Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1995, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995
3
Lækkun á aðflutningsgjöldum farartækja:
Fyrst og fremst fyrir
ferðamannaþjónustu
- meö þessu er tekið upp tvöfalt verðlag á farartækjum, segir Gísli Guðmundsson hjá B&L
„Þetta er bara gert fyrir ferðaiðn-
aðinn og með þessu á hann að fá hlut-
ina á öðru og lægra verði en aðrir í
landinu. Það er verið að hverfa ára-
tugi aftur í tímann með því að taka
hér upp tvöfalt verðlag sem kallar á
tvöfalt siðgæði. Þetta gagnrýni ég
harðlega,“ sagði Gísh Guðmundsson,
forstjóri Bifreiða og landbúnaðar-
véla, um þá lækkun á aðílutnings-
gjöldum á ákveðnum tegundum far-
artækja sem samþykkt var á Alþingi
rétt fyrir þinglok.
Þar er fyrst til að taka að vörugjald
af hópferðabifreiðum lækkar úr 15 í
5 prósent og er rökstutt með því að
verið sé að styrkja íslenskan ferða-
mannaiðnað í samkeppni við erlend-
an.
Gamlir vörubílar
Á sama tíma lækkaði vörugjald á
vörubifreiðum ekki neitt og er áfram
30 prósent. Vegna þess að vörubif-
reiðir eru atvinnutæki er hvergi í
nálægum löndum lögð svona gjöld á
vörubifreiðar, að því er Jónas Þór
Steinarsson, framkvæmdastjóri Bíl-
greinasambandsins, tjáði DV.
Þess má geta að 23,9 prósent vöru-
Lækkun á aðflutningsgjöldum
farartækja
0 Nú
H Verður
Allt eftir
vélastærðum úr
75, 60 eða 45%.
Einungis fyrir
vélsleðaleigur
bifreiða á íslandi eru eldri en 20 ára,
sem þýðir að þær eru skilgreindar
sem fornbílar.
Þá lækkar vörugjald af bílaleigu-
bílum niður í 30 prósent, sem er
lægsti gjaldflokkur á fólksbílum. Þeir
eru annars íjórir 30, 45, 60 og 75 pró-
sent og fara eftir vélarstærð bifreiða.
Þessi lækkun á bílaleigubílunum er
hugsuð til að þær geti lækkað leigu-
gjaldið sem ferðamenn hafa kvartað
mjög yflr að væri of hátt.
Loks er á það að benda að vöru-
gjald af vélsleðum fyrir vélsleðaleig-
ur var lækkað úr 70 prósentum, sem
almenningur verður að greiða, niður
í 30 prósent fyrir leigurnar.
Minnstu bílar lækka ekki
Vörugjaldið var lækkað á einum
flokki almennra fólksbíla. Það var
flokkur bíla með sprengirými véla
af stærðinni 1401 til 2000. Þessar bif-
reiðir lækka úr 45 i 40 pósent.
Vörugjald af minnstu og ódýrustu
bílunum var ekki lækkað. Þar er um
að ræða bíla með sprengirými 1400
eða minna.
Gísli Guðmundsson bendir á að
lækkun á þessum bílum hefði komið
almenningi til góða sem umtalsverð
kjarabót fyrir hina lægst launuðu en
alltaf væri verið að tala um að bæta
kjör þeirra.
Fréttir
Menningarborg Evrópu:
Reykjaviksækist
eftir árinu 2000
Ríkissfjórnin samþykkti á fundi
sínum í fyrradag að send verði
inn umsókn um að Reykjavík
verði útnefnd menningarborg
Flvrópu árið 2000. Umsóknar-
fresturinn er til 30. júní á þessu
ári en þegar er vitað um að tvær
norrænar borgir hafa sóst eftir
útnefningunni. Það eru Björgvin
og Helsinki.
Kaupmannahöfn verður menn-
ingarborg Evrópu árið 1996 og
Stokkhólmur árið 1998.
kvöldverðartilboð
17.3.-23.3.
Kr. 1.950
Nýr, spennandi
sérréttama tseðill
„One for Two“
klúbbfélagar
velkomnir
sunnud.-föstud.
Opið:
i hádeginu miðvikud.-föstud.
á kvöldin miðvikud.-sunnud.
MASH
Panasonic
iii nnnnj
£*í ,lmUm
Hljómtækjasamstæða sem hefur 2xóOW magnara, útvarp með FM, MW og LW, klukku, tvöfallt segulbandstæki með AUTO
REVERSE, vandaðan eins bita MASH geislaspilara, forstilltan DSP TÓNJAFNARA,
góða 60W 2way hótalara og fjarstýringu sem stýrir öllum aðgerðum.
AKRANES: MÁLNI NGARÞJ. M ETRO
BORGARN ES: KAUPF. BORGFI RÐINGA
HELLISANDUR: BLÓMSTURVELLIR
BOLUNGARVÍK: LAUFIÐ ÍSAFJÖRÐUR:
PÓLLINN SAUÐÁRKRÓKUR: KAUPF.
SKAGFIRÐINGA, RAFSJÁ AKUREYRI:
radíóvinnustofan, Radíónaust, metro,
Kaupf. Eyfirðinga, Rafland
HÚSAVÍK: ÓMUR SEYÐISFJÖRÐUR:
KAUPF. HÉRAÐSBÚA EGILSSTAÐI R:
Rafeind, Kaupf. HÉRAÐSBÚA
NESKAUPSTAÐUR: TÓNSPIL HÖFN:
Rafeindaþj. BB , KAUPF.
A-SKAFTFELLINGA VESTMANNEYJAR:
brimnes KEFLAVÍK: rafhús
Brautarholti & Kringlunni Sími 562 5200