúa, Faxafeni 12, laugardag-
inn 29. okt. kl. 15-17. Börn á öllum aldri
velkomin. Munið að mæta í búningi.
Strengjanemendamót
í Keflavík
Helgina 28.-30. okt. munu 150 strengja-
nemendur og kennarar víða að af landinu
dvelja í Keflavík við æflngar. Tónlistar-
skólinn í Keflavík heldur strengjanem-
Leikhús
Leikfélag Akureyrar
HÁTÍÐ í LEIKHÚSINU
KARAMELLUKVÖRNIN
KVÖRNIN
Gamanleikur með söngvum fyrir
alla fjölskylduna!
Laugard. 29/10 kl. 14, uppselt. Laugard.
29/10 kl. 17. Fritt fyrir foreldra í fylgd
barna á þessar sýningar.
Laugardagur 5. nóv. kl. 14.
Fáarsýningareftir.
BAR PAR
Tveggja manna kabarettinn sem
sló i gegn á siðasta leikári!
Sýnt í Þorpinu, Höfðahlíð 1
60. sýning föstud. 28. okt. kl. 20.30.
Dregiö veröur úr seldum miöum á þessa
sýningu. Vinningur árskort i leikhúslö!
Laugard. 29. okt. kl. 20.30.
TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI
Sala aðgangskorta
stendur yfir!
Miðasala i Samkomuhúsinu er opin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Sími 24073. Símsvari tekur vió
miöapöntunum utan opnunartima.
Greiðslukortaþjónusta.
endamót sem er ætlað strengjanemend-
um sem lokið hafa 1. stigs prófi og eru
vel læsir á nótur. Strengjamótinu lýkur
sunnudaginn 30. okt. með tónleikum í
íþróttahúsinu við Sunnubraut og hefjast
þeir kl. 15. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Spiluð verður félagsvist í Gjábakka í dag
kl. 20.30. Húsið öllum opið.
Nordjunex ’94
Landssamband íslenskra frimerkjasafn-
ara hélt frímerkjasýninguna Nordjunex
’94 á Kjarvalsstöðum 16.-13. september
sl. Á myndinni er Gestur Hallgrímsson
með hluta af Póstgöngusafni sínu.
Hársnyrtistofan Brúskur
Ný hársnyrtistofa er tekin til starfa aö
Höfðabakka 1 við Guilinbrú. Eigandi
hársnyrtistofunnar er Bryndls Björk
Guðjónsdóttir og hárskeri er Unnur Guð-
rún Karlsdóttir. Opnunartilboð eru í
gangi núna: Herra- og dömuklipping kr.
1.190, körfuboltaklipping kr. 590, barna-
klipping kr. 900. A hársnyrtistofunni
Brúski eru eingöngu notaðar og seldar
hágæða Matrix snyrtivörur. Frábært fag-
fólk og góður andi.
Fundir
MG-félag íslands
boðar til fundar þann 29. október kl. 14 í
kafíisal ÖBÍ að Hátúni 10, Reykjavík.
Sagt frá norrænum fundi um MG í Finn-
landi, heimsókn til Masku þar sem MG
sjúklingum er boðið upp á endurhæfmgu.
MG-félag íslands er félag fólks með My-
asthenia Gravfs (vöðvaslensfár) sjúk-
dóminn.
ÞJÓDLEIKHÚSID
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
SNÆDROTTNINGIN
eftir Evgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen
Sud. 30/10 kl. 14.00,3. sýn. sud. 6/11
kl. 14.00.
VALDÖRLAGANNA
ettir Giuseppe Verdi
Föd. 25/11, uppselt, sud. 27/11, uppselt.
Þrd. 29/11, nokkur sæti laus, föd. 2/12,
uppselt, sud. 4/12, nokkur sæti laus, þrd.
6/12, laus sæti, fid. 8/12, nokkur sæti laus,
Id. 10/12, örfá sæti laus.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Fid. 3/11, uppselt, föd. 4/11, fid. 10/11,
uppselt, Id. 12/11, fid. 17/11, uppselt, föd.
18/11, fid. 24/11, uppselt.
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
I kvöld, nokkur sæti laus, á morgun, Id.
5/11,föd. 11/11.
Litla sviðiðkl. 20.30.
DÓTTIR LÚSÍFERS
eftir William Luce
í kvöld, uppselt, á morgun, fid. 3/11,
örfá sæti laus, Id. 5/11.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00
SANNAR SÖGUR AF
SÁLARLÍFISYSTRA
eftir Guðberg Bergsson i leikgerð
Viðars Eggertssonar
i kvöld, uppselt, Id. 29/10, Id. 5/11, sud.
6/11.
Miðasala Þjóðleikhússlns er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og
fram að sýningu sýningardaga. Tekið á
móti simapöntunum alla virka daga frá
kl. 10.00.
Græna linan 99 61 60. Bréfsími 61 12 00.
Sími 1 12 00 - Greiðslukortaþjónusta.
Tryggjum atvinnu
-verslum heima
Formleg kynning átaksins „Tryggjum
atvinnu - verslum heima" verður í Geys-
ishúsinu, Vesturgötu 1, í dag, fostudaginn
28. október stundvíslega kl. 13. Að átak-
inu stendur breiðfylking félaga og fyrir-
tækja í verslun um land allt og er því
ætlað að vekja athygli á gildi verslunar
í atvinnu-ogverðmætasköpun. Forsætis-
ráðherra, Davíð Oddsson, mun ávarpa
fundinn.
Tapad-fundið
Ung læða í óskilum
Læðan er grá á feldinn meö hvítar hos-
ur, hvíta bringu og hvita skelli á efri
vör. Læðan fannst á Markarvegi 1,
Reykjavík og er mjög gæf og bllð. Greini-
legt far sést á hennl eftir hálsól. Ef ein-
hver kannast við læðuna getur hann vitj-
að hennar í síma 680058.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litlasviðkl. 20.00
ÓSKIN (G ALDR A-LOFTU R)
eftir Jóhann Sigurjónsson
í kvöld, föstud. 28. okt.
Á morgun, laugard. 29. okt.
Fimmtud. 3. nóv., uppselt.
Föstud. 4. nóv., örfá sæti laus.
Laugard. 5. nóv.
40. sýn. fimmtud. 10. nóv., örfá sæti laus.
Föstud. 11. nóv.
Laugard. 12. nóv.
Föstud. 18. nóv.
Stóra svið kl. 20.
LEYNIMELUR13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil
Thoroddsen og Indriða Waage.
Föstud. 28/10, fáein sæti laus, laugard.
29/10, uppselt, flmmtud. 3/11, laugard. 5/11,
laugard. 12/11.
Stóra svið kl. 20.
HVAÐ UM LEONARDO?
eftir Evald Flisar.
5. sýn. sunnud. 30/10, gul kort gllda, fáein
sæti laus, 6. sýn. föstud. 4/11, græn kort
gilda, örfá sæti laus, 7. sýning sunnud. 6/11,
hvit kort gilda, fáein sæti laus, 8. sýn.
fimmtud. 10/11, brún kort gilda.
Miðasala er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-20.00. Miða-
pantanir í sima 680680 alla virka daga
frá kl. 10-12.
Munið gjafakortin, vinsæl
tækifærisgjöf.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
NEMENDALEIKHÚSIÐ
LINDARBÆ-SÍMI21971
TRÚÐAR
3. sýn.íkvöldkl. 20.30.
4. sýn. laug. 29/10 kl. 20.30.
5. sýn. sun. 30/10 kl. 20.30.
Takmarkaður sýningafjöldi!
Mlðapantanir allan sólarhringlnn.
Cartier kvenmannsúr
tapaðist þriðjudaginn 25. okt. fyrir utan
Gullsól, Stórhöfða 15. Finnandi vinsam-
legast hafl samband í síma 91-33940.
Fundarlaunum heitið.
Casio tölvuúr
tapaðist milli Lækjargötu og Freyjugötu.
Drengurinn sem tapaði úrinu fékk það i
fermingargjöf frá langafa og langömmu
sinni og hefur úrið mikið tilfmningalegt
gildi fyrir hann. Úrið er með innbyggöu
símanúmeraminni og er úr stáli.
Finnandi vinsamlegast hafi samband í
síma 627728.
Tónleikar
Tónlistarskólinn í Keflavík
í dag stendur Tónlistarskólinn í Keflavík
fyrir tónleikum í Keflavíkurkirkju og
hefjast þeir kl. 21. Á tónleikunum flytja
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari,
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og
Steinunn Bima Ragnarsdóttir píanóleik-
ari styttri verk eftir ýmsa höfimda. Að-
gangseyrir er kr. 300 en nemendur tón-
listarskólanna fá ókeypis aðgang.
ÍSLAND h.f.
KYNNA
BEINT FRA
RONNIE SCOTT S
CLUB I LONDON:
JflZZVRKNING
GOÐSOGN I JAZZHEIMINUM
Bandarískur gítarsnillingur sem hefur þróað
sinn sérstæða stii
- ólikan öllu þvi sem þú hefur heyrt hingað til
Ótrúleg „tapping techique“ hans
mun svo sannarlega koma þér á óvart
Tónlistarunnendur látið ekki þennan framhjá
ykkur fara
Staður: Háskólabíó
Tími: Þriðjudagurinn
1. nóvember kl. 20:30
Miðaverð: 2.250
Miðasala í Háskólabíó. Sími 2 21 40
TIL STYRKTAR U\1SJ(!XS/\IU ÉLAti
ElNHVliKl'RA