Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1995, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995 FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995 31 Iþróttir Borðtennis: A-lið Víkings bikarmeistari : A-Iið Víkings varð bikanncist- ari Borðtennissambands íslands um helgina en liöiö vann sigur á B-liði Víkings, 4-1. Bikarmeist- araliðið skipa Bva Jósteinsdóttir, Guðmundur Stephensen og Ing- ólfur Ingólfsson. Þá lauk keppni í 2. deildinni i borötennis. Til úr- slita léku D- og E-lið Víkings og sigraði D-liöið, 6-1. í sigurliöinu voru Sigurbjörn Sjgfússon, Emil Pálsson og Pétur Ó. Stephensen. Pílukast: ÆgirogFriðrik Þaö verða Ægir Ágústsson og Friðrik Jakobsson sem keppa til úrslita um íslandsmeistaratitil- inn í einmenningi karla í pílu- kasti. íslandsmótið í pílukasti fór fram um siðustu helgi. Ægir og Friðrik höfnuðu í tveimur efstu sætunum en Óli Sigurösson og Ævar Finnsson urðu í 3.-4. sæti. í tvímenningi urðu Guðjón Hauksson og Friðrik Jakobsson íslandsmeistarar. í öldungaflokki varö Heimir Guðjónsson Islands- meistari. í einmenningi kvenna yarð Anna Kristín Bjarnadóttir Íslandsmeístari. Móeiður Skúla- dóttir varð í öðru sæti og Kristína Sigurðardóttir í þriðja. Landsliðiðsem keppiráNM Landsliðið í pilukasti, sem keppir á Norðurlandamótinu sem haldið verður hér á landi í fyrsta sinn 29. og 30. apríl, er þannig skipað: Guöjón Hauksson, Frið- rik Jakobsson, Jóhannes Haröar- son, Friðrik Diego, Ægir Ágústs- son, Öskar Þórmundsson, Pótur Hauksson, Ævar Finnsson, Anna K. Bjarnadóttir, Móeiður Skúla- dóttir, Kristina Sigurðardóttir og Jakobína Jónsdóttir. Bibercic á leiðinni Mihajlo Bibercic, markakóngur 1. deildarinnar í knattspyrnu, kemur til liös við sitt nýja liö, KR, nú fyrir helgina. Bibercic hefur dvalið í Serbíu aö undanfórnu og æft með þarlendu 1. deildar liði en tilraunir hans til aö komast að hjá félögum i Þýskalandi og Sviss í vetur báru ekki árangur. Leikmannahópur KR stækkaði enn frekar á dögunum þegar Guðni Rúnar Helgason frá Húsa- vík gekk til iiðs við félagiö. Guðni er 19 ára unglingalandsliðsmaður og hefur spilað meö unglingaliöi og varaliðí enska félagsins Sund- erland síðustu tvö árin. CoHymorefalur Miklar likur eru nú taidar á því að knattspymumaðurinn Stan Collymore fari frá Nottingham Forest til Everton. Everton hefur þegar boðið Forest 5 milljónir punda fyrir Collymore sem þykir einn cfnilegasti leikmaöurinn í Bretlandi en Forest hefur þver- neltað. Talið er líklegt að Everton hækki sig í 7,5 milljónir punda, greiði 5 milijónir í peningum og iáti Anders Limpar, Daniel Am- okachi, Vmny Samways eðaBrett Angell fylgja með í kaupunum. Collymore er óvinsæll í sínu liði og eftir rnark, sem hann skoraði gegn Leicesler á döguntim, var honum ekki fagnað. Ahangendur Forest eru heldur ekki hliðhollir Collymore. Forest hefur boðíð lonúm 920 þúsund í rikulaun en >aö virðist ekki ætla að duga. Meistaradeild Evrópu: Frækinn sig- ur hjá Bayern - Barcelona féll fyrir Paris SG Ajax mætir Bayern Múnchen og Góð auglýsing fyrir AC Milan leikur við Paris St. Ger- knattspyrnuna main í undanúrslitum meistara- Paris St. Germain vann Barcelona, deildar Evrópu. Þetta lá fyrir í gær- 2-1, í frábærum leik í París, og það kvöldi en þá fóru fram síðari leikirn- þó Bakero kæmi Spánveijunum yflr ir í 8-liða úrslitunum. í síðari hálfleik. Þetta er þriðja árið Ajax fór tiltölulega létt með Hajduk í röð sem Parísarliðið slær út Split frá Króatíu, 3-0. „Við sóuðum spænskt stórlið í 8-liða úrslitum. alltof mörgum marktækifærum en „Þessi leikur var góð auglýsing fyrir við lékum yndislega knattspyrnu," knattspyrnuna, bæði lið léku mjög sagði Louis Van Gaal, þjálfari Ajax, vel, mörkin voru þrjú og heföu getað en liði hans er af mörgum spáð Evr- orðið mun fleiri," sagði Luis Fern- ópumeistaratitlinum. andez, þjálfari Frakkanna. „Ég held Bayem Múnchen náði fræknu að allir hafi skemmt sér vel og Paris jafntefli í Gautaborg, 2-2, þrátt fyrir SG spilaði frábærlega," sagði Johan að markvörður liðsins, Sven Scheu- Cruyíf, þjálfari Barcelona. er, væri rekinn af velli eftir aðeins Úrslitin í meistaradeildinni í gær- 20 mínútur. Bayern komst í 0-2 í kvöldi: seinni hálfleiknum og Svíarnir jöfn- Ajax - Hajduk Split.3-o uðu aðeins með síðustu spyrnu leiks- i-0 Kanu (39.), 2-0 F. de Boer (43.), 3-0 ins. Ævintýri Gautaborgarliðsins F. deBoer(68.)Ajaxáfram, 3-0saman- lauk þar með en frammistaða liðsins !?gt' , í keppninni í vetur hefur verið stór- Neriinger'(71.), kostleg. 1-2 Lilienberg (75.), 2-2 Martinsson Benfica sótti stíft lengi vel gegn AC (90.). MilanenslappsamtvelmeðO-Ojafn- Liðin jöfn, 2-2, en Bayern áfram á tefli. Marco Simone og Zvonimir Bo- mörkum á útivelli. ban áttu báðir stangarskot fyrir AC Paris SG - Barcelona..2-1 Milan í síðari hálfleik en Isiais Soar- °^!i?akj:ro ÍJ1 Rai Ö2.), 2-1 Guer- es skaut í stöngina á marki ítalanna 10 Par!sSC|afratn’3-2 samanlagtn undir lokin. Portugolsku ahorfend- AC Mjlan áfram ^ samanlagt. urmr bauluöu mikið a leikmenn Benfica þegar þeir gengu af velli. Keppnin í 1. deildinni Nú er Ijóst að keppni í 1. deild- inni í knattspyrnu hefst þriðjudag- inn 23. mai. Vegna heimsmeistara- keppnínnar í handknattleik hafði fyrsti leikdagurinn verið nokkuð á reiki, og á tímabili stóð tii aö byrja flmmtudaginn 18. maí, sem er frí- dagur á HM. En niöurstaðan er sú að byrjað veröur tveimur dögum eftir að HM lýkur. Fimm leikir eru á dagskrá þenn- an fyrsta leikdag. Fram og Leiftur leika klukkan 18, væntanlega á Valbjarnarvelli, og klukkan 20 leika KR og FH, Grindavík og Keflavík, Akranes og Breiðablik og ÍBV og Valur. Telja má fulivíst að ailir leikir fyrstu umferðar veröi leiknir á grasi en til að ná því fram var leik- ur Leifturs og Fram fluttur frá Ói- afsfirðí fll Reykjavíkur og leikur Vals og ÍBV settur á í Eyjum. Tomba vann heims- bikarinn heima í stofu Alberto Tomba, ítalinn „ósigr- andi,“ varð í gær heimsbikarmeistari í alpagreinum í fyrsta skipti, án þess að keppa. Marc Girardelli, sem einn gat náð Tomba að stigum, varð að- eins í 17. sæti í brunkeppni sem fram fór í Bormio á Ítalíu. Tomba keppir ekki í bruni, og held- ur ekki í risasvigi, og er fyrsti skíða- maðurinn í sögu heimsbikarsins sem vinnur hann án þess að taka þátt í tveimur keppnisgreinum af fjórum. Það segir meira en mörg orð um ár- angur hans í sviginu og stórsviginu en Tomba hefur sigrað í 10 mótum af 14 sem hann hefur tekið þátt í á tímabflinu. Hann sat heima í stofu hjá sér í Bologna í gær og fylgdist meö því í sjónvarpi þegar titilhnn varð endanlega hans. Luc Alphand frá Frakklandi vann bruniö í gær og tryggði sér með því sigur í stigakeppninni í þeirri grein. Picabo Street frá Bandaríkjunum sigraði í bruni kvenna en hún hafði þegar tryggt sér bruntitilinn. Margar spurningar Gunnar Kjartansson og Guðjón L. Sigurðsson handknattleiks- dómarar eru staddir í Kúveit þar sem þeir dæma leiki í úrslita- keppni þar í landi. Til íslands eiga þeir að koma með svör við ýms- um spumingum varðandi HM. Sjeikinn í öryggisgæslu? Helstu spumingarnar sem þeir Gunnar og Guðjón eiga að fá svör viö eru þessar: Hve lengi ætla Kúveitmenn að dvelja hér á landi? Hvernig húsnæði vilja þeir? Hvernig mat? Vill sjeikinn öryggisgæslu og þá hve marga menn? Koma þeir með áætlunar- eða einkaflugi? Vilja þeir leigja sér bíla og ef svo er hve marga? Húsnæði til leigu Gera má ráð fyrir að skortur verði á gistirými fyrir erlenda gestí á meðan HM fer fram. Hótel og annað gistirými er senn á þrot- um og mikið hefur borið á því að almenningur hafi áhuga á að leigja út húsnæði sitt á meðan á keppninni stendur. Bærinn réð Kristján Undirbúningur er í fullum gangi á Akureyri fyrir HM eins og annars staðar og nú hefur Akureyrarbær ráðið Kristján Einarsson sem sérstakan starfs- mann vegna HM ’95. Fjölmiðlar undirlagðir Nú þegar aðeins 52 dagar eru fram að HM vex áhugi almenn- ings með degi hveijum. Fjölmiðl- ar undirbúa sig fyrir komandi átök og greint var frá því í DV í gær að sýnt yrði beint frá 34 leikj- um keppninnar í Ríkissjónvarp- inu. Utvarpsstöðvarnar verða líka undirlagðar. Ekki má gleyma dagblöðunum sem munu verja miklu plássi undir fréttir af keppninni. Framstúlkurnar fögnuðu að vonum innilega eftir sigurinn á Víkingi í gærkvöldi. Eftir lægð síðustu árin er gamla stórveldiö í kvennahandboltanum komið í tæri við titiana á ný. DV-mynd JAK Einokunin rof in - Fram mætir Stjömunni í úrslitaleikjunum í kvennaflokki Helga Sigmundsdóttír skrifar: Það verða Fram og Stjarnan sem leika til úrslita um íslandsmeistaratítil kvenna í handknattíeik. Fram sigraði íslandsmeistara Víkings í oddaleik í Framhúsinu í gærkvöldi, 20-18, og rauf þar meö þá einokun sem Víkingur og Stjarnan hafa haft á úrslitaleikjunum síðustu árin. Fyrsti leikur Stjörnunnar og Fram verður í Garðabæ á sunnudag. „Þetta var allt annað en seinasti leikur hjá okkur, andinn í liðinu var góður. Við ætluðum okkur að vinna og það tókst meö góðri vörn og síðan fylgdi markvarslan á eftír,“ sagði Kolbrún Jó- hannsdóttir, markvörður Fram. Mikil barátta var í báðum liðum og einkenndist leikurinn af góðum vörnum. Oft á tíðum var mikið stress og læti og voru leikmenn liðanna að rétta hver öðrum boltann. Fyrri hálfleikur var mjög jafn. Fram komst í 6-4 en Víkingur náði að jafna og upp frá því var jafnt á öllum tölum allt tii leikhlés, 12-12. í seinni hálfleik lokaði Kolbrún markinu hjá Fram og gerði það gæfumuninn. Þegar átta mínútur voru til leiksloka var staðan 19-17 fyrir Fram. Víkingur náði að minnka muninn niður í 19-18 þegar fimm mínútur voru eftir. Ekkert mark var skorað fyrr en 20 sekúndur voru eftir af leiktímanum, Díana Guð- jónsdóttír úr vítakasti, 20-18. Maður leiksins var Kolbrún Jóhanns- dóttir en hún varöi samtals 17 skot og eitt vítí. Framliðiö spilaði sterka vörn með Guðríði Guðjónsdóttir í farar- broddi. Díana skoraði mjög þýðingar- mikil mörk af vítalínunni í seinni hálf- leik. Hjördís Guðmundsdóttir, markvörður Víkings, varði 9 skot og eitt víti. Halla María Helgadóttir var tekin fóstum tök- um í vörninni og náði sér ekki vel á strik. Halla María var örugg í vítunum. Gangur leiksins: 3-2, 5-4, 6-6, 8-6, 8-8, 12-12, 14-12, 16-16, 19-16, 19-18, 20,18. Mörk Fram: Díana 5/5, Selka 4/1, Þór- unn 3, Kristín 2, Hanna Katrín 2, Berg- lind 2, Arna 1, Guðríður 1. Mörk Víkings: Halla María 10/6, Heiða, 2, Svava S. 2, Matthildur 2, Guömunda 1, Hanna 1. Kipkoech látinn Paul Kipkoech frá Kenía, heimsmeistari í 10 km hlaupi árið 1987, lést á mánudaginn, aðeins 33 ára að aldri. Hann hætti keppni árið 1988, eftir að íþróttayfirvöld í Kenia hirtu af honum bifreið sem hann fékk í sigurlaun, og sneri sér að búskap. Pólskursigur Pólveijar unnu nágranna sína frá Litháen, 4-1, í vináttulands- leik í knattspyrnu í gær. Japanirunnu Japanir sigruðu í sveitakeppni í 4x5 km skíðagöngu á heims- meistaramótinu í norrænum greinum í Kanada í gær. Úlfurinn úrleik Hollenski knattspyrnumaður- inn John De Wolf, sem virtíst á góðum batavegi, á við alvarlegri meiðsli að stríða en talið var og leikur varla meira með Wolves í ensku 1. deildinni í vetur. 46 ára í NBA? Útlit er fyrir að Dave Cowens, 46 ára aðstoðarþjálfari San An- tonio Spurs, verði varamiðherji liðsins í úrslitakeppni NB A vegna þrálátra meiðsla hjá Moses Mal- one. Cowens hætti fyrir 12 árum en varð tvívegis meistari með Boston á áttunda áratugnum. Jafntefli hjá í A ÍA gerði jafntefli við Start frá Noregi, 1-1, á æfmgamóti í knatt- spyrnu á Kýpur í gær. Júgóslav- inn Dejan Stojic, sem er til reynslu hjá ÍA, gerði mark liðs- ins. Kristófer Sigurgeirsson og félagar í Frölunda frá Svíþjóö unnu Kongsvinger frá Noregi, 1-0, í sama móti. GOGíúrslit? GOG frá Danmörku vann Borba Luzern frá Sviss, 29-21, í fyrri leik liðanna í undanúrslit- um Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik í gærkvöldi. ÁfallhjáVíði Arnmundur Sigurðsson, knatt- spyrnumaður úr 2. deildar liði Víðis, fótbrotnaði í æfmgaleik á gervigrasvelli Hauka í vikunni og er úr leik í sumar. Iþróttir Olafsfiröingurinn Kristinn Björnsson heidur áfram að gera góða hluti í skíðabrekkum Evrópu. Kristinn náöi glæsilegum árangri á móti í Gaspoggio á Ítalíu í gær þeg- ar hann lenti í tíunda sæti í svigi. Eins og kom fram í DV á mánudag sló Kristinn í gegn með frábærum árangri á móti í Sviss um síðustu helgi. Mótíð á Ítalíu var aö styrkleika 2,90 FIS punktar sem þýðir að mót- ið hafi verið mjög sterkt. Kristinn fékk 15,35 keppnispunkta fyrir ár- angurinn sem gera þá 18,35 FIS punkta. Þessi árangur gætí fieytt honum um alit að 50 sæti á heimslistanum í svigi eða úr 175. sæti niður í kring- um 125. sætið. Það kemur hins veg- ar ekki í Ijós fyrr en um miðjan apríl þegar nýr heimslisti verður gefinn út. Kolbrún Jóhannsdóttir lék mjög vel í marki Fram i gærkvöldi. Sterkasta sundfólkið í Eyjum Innanhússmeistaramót íslands í sundi hefst í Vestmannaeyjum á morgun. Allir sterkustu sundmenn landsins hafa boðaö komu sína til Eyja að undanskildum Magnúsi Ól- afssyni sem dvelur í Barcelona við æfingar og keppni. Þetta verður í sjö- unda sinn sem mót af þessu tagi er haldið í Eyjum og eru allir sammála um að þar séu bestu aðstæður sem sundmenn hér á landi komast í. Oft hefur ffábær árangur náðst í sund- lauginni í Eyjum og eru menn að gera sér vonir um að svo verði einn- ig að þessu sinni. Amar Freyr Ólafsson og Logi Jes Kristjánsson hafa í vetur verið við æfmgar í Bandaríkjunum og af frammistöðu þeirra þar aö dæma mæta þeir félagar fimasterkir til leiks. Þeir hafa verið að synda á góð- um tímum í vetur á mótum meö skól- um sínum og eins á Fylkismótum, nú síðast fyrir tveimur vikum. Logi mun á mótínu sýna sínar aðalgreinar sem eru 50 m skriðsund, 200 m íjór- sund og 100 og 200 m baksund. Amar Freyr syndir 200 og 400 m fjórsund, 200 og 400 m skriðsund og 200 m flug- sund. Fróðlegt verður að fylgjast með þeim stöllum Bryndísi Ólafsdóttur og Birnu Bjömsdóttur en sú síðar- nefnda er að hefja keppni aö nýju eftir matareitmnina sem hún fékk á smáþjóðaleikunum á Möltu fyrir tveimur árum. Þær mæta að öllum líkindum báðar mjög sterkar til leiks auk fjölda annarra sundmamja. Elín Sigurðardóttir, SH, Eydis Konráðsdóttir, Keflavík, Margrét Bjarnadóttir, Ægi, og Þorgerður Benediktsdóttir, Óðni, munu eflaust allar láta mikið að sér kveða. í bringusundi kvenna er búist við að Lára Hmnd Bjargardóttir úr Ægi veröi sigurstranglegust. Fleiri spennandi sundgreinar mætti nefna en í öflu falli má búast við skemmtilegu og jöfnu mótí og aldrei að vita nema ný íslandsmet líti dagsins ljós. Undanrásir heflast á föstudag eins og áður sagði og byrja þær afla mótsdagana klukkan 9.30 og úrslit verða síðan klukkan 17. Undanúrslitin á íslandsmóti karla í körfu- knattleik heflast í kvöld þegar Njarðvík og Skallagrímur mætasl í Njarðvík klukkan 20. Annað kvöld leíka svo Grindavik og Keflavík i Grindavik. Þau liö sem fyrr vinna 3 leiki spila til úrslita um meistaratitilinn. Njarðvíkingar eru sigurstranglegir í kvöld. Þeir hafa unnið 33 leiki af 35 í vetur, og alla 18 heimaleikina. Njarövík vann Skallagrím í öllum fjórutn leikjum Uðanna í vetur, 97-71 og 106-64 í Njarðvík og 85-83 og 84-59 í Borgarnesí. Borgnesingar komu Inns vegar verulega á óvart gegn IR í 8 liöa úrsUtunum og eru sýnd veiði en ekki gefin. Manchester United og Totten- ham gerðu í gærkvöldi markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Old Traflörd. Mark Hughes og Andy Coie áttu stangar- skot í fyrri hálfleik og Walker markvörður Tottenham bjargaði Tottenham með góðri markvörslu hvað eftir annað. United tapaði þar tveimur dýrmætum stígum í topp- baráttunni við Blackburn Rovers. Úrslit urðu annars þessi: Everton-Man City............1-1 0-1 Gaudino (26.) 1-1 Unsworth (80.). Leicester-Leeds.............1— 1-0 Roberts (22.) 1-1 Yeboah (32.) 1-2 Yeboah (59.) 1-3 Palmer (79.). QPR-Norwich................2-0 1-0 Ferdinand (66.) 2-0 GaUen (86.). Southampton-West Ham........1-1 0-1 Hutchison (38.) 1-1 Shipperley (48.). • Blackburn hefur 73 stig í 1. sæti og Man. Utd 70 í 2. sæti. S 1. deild urðu úrsflt þessi: Derby-Burnley 4-0, Portsmouth- Millwall 3-2, Swindon-Sunderiand 1-0, WBA-Wolves 2-0. Þremenningunum var sleppt í gær án ákæru Knattspyrnumennirnir Bruce Grobbelaar, John Fashanu og Hans Segers voru leystir úr varðhaldi í gær, gegn tryggingu, án þess að kær- ur væru lagðar fram á hendur þeim. Þeir eiga hins vegar að mæta í frek- ari yfirheyrslur hjá bresku lögregl- unni síðar, vegna mútumálsins sem Grobbelaar hefur verið bendlaður við frá þvi í nóvember. Malasíski kaupsýslumaðurinn Heng Suan Lim var Uka látinn laus en unnustu Fashanus, MeUssu Kass- amapsi, var ekki sleppt að svo stöddu. John Fashanu lýstí yfir algjöru sakleysi í gær og segist ekki bafö hugmynd um hvers vegna hann sé bendlaður við málið. Fashanu er veUauðugur en auk þess að leUca knattspyrnu með Aston VUla stjórn- ar hann geysivinsælum sjónvarps- þætti og er afkastamikiU í hjálpar- starfi í Afríku. Guðni með á sunnudag? - þegar Bolton mætir Millwall í 1. deild Líkur eru á að Guðni Bérgsson, landshðsfyrirliði í knattspyrnu, spiU sinn fyrsta leik með Bolton í ensku 1. deildinni á sunnudaginn, en þá á Uðið erflðan útileik gegn MiUwall í London. Guðni og Bruce Rioch, fram- kvæmdastjóri Bolton, ræddu í gær mál hans við Gordon Taylor, for- mann samtaka atvinnuknattspyrnu- manna. Hjá honum kom fram að Guðni ætti að geta samið við Bolton og byrjað aö spila með félaginu, og síðan yrði úrskurðað sérstaklega í máU hans við Tottenham, sem telur sig eiga þriggja ára sölurétt á honum. „Viö höfum ekki rætt sérstaklega um samning minn við Bolton en ég ’ býst ekki við því að það verði neitt vandamál," sagði Guðni við DV í gærkvöldi. Bolton þarf að vera búið að skrá hann fyrir klukkan 12 á há- degi á morgun, föstudag, til að hann geti spilað á sunnudaginn. „Kidd fær starf ið ef hann vill það“ Orðrómur hefur verið á kreiki í Bretlandi þess efnis að Alex Fergu- son, framkvæmdastjóri Manchester United í enska boltanum, hyggist hætta ef liðið verður enskur meistari og bikarmeistari í vor. „Getur einhver ímyndað sér að ég sé aö hætta? Það er ekki inni í mynd- inni hjá mér. Ég hef ekki enn náð öllum þeim markmiðum sem ég hef sett mér hjá United. Það hefur ýmis- legt verið sagt um hugsanlegt brott- hvarf mitt frá Old Trafford og Brian Kidd hlýtur að velta því fyrir sér hvað sé eiginlega á seyði. Hann hefur unnið stórkostlegt starf hjá Man Utd og ég lít þannig á framtíðina að ef hann vilji fá mitt starf þegar ég hætti þá fái hann það,“ segir Ferguson. Brian Kidd er hans hægri hönd og hefur samstarf þeirra verið án hnökra hingað tíl. liÍ: Chicago Bulis leikur vel þessa dagana og í nótt var Atlanta lagt að velli örugglega. Chicago var meö 12 stiga forystu í háUleik og hélst sá munur þegar upp var staðiö. Scottíe Pippen skoraði 20 stig og Toni Kukoc 18 stig. Ken Norman var stígahæstur hjá Atlanta með 21 stig. Enginn iék betur en Reggie MUler þegar hann skoraði 40 stig fyrir Indiana gegn Milwaukee. Indiana var sjö stigum undir í upphafi fjórða leikhluta en framtak Millers vó þungt á lokakaflanum. Orlando tapaði sínum öðrum leik í röö. Derrick Coleman skoraði 36 m I stig fyrir New Jersey og tók ll frá- köst. ShaquiUe O’Neal gerði 34 stig fyrír Orlando og hirti 17 fráköst. Chris Mullin skoraði 33 stig í sigri Golden State á Lakers og er óðum að ná fyrri styrk eftir langvarandi meiðsli. CUppers lék vel gegn Detroit og var MaUk Sealy stigahæstur með 25 stig. Úrslit leikja í nótt: New Jersey - Orlando......108-99 Indiana - MUwaukce.......117-108 Chicago - Atlanta..........99-89 LA Clippers - Detroit.....117-89 Golden State - LA Lakers ....119-108 Stúdentar í úrslitin ÍS vann Þór í Þorlákshöfn, 86-95, í þriðja leik liðanna í undanúrshtum 1. deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. ÍS leikur því til úrslita við Breiðablik um sætí í úrvalsdeUd- inni, en Uðið sem bíður lægri hlut fær annað tækifæri og mætír þá Skaga- mönnum. EgUl Viðarsson skoraði 28 stig fyrir ÍS, Guðni Guðnason 14 og Lárus Ámason 14. Champ Wrencher skoraði 34 fyrir Þór, Bjöm Hjörleifs- son 17 og Vignir Bjarnason 17. Mikilvægur sigur Fram Fram ér aftur komiö í slaginn um sæti í 1. deild í handbolta eftir sigur á Gróttu í gærkvöldi, 22-20. Ármann Sigurvinsson skoraöi 5 mörk fyrir Fram en Einar Jónsson 7 fyrir Gróttu. Breiðablik á enn möguleika eftir stórsigur á Þór frá Akureyri, 34-22, en staðan í hálfleik var 20-5. Davíð Ketilsson skoraði 9 mörk fyrir Blika en Geir Aðalsteinsson 7 fyrir Þór. Leik Fylkis og ÍBV var frestað. Stað- an í úrsUtakeppninni: ÍBV........... 6 6 0 0 159-138 12 Grótta........ 7 4 1 2 153-147 11 Fram.......... 7 2 1 4 133-140 9 Breiðablik.... 7 3 1 3 170-156 8 Fylkir........ 6 2 2 2 134-137 6 ÞórAk......... 7 0 1 6 150-181 1 -L Þú getur svarað þessari spuuningu með því að hringja í síma 99-16-00. 39,90 kr. mínútan. Valur _lj KA _2| ,r ö d d FOLKSINS 99-16-00 , Hvort verður Valur eða KA íslandsmeistari í handbolta? Alllr i stafræna kerlinu met tónvalssima geta nýtt sét þessa þjónustu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.