Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 Meiming SýnivtgíHeklii" miðstöðinni Heklumiðstöðin 1 Brúarlandi í Landsveit tók nýlega til starfa en þar verða í boði sýningar á fjöl- breyttu efni sem tengist eldfjall- inu Heklu. Um síðustu helgi var opnuð málverkasýning á broti af þvi besta frá Svcrri Haraldssyni, bónda og listmálara í Selssundi á Rangárvöllum. Á sýningunni eru sex málverk, unnin í olíu á striga hin síðari ár. TU glöggvunar skal þess getið að Heklumiðstöðin er við Lánd- veg, á leiðinni í Galtalækjarskóg, u.þ.b 20 kílómetra frá Landvega- mótum við þjóðveg númer eítt. Marta María og Sigrún í Humarhúsinu Á veitingastaðnum Humarhús- inu viö Lækjargötu stendur yfir listkynning á verkum Mörtu Maríu Hálfdánardóttur glerlista- konu og Sigrúnar Gunnarsdóttur leirlistakonu. Kynningin, sem jafnframt er sölusýning, stendur yfir fram á haust. Marta María hefur starfað að glerlist til rnargra ára í vinnu- stofu sinni við Markarflöt í Garðabæ. Sigrún hefur rekið ART-HÖN að Stangarhyl í Reykjavík ásamt fiórum öðrum listakonum. Báðar hafa þær tekið þátt í sýningum hér heima og erlendis. . Leirlistaverk eftir Sigrúnu. Hvaðdreymdi þig, Valentína? Leikfélag Reykjavikur hefur hafið æflngar á leikritinu Hvaö dreymdi þig, Valentína? eftir Ljúdmílu Razumovkaja en leikrit hennar, Kæra Jelena, var sýnt x Þjóðleikhúsinu viö miklar vin- sældir fyrir nokkrum árum. Frumsýning er áætluð í septemb- er á Litla sviöi Borgarleikhúss- ins. Leikritið segir frá þremur mæögum sem búa saman við mikil þrengsli i Leníngrad í kringum 1980. Það gerist á sautj- án ára afmælisdegi Ljúbu. Móðir hennar, Valentína, og amma, Nína, eru í miðjum klíðum aö undirbúa afmælisveisluna þegar óvænt uppákoma setur strik í reikninginn. íslenska þýðingu gerði Ámi Bergmann og leikkonurnar þrjár sem fara með hlutverkin eru þær Guðrún Ásmundsdóttír, Sigrún Edda Bjömsdóttir og Ása Amar- dóttir. Leikstjóri er Hlín Agnars- dóttir, leikmynd gerir Steinþór Sigurðsson og lýsingu annast Elf- arBjamason. þig, Valenl- ina? í Borgarfeikhúslnu. Fyrstabók Steinssonar Bókaútgáfan Tunga hefur | sent frá sér bókina Undir heggnum eftir Ingólf Steins- son, kennara og íónlistarmann. Þetta er fyrsta L bók Ingólfs en auk kennslustarfa hefur hann samið lög og texta um árabii, m.a. með hljómsveitimú Þokkabót. Undir heggnum er þroskasaga blómabarns sem elst upp austur á landi upp úr miðri öldinni. Á bókarkápu segir m.a,: „Hún lýsir af næmni og einlægni hvernig drenguriim upplifir veröld eftir- stríðsáranna og tekst á viö hinar stóru spurningar lífs og dauða meðan heimur bernsku hans er smátt og smátt að liðast í sund- ur.“ Bókin er 246 bls. i kiljubroti og fer í sölu í öllum helstu bóka- búðum landsins. mannsíbúð Jónsforseta ráðstafað Sérstök úthlutunamefnd hefur ráðstafað fræöimannsíbúð Húss Jóns Sigurðssonar forseta í Kaupmannahöfn frá september 1995 til loka ágúst 1996. Alls bár- ust 36 umsóknír ogfengu 6 fræði- menn afnot af ibúöinni. í úthlut- unarnefnd sitja Ólafur G. Einars- son, forseti Alþingis, Ólafur Eg- ilsson sendiherra og dr. Jakob Yngvason prófessor. Dr. Már Jónsson sagnfræðing- ur ætlar að kanna gögn um Árna Magnússon prófessor og hand- ritasafnara frá september til nóv- ember á þessu ári. Hrafnhildur Schram listfræðingur verður í íbúðinni til ái-sloka við rannsókn- ir á skandinavískum áhrifum á fyrstu kynslóö íslenskra lista- manna. Páll Bjarnason arkitekt dvelst í janúarmánuði 1996 við rannsóknir á þróun islenskrar byggingarlistar. Sigfús Haukur Andrésson sagnfræðingur tekur við íbúðinni í febrúar og hyggst rannsaka frekar verslunarsögu íslands 1808-1855 fram í apríl. Þá kemur Hjördis Hákonardóttir lögfræðingur og dvelst í maí og júní við samanburðarrannsóknir á ritstil og orðafari danskra og íslenskra lögfræðinga. Loks hef- ur Jón G. Friöjónsson málfræð- ingur fengið íbúðina í júlí og ág- ústánæsta ári til að afla heimilda í orðasöfnum Árnastofnunar urn íslensk orðatiltæki úr biblíumáli. MargrétJóns- dóttirsýnirá Akranesi Um helgina opnaði Margrét Jónsdóttir sýn- ingu á leirstytt- uni og vösum í Listahorni Upplýsínga- miðstöðvarinn- ar á Akranesi. Sýningin stendur yfir til 14. ág- úst. Þetta er fimmta einkasýning Margrétar en hún hefur tekið þátt i nokkrum samsýningum á Akranesi og viðar. Margrét er fædd á Siglufirði en uppalin í Fljótum og á Akranesi. Húix hefur búiö á Akranesi síðan 1955. Margrét sótti námskeið í leirmunagerö hjá Steinumú Mar- teinsdóttur á Hulduhólum, auk þess naut hún tilsagnar hjá Anne Kamp leirlistakonu. -bjb Ljós úr norðri, sýning á norrænni aldamótalist: Málverk metin á hundruð milljóna - sýnd 1 Listasafni íslands 11. ágúst til 24. september Erik Vaarzon Morel. Kristinn Árnason. Örn Viðar Erlendsson. Gítarhátíðin á Akur- eyri hefst á morgun Væntanleg eru til landsins málverk eftir norræna snillinga sem voru uppi í kringum síðustu aldamót. Ljóst er að málverkin eru einhver þau dýrmætustu sem sett hafa verið upp á sýningu hérlendis, metin aUs upp á hundruð milljóna króna. Sýn- ingin verður sett upp í Listasafni ís- lands og stendur yfir 11. ágúst til 24. september og ^efnist Ljós úr norðri - norræn aldamótalist. Sýningin kemur frá Barcelona á Spáni og var stærsti menningarviðburðurinn á viðamikilli norrænni hátíð þar í vor. Frá íslandi fer sýningin til Svíþjóöar og víðar um Norðurlöndin. Að sögn Rakelar Pétursdóttur hjá Listasafni íslands er þetta í fyrsta sinn sem jafn umfangsmikil sam- norræn sýning á verkum aldamóta- listamanna kemur hingað til lands. „Hér gefst almenningi einstakt tækifæri tíl að sjá verk þessara stór- kostlegu málara því lítið er til af málverkum frá hinum Norðurlanda- þjóðunum á söfnum hér á landi,“ sagði Rakel. Málverkin voru valin af safnstjór- um allra þjóðlistasafnanna fimm í samvinnu við safnstjóra þjóðlista- safnsins Reina Sofia í Madrid. Margir þekktir meistarar Á sýningunni verða um 80 málverk frá tímabilinu 1890-1910. Þar á meðal eru mörg lykilverk eftir Edvard Munch, Vilhelm Hammershoj, Peder Severin Kroyer, Axel Gallén-Kallela, Einhver dýrmætasta máiverkasýning sem haldin hefur verið á Islandi verð- ur sett upp í Listasafni íslands í ágúst. Sýningin nefnist Ljós úr norðri. Helenu Scherfbeck, Hugo Simberg, Harald Scholberg, Cristian Krogh, August Strindberg, Bruno Liljefors, Anders Zorn, Þórarinn B. Þorláksson og Ásgrím Jónsson. í tengslum við sýninguna mun dr. Kasper Monrad, safnvörður við Rík- islistasafnið í Kaupmannahöfn, halda fyrirlestur í Listasafni íslands laugardaginn 12. ágúst. Fyrirlestur- inn ber yfirskriftina Lyset fra Nord- en, Nordiske malere omkring ár- hundredskiftet. Sýningin verður opnuð fyrir boðs- gesti af forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, að kvöldi fimmtu- dagsins 10. ágúst að viðstöddum fjölda erlendra gesta en Vigdís opn- aði einmitt sýninguna í Barcelona í vor. Ljós úr norðri fékk metaðsókn og frábæra dóma, bæöi í Barcelona og Madrid. -bjb Mikið verður um dýrðir á Akur- eyri næstu daga. Þar verður sett í Akureyrarkirkju annað kvöld Gítar- hátíðin á Akureyri 1995. Þetta er í íjórða sinn sem hátíðin er haldin og stendur hún yfir fram á sunnudag. Tónlistarskólinn á Akureyri stendur fyrir hátíðinni að frumkvæði Arnar Viöars Erlendssonar, forstöðumanns gítardeildar skólans, sem jafnframt er framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Stærsti viðburðurinn á hátíðinni eru tónleikar hins heimsþekkta gítar- leikara Timo Korhunen frá Finn- landi. Hátíðin verður einmitt sett með tónleikum Timos. Timo er talinn einn bestí gítarleik- arinn af yngri kynslóðinni í dag. Hann hefur hiotið fjölda viðurkenn- inga og geisladiskar hans hafa vakið heimsathygli. Líkt og áður verða haldin gítamámskeið í tengslum við hátíðina og mun Timo verða aðal- leiðbeinandi fyrir lengra komna gít- Sverrir Guöjónsson og Einar Krist- ján Einarsson. arnemendur og einleikara. Annar þekktur gestur á hátíðinni verður hollenski sígauninn Erik Va- arzon Morel sem heldur tónleika í Deiglunni nk. sunnudagskvöld ásamt því aö taka við nemendum í einkatíma á meðan á hátíðinni stend- ur. Af fleiri tónleikum á hátíðinni er að segja að nk. fimmtudagskvöld leikur Einar Kristján Einarsson gít- arleikari nokkur verk ásamt Sverri Guðjónssyni kontratenór. Meðal verka er frumflutningur eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson við ljóö ísaks Harðarsonar. Þá mun Kristinn Ámason koma fram á ein- leikstónleikum í Akureyrarkirkju á fóstudagskvöld. Kristinn, sem m.a. lék með stórsveitinni Júpiters, mun flytja spænska gítartónlist og Chac- ona eftir Johann Sebastian Bach. Á laugardagskvöldið munu efnileg- ustu gítamemendur Tónlistarskól- ans standa fyrir fjölbreyttri dagskrá í Deiglunni á Akureyri. Hátíðinni verður síöan slitið með tónleikum sígaunans Morels. -bjb Timo Korhunen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.