Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Blaðsíða 1
7. NÓVEMBER 1994
IÞROTTIR
Getraunir:
Enski boltinn:
x12-x11-1x1-x12x
ítalski boltinn:
x1x-111-1 xx-1211
Lottó 5/38:
11 14152325(38)
Trelleborg
ogAIK
vilja fá
Lárus Orra
Eins og DV skýrði frá fyrir
helgina hafa tvö sænsk úrvals-
deildarfélög rætt við Lárus Orra
Sigurðsson, knattspymumann
frá Akureyri, og boðið honum út
til að líta aö aðstæður. Þetta era
AIK og Trelleborg og staðfesti
Lárus Orri þetta í samtali við DV
i gærkvöldi. Lárus Orri hefur
sanmingstilboð upp á vasann frá
Stoke City en þar var hann við
æfingar í 3 vikur og kom heim
fyrir helgina.
„Ég mun sennilega heyra í
forráðamönnum Stoke á morgun
(í kvöld) og þá ætti að skýrast
hvort af því verði að ég fari til
félagsins. Ég mun ekki taka
ákvörðun um það hvort ég fari
og skoði aðstæður hjá þessum
félögum í Svíþjóð fyrr en
niðurstaða liggur fyrir hjá
Stoke,“ sagði Lárus.
Þjálfari
Boch-
um hættur
Júrgen Gelsdorf sagði í gær af
sér sem þjálfari þýska knatt-
spymufélagsins Bochum, en
Þórður Guðjónsson leikur með
Bochum sem kunnugt er. Gels-
dorf tók við Bochum fyrir tveim-
ur árum og leiddi lffiið upp í
úrvalsdeildina í fyrravetur, en
síðan hefur ekkert gengið og
Bochum er næstneðst í deildinni.
„Ég vil ekki standa í vegi fyrir
framforum hjá félaginu," sagði
Gelsdorf eftir afsögnina.
Þórður Guðjónsson skoraði
mark Bochum í enn einum tap-
leiknum á laugardaginn, eins og
sagt er nánar frá á bls. 26.
Villtist en
vann þó
German Silva frá Mexíkó kom
fyrstur í mark í New York mara-
þoninu sem haldið var í 25.
skipti í gær. Hann villtist á
leiðinni og varð að hlaupa uppi
sinn skæðasta keppinaut, landa
sinn Benjamin Paredes, fyrir
vikið, og það tókst. Hann er
þriðji Mexíkaninn á fjórum ámm
sem vinnur hlaupið. Tecla
Loroupe frá Kenýa kom fyrst
kvenna í mark.
sjá allt um Alþjóöa Reykjavikumiotiö á bls. 28, 29 og 30
í beinu sambandi
allan sólarhringinn
D
A
m99*56*70**
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verö fyrir alla landsmenn.
Svarþjónusta DV leiðir þig áfram
Þú hringir í síma 99-56-70 og velur eftirfarandi:
'1 til þess að svara auglýsingu
% \ til þess að hlusta á svar auglýsandans
(ath.! á eingöngu við um atvinnuauglýsingar)
ef þú ert auglýsandi og vilt ná í svör
eða tala inn á skilaboðahólfið þitt
sýnishorn af svari
til þess að fara til baka, áfram
eða hætta aðgerð