Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1995, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995
25
íþróttir
fi
Bandarikjamaðurinn Marc Mitchell smeygir sér fram hjá Friðriki Ragnarssyni i leiknum
ar eiga nú erfiðan leik fyrir höndum í Njarðvík á fimmtudagskvöldið kemur.
gærkvöldi. Grindvíking-
DV-mynd Brynjar Gauti
Úrslitakeppnin í körfuknattleik:
Njarðvíkingar
í góðum málum
- eftir þriöja sigurinn á Grindavík, 75-79, í gærkvöldi
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta var mjög sætur sigur og
spennandi leikur. Við töpuðum hér
hræöilega og ætluðum ekki að láta
það gerast aftur. Ég var nokkuð viss
um ef við myndum geta haft leikinn
jafnan fram til síðustu mínútu þá
ættum við möguleika á sigri. Við
náðum að stöðva þá í þriggja stiga
skotunum ef það hefði ekki tekist
hefðum við átt í vandræðum með þá.
Við stefnum að því aö klára þetta
heima en það getur allt gerst. Þetta
er ekki búið en þeir þurfa að vinna
þrjá leiki til að verða Islandsmeistar-
ar og það er svolítið erfltt," sagði ísak
Tómasson, Njarðvíkingur, eftir sig-
urinn á Grindvík í gærkvöldi, 75-79,
í æsispennandi leik.
Það er óhætt að segja að Njarðvík-
ingar séu komnir með aðra höndina
á titilinn en þeir hafa 3-1 yfir og geta
klára einvigið í Njarðvík á fimmtu-
dagskvöldið en þar hafa þeir ekki
tapað leik í vetur. Úrsht réðust ekki
fyrr en á lokasekúndum leiksins en
margir fengu á tilfmmnguna að
Grindvíkingar myndu sigra þegar
Guðmundur Bragason skoraði fjögur
stig í röð þegar rúm mínúta var til
leiksloka. Þá náðu Grindvíkingar
þriggja stiga körfu en þá tóku Rond-
ey Robinson og Teitur Örlygsson sig
til og komu sigrinum í höfn.
Grindvíkingar voru mjög óánægðir
með dómgæsluna en þeir töldu að
leikmenn Njarðvíkinga hefðu komist
upp með hörku og þá sérstaklega Rond-
ey. Guðmundur Bragason lék manna
best í hði Grindavíkur en þeir Marc
Mitcheh og Marel Guðlaugsson áttu
ágæta spretti. Menn eins og Guðjón
Skúlason og Helgi Guðfmnsson voru
ekki sjálfum sér líkir og þurfa aö taka
sig saman í andlitinu. Rondey Robin-
son var gríðarlega sterkur og gaf ekki
þumlung eftir. Þá voru þeir öflugir
Jóhannes Kristbjömsson, Teitur Örl-
ygsson og Valur Ingimundarson sem
hirti tíu vamarfráksöt.
„Verðum að gera
miklu betur næst“
„Það var hrikalegt að missa boltann
þegar aö við vorum þremur stigum
yfir á síðustu roínútunni. Þá vorum
við að taka mjög lélegt skot og það
var virkilega klaufalegt af okkur.
Það er alveg á hreinu að við verðum
að gera betur næst. Ég var mjög
svekktur með mína frammistöðu og
þaö er öraggt að ég ætla að leggja
mig helmingi meira fram í næsta
leik,“ sagði Unndór Sigurðsson hjá
Grindavík eftir leikinn.
„Þetta var spennandi leikur og
mikil barátta. Ég var svakalega hissa
að það var ekki kominn bónus þegar
Guðmundur braut á Rondey undir
blálokin. Ég hélt að það hefði verið.
miklu meira flautað. í svona leik er'
oftast heppni sem þarf og Njarðvík-
ingar hafa einnig leikreynsluna. Það
verður miklu erfiðara fyrir Grinda-
vík að fara til Njarðvíkur," sagði
Torfi Magnússon landshðsþjálfari.
Grindavík - Njarðvík (37-43) 75-79
0-2, 6-10, 13 17, 19-17, 26-26, 30-33, 37-38, (37-43). 41-43; 50-52, 50-56, 57-61,
60-67,63-69, 68-69, 74-71,74-78, 75-78,75-79
• Stig Grindavík: Guðmundur Bragason 19, Marc Mitchell 19, Marel Guð-
laugsson 13, Guöjón Skúlason 10, Pétur Guðmundsson 6, Helgi J. Guðfinns-
son 3, Unndór Sigurösson 34, Bergur Hinríksson 2.
• Stig Njarðvík: Rondey Robinson 32, Jóhannes
Kristbjörnsson 16, Teitur Örlygsson 11, Valur Ingí-
mundarson 10, Friörik Ragnarsson 6, Ástþór Ingason
3, Kristinn Einarsson 1.
3ja stiga körfun Grindavtk 29/6, Njarðvík 22/7.
Fráköst: Grmdavík 38, Njarðvík 41.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi Bragason, hafa
oft dæmt áöur betur.
Áhorfendun Um 1000.
Maður leiksins: Rondey Robinson, Njarðvík.
DV DV
Skattamál íþróttafélaga:
llm 290 félög hafa gert
hreint fyrir sínum dyrum
- um tíu félög enn þá með allt niður um sig
Rannsókn af hálfu skattyfirvalda in hefur tekið mjög vel við sér. Hreyf- kann að vera að viðkomandi hafi verið
stendur enn yfir á skattamálum um tiu ingin hefur hreinsað til hjá sér og stað- lengi í vandræðum með reksturinn hjá
iþróttafélaga eða deilda innan þeirra. ið í skilum eins og til var ætlast og sér, kannski að skipta um stjórnar-
Ahs eru starfandi um 300 íþróttafélög farið var fram á,‘‘ sagði Ellert B. menn og eitthvað þess háttar. Þaö er
eða deildir í landinu og langstærstur Schram, forseti íþróttasambands ís- út af fyrir sig engin afsökun fyrir því
hluti þeirra, um 290 félög, hafa gert lands, í samtali við DV í gær og bætti aö menn hafi ekki náð tökum á þessu.
hreint fyrir sínum dyrum og tekið sig viö: „Þetta er staðfesting á því að Við hjá ÍSÍ höfum margsinnis sent
verulega á hvað samskipti víö skattyf- íþróttahreyfingin vih ekki vera aövaranir, upplýsingar, leiðbeiningar
irvöld varðar. skálkaskjól fyrir skattsvik. Hvaö þau og hvatningar til þess að koma þessu
félög varðar sem enn eiga eftir aö taka í lag og eins og sést á þessum tölum
íþróttahreyfingin vill ekki sig á geri ég mér vonir um að finna þá hefur stærstur hluti íþróttahreyf-
vera skálkaskjól fyrir skattsvik megi einhverjar sértækar eða sérhæfð- ingarinnar orðið við þvi.“
„Þessar tölur sýna að íþróttahreyfmg- ar skýringar á því. í sumum tilfellum
HM
34
dagar
Læknar fvá IHF
Tveir læknar frá læknanefhd
Alþjóða handknattleikssam-
bandsins komu til íslands fyrir
helgina og ræddu við starfsmenn
lyfjanefndar ÍSÍ sem munu ann-
ast lyfjaprófin á HM undir stjórn
læknanefndar IHF.
Mælingar á dómurum
Ákveðið hefur verið að gera
ýmsar mæhngar á dómurunum
sem dæma munu á HM. Þar á að
reyna að leita svörum við hvemig
dómarai- bregðast við undir álagi.
Dómararnir munu meðal annars
gangast undir mjólkursýrupróf
og gerðar verða púlsmæhngar á
þeim.
Ekki veriðgert áður
Ekki er vitað um að svona
mælingar hafi verið geröar á
dómurum í keppni áður. Stefnt
er að því að niðurstöðurnar verði
kynntar á dómara- og þjálfara-
ráðstefnu sem haldin verður í
Egyptalandi í sumar.
50milljónir
Svissneska sjónvarpsfyrirtæk-
ið CWL sem sér um sjónvarps-
málin á HM hefur áætlaö að 50
milljónir manna muni fylgjast
með heimsmeistarakeppninni í
handknattleik í sjónvarpi úti um
ahanheim.
Búningarfrá Adidas
íslenska landshðið mun leika í
búningum frá Adidas eins og það
hefur rendar gert í mörg ár.
Hannaðir hafa veriö nýir búning-
ar á hðið í Þýskalandi og er settið
á liöið þegar komiö th landsins.
Treyjurnar eru nokkuö breyttar
og þykja mjög snyrtilegar.
Handknatt-
leiksdeild
Breiðabliks
Framhaldsaðalfundur
handknattleiksdeildar
Breiðabliks verður haldinn
í Smáranum mánudaginn
10. apríl kl. 20.30.
Stjórnin
Ellef u sigrar í röð
hjá San Antonio
San Antonio Spurs vann sinn 11. sigur
í röð í NBA-deildinni í körfuknattleik í
fyrrinótt þegar liðið lagði Phoenix Suns
að vehi, 109-106. Sean Elhot var með 30
stig hjá Spurs en liðið lék án varnar-
mannsins öfluga, Dennis Rodmans. Char-
les Barkley var allt í öhu hjá Phoenix og
skoraði 45 stig sem er það mesta sem hann
skorar í einum leik á tímabihnu. Úrslitin
í fyrrinótt:
Boston Dallas.................. 97-84
Douglas 27 - Mashburn 30.
New Jersey-New York............ 94-85
- Starks 26, Davis 17.
Miami-Charlotte...............94 -105
Rice 30 - Mourning 22, Hawkins 22.
Cleveland-Denver..............101-104
Price 21 - Rauf 32, Williams 27.
Indiana-Portland..............104-93
Smits 20, Miller 19 - Strickland 20.
SA Spurs-Phoenix..............109-106
EUiot 30, Robinson 23/14 - Barkley 45.
LA Lakers-Orlando..............119-112
Ceballos 33, Threatt 19 - Shaq 27/12, Thomp-
son 20.
Seattle-Atlanta................105-83
Kemp 21, Payton 21.
Detroit-W ashington............110-105
Hill 33, Houston 30 - Webber 30.
Patrick Ewing hjá New York og Rick
Mahorn hjá New Jersey voru reknir í bað
fyrir handalögmál undir lok fyrri hálfleiks
þegar New York sigraði New Jersey.
Orlando lék án Anfemee Hardaway og
það var ekki að sökum að spyrja, liðið tap-
aöi fyrir Los Angeles Lakers í hörkuleik.
Cedric Cebahos átti stórleik í liði Lakers
og skoraði hann 33 stig en Shaquihe O’Neal
var með 27 stig hjá Orlando og 12 fráköst.
Anfemee Hardaway var lagður inn á
sjúkrahús fyrir leikinn en hann hefur átt
við slappleika að stríða og hefur á skömm-
um tíma misst 5 kg.
Booker fer fram á bónusgreiðslur
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Franc Booker er að fara fram á það að
hann fái greiddan bónus fyrir það að
Grindvíkurliðið komst í 4-liða úrsht. Lög-
fræðingur hans hefur sent okkur bréf og
ef við borgum ekki fer máhð fyrir dóm-
stóla. Við hlæjum aö þessu vegna þess að
við hefðum sennilega aldrei komist í 4-liöa
úrslitin ef við hefðum haldið áfram með
hann. Hann var hættur að hlýða þjálfar-
anum og gaf stjórninni langt nef. Við bor-
guðum honum bónusgreiðslur fyrir að
komast í bikarúrslitin en þar var hann
ekki með, var í leikbanni, svo við gerum
bara kröfur á móti,“ sagði Ólafur Þór Jó-
hannsson, stjórnarmaður í körfuknatt-
leiksdeild Grindavíkur, viö DV.
Handknattleikur:
Willum tekur við
þjálfun KR-inga?
Yfirgnæfandi líkur eru á að Willum Þór
Þórsson veröi næsti þjálfari 1. deildar liðs
KR í handknattleik og taki við starfi Ólafs
Lárussonar sem verið hefur við stjórnvöl-
inn hjá vesturbæjarliöinu undanfarin
fiögur ár.
Willum ætti að vera öllum hnútum
kunnugur hjá KR því hann hefur um ára-
bil leikið með hðinu, nú síðast í vetur. KR
hafnaði í 10. sæti í 1. deildinni í vetur en
hðið er að mestu skipað ungum og efnileg-
um leikmönnum. Samkvæmt heimhdum
DV hættir Páh Beck en hann er á leið til
Danmerkur í nám. Páll var einn besti leik-
maður KR í vetur en KR-ingar hyggjast
safna hði og koma sterkari til leiks næsta
vetur.
Það verður í nógu að snúast hjá Willum
fari svo að hann taki við KR-liðinu en
hann er aðstoðarþjálfari og leikmaður
með 1. deildar hði Breiðabliks í knatt-
spymunni.
Reykjavlkurmótið:
Þróttur sigraði Víking
Þróttur sigraði Víking á Reykjavíkur-
mótinu í knattspyrnu í gærkvöldi, 3-1.
Tómas Ehert Tómasson skoraði tvö af
mörkum Þróttar og Guðmundur Gíslason
eitt. Gústaf Teitsson skoraði mark Vík-
ings. Þróttur átti möguleika á að bæta við
fiórða markinu en markvörður Víkings
kom í veg fyrir það með þvi að verja víta-
spyrnu.
Þá vora tveir leikir háðir í B-dehd móts-
ins. Valur vann Fjölni, 4-0, og Leiknir
lagði Ármann, 9-2.
Einn leikur verður í A-dehdinni í kvöld
þegar Fylkir og KR leiða saman hesta sína.
Iþróttir
Athyglisverð hugmynd 5 aðila á borði borgarstjóra Reykjavíkur:
Vilja byggja stóra
íþróttamiðstöð í
Grafarvoginum
- þar yrði m.a. skautahöll og tennishöll og byggingar alls 19 þús. fermetrar
DV hefur undir höndum drög að sonar hf., eiga það sameiginlegt að þeirrar skoðunar að það muni auka myndu skapa 70-100 ný störf í
hugmyndum sem 5 aðilar hafa sent aðstaða þeira er afar bágborin og í mjög möguleikana á því að af fram- Reykjavík og 50-70 störf th fram-
th borgarstjórans í Reykjavík varð- sumum tilfellum engin. Hér yrði kvæmdum verði. búðarermiðstöðinkæmistígagnið.
andi byggingu risavaxinnar því um hreina byltingu að ræða
íþróttamiðstöðvar við Gylfaflöt í fyrir þessi félög. Risi með ógnarhraða „Líst mjög vel á þetta“
Grafarvogi. Hér er um að ræða Byggingaraðih yrði TSH og er Ef af byggingu íþróttamiðstöðvar- „Mér líst mjög vel á þessar hug-
hugmynd að samstarfsverkefni
Reykjavíkurborgar, fiögurra
íþróttafélaga í Reykjavik og Tré-
smiðju Snorra Hjaltasonar hf.
íþróttafélögin í Reykjavík sem
hér um ræðir era Ungmennafélag-
ið Fjölnir í Grafarvogi, ísknatt-
leiksfélagið Björninn, Skotfélag
Reykjavíkur og íþróttafélag fatl-
aðra í Reykjavík. Ef af fram-
kvæmdum verður yrði flatarmál
bygginga um 19 þúsund fermetrar.
Þar á meðal yrði yfirbyggð skauta-
höll og tennishöll með fióram vöh-
um. Yfirbyggð skautahöll er ekki
til staðar á Islandi í dag. Starfsemi
í íþróttamiðstöðinni yrði mjög fiöl-
breytt. Innan dyra yrði boöið upp
á aöstöðu fyrir Skotfélag Reykja-
víkur, dansskóla, líkamsræktar-
stöð eða stöðvar, íþróttaaöstöðu
fyrir aldraða, félagsmiðstöð fyrir
unghnga og ótalmargt fleira. Þá
yrðu skipulagðar skokkbrautir á
svæðinu og þær tengdar göngustíg-
um hverfanna í Grafarvogi. í íþrótt-
amiðstöðinni yrði í boði fiölbreytt
tómstundaaðstaða fyrir aha fiöl-
skylduna, boðið yrði upp á bama-
gæslu, myndhstarsýningar í gall-
eríi, léttar veitingar og verslanir
með vörur tengdar starfsemi mið-
stöðvarinnar svo eitthvað sé nefnt.
Félög sem eiga hvergi
höfði sínu að að halla
Félögin fiögur, sem hafa áhuga á
að reisa umrædda miðstöð í sam-
starfi við Trésmiðju Snorra Hjalta-
áætlaður heildarkostnaður um 480
mhljónir. Reiknað er með að bygg-
ingarstyrkur Reykjavíkurborgar
yrði greiddur á 2-3 árum. Öruggar
heimildir DV herma að ef Reykja-
víkurborg er ekki reiðubúin að
leggja fram fé strax th verksins
komi vel til greina að TSH fiár-
magni verkið að fullu og Reykja-
víkurborg byrji ekki að greiða sinn
hlut fyrr en eftir 4-5 ár. Hér er um
að ræða stórt atriði og margir eru
innar yrði risi hún með ógnarhraða
strax eftir að jákvæðar undirtektir
hefðu borist frá Reykjavíkurborg.
Tennishölhn og skautahölhn yrðu
thbúnar th notkunar strax næsta
vetur. Aðstaða fyrir fatlaða th að
stunda bogfimi utanhúss yrði tilbú-
in í sumar. Tengibyggingin á milli
hallanna yrði einnig að stærstum
hluta thbúin í sumar. Byggingar-
ffamkvæmdum lyki alfarið árið
1997. Framkvæmdir við miðstöðina
myndir eins og alltaf þegar rætt er
um að byggja íþróttamannvirki.
Mér finnst þetta mjög athyghsverð
lausn ef hægt er að fiármagna
framkvæmdir með þeim'hætti sem
rætt er um,“ sagði Ellert B.
Schram, forseti íþróttasambands
íslands, við DV í gær.
Ekki náðist í gær í Snorra Hjalta-
son vegna málsins.
Gylfaflöt í Grafarvogi
• Hér mun iþróttamiðstöðin risa ef af framkvæmdum verður. Teikning af byggingum að ofan. DV-mynd SK
Knattspyma:
Dusan stóð sig
vel með I A-liðinu
Júgóslavinn Dusan Alatic, sem
íslandsmeistarar ÍA í knattspyrnu
eru að skoða, stóð sig vel meö liðinu
þegar það vann 5-2 sigur á Keílvik-
ingum í æfingaleik um helgina.
Alatic, sem er 25 ára gamall sókn-
armaöur, skoraði eitt af mörkum
Skagamanna og lék vel, aö sögn
Gunnars Sigurðssonar, formanns
knattspyrnufélags ÍA.
Ákvörðun tekin eftir annan leik
Gunnar sagðí Alatic myndi leika
arman leik með ÍA í vikunni og eftir
þann leik yrði tekin ákvörðun um
það hvort hann kæmi til félagsins.
Þriðjudaginn 4. apríl
KR - Fylkir
kl. 20.00
Gervigrasið Laugardal