Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. JULÍ 1995 Fréttir r»v Hestur stökk af stað með 9 ára bam inn í 64ra hesta stóð á harðahlaupum: Bamið féll af baki inni í miðju stóðinu - ömurlegt að horfa á eftir dóttur minni inn í miðjan hópinn, segir faðirinn íris er gjarnan sögð líkjast Línu langsokk i útliti. Hún segist ekki horfa oft á hana í sjónvarpi en finnst þó dálítið gaman að líkjast henni. „Ég er sögð lík henni af því að ég er rauðhærð með freknur eins og Lína,“ sagði íris í samtali við DV. DV-mynd Jón Benediktsson Sprenging á kóramóti í Ríga í Lettlandi: Kammerkór Langholtskirkju rétt farinn af sprengjustað „Við voram með 84 hesta á næsts- íðustu dagleiðinni við Faxa fram í Hungurfit. Ég setti níu ára dóttur mína á hest sem hafði alltaf verið rólegur. Þá stökk bikkjan bara með hana inn í 64ra hesta stóð. Hrossið varð kolvitlaust. Barnið fékk auðvit- að hálfgert taugaáfall. Þegar hrossið fór með hana inn í stóðið fór það allt á fulla ferð. Það var ömurlegt og óhuggulegt að sjá dóttur mína þama inni í miðjum hópnum," sagði Láras Bragason, hrossabóndi og hrepp- stjóri í Miðhúsum við Hvolsvöll, í samtali við DV. Mikil mildi er að íris, dóttir Láras- ar, sem var á ferð með fóður sínum og 15 erlendum ferðamönnum um helgina, stórslasaöist ekki þegar hestur, sem hún var á, fór á stökk og á eftir stóra stóöi sem var í rekstri nokkur hundrað metra á undan ferðafólkinu. íris, sem að sögn föður hennar er alvön hestakona þótt ung sé, sagði í samtali við DV í gærkvöldi aö hún heföi orðið skelfilega hrædd: Stuttar fréttir Nýrpokasjóður Nýr pokasjóður undir merkjum verslunarinnar verður stofnaður á næstu dögum. Landvernd út- hlutar ekki úr pokasjóði í ár og lögfræðingur samtakanna inn- heimtir nú ógreitt pokafé kaup- manna. RÚV greindi frá þessu. Nýr yfirtryggingalæknnr Heilbrigðis- og tryggingaráð- herra hefur skipaö Sigurð Thorlacius lækni í stööu yfir- tryggingalæknis hjá Trygginga- stofnun ríkisins. Alls sóttu 12 læknar um stöðuna. Willy Ciaes kemur ekki Opinberri heimsókn Willy Cla- es, aðalframkvæmdastjóra NATO, til íslands, sem fyrirhug- uð var í vikunni, hefur veriö af- Iýst vegna ástandsins í Bosníu. Fyrrislættilokið Fyrri slætti hjá mörgum bænd- um á Suöurlandi er að veröa lok- iö. Skv. Tímanum er heyfengur heldur minni en í fyrra. Bryndis styðtar Margrét! Bryndís Hlöðversdóttir, sem orðuð hefur verið viö varafor- mennsku í Alþýðubandalaginu, gefur ekki kost á sér. Skv. RÚV styöur hún Margréti Frímanns- dóttur til formanns. „Ég fór með útlendingunum að kofa þarna. Hestareksturinn var á undan okkur og hesturinn minn var á tölti. Síðan stökk hann skyndilega af stað í áttina að stóðinu. Hann jók hraðann meira og meira. Mér leið hrikalega. Ég var viss um að ég myndi detta af baki. Ég var farin úr báðum ístöðunum og hnakkurinn orðinn laus. Ég var allan tímann að reyna að halda mér á baki á meðan hesturinn stökk með mig áfram. Þegar hesturinn náði stóðinu og fór með mig inn í það varð ég mjög hrædd. Það voru svo margir hestar þama. Um leið og hesturinn minn náði stóðinu fóru allir hinir hestarn- ir á stökk líka. Ég var ein á hesti inni í miðjum hópnum, fimmtíu eða sex- tíu hestum. Hann hélt áfram með mig en svo datt ég af baki. Ég lenti rétt hjá stórum steini en slapp þó við hann. Ég reyndi aö skríða í burtu og var hrædd um að hestarnir, sem komu á eftir, færa yfir mig en þeir fóru framhjá mér,“ sagði íris. „Stóðiö klofnaði einhvern veginn „Það er engin ástæða til að ætla ann- að en að Bandaríkjamenn hafi staöið við vamarsamninginn. Samkvæmt honum verða engin vopn flutt til landsins án samþykkis íslenskra stjórnvalda, þar með talin kjarna- vopn. Rannsóknir sem ég gerði fyrir nokkram árum fyrir Öryggismála- nefnd renna stoðum undir þetta,“ segir Albert Jónsson, deildarstjóri alþjóðadeildar forsætisráðuneytis- ins. Upplýsingar um að Bandaríkja- menn hafi geymt kjarnavopn á Grænlandi hafa vakiö upp spuming- ar um hvort slíkt hið sama hafi átt við-«um ísland. Til þessa hefur hins vegar ekkert komið fram sem bendir til að kjarnorkuvopn hafi verið geymd á íslandi. Miklar umræður urðu hér á landi þar sem íris fór af baki. Þegar ég kom aö henni var hún öll blóðug í framan og í algjöru sjokki,“ sagði Láras. Eftir að Lárus kom að stúlkunni tók hluti af hrossunum á rás inn á Sultarfitjar og hljóp síðan alla leið upp á Tindafjallajökul. Þegar Láras fór síðar á eftir stóðinu var hestur hans orðinn uppgefmn. Lárus skildi hann þá eftir og gekk alla leið upp á Tindaíjallajökul í 1.000 metra hæð. „Ég sá þá að ég gat ekki komið þeim einn niður og fór til baka eftir aöstoð. Það er lyginni líkast að hross- unum skyldi detta í hug að fara þetta." Lárasi og fleirum hefiu- nú tekist að finna og ná í öll hrossin sem struku úr rekstrinum um helgina. íris, sem er að ná sér af meiðslunum, var komin aftur á hestbak í gær. Hún sagðist alveg hlessa á uppátæki hestsins, sem hún var á, því hann hafi verið tahnn rólegur og jafnvel latur til þessa. -Ótt um þessi mál á síðasta áratug í kjöl- far þess að bandarískur sérfræðing- ur, að nafni William Arkin, afhenti íslenskum ráðamönnum afrit af bandarískum skjölum sem sýndu að heimild hefði verið veitt fyrir flutn- ingi á 48 kjarnorkudjúpsprengjum til íslands kæmi til ófriðar. Heimildin átti við um fjárlagaáriö 1975 og að mati Arkins sýndu gögnin að Banda- ríkjamenn þyrftu ekki að leita sam- þykkis íslenskra stjómvalda fyrir framkvæmd heimildarinnar. Að sögn Alberts hefur ekkert kom- ið fram í umræðunni eöa í opinber- um skjölum sem bendir til þess að Bandaríkjamenn hafi brotið vamar- samninginn. Sjálfur geröi Albert ít- arlega rannsókn á þessu og gerði grein fyrir niðurstöðunum í bókinni Island, Atlantshafsbandalagið og Keflavíkurstöðin sem Öryggismála- nefnd gaf út árið 1989. Þá starfaði Albert sem framkvæmdastjóri nefndarinnar. í bók Alberts kemur meðal annars fram að sú fullyrðing Williams Ark- ins að kjamorkuvopn yrðu flutt til íslands án heimildar stjórnvalda hafi verið dregin til baka af Arkin sjálf- um. Síöar hafi hann jafnframt viður- kennt að bandarísk stjómvöld gerðu ráð fyrir í áætlunum sínum að kjarn- orkuvopn yrðu ekki flutt til landsins án leyfis. Þá hafi Arkin einnig dregið til baka fullyrðingar frá árinu 1980 um að kjamavopn væru á íslandi. -kaa „Þetta var rosalegur dúndurhvell- ur og hefði ’getað farið enn verr,“ sagði Jón Stefánsson, stjórnandi Kammerkórs Langholtskirkju, í samtali við DV en kórinn tók þátt í alþjóðlegu kóramóti í Ríga í Lettlandi um helgina. Skömmu fyrir lokatón- leikana á laugardag, rétt eftir að kór- inn var búinn á æfingu, sprakk sprengja í öðrum stigagangi upp á sviðið sem kóramótiö fór fram á. Að sögn Jóns slösuðust fjórir Lettar þeg- ar þeir fengu glerbrotahríð yfir sig. Þrátt fyrir sprenginguna fóru loka- tónleikarnir fram eins og ekkert hefði ískorist. Sex þúsund kórfélagar frá Norðurlöndum og Eystrasalts- ríkjunum tóku þátt í mótinu. Kóramótið fór fram á stóru útileik- sviði. Tveir stigagangar á fjórum hæðum eru upp á leiksviöið og sprakk sprengjan í öðram þeirra. Félagar í Kammerkórnum voru rétt búnir að fara niður um þennan stiga- gang og komnir út í skúr við bíla- stæði til að skipta um fót þegar dundi við mikill hvellur. „Við vorum komin svona tvo kíló- metra í burtu. Ég hélt að hvellurinn hefði verið frá tívohbombum og hluti af hátíðinni og sagði í gríni: „Jæja, krakkar. Við þurfum ekkert að fara á tónleikana, það er búið að sprengja sviðið í loft upp,“ sagði Jón. Lettnesk stjórrtvöld hafa ekki gefið skýringu á sprengingunni en tahð að rússneski minnihlutinn hafi verið þarna á ferðinni. -bj b Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já 0l! r ð d d “Ai 904-1600 A að leyfa heræfingar á íslandi? AlHr I ittlrtw fctrWmt «t« nHt rtr klH Wwirtii, Ekkert bendir til aö kjamavopn hafi verið geymd á íslandi: Rannsóknir mínar renna stoðum undirþetta - segir Albert Jónsson sem skrifaöi skýrslu um málið 1989

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.