Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1995, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1995, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 Fréttir Sölukerfið í fíkmefnaheiminum orðið mun skipulagðara: Fíkniefnasalan komin inn í grunnskólana - segir Ólafur Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður hjá forvamadeild lögreglunnar Ólafur Guömundsson hjá forvarnadeild lögreglunnar segir að sú staðreynd aö grunnskólanemar séu einn af markhópum landasaia hafi leitt til þess að fikniefni séu boðin samhliða landanum til kaups í grunnskólanum. Hér er Ólafur með hluta þeirra tækja og tóla til fíkniefnaneyslu sem lögreglan hefur lagt hald á. DV-mynd GVA „Til þessa hefur sölukerfi fikni- efnasala ekki verið vel skipulagt. Það hefur hins vegar verið að breytast á síðustu mánuðum og vikum. Eins og fram hefur komið er dreifing á landa mjög skipulögð og til að drýgja tekj- umar eru sumir landasalamir famir að selja fikniefni og þetta nær til grunnskólanna," segir Ólafur Guð- mundsson, rannsóknarlögreglumað- ur hjá forvamadeild lögreglunnar í Reykjavík. Ólafur segist hafa miklar áhyggjur af þessari þróun. Bæði vegna þess að landinn er mjög ódýr og aukin neysla á honum verði til þess að fleiri unglingar byrji að drekka. Hann seg- ir það leiða til þess að ákveðinn hluti þeirra fari út í neyslu á öðmm vímu- efnum. Öll efni í sókn „Miðaö viö haldlögð efni virðast allar tegundir fíkniefna vera í sókn,“ segir Ólafur. „Ef viö skoöum sveifl- umar á haldlögðum efnum í Evrópu þá er kúrfan nákvæmlega eins hjá okkur til langs tíma litið. Það eru svona á milli 400 og 500 manns sem lögreglan handtekur árlega fyrir ein- hvers konar fíkniefnamisferli og við höfum áreiðanlega ekki afskipti af nema htlum hluta þeirra sem em í þessu. Tæplega helmingur þessa hóps er að koma við sögu í fyrsta skiptiog því má segja að það sé nýhð- unin í hópnum." Mikið til sama fólkið Ólafur segir jafnframt að þetta sé mikið til sama fólkið sem sé í þessu. Þessu til staðfestingar bendir hann á að það hafi verið árið 1977 sem lög- reglan hafi byijað aö ljósmynda þá sem komu th yfirheyrslu vegna að- ildar að fíkniefnamálum. Á síðustu 5 til 6 árum sé búið að endurnýja 18 af 20 fyrstu myndunum í safni lög- reglunnar. Hann segir aö til þessa hafi þaö verið þröngur hópur sem hafi fengist við sölu á fíkniefnum og þá á ákveðn- um stöðum. Til skamms tíma hafi til dæmis aðeins verið hægt að fá keypt efni í gegnum kunningsskap en þetta sé að breytast, eins og fyrr sagði. „Smásalan sjálf hefur þar th nýlega ekki verið mjög vel skipulögð. Inn- flutningurinn hefur aftur á móti ver- ið þrælskipulagður innan ákveðinna hópa en ekki á mihi hópa. Þess vegna verður oft mikhl skortur, sérstaklega á hassi, eins og er í dag. Eftir viku getur síðan allt veriö orðið yfirfullt aftur og þá kemur upp sérstakt ástand." Fáirverða ríkir Ástandinu lýsir Ólafur þannig aö þegar markaðurinn yfirfylhst séu menn reiðubúnir að lána efni, gefa það og jafnvel grafa það í jörðu af ótta við að fikniefnalögreglan láti th skarar skríða gegn þeim. Jafnvel séu þess dæmi að fíkniefnasalar steh efni hver frá öðrum. Þannig tapist mikið efni og margar sögur eru til af fíkni- efnasölum sem hafa leitað efnis sem þeir grófu í jörðu og aldrei fundið aftur. Af þessum sökum fari hluti þeirra fíkniefna sem flutt eru til landsins th spilhs eða er neytt án þess að greitt sé fyrir þau. „Menn verða nú ekki ríkir af þessu því það er lifað hátt á meðan verið er að koma efnunum í verð. Tauga- spennan verður th þess að innflytj- endumir drekka mikið áfengi, neyta efnanna, fara út að borða og lifa dýrt af ótta við að fíkniefnalögreglan láti th skarar skríða heima hjá þeim á hverri mínútu. Yfirleitt endar þetta með því að þegar efnið er búið þá eru peningarnir búnir. Ég held að þaö sé sama við hvem þú talar, hvort sem það er hjá lögreglunni eða einhver í fíkniefnaheiminum, þetta er stað- reynd. Menn kannast við fáa sem virkhega hafa efnast á fíkniefna- sölu.“ Neyslan mun aukast „Það má segja að það sé nær und- antekningarlaust þannig að þeir sem eru í innflutningi era jafnframt í neyslu. Það er nefnilega ákveðið sið- ferði í gangi. Ef sá sem flytur inn efnið eða sér um sölu þess getur ekki sest niður með þeim sem ætlar að kaupa eitthvert magn að ráði og not- að efniö með honum þá treystir hann ekki efninu. Hann telur efnið annað hvort lélegt, blandað mörgum auka- efnum eða hættulegt." Ólafur segir að neysla efnanna komi til með að aukast í framtiðinni hægt og rólega og fólk verði meira vart við þau, bæði í eigin íjölskyldum og nánasta umhverfi. Þess sjást þeg- ar merki í fjölgun innbrota og rána sem fjallað er um í fjölmiðlum dag- lega. -PP í dag mælir Dagfari Hver borgar brúsann? Það vom aldeihs fagnaðarlæti í landinu eftir að skrifaö var undir samninga. Það var bara næstum því eins og heima hjá mér þegar Islendingar sigra í handboltalands- leik. Húrrahrópin kváðu við og aht ætlaði vitlaust að verða. Ríkis- stjómin hoppaði hæð sína af kæti, vinnuveitendur, Þjóðhagsstofnun, svo ekki sé talað um verkalýðsfor- ingjana, sem létu í ljós mikla ánægju meö þá samninga sem þeir hefðu skrifað undir. Allir þessir aðhar hafa sameinast um að bera lof á þá samninga sem þeir hafa sjáfir gert og segja að þeir feh í sér kjarajöfnun, stöðug- leika, aukinn kaupmátt, hækkuð skattleysismörk, öryggi th tveggja ára. í raun og vem getur Dagfari ekki séð að hægt sé að gera betri kjarasamninga í framtíðinni ef marka má ummæh þeirra forystu- manna sem standa að samningun- um. Þess vegna geta þessir kjara- samningar staðið um aldur og ævi því það er ekki hægt að gera betur. Þetta eru fullkomnir samningar. Þetta em tímamótasamningar, seg- ir Jón Baldvin. Þetta em afar góðir samningar, segir Davíð Oddsson. Þetta em kaupmáttarsamningar, segir Þjóðhagsstofnun. Lengra var ekki hægt að komast, segja verka- lýðsforingjar. Eina hjáróma röddin í þessum kór kemur frá formanni Álþýðu- bandaiagsins, Ólafi Ragnari Gríms- syni. Ólafur talar ekkert um samn- ingana eða innihald þeirra en fer allt í einu aö tala um hvað þessir samningar kostí! Eins og það skiptí máh! Ólafur Ragnar segir að samning- amir kosti ríkissjóð fjóra milljarða króna og segir að láglaunafólk borgi þann reikning. Er þá eftir aö reikna út hvað samningamir kosti vinnuveitendur og það á eftír að taka með í dæmið hvað það kostar þegar búið er að semja við opinbera starfsmenn, hvaö þá kennara, ef á annað borð verður samið við þá. Þá má væntanlega gera ráð fyrir að þessir samningar leiði af sér kostnað upp á tíu th fjórtán miRj- arða, eöa hvað? Og hvað með það? Nú má í sjálfu sér endalaust reikna það út hvað það kostar að gera samninga. En hingað th hefur ekki verið spurt um það f kjara- samningum og launafólk gerir sér auðvitað grein fyrir því að ef samið er um hærri laun eða lægri skatta eða einhveija fyrirgreiðslu úr rík- issjóði eða úr vasa atvinnurekenda, þá kemur að sjálfsögöu að því að launafólk borgar þann brúsa. Verkalýðsforingjamir vita þaö fyr- irfram að alhr samningar sem þeir gera kosta peninga og enginn getur borgað þá peninga nema launafólk- ið sem borgar þá aftur þegar þar að kemur og búið er aö undirskrifa samninga. Þetta vita allir og láta sér í léttu rúmi hggja því samningar em samningar og það er stórkostlegur sigur fyrir þjóðarbúið og fyrir launafólkið að ná samningum, þótt þeir þurfi einhvem tímann í fram- tíðinni að borga þessa samninga aftur. Einhver verður að borga. Það er hins vegar ósmekklegt og ekki við hæfi að fara að nefna það hver borgi reikninginn af samning- unum þegar menn em rétt að fagna því að hafa skrifað undir. Forsætís- ráðherra hefur einmitt bent á það að með kjarasamningunum batnar hagur launafólks og þjóðarbúsins og þá hafa launamenn efni á því að borga meira th þjóðarbússins, sem aftur hefur þá efni á aö borga fyrir kjarasamningana og þessa vegna græða allir á því að gera kja- rasamninga um betri kjör, sem ger- ir þeim kleift aðborga fyrir þá kja- rasamninga sem þeir hafa skrifað undir. Ólafur Ragnar Grímsson hefur þar afleiðandi algerlega misskihð þesa kjarasamninga þegar hann er að fjalla um þaö hver eigi að borga brúsann. Kjarasamningar snúast ekki um það. Kjarasamningar snú- ast um þaö að fá launafólk th að skrifa undir og sætta sig við kjara- samninga, sem það sjálft hefur efni á að borga, þegar þar að kemur. Vinnuveitendur borga ekki, ríkis- sjóður borgar ekki. Launafólkið borgar og það vita ahir og á ekki að vera að nefna frekar en maður segir frá því hvað gjöfin kostar þeg- ar maður gefur gjöf. Menn verða aö kunna sig á hátíðarstundum. Það er á hinn bóginn mikið fagn- aðarefni að launafólk skuh hafa haft efni á því að gera þessa samn- inga. Það sýna samningarnir. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.