Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Page 24
32
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995
VINNIN LAUGA (21 GSTÖLUR RDAGINN 18.3.1995
^5^16)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 al 5 2 7.508.460
2.S«10 105.970
3. 4af 5 272 6.720
4. 3af 5 8.714 480
Heildarvinningsupphæd: 22.087.180
m : tík ; BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
KAUPMENN - INNKAUPAFOLK
ADAMASTOR - HYGRADE
Hvit stigvél fyrir matvælaiðnaö-
inn, s.s. frystihús og kjötvinnslur
Þau eru:
Sérlega víð yfir ökklann, þess
vegna auðvelt að fara í og úr.
Einnig eru þau sérstaklega breið
yfir fótinn og há á ristina.
Heildsölubirgðir
JÓN BERCSSON H.F.
Langholtsvegi 82
Sími 5888944, fax 5888881
9 9 - 1 7 5 0
Verö kr. 39,90 mín.
Taktu þátt. Þú gætir
unnið Ijúffenga
fjölskyldu-
veislu fyrir sex.
Muniö aö svörln við
spurningunum er aö
finna í blaðaukanum
DV-helgin sem fylgdi DV
síöasta föstudag.
Sviðsljós
litfagurt
krulluflauel
Breska ofurfyrirsætan Kate Moss er hér mætt í ærið litfögrum skrúða, vesf-
ispeysu og höfuðfati úr litfögru krulluflaueli og pilsi með silfurgráum grunn-
tóni. Þessi kynþokkafulla múndering var meðal þess sem gestir sáu þegar
fískuhönnuðurinn Vivienne Westwood sýndi haust- og vetrartískuna í Lon-
don um helgina. Simamynd Reuter
Vivienne Westwood virðist gefa
brjóstunum lausan tauminn í sinni
hönnun, alla vega virðist þetta
þrönga ullarvesti ekki vera þess
megnugt að halda miklu innan
klæða.
Madonna sýndi náttkjólinn sinn þeg-
ar hún kom til náttfataveislu á veg-
um sjónvarpsstöóvarinar MTV sem
haldin var um helgina. Madonna var
veislustjóri og notaði tækifærði til
að kynna nýjasta myndbandið sitt,
Bedtime stories.
30 þátttakendur,
dregnir út vikulega,
fá aö launum
nýútgefna bók um
Nell frá Úrvalsbókum
og bíómiöa fyrir tvo á
kvikmyndina Nell sem
veriö er aö sýna í
Háskólabíói um
þessar mundir.
Stórkallar leika
úrvalslöggur
Það eru engir smákallar sem koma saman í myndinni
Mulholland Falls. Nokkuð er síðan þeir Nick Nolte og
Chazz Palminteri létu bóka sig en nú hafa þrír stórir og
stæðilegir starfsbræður þeirra bæst í hópinn. Þeir heita
John Malkovich, Michael Madsen og Chris Penn. Sá sem
ætlar að stjóma þessu einvalaliði er Nýsjálendingurinn
Lee Tamahori sem gerði myndina Once Were Warrior.
Sú er væntanleg í reykvískt kvikmyndahús á næstunni
en hún hefur hlotið lofsamlega dóma erlendis.
Mulholland Falls, fyrsta mynd Tamahoris í Ameríku,
gerist í Los Angeles á sjötta áratugnum og segir frá úr-
valsdeild innan lögreglunnar sem gekk undir nafninu
„hattarnir fjórir"
Löggurnar vora allar saman í einum risakádilják og
eltu ræningja og morðingja og annan óþjóöalýð. Hlutverk
þessara lögvarða veröa í höndum þeirra Noltes, Palmint-
eris, Madsens og Penns. Það má því gera ráð fyrir að
Maikovich leiki einhvem erkibófann. Nú, eða kannski
löggustjórann.
„Þetta er einhver fjölhæfasti hópur sem viö höfum
unnið með,“ sagði Lih Fini Zanuck sem er annar fram-
leiðenda myndarinnar.
Auk ofangreindra þungavigtarmanna koma fram í
myndinni Treat Williams, Cary Elwes, Wilham Petersen,
Bruce Dem og margir fleiri. Nick Nolte er ekkert óvanur því aö leika útsmogna löggu.
Stútur við stýri
Söngvarínn góðkunni, John
Denver, slapp naumlega þegar
ákæru á hendur honum fyrír að
keyra fullur var vísað frá i rétti
í Colorado-fylki. Denver ók Por-
che-bílnum sínum á tré í fyrra-
sumar og var grunaður um öl vun
við akstur. Saksóknarinn sætti
sig ekki við málalok i réttinum
vegna fordæmisgildis og má þvi
eiga von á að ölvunarakstur Den-
vers fari fyrir hæstarétt.
Aftur á skjáinn
Don Johnsonhefur tekið að sér
að leíka í nýjum sakamáiaþáttum
sem bera nafiúð „Off duty“ eða Á
frívaktinni. Fjalla þeir um lög-
reglumann i San Francisco sem
er tvískilinn og neyðist til aðtaka
að sér svarta vinnu til að eiga
fyrir meðlögunum. Johnson hef-
ur tekið saman viö konu sína,
Melaine Griffith, eftir skilnaö í
fyrrasumar en hann fór i meðferð
vegna drykkjuvandamála.
Olétt aftur
Leikkonan Marilu Henner kom
samstarfsfólki sínu verulega á
óvart þegar hún sagðist vera
ófrísk. Mariiu á 10 mánaða son
sem hún er enn með á bijósti.
Bameignirnar hindra hana þó
ekki í vinnu og er hún önnum
kafin sem aldrei fyrr. Hefur hún
samþykkt að taka að sér hlutverk
í nýrri mynd Ted Ðansons en tök-
ur á henni hefjast í maí.
nyjan
mjaðmarlið
í nýrri ævisögu Elísabetar
Taylor segist hún ailtaf hafa litið
á sig sem úrhrak og því hafi hin-
ir einmana, afskiptu og veiku
höfðað til sín. Lif hennar hafi
snúist um kvikmyndatökur og
kvikmyndahandrit frá því hún
hóf að leika sem barn. Taylor,
sem er 63 ára, er að ná sér eftir
að hafa fengið nýjan mjaðmarlið.