Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1995, Síða 2
FÖSTUDAGUR 26. MAl 1995
Fréttir
Skipstjórinn á norska varðskipinu Senju:
Vona að ekki þurf i að
beita klippunum í sumar
Reynir Traustaaon, DV, Svalbarða:
„Ég vona aö til þess komi ekki að
við þurfum að beita klippunum í
sumar, sagði Halvar Pettersen, skip-
stjóri á varðskipinu Senju, þar sem
DV ræddi við hann um borð í skipi
hans í Longyearbyen á Svalbarða.
Alhr íslensku skipstjórarnir sem
stunduðu veiðar í Smugunni og á
Svalbarða sl. sumar þekkja til Senju
því að hún kom mest við sögu þeirra
átaka sem áttu sér stað milli norsku
strandgæslunnar og íslensku togar-
anna. Pettersen, sem stjórnaði að-
gerðum þegar Senja sigldi á fullri
ferö aö togurunum Drangey og Blika,
segir að þar hafi aldrei verið nein
hætta á ferðum og skip hans þurfi
aðeins nokkra metra til að stöðva.
Hann gefur lítiö fyrir myndband sem
tekið var um borð i Drangey meðan
á þeim aðgerðum stóð.
„Við lögðum fram myndband sem
sýnir annað sjónarhorn en það sem
íslendingamir lögðu fram. Okkar
myndband sýnir að íslensk skip
þrengdu að okkur,“ segir Pettersen.
Hann segir að norska strandgæslan
muni fylgjast með feröum íslensku
togaranna í sumar. Hann segir að
þeir muni þó ekki fara um borð í
skipin í Smugunni nema fyrir Uggi
samþykki islensku skipstjóranna.
„Við erum tilneyddir að halda uppi
stjóm á veiðum á fiskvemdarsvæð-
inu; ef við gemm það ekki leiðir það
til stjómlausra veiða þar og enginn
veit hvað er tekið af fiski þar. Við
munum einnig fylgjast með veiðum
í Smugunni og á mörkum hennar og
Svalbarðasvæðisins. Ef við erum vel-
komnir um borð í íslensku skipin þá
munum við fara þangað, tala við
áhafnimar og skoða afla þeirra, segir
Pettersen.
Málarekstur vegna samskipta Senju
og íslensku togaranna stendur nú í
Noregi. Pettersen hefur fengið á sig
þá mynd að hann sé grimmur í við-
skiptum viö íslenska togara. Hvemig
er að hafa á sér slíkan stimpil.
„Við höfum átt samskipti við ís-
lendingana og ég hef ekkert á móti
íslensku skipstjórunum persónu-
lega. Ég held líka að þeir hafi ekkert
á móti okkur. Ég þekki nokkra ís-
lendinga persónulega og hef ágætt
samband við þá. Menn eiga ekki að
gera þessa deilu persónulega. Við
erum einfaldlega að vinna okkar
vinnu og samskiptin við íslensku
skipin hafa almennt verið góð, segir
Pettersen.
Feguröardrottning íslands:
Þettakom
skemmtilega
áóvart
„Það var yndisleg tilfinning þegar
nafniö mitt var kallað upp. Þetta
hefur verið vinna í marga mánuði
en jafnframt mjög skemmtilegur
tími. Ég verð þó að viðurkenna að
geðshræringin var mikil þegar allt
var búið og ég fann fyrir nokkurs
konar spennufalli. En þetta var ynd-
islegt kvöld. Mér brá en þetta kom
mér skemmtilega á óvart,“ sagöi
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, 19 ára
verslunarskólamær og nýkjörin feg-
uröardrottning íslands, í viðtah við
DV í gær. Fegurðardrottningin hafði
þá ekki undan að taka á móti góðum
kveðjum og blómasendingum.
í öðru sæti Fegurðarsamkeppni ís-
lands, sem fram fór á Hótel íslandi á
miðvikudagskvöldið, varð Sigríður
Ósk Kristinsdóttir, í þriðja sæti
Brynja Björk Harðardóttir, Berglind
Ólafsdóttir í fjórða og Guðlaug Harpa
Gunnarsdóttir í því fimmta.
Hin nýkjöma fegurðardrottning
sagðist vitaskuld hafa farið í keppn-
ina í þeim tilgangi að vinna og segir
að spennan hafi verið magnþrangin
þegar fyrstu fjögur sætin vora orðin
ljós og beðiö eftir hver væri sigurveg-
ari kvöldsing. „Þetta á eftir aö verða
ein af mínum eftirminnilegustu
stundum," sagði hún.
Suðurleið:
Bjargar norður-
leiðinnifyrirDV
-á meðan verkfall stendur
Þótt feröir Noröurleiðar milli
Reykjavíkur og Akureyrar hafi
fallið niður sökum verkMs
Sleipnismanna hefur DV getað
komiö blaöinu á réttum tíma til
áskrifenda alla leiö noröur til
Siglufiaröar. „Bjargvætturinn“ er
Suðurleiö sem er með sórleyfi á
milh Reykjavíkur og Siglufjaröar.
Eigandinn, Jón Sigurðsson frá
Sleitustöðiun, heldur uppi venju-
legri áætlun og skilar DV frá sér
um Borgarfjörö, hluta Stranda-
sýslu, um báðar Húnavatnssýsl-
ur, aha Skagafjarðarsýslu og loks
til Sigluijarðar. Viö venjulegar
kringumstæður hefur Norðurleiö
séð um þessa staði fyrir DV.
Aö sögn Más Halldórssonar,
dreifingarstióra DV, hefur verk-
fáh Sleipnis helst bitnað á dreif-
ingu blaösins með Noröurleið og
Austurleið. Dreifing á Snæfells-
nes, með SBS austur fyrir Qah
og meö Sæmundi til Borgamess
hefur gengið áfallalaust.
-þjb
Litla systir, Berglind, 14 ára, lagar kórónuna á fegurðardrottningu íslands og stóru systur, Hrafnhildi Hafsteinsdótt-
ur, eftir krýninguna á miðvikudagskvöld. DV-mynd GVA
Stuttar fréttir
Ráðánkaria
Félagsmálaráðherra hefur
skipað nýtt Jafnréttisráð. í því
eiga sæti Elín R. Líndal, formað-
ur, Þórunn Sveinbjömsdóttir,
Þórveig Þormóðsdóttir, Drífa
Hjartardóttir, Ehen Ingvadóttir,
Hrafhhildur Stefánsdóttir og
Ragnhildur Benediktsdóttir.
Evrópusamtök stofnuð
Evrópusamtökin vora stofnuð í
Rey kjavík í gær. Eitt af markmið-
um samtakanna er aö stuðla að
ESB-umsókn af hálfu íslands.
Óvissa um formann
Óvíst er hvort Jóhannes Nordal
verður áfram stjórnarformaður
Landsvirkjunar eins og hannhef-
ur gert frá upphafi, eða í 30 ár.
Skv. RÚV mun Hæstiréttur skipa
formann komi Alþingi, Reykía-
víkurborg og Akureyrarbær sér
ekki saman um máhð.
Vonbrígði með frumvarp
GATT-frumvarp ríkissfjómar-
innar gerir ráð fyrir 30% vemd-
artohum á innfluttar buvörar
Skv. RÚV veldur frumvarpið for-
ystu bænda vonbrigðum.
Stórhveli á Öxarfkði
Stórhveli hafa sést á Öxarfirði.
Strókar frá hvölunum hafa sést
frálandiRÚVgreindifrá. -kaa
Hæstiréttur dæmir þrjá bamaníðinga til fangelsisvistar:
Einn áreitti ungan dreng
kynferðislega í fimm skipti
- geðlæknismeðferð heppilegri en fangelsisrefsing
Hæstiréttur hefur staöfest 10 mán-
aða fangelsisdóm Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir Roy Ófeigi Breið-
fjörð, 70 ára, fyrir að hafa áreitt 10
ára dreng kynferöislega í fimm skipti
seinni hluta síðasthðins sumars.
Maðurinn hefur áður verið dæmdur
fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum
og í héraðsdóminum kemur fram að
hann hefur orðið uppvís að „kynferð-
issamböndum“ við unga pilta frá ár-
inu 1968.
Upp komst um verknað mannsins
þegar drengurinn skýrði móðm-
sinni frá því að tiltekinn starfsmaður
bensínstöðvar „væri ógeðslegur" -
hann væri ahtaf að halda utan um
sig og kyssa. Síðan greindi hann frá
því að maöurinn hefði tekið sig upp
og sýnt sér aöra og meiri kynferðis-
lega áreitni.
Eftir aö máhö var kært viður-
kenndi sakbomingurinn að hafa
kynnst drengnum þegar hann kom á
vinnustað hans eins og aðrir krakkar
þegar þeir komu á bensínstöðina til
þess að skipta um dekk á hjólum sín-
um. Maðurinn sagði að áreitni sín
gagnvart umræddum dreng hefði
fariö fram í skúr við bensínstöðina.
Sakbomingurinn kvaðst, þrátt fyrir.
að hann hefði fengið dóm fyrir annað
kynferðisbrot áriö 1987, ekki hafa
gert sér grein fyrir því hvaöa afleið-
ingar háttsemi hans gæti haft í fór
með sér fyrir drenginn.
Eftir þessa atburöi átti drengurinn
við ýmsa líkamlega sem andlega erf-
iðleika að stríða sem dómurinn taldi
ljóst að hefðu orsakast af brotum
sakbomingsins.
í héraðsdóminum kemur fram að
kynhneigð mannsins til að stofna til
kynferðissambanda sé gagnvart
ókynþroska drengjum. í niðurstöðu
geðlæknis kemur fram aö kynhneigð
mannsins sé almennt oft mjög erfið
viðfangs og ekki læknanleg í eigin-
legum skilningi. Áfengisneysla, fé-
lagsleg staða, geðræn hðan, persónu-
leiki og greindarfar skipti þar máh.
Geðlæknirinn taldi ekki að refsing
kæmi aö gagni. Hins vegar taldi hann
nauðsynlegt að maðurinn sækti
reglubundna meðferð hjá geðlækni.
Hann taldi enn fremur að lyfjameð-
ferö kæmi til greina en hún gæti
dregið úr kynhvöt enda væra slík lyf
skrásett hérlendis og hefðu verið
notuð í nágrannalöndunum hjá ein-
stakhngum með afbrigðilega kyn-
hvöt.
Hæstiréttur dæmdi annan mann,
Bjöm Kristjánsson, 62 ára, í 7'mán-
aða fangelsi, þar af 5 mánuði skh-
orðsbundið, fyrir að hafa áreitt kyn-
ferðislega á heimih sínu í júlí í fyrra
tvö stúlkuböm. Hann var einnig
dæmdur th greiðslu skaðabóta. Þá
var þriðji maðurinn dæmdur í 8
mánaða fangelsi af Hæstarétti fyrir
að misnota 11 ára dóttur sambýlis-
konu sinnar kynferðislega.
-PP