Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995
Sögur af nýyrðum_
Skor
Á sjöunda áratugnum átti ég
nokkurn þátt í stjórnsýslu Háskól-
ans. Tvívegis sat ég í háskólaráði
og átti auk þess sæti í ýmsum
nefndum, þ.á m. í svokallaðri há-
skólanefnd, sem ætlað var að spá
fyrir um þróun Háskólans og
marka honum stefnu. Ármann
Snævarr var þá háskólarektor, og
áttum við mikla og góða samvinnu.
Ég man ekki, hvort það var á
árunum 1965-1967, en þá sat ég í
háskólaráði, eða þegar ég starfaði
í háskólanefnd á árunum 1966-
1969, aö fram kom tillaga um að
skipta sumum háskóladeiidum í
smærri einingar, sem miðaðar
voru við námsefni. Þessi tillaga átti
sér erlenda fyrirmynd. í Svíþjóð er
háskóladeildum skipt í sektioner,
og í Bandaríkjunum samsvarar
department miklu fremur „sekti-
f on“ en deild. Sumir töldu hagræði
að þessari breytingu.
Mig minnir, aö tillagan um þessa
breytingu kæmi fyrr fyrir í há-
skólaráði en Háskólanefnd. Menn
voru í vandræðum með, hvernig
skyldi þýða sænska orðið „sekti-
on“ í þessari merkingu. Þess var
óskað, aö ég gæfi þessu nýja fyrir-
bæri nafn. Ég var kunnur þessu
fyrirkomulagi úr Svíþjóö. Það gerði
mér auðveldara að leysa þetta
vandamál. Mér var auðvitað kunn-
ugt um, að sænska orðið sektion
var latneskt að uppruna, leitt af
latnesku sögninni secare, sem
merkir „skera“ og skylt orðunum
sigð og sögí íslensku. Mér datt því
fljótt í hug, að reynandi væri að
fmna eitthvert orð af sömu rót og
sögnin skera. Ég staðnæmdist við
orðið skor. Þetta er gamalt orð,
kemur fyrir þegar í fomritum í
merkingunum „rifa“, „kletta-
skora“ og „fjögur hundruð af ein-
hverju“. Á síðari öldum hefir orðið
fremur verið haft um „tuttugu af
einhverju". Auk þess er til örnefnið
Skor. Ég skal játa, að það er alltaf
álitamál að taka gömul orð og
breyta merkingu þeirra. En þegar
orð eru óvirk eða því sem næst
óvirk í málinu, tel ég þetta réttlæt-
anlegt. Þessu er svo háttað um orð-
ið skor.
Á þessa tillögu mína, að þýða
Umsjón
Halldór Halldórsson
sænska orðið sektion með skor í
framangreindri merkingu, var fall-
ist, og ný þykir engum óviðeigandi
að tala um skor í Háskólanum.
Ármann Snævarr staðfesti í sam-
tali viö mig ekki alls fyrir löngu,
að ég hefði átt hugmyndina að orð-
inu skor í merkingunni „sektion".
Ég veit ekki nákvæmlega, hve-
nær orðið skor komst inn í
orðabækur í þessari merkingu.
Eðlilega er það ekki að finna í orða-
bókunum frá 1963 (Blöndalsviðbæti
og Orðabók Menningarsjóðs). Hins
vegar er sektion þýtt skorí Sænsk-
íslensku orðabókinni frá 1982. Þá
er vitaskuld greint frá þessari
merkingu í útgáfunni af Orðabók
Menningarsjóðs frá 1983. Þá má
geta þess, að department er þýtt
„skor“ í Ensk-íslensku orðabókinni
frá 1984.
V ar narliðið / Stjórnunarstarf
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða skrif-
stofustjóra í bifreiðaþjónustudeild Stofnunar verklegra
framkvæmda.
Umsækjendur hafi reynslu af stjórnunarstörfum og
fjárhagsáætlanagerð ásamt innsýn í almenna viðhalds-
og viðgerðarþjónustu. Um er að ræða yfirgripsmikið
starf sem krefst skjótrar aðlögunar og ákvarðanatöku.
Kunnátta í meðferð smátölva nauðsynleg. Mjög góðr-
ar enskukunnáttu krafist.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar Varnarmálaskrif-
stofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími 92-11973,
eigi síðar en 16. janúar 1995.
Starfslýsing liggur þar frammi til aflestrar fyrir umsækj-
endur og er þeim bent á að lesa hana áður en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama stað.
Raðhús að Aflagranda,
rúmlega tilbúið unair tréverk.
Ibúáarhœft. Þrjðrhceðir.
Verð: 13,7 millj.
Nánarí upplýsingar veitir
Húsvangur
í síma 621717
Krossgáta
'arPdsT
tr'eð
Bolrd/
'fí
Ib
SfímsT.
£RÐ
STFFU
UR
turruR
SRJO
ÍÖUSfíR
II
R-
roTu/n
/3
BRfíUR
fíV
n
~n>
~íh
~Í5
~Íb
~7
~1
~Í9
~2i
~Tl
~Jh
11
B>oK
BRURfí
LE/FfíR
VÓ'KVfí
HftGUR
V/T-
/.eysu
piomp
fíR
FfíLL-
egur
9HUS5/
/V
G/ERfíH
R/FDfíN
áliEWÞ
UR
mÆL/
Z5
5 /GftR
UTRT-
fítJfíP-
RHÐ-
VftRP
m/R/L
’fí/J
L'/FS
SKj’óG-
Rfl
/7
f/JD.
H/5K
fuúum
ST/JGjfí
7 Sj'o
HEF'/ <-
t/yáGjU
F/jD
um-
STA//G
‘jtlftfft
ÖUGL
fíR
-V
KO/Jfí
RL>SS)!
/5
/flftRK
leysft
/9
OL/rtfí
ÍREY/c
Ty/Jfí
mfíL/n-
HÚ7) -
fípfífí
L'fíTfí
/L L.A
2H
HJftRfí
wmrfl
V/ÐR/
fíuDuSft
KfíBtS/
BORD/ <r ■
SKKL
/JflGLfí
KLfíGfí
BRftK
/%
KVEJf/
UPPHR.
/b
26
-Cl o: 0 rð ui Ri & VÖ u: vb öc. N -
X . X vb X
OQ -Nl <3: 9: -u: x s: X W X X X
'Al <3: $ X u: 9: X Ví> u: CQ
> << 'A h h hi vb >> <3: 9: ■vl k 9: X
K •'O > 9: vb X '•M s
• > x u: -sl & k Vb •Q> h <t: • > 9:
UJ -X fö $ > ■xl X . kb
> X vö s: << 0) W s: sS X
X - h h h * Cb S V X X
q: X v) *s. 9: . C) > • > V
* •st: s s: - * $ vr> > O
• V) X •