Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 Stuttar fréttir Útlönd Jettsínáfund Boris Jeltsín, sem er að ná sér eftir lýartaáfaU, mun hitta Viktor Chernomyrdin forsætísráöherra í fyrsta skipti frá þvi hann veikt- isL Kinverjar fallast á fund Kínverjar hafa fallist á fund með bandarískum ráðamönnum, þann fyrsta eft- ir að samskipti ríkjanna versn- uðu vegna stefnunnar gagnvart Taívan. Munu utanrikisráðherrarnir Warren Christopher og Qian Qu- ichen hittast í Brunei 1. ágúst. Sýriendingarhvattir Bandaríkjamenn hvöttu Sýr- lendinga tilaðkomaáfundi hem- aðarsérfræðinga sinna og ísraela. BlóðkreppaíKanada Rauði krossinn í Kanada barð- ist við skort á blóöi eftir að mikið af blóði hafði verið innkaUað af ótta við að það væri sýkt veiru sem ræðst á heUa manna. Sósíalistar i vanda Spenna í Nigeríu Mikil spenna er í Nígeríu yfir því hvort 40 manns, sem sakaðir eru um valdaránstilraun, verður þyrmt. ítaliskotinn Alsírskir öfgamenn skutu og særðu illa ítalskan ijármálamann sem var á ferð um svæöi strang- trúarmanna. Fleirilík Tala látinna eftir að verslunar- hús hrundi til grunna i Seoul er komin yfir 400.200 er enn saknað. Innflytjendadeilu lokið? FuUtrúi bandarískra stjóm- valda sagðist vongóöur um að ná samkomulagi við Kúbverja vegna innflytjendavandamálsins. Ástsjúkur hengdur Ástsjúkur maöur, sem skaut og myrti brúðguma fyrrum unnustu sinnar, var hengdur í Kúveit. Bandaríski grinistinn, Jango Edwards, var svo sannarlega léttklæddur þegar hann brá á leik með ónefndum trúði fyrir framan auglýsingaskilti fyrir trúða- hátíð sem haldin er i fjallaþorpi i Sviss. Edwards er upphafsmaður hátíöarinnar og nýtur þess greinilega. Símamynd Reuter Mikil reiði innan grænlensku landstjómarinnar vegna Thule-málsins: Katalónar rufu samstarfs- samning sinn viö spænska sósíaUsta og linuðu þannig tök þeirra á spænskum stjórnmálum. Reynt að koma óbreyttum borgurum griðasvæðisins 1 Zepa 1 burtu: Stjórnin í Bosníu vill semja við Serbana - vesturveldin ósammála um hvort gripa á til hemaðaraðgerða Ríkisstjórn Bosníu hefur boðist til að semja við hersveitir Bosníu-Serba um brottflutning óbreyttra borgara frá griðasvæði múslíma í bænum Zepa, sem Serbar halda í herkví. Alija Izetbegovic, forseti Bosníu, fór fram á það við Rupert Smith, yfir- mann gæslusveita Sameinuðu þjóð- anna í Bosníu, að hann hefði mUU- göngu um viðræðurnar. Þykir það benda til þess að Zepa, þar sem fimmtán þúsund múslímar og flótta- menn búa, sé um það bil að falla í hendur Serbum. „Forsetinn sagði að hann vildi fá okkur tU að vera mUUgöngumenn við Serba tU að kanna hvaða skUyrði- kynnu að verða sett fyrir flutningi óbreyttra borgara frá Zepa svo koma megi í veg fyrir frekari þjáningar," sagði Gary Coward, talsmaður gæsl- uliðs SÞ, í Sarajevo. Bosníustjórn hefur frá upphafi stríðsins verið andvíg fólksflutning- um frá svæðum sem Bosníu-Serbar hafa ýmist lagt undir sig eða hótað að ná á sitt vald. Stjórnin hefur gagn- rýnt gæsluUða SÞ fyrir að leggja Serbum lið við „þjóðernishreinsan- irnar“ með því að bjóða flutninga fyrir þá íbúa sem ekki eru Serbar og hafa verið hraktir að heiman. FaU griðasvæðis SÞ í Srebrenica í síðustu viku, þaðan sem tugþúsundir manna fóru á vergang, og yfirvofandi fall Zepa hafa vakið upp kröfur um að gæsluhö SÞ verði kvatt burt. Frakkar reyndu árangurslaust á sunnudag að fá Bandaríkjamenn og Breta fil að taka þátt í hernaðarað- gerðum tU að vemda Gorazde, eina griöasvæði SÞ í austurhluta Bosníu sem enn er eftir, og fil að tryggja birgðaUutningaleið tU höfuðborgar- innar Sarajevo. Áætlun Frakka gerði ráð fyrir að Bandaríkjamenn létu í té þyrlur tU bæði árása og birgða- flutninga. Að sögn heimildarmanna í franska sljórnkerfinu, íhuga frönsk stjórn- völd nú að að kalla friðargæsluliða sína heim. Úkraínskir friðargæsluUðar sem eru við Zepa hafa yfirgefið sex varð- stöðvar sínar og komast hvergi frá hinni sjöundu þar sem Serbar hafa lagt jarðsprengjur í kringum hana. Þá hóta Serbar að skjóta á gæslulið- ana, geri flugvélar NATO loftárásir áþá. Reuter Framhjáhald prests Prófastur á Englandi kom fyrir sérstakan kirkjulegan rétt vegna framhjáhalds með meðhjálpara í kirkjunni sinni. Ekkertósiðlegt Divine Brown, vænd- iskonanílíolly- wood sem var aö gæla við leikarann Hugh Grant þegar löggan kora að á dögunum, ætlar að þræta fyrir það í rétti að hún hafi haft í frammi ósiölega hegöun. Utht er fyrir ósigur flokks jap- anska forsætisráðherrans í kosn- ingum til efri deUdar þingsins á sunnudag. Kobbi kviðrista Kani Kobbi kviðrista, sá alræmdi fiöldamorðingi í Lundúnum á 19. öld, var bandarískur skurðlækn- ir, segir í nýrri bók. Reuter Vill áhrif á rannsóknina og nýjan varnarsamning Mikil reiði er innan grænlensku landstjórnarinnar vegna leyndar- innar sem hvílt hefur yfir hinu svo- kaUaða Thule-máli. Krefst hún þess að geröur verði nýr vamarsamning- ur um Grænland við Bandaríkin og komist veröi til botns í málinu í eitt skipti fyrir öll. Krefst landstjómin þess að rannsóknin á Thule-málinu teygi sig til tímabUsins eftir 1968 og að hún fái veruleg áhrif bæði á rann- sókiúna sjálfa og samningaviðræður um nýjan varnarsamning. MikU umræða hefur verið um Thule-máUð í Danmörku og á Græn- landi eftir að danska utanríkisráðu- neytiö opinberaöi skjöl sem sýna að H.C. Hansen, fyrmm forsætisráð- herra Dana, gaf Bandaríkjamönnum skriflegt leyfi 1957 tU að fljúga með kjarnorkuvopn yfir Grænland. Og eftir að Bandaríkjamenn viður- kenndu að kjamorkuvopn hefðu ver- ið á Grænlandi á árunum 1958-1965. Grænlenska landstjómin krefst fullrar vitneskju um hvaða samn- inga dönsk stjómvöld hafi gert við Bandaríkjamenn um vamir Græn- lands og vUl komast til botns í kjarn- orkuvopnastefnu Dana á tímabUinu. Þá vill landstjómin komast að því hvort Bandaríkjamenn hafi verið með kjarnorkuvopn á Grænlandi lengur en upplýsingar Uggja fyrir um. Stóðu Bandaríkjamenn við sitt? í fyrstu vildi Niels Helveg Petersen utanríkisráðherra að rannsóknin næði einungis yfir tímabiUð 1957- 1968. Nú hefur hann hins vegar faU- ist á að rannsóknin nái allt aftur til stríðsloka. Hann heldur sig þó eftir sem áður viö áriö 1968 sem enda- punkt rannsóknarinnar. MáUð á rætur að rekja allt aftur tU ársins 1941 þegar fulltrúi Dana í Washington gaf Bandaríkjamönnum leyfi tíl að reisa herstöðvar á Græn- landi. Samningur um herstöðvarnar var staðfestur 1945. Danir gengu í NATO 1949 og 1951 var gerður sér- stakur varnarsamningur sem Bandaríkjamenn vísuðu til 1957 sem grundvöU þess að flogið væri með kjarnorkuvopn yfir Grænland. Eftir aö B-52 sprengjuflugvél, hlað- in kjarnorkusprengju, brotlenti á Grænlandsísnum 1968 geröu Danir og Bandaríkjamenn samning um aö þeir síðamefndu skyldu hætta að fljúga með kjarnorkuvopn yfir Grænland. Meðal sumra em uppi efasemdir um að Bandaríkjamenn hafi staðið við það samkomulag, ekki síst þar sem í ljós hefur komið að kjamorkuhlaðnar flugvélar voru á Grænlandsísnum fyrir 1957 þegar skriflegt leyfi barst Bandaríkja- mönnum. En Niels Helveg Petersen segist ekki hafa séð neitt sem bendi til ann- ars. Þrátt fyrir kröfur gænlensku landstjómarinnar þar um neitar hann að láta skoða tímabiUö eftir 1968 nánar. Hann gefur lítið fyrir upplýsingar þess efnis að slökkvi- Uðsfólk á Thule-stöðinni hafi séð B-52 sprengjufluvélar þar eftir 1968 og hafi fengið þjálfun í að eiga við slys vegna flugvéla með kjarnorku- sprengjur. Hann hefur látið athuga möguleikann á að fá bætur vegna slyssins frá Bandaríkjamönnum 27 árum síðar en möguleikinn á því er talinn takmarkaður. En landstjórnin heldur eftir sem áður fast í þá kröfu að fá að vita tU hvers Thule-herstöð- in hafi verið notuð síðastiiðin ár og tU hvers hún er notuð í dag. Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.