Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1995, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995
7
Fréttir
Ahrif kjarasamninga á þjóðarbúið:
Tveggja ára friður
kostar 25 milHarða
- skuldir ríkissjóðs lækka og tekjumar aukast
Friöur á vinnumarkaöi gæti kostað
vinnuveitendur og hiö opinbera tæp-
lega 9 milljaröa króna á árinu veröi
samið viö opinbera starfsmenn á
svipuðum nótum og gert hefur veriö
á almenna vinnumarkaðinum. Á
næsta ári félli til viöbóta kostnaður
upp á minnst 16 milljarða. Sam-
kvæmt þessu má verðleggja friðinn
upp á 25 milljarða.
Að stærstum hluta fellur kostnað-
urinn á vinnuveitendur á almenna
markaðinum. Samkvæmt upplýsing-
um frá VSÍ er gert ráð fyrir aö launa-
útgjöld vinnuveitenda aukist um 3,9
prósent á árinu, eða um 5 milljarða.
Á næsta ári er gert ráð fyrir að út-
gjöldin aukist um 6,9 prósent, eða 10
milljarða. Samtals munu launaút-
gjöldin á almenna markaðinum því
aukast um 15 milljarða á samnings-
tímanum.
Aukin útgjöid ríkisins
Yfirlýsing ríkisstjómarinnar í
tengslum við kjarasamningana í vik-
unni kalla á nokkur útgjöld hins op-
inbera. Að hluta til er gert ráö fyrir
þessum útgjöldum í fjárlögum árs-
ins, til dæmis að laun hækki um allt
að 3 prósent. Verði samið við opin-
bera starfsmenn á þeim nótum mun
þaö auka launaútgjöld hins opinbera
um rífiega milljarð í ár og tæplega 3
milljarða á því næsta, eða samtals
um 4 milljarða á til ársloka 1996.
í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er
gert ráð fyrir aö 1. apríl í ár verði
heimilt að draga helming af iðgjaldi
launþega í lífeyrissjóði frá tekjum við
álagningu skatta. Vegna þes^a verða
ríki og sveitarfélög fyrir 800 milljóna
króna tekjusamdrætti í ár. Þann 1.
júlí á næsta ári veröur heimilt aö
draga 3/4 af iðgjaldinu frá tekjum en
það mun valda 1,4 milljarða tekju-
samdrætti hjá hinu opinbera. Sam-
tals kostar þetta loforð ríkisstjórnar-
innar því um 2,2 milijarða.
Samkvæmt yfirlýsingunni á enn
fremur að setja um 1,1 milljarð í ein-
greiðslur í almannatryggingakerf-
inu, húsnæðismál og fleiri aögerðir,
bæði í ár og á því næsta. Samtals
mun þetta auka útgjöld rikissjóðs um
2,2 milljarða. Auk þessa hefur í
lllkið itefei saMUíjpnh?
1995
- allar upphæöir í milljónum króna -
n Hiö opinbera
: Almenni vinnumarkaöurinn
1996
Frádr. lífeyrissjóðs-
iögjalds
frát
Eingreiöslur í
almannatr., hús—,
næðism. o.fl. L
Réttindi kennara —
Launahækk.
opinb. starfsm.
Hugsanleg
veltuáhrif
á ríkissjóö
Lækkun skulda
v/breytingaá J
lánskjaravísit.
Frádr. lífeyrissjóös-
iðgjalds "I
frá tekjum L
' Eingreiðslur í
almannatr., hús- _
næöism. o.fl.
Launahækk. _
opinb. starfsm.
Réttindi kennara -
Hugsanleg
veltuáhrif -
á ríkissjóð
Lækkun skulda
v/breytinga á ]
lánskjaravísit. L
IrvingOiI:
Ekkiaðstofna
fjölmiðlafyrirtæki
Sterkur orðrómur hefur verið
uppi um að kanadíska olíufélagiö
Irving Oil hefði í hyggju að stofna
fjölmiðlafyrirtæki á íslandi í
tengslum við fyrirhugaða starf-
semi hér á landi. Othar Öm Pet-
erson hæstaréttarlögmaöur, um-
boðsmaöur Irving Oil á íslandi,
sagði aðspuröur við DV að slíkar
fregnir væru „gjörsamlega úr
lausu lofti gripnar". Hefði félagið
slik áform uppi ætti hann að vita
allt um það.
Othar sagðist halda að oröróm-
urinn tengdist því að hann hefði
á sínum tíma aöstoðað einn skjól-
stæðing sinn við að fjármagna
útgáfu Morgunpóstsins.
★ ★ ★ ★
Yfir 80 gtrðir
af kommóðum
til afgreiðslu strax
★ ★ ★
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFPA 20 • 1X2 REYKJAVtK . 8tMI 887119»
tengslum viö kjarasamningaviöræð-
ur við kennara verið rætt um að
bæta þeim skert réttindi. Talað hefur
verið um 700 milljónir á ári í þessu
sambandi, eða samtals um 1,4 millj-
arða á næstu tveimur ámm.
Skuldir ríkisins lækka
En kjarasamningarnir kalla ekki
einungis á útgjöld. Gera má ráð fyrir
að breytingin á lánskjaravísitölunni
muni leiða til þess að verðtryggðar
skuldir hins opinbera muni lækka
um 500 milljónir í ár og 200 milljónir
á næsta ári, eða samtals um 700 millj-
ónir.
Þá má gera ráð fyrir að tekjur ríkis-
sjóðs aukist um allt að 2,6 milljarða
í ár vegna aukinnar veltu í þjóðfélag-
inu. Á næsta ári gæti veltuaukningin
aukið tekjurnar um allt að 4,6 millj-
arða. Er þá tekið mið af því aö hin
síðari ár hefur ríkið tekið til sín um
þriðjung þjóðarkökunnar. -kaa
Glæsilegt þorrablót eldri borgara
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Mjög góð þátttaka var á þorra-
blóti eldri borgara á Hótel Selfossi
og skemmti fólk sér hið besta. Hall-
dóra Ármannsdóttir bauð gesti vel-
komna en Böðvar Stefánsson, fyrr-
verandi skólastjóri, stjórnaði blót-
inu með miklum sóma.
Aðalræðumaður kvöldsins var
Þór Vigfússon. Hjörtur Þórarins-
son og Hafsteinn Stefánsson kváð-
ust á. Söngkór eldri borgara undir
stjórn Sigurveigar Hjaltested söng.
Hjalti Þórðarson, fyrrum verk-
stjóri, stjórnaði fjöldasöng.
Utsölulok
í skómarkaði RR
Verð niður úr öllu valdi
Leðurkuldaskór frá kr. 990
Opið 12-18
SKÓMARKAÐUR Rr|| I
Skemmuvegi 32 L, Kópavogi, s. 75777
EURO SKO
ir fullsteiktur. Með
.d. kartöflugratín.
náttúrulcgagott