Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1994, Blaðsíða 4
f
24
*
l t@nlist
V'
FIMMTUDAGUR 15. DESEMMBER 1994
Ahrif, Barnagaman og Þel
- Hörður Torfa með þrefalda útgáfu á árinu
Eftir tuttugu og fimm ára flakk um heiminn er Hörður Torfason trúbador loks sestur að á íslandi.
Eftir tuttugu og fímm ára flakk um
heiminn er Hörður Torfason
trúbador með meiru loks sestur að á
íslandi. Á ferli sínum sem tón-
listamaður hefur Hörður gefið út 13
plötur og ef miðað er við útgáfu þessa
árs er hann langt frá því að vera
hættur. Árið 1994 gefur hann
nefnilega út tvær breiðskífur og eina
snældu.
Ferilplata og
barnasnælda
Fyrsta skal telja ferilplötu Harðar
sem ber nafnið Þel. Á henni er að
fmna 17 lögaf ferlinum, alltfrá byrjun
til þessa dags.
Platan kom út í byrjun sumars og
er ætlað að vera þeim til yndisauka
sem ekki geta nálgast útgáfuna í
gamla forminu. Næsta skal telja
bamasnældu Harðar sem kemur út
fyrir þessi jóL Lögin eru áð mestu
unnin upp úr 22 ára ferli hans sem
leikstjóra, en á þeim tíma hefur hann
leikstýrt 39 verkefnum sem mörg
hver tengdust bömum náið.
í fyrsta skipti á ferlinum fékk
Hörður til liðs við sig mann tO að
útsetja lögin' sín, en til þessa hefur
hann séð um allt slikt einn og
óstuddur. Fýrir valinu varð Hlynur
Sölvi Jakobsson. Snældan, sem ber
nafnið Bamagaman, er að mestu leyti
unnin á tölvur auk þess sem
kassagitarinn leikur stórt hlutverk
eins og við var að búast. Hörður segip
snælduformið hafa verið valið eftir'
mikla markaðskönnun enda upp-
áhaldsform bamanna.
Ahrif
Þriðja og síðasta útgáfa ársins ber
nafnið Áhrif. Á plötunni er að finna
lög frá ýmsum tímabilum í lífi
Harðar. Elsta lagið á rætur sínar að
rekja til Washington D.C. árið 1973 en
það yngsta var samið í
Kaupmannahöfn í sumar. Eins og
áður segir notar Hörður útsetjara í
fyrsta skipti á þessu ári og að þessu
sinni er það Jens Hansson
saxófónleikari sem var fenginn til
verksins.
Aðstoðarhljóðfæraleikarar á
plötunni eru: Björgvin Gíslason á
gítar, Georg Baldursson á bassa,
Baldvin Sigurðsson á bassa, Dan
Cassidy á fiðlu og Jens Hansson
spilar á saxófón. Hörður spilar sjálfur
á gítar og sér um söng og bakraddir
ásamt Steingerði Sigþórsdóttur,
Áma Kristjánssyni, Guðmundi Karli
Friðjónssyni, Höllu Gísladóttur,
Rósulind Gísladóttur og Þórhildi
Tómasdóttur sem skipa kór
plötunnar.
Hörður segir plötuna sameina
áhrif frá ýmsum öflum hérlendis og
erlendis, innan frá og utan. Þama er
að finna alls konar tónlist, tangó,
salsa, kántrí, grísk áhrif, gospel og
þjóðlegt ívaf. Hörður segir plötima
jafnvel geta heitið áreitni, sprottið út
frá þeim hlutum sem fá mann til að
hugsa. i
Útgáfutónleikar
Til að fagna útgáfu Áhrifa verða
haldnir útgáfutónleikar í Þjóð-
leikhúsinu sunnudaginn 18.
desember næstkomandi.
Tónleikarnir hefjast klukkan
ellefu og því ættu flestir að sjá sér
fært að koma eftir erilsaman jóla-
undirbúning þennan fjórða sunnu-
dag í aðventu. Hörður mun hins
vegar halda ótrauður áfram að spila,
syngja, leikstýra og gefa út á íslandi
nú þegar heimilisfangið er orðið
reykvískt.
-GBG
:pl •Xugagnrýni
► f 4
Ýmsir- Minningar3
Minn-
ingar
sem ylja
Á Minningum 3 halda þau ágætu
hjón, Pétur Hjaltested og María
Björk, áfram að klæða innlend og
erlend lög i nýjan búning með aðstoð
valinkunnra hstamanna. Að þesu
sinni fá líka tvö ný lög, sem ekki hafa
komið út á plötu áður, að fljóta með.
Stemningin er hugljúf og angurvær
mestanpart, stundum kannski allt að
því væmin en línan þar á milli getur
verið hárfín og auðvelt að stíga út af
henni. Meginkostur þessarar
Minningaplötu, eins og þeirrar fyrri,
er hversu vel er vandað til verka;
útsetningar, söngur og
hljóðfáeraleikur; allt er þetta fyrsta
flokks og traustvekjandi. Söngurinn
leikur aðalhlutverkið og þar er hvergi
misfellu að finna enda
úrvalssöngvarar í öllum hlutverkum.
Þau sem mest mæðir á eru María
Björk, sem syngur fimm lög, Guðrún
Gunnarsdóttir, sem syngur þrjú, og
þau Ema Gunnarsdóttir og Egill
Ólafsson sem syngja tvö lög hvort. Þá
syngja þeir Björgvin Halldórsson og
Eyjólfur Kristjánsson sitt lagið hvor.
Vissulega tekst misvel að
endurgera þær perlur sem teknar eru
fyrir á þessari plötu en einna best
finnst mér hafa tekist til í gamla
Engelbert Humperdinck laginu, She
Wear’s My Ring, sem heitir
einfaldlega Hún hring minn ber í
íslenskri þýðingu og Björgvin
Halldórsson syngur af alkunnri
snilld. Þá er einnig vert að minnast á
lög eins og Sem lindin tær, sem
Guðrún Gunnarsdóttir syngur,
Brúnaljósin brúnu, sem María Björk
syngur, og Draumalandið sem Egill
Olafsson syngur. Ekki skemmir svo
að hafa þjóðhátfðarlag Valgeirs
Skagfjörös frá í sumar með í lokin;
Þetta fagra land, fallegt lag í ekta
þjóðhátíðardúr.
Sigurður Þór Salvarsson
Olga Guórún - Babbidí bú:
Fyrir þau
yngstu
Ryksugan á fullu.ö.ö.söng Olga
Guðrún Amadóttir meðal annars á
plötu sinni Eniga meniga árið 1976 en
sú bamaplata verður að teljast með
þeim bestu sem gefnar hafa verið út í
þessum flokki hér á landi. Lögin vora
einfóld og auðlærð og textar Olafs
Hauks Símonarsonar hnyttnir og
skemmtilegir. Platan seldist í
risaupplagi og lög af henni hafa verið
í uppáhaldi bama síðan og nýjar
kynslóðir bama hafa ekki síður
hrifist en þær fyrri. Olga Guðrún
fylgdi Eninga meniga eftir með
Kvöldfféttum ári síðar en þar var
stílað inn á fullorðna með póltískum
textum eftir Ólaf Hauk og er sú plata
öllum gleymd í dag. Síðan ekki
söguna meir fyrr en nú að Olga
Guðrún sendir frá sér nýja
bamaplötu og era sjálfsagt margir á
því að löngu sé timi komin á slíkt.
Babbidí-bú inniheldur íjórtán lög
sem öll em samin af Olgu Guðrúnu
og eru textar einnig eftir hana. Og
þar sem í rauninni verður að bera
plötuna saman við Eniga meniga er
samanburðurinn ekki Babbidí-bú í
hag. Sá ferskleiki sem einkenndi
fyrmefiidu plötuna er ekki fyrir
hendi hér en margt er þó ágætlega
gert, lög og textar em misgóðir, sumt
er eins og bamalög gerast best en
annað ekki. Eins og gefúr að skilja
henta lög misjafnlega fyrir böm til að
syngja. Tíminn verður að skera úr
um hvort auölærð lög eins og
titillagið Babbidíbú og Geggjaði
haninn eiga eftir að festast með
bömum en þessi tvö lög era fúll af
skemmtilegheitum sem böm kunna
að meta. Svo era það falleg lög eins
og Myndin hennar Lísu sem frekar
verða sungin fyrir bömin.
Flutningur og útsetningar era
yfirleitt nokkuð góðar, einfaldleikinn
í fyrirrúmi, og rödd Olgu Guðrúnar
jafii góð og áður og hentar lögum á
borð við þau sem era á Babbidi-bú
sérlega vel. Það sem helst er að þegar
á heildina er litið er að það vantar
einhver lög sem geta borið uppi plötu
sem þessa.
Hilmar Karlsson
Birthmark Unfinished Novels
★★★
Fágað
og fín-
pússað
Ef einhver plata kemur á óvart á
þessari jólavertíð hlýtur þaö að vera
plata Birthmark, Unfinished Novels.
Innihaldið er afskaplega ólikt öðra
efni sem í boði er á markaðnum og
greinilegt að þeir sem að Birthmark
standa era tónlistarmenn af hugsjón
sem láta markaðslögmálin ekki trufla
sig. Þeir era alþjóðahyggjumenn, eins
og svo margir aðrir íslenskir
tónlistarmenn reyndar, og syngja á
ensku en ljóst að þeirra draumur
snýst ekki um frægð og frama á
vinsældalistum. Þótt Birthmark sé ný
hljómsveit og Unfinished Novels era
hér engir nýgræðingar á ferð. Öðra
nær. Liðsmenn Birthmark, þeir
Svanur Kristbergsson og Vaígeir
Sigurösson, hafa starfað saman í ein
fimm ár undir nafninu The Orange
Empire en lítið fyrir þeim farið. Nú
koma þeir fram, fullskapaðir svo að
segja og greinilegt að efni plötunnar
hefúr verið lengi í vinnslu og gerjun.
Tónlistin getur flokkast undir það
sem eitt sinn var kallað
gáfumannapopp, melódisk tónlist með
mjúkri áferö, hægum tónum og litlum
sveiflum. Margt af því sem
Birthmark gerir minnir á Prefab
Sprout og hljómsveitir í þeim dúr
sem þekktar era fyrir afskaplega
vandað og fágað popp.
Og hér er heldur betur vandað til
verka, hvert smáatriði er úthugsað,
augljóslega legið yfir útsetningum lon
og don, allt fágað og fmpússað þar til
verkið var fúllkomnað að mati
höfúndanna. Spumingin er hvort
ekki hafi verið legið einum of lengi
yfir efiiinu, það jaðrar við að vera
sterílt af allri fáguninni. Fyrir vikið
verður platan svolítið eintóna og
lögin keimlík sum hver. Það hefði
þurft að brjóta mynstrið örlítið upp
til að lyfta plötunni upp úr lágfluginu.
Heildarmyndin er samt sterk plata
þar sem við bætist að hljóðfæraleikur
er til þvílíkrar fýrirmyndar að leitun
er að öðra eins. Þar fara þeir Valgeir
Sigurðsson og Svanur Kristbergsson
fremstir í flokki en með þeim er
einvalalið og má þar nefha menn eins
og Birgi Bragason bassaleikara, Einar
Scheving trommuleikara, Óskar
Guðjónsson saxófónleikara, Kjartan
Valdemarsson píanóleikara, Guðna
Franzson klarinettuleikara og Auði
Hafsteinsdóttur fiðluleikara. Þá er
umslag plöhmnar til hreinnar
fyrirmyndar og með því allra besta
sem sést hefur hérlendis.
Sigurður Þór Salvarsson
4