Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1995, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1995
Fréttir
Steingrímur Njálsson, sem nú afplánar fangelsisdóm, enn á ný fyrir dóm:
Akærður fyrir að svipta
þroskaheftan mann frelsi
einnig ákærður fyrir að gera tilraun til að hafa við hann kynmök
Ákæra var þingfest á hendur
Steingrími Njálssyni, dæmdum kyn-
ferðisafbrotamanni, í Héraðsdómi
Reykjavíkur í fyrradag. Steingrímur
er ákærður fyrir að svipta þroska-
heftan mann frelsi sínu og gera til-
raun til að hafa viö hann kynmök.
Atvikið átti sér stað föstudaginn 6.
júní að heimiii Steingríms, gömlum
sumarbústað við Elliðavatn.
Að sögn móður mannsins hittust
Steingrímur og maðurinn fyrir utan
heimili þess fyrrnefnda um kvöldið
umræddan dag. Maðurinn fór upp í
bíl með Steingrími enda hélt hann
sig þekkja hann frá vinnu sinni, og
héldu þeir í sumarbústað Steingríms
en kveikt var í bústaðnum nýlega.
„Steingrímur bauð syni mínum
mat og kók og spurði hvort hann
vildi ekki koma inn. Þegar inn var
komið segir sonur minn að Stein-
grímur hafi farið að ræða við sig og
spurt hvort þeir ættu ekki að klæða
sig úr - þeir væru jú báðir menn og
hefðu ekkert að skammast sín fyrir,
og hóf að fækka fotum. Þá vissi sonur
minn að það var ekki allt með felldu
og varð hræddur. Steingrímur tók
að bjóða honum áfengi og setti dóna-
spólur í myndbandstækið og það eitt
jók á hræðslu sonar mins sem varð
enn betur Ijóst hvað var um að vera
og hann reyndi að komast út. Hann
reyndi að ná í kuldagalla sinn en
Steingrímur neitaði honum um hann
svo hann lokaði sig inni á salerni.
Hann sagðist hafa verið orðinn ofsa-
hræddur og verið farinn að skjálfa
eins og hrísla og gráta,“ sagði móðir-
in í samtali við DV eftir að atvikið
átti sér stað.
Maðurinn komst út eftir að hafa
verið í haldi á þriðja tíma inni í hús-
inu en móðir mannsins segir að áður
hefði Steingrímur hótað honum öllu
illu ef honum dytti í hug að kæra
atburðinn til lögreglu.
Steingrímur er nú ákærður fyrir
að hafa gert tilraun til að notfæra sér
andlega annmarka mannsins til þess
að hafa við hann kynferðismök.
Heimilt er að dæma hann til allt að
sex ára fangelsisvistar fyrir slíkt
brot. Einnig er hann ákærður fyrir
að halda manninum fóngnum. Allt
að sex ára fangelsisvist hggur við
broti af slíku tagi. Til vara er hann
ákærður fyrir að hóta manninum
frelsissviptingu og líkamsmeiðing-
um en allt að tveggja ára fangejsi
hggur við því broti.
Brotaferhl Steingríms nær allt aft-
ur til ársins 1959. Hann hefur hlotið
fjölmarga dóma fyrir kynferðisbrot,
auðgunarbrot, skjalafals, líkamsá-
rásir, brot gegn umferðarlögum og
að hafa svipt menn frelsi sínu.
Aðalmeðferð málsins fer fram 2.
júní fyrir luktum dyrum og er fjöl-
skipaður dómur í máhnu. Steingrím-
ur situr nú af sér fangelsisdóm fyrir
umferðarlagabrot og þjófnað. Auk
þess er annað mál á hendur honum
tilmeðferðarhjáHæstarétti. -pp
Lögreglumenn á Suður- og Suðvesturlandl hafa undanfarna daga sektað á þriðja hundrað ökumenn fyrir of hrað-
an akstur en nú stendur yfir umferðarátak þar sem fylgst er með ökuhraða. Hér er lögreglumaður aö kanna öku-
skirteini ökumanns. DV-mynd S
Akureyri:
Snjókoma
íefri
byggðum
Snjókoma var í efri byggðum Akur-
eyrar í morgun. Þótt einungis hafi
verið um srýófol að ræða eru menn
orðnir þreyttir á langri viðdvöl vetr-
ar norðan heiða Hitamæhr á lög-
reglustöðinni á Akureyri sýndi ein-
ungis rúmlega 1 stig í morgun.
-pp
Lambakjötskynningin í New York:
Bændasamtökin
eiga heiðurinn
Vegna fréttar DV sl. roíðvikudag Sömuleiöis mátti skijja á fréttinní
um kynningu á lífrænt ræktuöu að starfsmenn fyrirtækisins Cook-
íslensku lambakjöti í New York ing Excellence í New York, sem er
skal þaö leiðrétt að hun fer ekki í eigu íslendinga, væru 230 talsins.
fram með stuðningi Útflutnings- Hið rétta er aö um lausráöna
ráðs eða Flugleiða heldur eíngöngu starfsmenn er að ræða sem flestír
Bændasamtaka íslands og mark- hafa verið 123 en fæstir 10. Fastir
aðsnefndar þeirra á sölu lamba- starfsmenn eru aðeins 2. Einnig er
kjöts. Eru viðkomandi beðnir vel- beðist velvirðingar á þessura mis-
virðingar áþessum mistökum sem tökum.
alfarið eru blaðsins. -bjb
Kleifarvatn:
Mokveiði síð-
ustu dagana
- 8 punda fiskur veiddist
„Það hefur verið mokveiði í Kleif-
arvatni síðustu vikuna enda hafa
veiðst kringum 300 fiskar. Sá stærsti
er 8 pund,“ sagði Guðmundur Sigur-
jónsson, formaður Stangaveiðifélags
Hafnarfjarðar, í samtah við DV.
Feiknaveiði hefur verið í vötnunum
í kringum Reykjavík, EOiðvatni, Víf-
ilsstaðavatni, Kleifarvatni og Hiíðar-
vatni í Selvogi síðustu dagana.
„Þessi veiði í Kleifarvatninu hefur
mest veriö syðst í vatninu þar sem
vatnið er mjög grunnt. Veiðimenn
hafa verið að veiða hlið við hlið und-
anfarið í vatninu. Stærsti fiskurinn
sem komið hefur á land er 8 pund
og svo veiddist 6 punda líka,“ sagði
Guðmundur Sigurjónsson enn frem-
ur.
M)ög góð veiði hefur verið í Hlíðar-
vatni í Selvogi, félagar úr Armönn-
um voru við veiðar fyrir skömmu og
veiddu 100 fiska. Stærsti fiskurinn
úr Hlíðarvatni er 5 pund.
Félagar í stangaveiðifélaginu voru
að koma frá Djúpavatni og var ljót
aðkoman í veiðihúsinu. Ýmsum hlut-
• Frímann Ólafsson með tveggja
og fjögura punda bleikjur fyrir fáum
dögum. DV-myndir Guðmundur
um hafði verið stolið úr veiðihúsinu
og var illa gengið um það.
Formaður Kristilegra demókrata í Noregi:
Skil vel aðstöðu
íslendinga í f isk-
veiðideilunni
- allt of mikil harka hlaupin í máhð
Reynir Traustason, DV, Ósló:
„Ég skil þá aðstöðu sem íslending-
ar eru í. Fiskveiðar skipta þá mjög
miklu máh og þetta er aðalatvinnu-
greinin,“ segir Valgerd Svarstad
Haugland, nýkjörinn formaður
Kristilega demókrataflokksins í Nor-
egi, í samtali við DV, vegna deilu ís-
lendinga og Norðmanna um fisk-
veiðimál í Síldarsmugunni og Smug-
unni.
Valgerd, sem er þingmaður á Stór-
þinginu og stýrir flokki sem hefur
um 7 prósenta fylgi, segir að of mikil
harka sé hlaupin í deiluna og það sé
ekki leiðin til lausnar.
„Það er allt of mikh harka í þessu
máh og það er í mínum huga ekki
rétta leiðin til lausnar þessa máls.
Það eru til aðrar leiðir að lausn, það
er auðveldara að leysa málin með
viðræðum. „Við verðum með einum
eða öðrum hættii að leysa þessa deilu
milh þjóðanna. Ég vonast til að lönd
in komist að samkomulagi sem báðir
aðilar eru reiðubúnir að standa við.
Við erum öh sanngjamt fólk svo það
ætti að takast.“