Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995
11
Dökkklæddi drengurinn á myndinni er John Zimsen sem fæddist 1909.
Myndin er sennilega frá árinu 1917.
Bréf frá danskri konu:
Leitar ættingja
sinna á f slandi
DV hefur borist bréf frá fullorð-
inni danskri konu, Rikke Pauli,
sem leitar ættingja sinna á íslandi.
Rikke sendi meðfylgjandi mynd
sem hún segir minna sig á heim-
sókn frá íslandi þegar hún var ung.
í bréfinu segir Rikke að systurnar
Louise og Laura Zimsen frá
Reykjavík hafi komið til dvalar í
Danmörku. Louise bjó hjá apótek-
ara í Hobro og Laura hjá fjölskyld-
unni Hoppe í Árósum. Síðan hafi
Christiane Zimsen komið til Dan-
merkur og gifst inn í Monsted-fjöl-
skylduna.
Rikke segir jafnframt frá því að
tveir ungir menn hafi komið til
Danmerkur 1939 og búið hjá foreld-
rum hennar. Það voru bræðurnir
Skjöldur og Guðbrandur Hlíðar.
Skjöldur var í tónlistarnámi en
Guðbrandur nam dýralæknis-
fræði.
Rikke telur aö myndin sé frá ár-
inu 1917 eða þar um bil. Dökk-
klæddi drengurinn, sem er með
slaufu, er John Zimsen sem fæddist
árið 1909.
Að sögn Rikke bar faðir hennar
fyrst eftirnafnið Achton en tók síð-
ar nafnið Monsted. Heimilisfang
Rikke Pauli er:
Enehaven 34
8300 ODDER
Danmörku
Vísitala
j ö fnunarhlutabré fa
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um
tekju- og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar
verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1995 og
er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100.
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1980vísitala 156
1981 vísitala 247
1982 vísitala 351
1983vísitala 557
1984vísitala 953
1985 vísitala 1.109
1986 vísitala 1.527
1987 vísitala 1.761
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1988 vísitala 2.192
1989 vísitala 2.629
1990 vísitala 3.277
1991 vísitala 3.586
1992 vísitala 3.835
1993 vísitala 3.894
1994 vísitala 4.106
1995 vísitala 4.130
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1.
janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða
innborgunar hlutafjár effir þann tíma, en hins vegar skal miða við
vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
'
■■
■ .
• MBmmi
■
'
: ' ■
ÍBF ái 9 A
-hJt-
Suðurlandsbraut 16 - Sími 880500
, J> v- ■'
k&ardag
. -
í.' sV ' ;