Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Side 32
Tölvum stolið:
Tveggja mán-
aða vinna
í súginn
„Þjófarnir gengu mjög kunnáttu-
samlega til verks. Þeir aftengdu
gamlar tölvur og tóku einungis þaö
nýjasta. Inni á tölvukerfmu sem var
tekið var 2 mánaöa vinna, allt okkar
framleiðslukerfi. Þaö er það sorgleg-
asta. Nú þurfum viö að handteikna
hverja einustu hurð og hvern einasta
glugga með blýanti," segir Ferdinand
Hansson, framleiðslustjóri BYKO í
Njarðvík.
Brotist var inn í verksmiðjuna að-
faranótt laugardags og stolið þaðan
nýrri tölvu og hugbúnaði. Fyrirtækið
haíði nýverið fest kaup á búnaðinum
fyrir um 2 milljónir. Hurð hafði verið
brotin upp en aðrar skemmdir voru
ekkiunnaráverksmiðjunni. -kaa
Borgarráð:
Helga Jóns-
dóttir borgar-
ritari?
Kristín A. Árnadóttir, aðstoöar-
kona borgarstjóra, býst við að lagður
verði fram listi yfir umsækjendur
um stöðu borgarritara á borgarráðs-
fundi í dag og hugsanlega skýrist á
fundinum hver verður ráðinn í stöð-
una. Fimm umsóknir bárust þegar
umsóknarfrestur rann út fyrir helgi.
Samkvæmt heimildum DV er
Helga Jónsdóttir, fyrrum skrifstofu-
stjóri í forsætisráðuneytinu og fyrr-
verandi aðstoðarkona Steingríms
Hermannssonar, meðal umsækjenda
og er hún talin líkleg til að hljóta
hnossið.
„Ég vil hvorki játa því né neita,“
sagði Kristín A. Ámadóttir um það
hvort Helga væri í hópi umsækjenda.
LOKI
Áreksturinn minnirá að
fall er fararheill
-fyrir næsta stjórnarsamstarf!
Verðum að
Gisli Krjstjánsson, DV, Osló:
fiskveiðimál nú i lok mánaðarins.
__ Ráðstefnan stendur frá 27. mars til
„Við verðum að viðhafa sömu 12. aprfl.
aðferðir gegn íslendingum og þeir „Ef engin viðunandi niðurstaöa
notuðu sjálflr gegn Bretum í verður af ráðstefnunni munum við
þorskastríðunum. Norskir sjó- krefjast þess að norsk stjórnvöld
menn geta ekki horft eitt árið enn loki Smugunni með hervaldi, ef
aðgeröalausir á rányrkjuna í ekki vill betur til. Þetta er flski-
Smugunni. Á endanum verðuin viö stofn sem við lögöum mikið á okk-
að beita hervaldi,“ segir Oddmund ur við að byggja upp og getum ekki
Bye, formaður Norges flskarlag, i látið aðra stela frá okkur,“ sagði
samtali við DV. Oddmund.
Oddmund sagði að norskir sjó- „Við sjómenn getum ekkert gert
menn reiknuðu fastlega með að ís- sjálfir og ætlum ekki að grípa til
lendingar sendu álíka stóra flota í ólöglegra aðgerða. Við munum
Smuguna í sumar og síðasta sum- hins vegar krefjast aðgerða afhálfu
ar. Hann sagði að samtök sin hygð- yfirvalda, Á síðasta ári tóku íslend-
ust bíða þess sem gerðist á ráð- ingar álíka mikið af okkar físki og
stefnu Sameinuðu þjóöanna um við höfum sjálfir veitt við Lofoten
í vetur. Það sjá allír að þetta gengur
ekki,“ sagði Oddmund.
Samkvæmt upplýsingum Jon
Espen Lien hjá norsku strandgæsl-
unni er enn aðeins einn togari í
Smugunni. Það er Santa Princessa,
portúgalskur togari, skráður í
Belize. Hann hafði í gær ekki enn
hafið veiöar.
„Við höfum eitt varöskip á svæð-
inu og eftirlitsflugvél flýgur þar
reglulega yfir. Það eína sem við
getmn gert er að lita eftir hugsan-
legum veiðum. Annars liggja ekki
fyrir ákvarðanir mn meiri aðgerðir
en á síðasta ári,“ sagði Lien.
Hann sagði að ekki kæmi til álita
nú að taka togara á alþjóðlegu haf-
svæði.
ur í árekstri
„Þetta var í þröngum snjógöngum
og vegurinn sleipur. Báðir bílarnir
skemmdust og þurfti að draga þá af
slysstað. Anna Jensdóttir fór á
sjúkrahús og var sett í kraga en kom
svo á fundinn til okkar,“ segir Gunn-
laugur M. Sigmundsson, efsti maður
hjá Framsókn á Vestfjörðum.
Frambjóðendur Sjálfstæöisflokks-
ins, Einar Kr. Guðfinnsson, Einar
Oddur Kristjánsson, Guðjón A.
Kristjánsson og Ólafur Hannibals-
son, lentu í árekstri við bíl Gunn-
laugs M. Sigmundssonar og Önnu
milli Tálknafjarðar og Patreksfjarð-
ar á sunnudag.
- ■' V .
s* & "
4 ^ J
Davið Oddsson forsætisráðherra leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík i alþingiskosningunum 8. april og
hefur því í mörgu að snúast þessa dagana. Davíð og félagar hans á framboðslistanum hafa heimsótt marga vinnu-
staði að undanförnu til að kynna stefnu flokksins, þar á meðal saltfiskvinnslu Jóns Ásbjörnssonar. Á myndinni er
Jón að lýsa vinnsluferlinu fyrir stjórnmálamönnunum meðan einn starfsmanna hans sker og snyrtir flökin.
DV-mynd BG
Veðriö á morgun:
Kaldi eða
stinnings-
kaldi
Á morgun veröur suðvestanátt
víðast hvar, kaldi eða stinnings-
kaldi, él eða slydduél sunnan- og
vestanlands en úrkomulaust
norðan- og austanlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
Seyðisfjörður:
Rætt um að
færa verk-
smiðjuna
Ljóst er að tugmilljóna króna tjón
varð þegar snjóflóðið féll á mjöl-
skemmu og hluta verksmiðjuhúss
Vestdalsmjöls á Seyðisfirði. Ræða
menn nú um hvort það svari kostn-
aði að færa verksmiðjuna og finna
henni nýjan stað á Seyðisfirði.
í samtali við DV í gær sagöi Arnar
Jónsson, verksmiðjustjóri Vestdals-
mjöls, að um 1.700 tonn af gæða
loðnumjöli hefðu verið í mjölskemm-
unni sem fór á haf út í flóðinu. Geng-
ið hefði verið frá 2.000 tonnum og
framleiðsla hefði staðið yfir á sein-
ustu 300 tonnunum. Að sögn kunn-
ugra er ekki ólíklegt að verðið á mjöl-
inu sé um 40 þúsund krónur tonnið
og verðmæti mjölsins í skemmunni
því allt að 70 milljóna virði.
Arnar sagði ekki ljóst hvort allt
mjölið hefði ruðst með skemmunni á
haf út en hægt væri að endurvinna
það ef eitthvað af því væri enn í
grunninum.
Arnar sagði að eigendur væru til-
búnir að halda rekstrinum áfram en
rætt hefði verið um að færa verk-
smiðjuna um set. Þetta er í þriðja
skiptið sem flóð fellur á hana.
Aðspurður sagði Arnar að allar
tryggingarhefðuveriðílagi. -pp
Snjóflóðahættan:
Áþriðja hundrað
yfirgáfu heimilin
Samtals 136 Patreksfirðingar
þurftu að yfirgefa heimili sín í gær
vegna snjóflóðahættu. Var 41 hús
rýmt en endurmeta átti snjóflóða-
hættu undir hádegi í dag. Að sögn
lögreglu var ekki vitað um að fióð
hefðu fallið í nótt eða í morgun.
Þá voru 9 hús rýmd við Ólafstún á
Flateyri í gær. Þurftu um 30 íbúar
að yfirgefa heimili sín og einnig íbúar
tveggja sveitabæja í nágrenni Flat-
eyrar. Endurmeta átti ástandið eftir
hádegi i dag.
29 íbúar á Seyðisfirði þurftu að yf-
irgefa heimili sín og annar eins fjöldi
í Olafsvík. Starfsemi liggur niðri í 11
fy rirtækj um á Sey ðisfirði. -pp
Akureyri:
Snjórhrundiábíla
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Tvær bifreiðar eru talsvert
skemmdar eftir að sixjóhengjur á
þaki fjölbýlishúss í Glerárhverfi féllu
á þær í gærkvöldi. Skemmdir eru
talsverðar á þaki bifreiðanna og rúð-
ur brotnuðu í þeim.
0Fenner
Reimar og reimskífur
SuAurlandsbraut 10. S. 68M99.
LSTTi
alltaf á
Miðvikudögnm
FRETTASKOTIÐ
562-2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
AFGREIÐSLU: 563 2777
KLS'S LAUGARDAGS‘06 manudag$morgma
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995.