Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995
íþróttir
Knattspyma:
Valsmenn
kæra KR-iga
Valsmenn hafa kært leik sinn
viö KR í Reykjavíkurmótinu í
innanhússknattspymu vegna
þess aö KR-ingar notuðu Steinar
Adolfsson sem ekki var orðinn
löglegur.
Þar meö er ljóst að leika þarf
úrslitaleik mótsins upp nýtt og í
honum spila Valsmenn annaö-
hvort viö Fylki eöa KR sem mætt-
ust í úrslitaleik mótsins í fyrra-
kvöld.
Gleymska KR-inga
KR-ingar gleymdu aö ganga frá
félagaskiptum Steinars í tæka tíö
þannig aö hann var ekki löglegur
í þremur fyrstu leikjum mótsins,
gegn ÍR, Víkingi og Val. Þau voru
hins vegar frágengin fyrir loka-
leikina á mánudaginn.
Sterkur Bandaríkj amaður í liði Isfirðinga:
„Njósnarar11 úrvalsdeild
arliða sýna Gibson áhuga
Eins og sagt var frá í DV í gær leika
geysilega snjallir Bandaríkjamenn
meö liöum Selfoss og Þór úr Þorláks-
höfn í 1. deildinni í körfuknattleik,
þeir Leon Purdue og Champ Wrenc-
her. Þeir eru þó ekki einir um að
halda uppi fjörinu í 1. deild því þar
leikur einn öflugur landi þeirra til
viöbótar, Sean Gibson, sem er leik-
maður og þjálfari lijá KFÍ á ísafirði.
Gihson, sem er 23 ára gamall og 2
metrar á hæö, kemur frá Indiana.
Hann hefur skorað um 40 stig og tek-
iö um 20 fráköst aö meðaltali í leik í
1. deildinni í vetur og auk þess er
vítahittni hans vel yfir 90 prósentum.
Hann skoraði 51 stig á Sauðárkróki
þegar KFÍ veitti þar úrvalsdeildarliði
Tindastóls harða keppni í bikarleik
í vetur. Ljóst er aö úrvalsdeildarliðin
renna ekki síður hýru auga til hans
en til þeirra Purdues og Wrenchers.
„Viö vorum mjög heppnir aö fá
Gibson í fyrravor. Við vorum í úr-
slitakeppninni í 2. deild og ákváðum
að fá bandarískan leikmann í tvær
vikur til aö gulltryggja okkur upp.
Gibson kom og lék frábærlega og við
fengum hann til aö koma aftur í júli
og vera með okkur í vetur,“ sagði
Guöjón Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KFÍ, viö DV í gær.
„ Aðeins Burns og
Rondey eru betri“
„Að mínu mati er Gibson þriöji besti
útlendingurinn í íslenska körfubolt-
anum í dag. Aöeins Lenear Burns
hjá Keílavik og Rondey Robinson hjá
Njarövík eru betri en þó hefur Gib-
son skorað 38 stig í leik gegn Bums
og Keflavík í vetur,“ sagöi Guöjón.
„Njósnarar" frá úrvalsdeildarlið-
unum hafa mætt á leiki KFÍ á höfuö-
borgarsvæðinu aö undanfömu til aö
fylgjast með Gibson. „Eitt liö úr úr-
valsdeildinni hefur reynt grimmt aö
fá Gibson til aö skrifa undir strax
fyrir næsta tímabil. Við emm hins
vegar staöráðnir i að halda honum,
enda ætlum við okkur stóra hluti í
körfuboltanum hér á ísafirði.
Markmiöið í ár er að komast í úrshta-
keppnina í 1. deild og sjá svo til en
stefnan er sú að vera komnir í úr-
valsdeildina 1996-1997. Ef þaö gerist
fyrr er það bónus,“ sagði Guðjón
Þorsteinsson.
Newcastle á hvolf i
Allt er á ööram endanum í New-
castle, borginni kunnu i norðaustur-
hluta Englands, í kjölfar þess aö
knattspymumaðurinn Andy Cole
var seldur þaðan til Manchester
United í gær fyrir 7 milijónir punda
eöa 770 miUjónir íslenskra króna.
Það er hæsta upphæð sem greidd
hefur verið fyrir leikmann í ensku
knattspymunni. Manchester United
greiddi 6 milljónir punda og lét aö
auki hinn efnilega sóknarmann,
Keith Gillespie, í staðinn en hann er
metinn á eina milljón punda.
Kevin Keegan, framkvæmdastjóri
Newcastle, hefur nánast veriö í guða
tölu í borginni frá því hann tók við
liðinu og kom þvi í úrvalsdeildina,
og í toppbaráttuna þar. En í gær
mátti hann þola mikla gagnrýni frá
íf éttamönnum og stuðningsmönnum
Newcastle sem flykktust að St. James
Park, heimavelli félagsíns, og höfðu
uppi hávær mótmæli. Viö lá að síma-
kerfi félagsins brynni yfir og fjöl-
margir hringdu í útvarpsstöðvar í
héraðinu til að láta í Ijós vanþóknun
sína.
Keegan ætlar að nota
peninganavel
„Þið ætlið aö segja mér fyrir verkum.
Hættið því, það er ég sem vel liðið.
Það er ekki hægt að neita svona til-
boöi og þið verðiö aö bíða og sjá. Ég
mun sýna ykkur að ég er að gera
rétt. Þið skulíð heldur ekki vanmeta
Gillespie, ég hef lengi fylgst meö hon-
umog tel hann efnilegasta leikmann-
inn sem ég hef séðkoma fram í ensku
knattspyrnunni undanfarin þrjú ár.
Hann er mikilvægur í framtíöar-
áformum mínum og félagsins.
Þetta er mín ákvörðun og ég stend
og fell með henni. Það þarf stundum
að taka erfiðar ákvaröanir og sá sem
er hræddur við slíkt á ekki aö vera
i þessari vinnu. Ég ætla mér að nota
peningana vel og kaupa fyrir þá rétta
leikmenn,“ sagöi Keegan við reiöan
mannQöldann.
„Kom mér gífur-
lega á óvart
Andy Cole hefur verið marksæknasti
leikmaðurinn í úrvalsdeildinni sið-
ustu tvö árin og skorað 68 mörk fyr-
ir Neweastle á þeim tima. Honum
hefur hins vegar ekki lánast að skora
í síðustu níu leikjum liðsins. Hann
skrifaði í gær undir samning til hálfs
sjötta árs, eða til ársins 2000, og sagði
viö það tækifæri: „Þetta kom mér
gífurlega á óvart því ég hélt að ég
yrði aldrei seldur til annars ensks
liðs og ætlaði mér aldrei að spila fyr-
ir annað félag en Newcastle en fyrst
Ferguson var svona spenntur ákvað
ég að láta slag standa.“
Óvænt að Keegan skyldi
ekki koma með andmæli
Með þessum kaupum hefur Alex
Ferguson keypt 27 leikmenn til
Manchester United á valdatima sín-
um þar og greitt fyrir þá um 3,5 mifij-
arða íslenskra króna. „Við áttum
aldrei von á því að krækja i Andy
og það kom okkur geysilega á óvart
að Keegan kom ekki með nein and-
raæli þegar við fórum að tala saman
á föstudaginn. Markaskor Andys er
ótrúlegt og vonandi skorar hann
mörkin sem gera okkur aö betra liði.
Viðræðurnar hófust í kjölfar þess að
Keegan var mjög spenntur fyrir því
að fá Gillespie. Við hugsuðum það
mál mjög vel því Gillespie er mjög
góður og efnilegur leíkmaður en
stundum þarf aö færa fórnir,“ sagði
Ferguson.
Armstrong eða Ferdinand
í staðinn fyrir Cole?
Búast má við því að Keegan verði
fljótur að koma einhverju af pening-
unum í lóg og í gærkvöldi var reikn-
að með því að hann gerði Crystal
Palace tilboö í hinn eldfljóta sóknar-
mann, Chris Armstrong. Enn fremur
var getum að því leitt að hann færi
áfullt á eftir enska landsliðsmiðherj-
anum Les Ferdinand hjá QPR.
„Allir í losti“
David Craggs, formaður stuðnings-
klúbbs Newcastle í London, sagði:
„Þaö eru allir í losti. Menn trúa þvi
ekki enn að Andy Cole hafi leikiö
sinn síðasta leik íyrir Newcastle. Nú
þurfum við leikmann í hágæðaflokki
í hans stað, einhvern á borð við Stan
Collymore hjá Nottingham Forest.
Stuðningsmennirnir munu heimta
stjömu í staðinn."
Já, Andy Cole, sem fyrir þremur
ámm var óánægður varaliðsmaöur
hjá Arsenal og vildi fylgja Sigurði
Jónssyni til íslands og leika með
Skagamönnum, er orðinn dýrasti
leikmaðurhm í sögu breskrar knatt-
spyrnu!
Andy
er markahrók-
ur mikitl en á
tveimur árum hjá
Newcastle hefur
hann skorað 68
mörk.
itm
Mistök dómara ekki viðurkennd
Guðni Ölversson, fyrrverandi
formaöur körfuknattleiksdeildar
Grindavíkur, hefur sent íþróttadeild
DV eftirfarandi bréf:
I leik Valsmanna og Grindvíkinga
í DHL-deildinni í körfuknattleik
þann 5. janúar átti sér stað mjög
umdeilt atvik er annar dómari leiks-
ins, Einar Einarsson, vék bandarísku
leikmönnum liðanna, þeim Jonathan
Bow hjá Val og Franc Booker hjá
Grindavík, af leikvelli.
Eftir því sem maöur sér atvikið
oftar á myndbandi verður maður
meira forviða því að mínu mati er
ekkert annað sem skýrir viðbrögð
Einars en mannleg mistök, dóm-
greindarleysi og eða taugaveiklun.
Sjálfur telur Einar að hér sé ekki um
mannleg mistök sín að ræða því
hann heldur áfram með máhð og
kærir „brot“ þeirra til aganefndar
með þeim útskýringum að leikmenn-
irnir hafi verið aö „stimpast" og sagt
„dónaleg orö“ hvor við annan.
Þá er ekki síður fróðlegt að heyra
skýringu Einars er hann gaf Friðriki
Rúnarssyni, þjálfara Grindvíkinga, í
vitna viðurvist, á ákvörðun sinni að
leik loknum. Hún var þessi: „Ég var
að koma í veg fyrir að þeir rykju
saman!!“ Þá vitum við það að Einar
dómari er skyggn og getur þar af leið-
andi komið í veg fyrir óorðna hluti!!
Undirritaður sneri sér til formanns
dómaranefndar strax eftir umrædd-
an leik og baö hann að skoða þetta
mál og athuga hvort ekki væri hægt
að sleppa því að senda inn kæm til
aganefndar vegna þess hve mistök
dómarans voru augljós. Svörin sem
þaðan fengust voru á þá leið að það
væri ófrávíkjanleg vinnuregla dóm-
aranefndar að kæra öh slík atvik til
aganefndar. Skiptir þá engu máli
hvort brottrekstur sem þessi er
vegna fljótfærni eða mistaka dómara
í viðkomandi leikjum. Sem sagt,
dómaranefnd viðurkennir ekki að
dómurum geti orðið á mistök. Þeir
em óskeikulir og hafa því öh ráð leik-
manna og Uða í hendi sér og geta
hegðað sér eins og þeim sýnist gagn-
vart öllum er þátt taka í leiknum.
Þessum mönnum verða leikmenn,
þjálfarar og Uðsstjórar að treysta.
Ég vona aö víösýnna verði úr fíla-
beinstumi dómaranefndar í framtíð-
inni og að nefnd þessi taki á málum
þeim er til hennar er vísað til að
koma í veg fyrir að dómarar hljóti
slíkan vansa af eins þeir hafa hlotið
í þessu umrædda máli. Við eigum svo
marga góða dómara að það er alveg
ástæðulaust að svona óhöpp komi
fyrir.
Þá er ekki síður fróölegt aö skoða
vinnubrögö aganefndar KKÍ sem
dæmdi umrædda leikmenn í eins
Íeiks bann vegna kærunnar. Þrátt
fyrir að öll gögn sem lögð voru fyrir
nefndina, s.s. myndband, skriflegur
vitnisburður og málflutningur for-
ystumanna liðanna benti eindregið
til þess að þegar Einar rekur leik-
mennina af velli hafi hann verið að
gera augljósleg mistök, auk þess sem
formgalli var á kæru hans, þar sem
hvergi kom fram í henni að leik-
mennirnir hefðu verið sendir í bað,
hafði nefndin ekki kjark til þess að
vísa kærunni frá. Þó viðurkenndu
nefndarmenn að hér væru mikil mis-
tök á ferðinni og bentu okkur á að
viö gætum kært viðkomamndi dóm-
ara til KKÍ. Þrátt fyrir þetta hékk
nefndin eins og hundur á roði á því
litla SKAL í 4. grein reglugerðar um
aganefnd þar sem segir orðrétt: „Ef
dómari vísar leikmanni, (þjálfara eða
liðstjóra) af keppnisstað eða leik-
veUiSKAL viðkomandi úrskuröaður
í eins leiks bann“.
í 3. grein f þessarar sömu reglu-
gerðar er nefndarmönnum uppálagt
að taka tilit til aUra þeirra gagna sem
til nefndarinnar berast og leggja
frjálst sönnunarmat á þær. Jafn-
framt er tekið fram í þessari sömu
reglu að allur vafi skuU metinn
kærðu í hag. Tel ég með óUkindum
að aganefndin skuli ekki hafa haft
hugrekki til þess að taka tillít til
þeirra gagna sem hinir kæröu aðilar
lögðu fram og sýna svo ekki verður
um villst hve fáránlegur dómur Ein-
ars var auk þess sem fram kemur
að hann fer meö hrein ósannindi
þegar hann segir leikmennina hafa
viöhaft dónalegt orðbragð hvor við
annan. Þó ekki væri nema vegna
þessara ósanninda dómarans átti
aganefndin skilyrðislaust að vísa
kærunni frá þó ekki hættist form-
galUnn við.
Það hart til þess að vita að engum
af umræddum aðilum, Einari Ein-
arssyni dómara, dómaranefnd KKÍ,
eða aganefndinni skuU vera treyst-
andi tU að láta réttlætis og sanngirn-
issjónarmið ráða gerðum sínum í
máli þessu. Það leiðir ekki tii neins
annars en þess að enginn þeirra get-
ur verið hæfur í þeim störfum sem
þeir hafa tekið að sér fyrir íslenskan
körfuknattleik og ættu því aö endur-
skoða núverandi starfsaðferðir sínar
eða segja af sér að öðrum kosti.
m