Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖL.MIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK, SlMI: 563 2700 FAX: Auglýsingar: 563 2727 - Aðrar deildir: 563 2999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk„ helgarblað 200 kr. m. vsk. Láglaunafólkið svikið Enn einu sinni hefur láglaunafólkiö verið svikiö af þeim forystumönnum hagsmunaaðila vinnumarkaöarins sem semja um kaup og kjör í landinu. Þetta kom skýrt fram í úttekt sem birtist í DV fyrir helgina. Þar voru gefin nokkur dæmi um hvað kjara- samningar ársins hafa fært hinum ýmsum starfsstéttum í þjóðfélaginu í hækkuðum launum á mánuði. Láglaunafólk, sem tekur laun samkvæmt kjarasamn- ingum Alþýðusambands íslands (ASÍ) og Vinnuveitenda- sambands íslands (VSÍ), ber langminnst úr býtum. Mán- aðarlaun þeirra hækkuðu einungis um fimm þúsund og fjögur hundruð krónur vegna nýju kjarasamninganna. Nokkur lítil stéttarfélög afrituðu nánast samning ASÍ og VSÍ og búa því félagsmönnum sínum sömu kjör. Hins vegar nýttu aðrir hópar samningsstöðu sína til hins ýt- rasta og treystu um leið á undanlátssemi vinnuveitenda sem ljóslega töldu sig ekki bundna af ASÍ-samkomulag- inu. Þannig fékk yfirstýrimaður nær tíu þúsund króna hækkun á mánuði, grunnskólakennari tæp tólf þúsund, bifreiðarstjóri í Sleipni um þrettán þúsund og fimm hundruð, starfsfólk íslenska álfélagsins í Straumsvík frá tæpum ellefu þúsundum upp í um tuttugu þúsund og flugmenn minnst tæp fimmtán þúsund og mest um þrjá- tíu þúsund krónur í launahækkun á mánuði. í þessum samanburði er miðað við grunntaxta samn- inganna en öllum aukagreiðslum, hvaða nafni sem nefn- ast, er sleppt. Ýmsir hafa vafalaust náð fram enn frekari kjarabótum vegna samkomulags um sérmál - það er að segja aðrir en láglaunafólkið. Tölumar undirstrika þá dapurlegu staðreynd að ferli kjarasamninga hefur verið nákvæmlega hið sama nú og svo oft áður. Fyrst er samið við láglaunafólkið um litlar launahækkanir, yfirleitt í krónutölu, með tilvísun til þess að þjóðarbúið þoli ekki miklar almennar hækkanir. Síðan koma hinir betur settu og knýja fram miklu meiri launahækkanir og það oftast í prósentum þannig að þeir sem fyrir hafa hæstu launin fá flestar krónur í sinn hlut. Þá fer gjaman lítið fyrir áhyggjum samningamanna af því hvað þjóðarbúið þoh. Þessi reglubundni harmleikur kjarasamninga er glöggt merki um að núverandi skipulag samningamála kemur láglaunafólkinu í landinu að engum notum. Þvert á móti virðist það í reynd gegna því hlutverki að halda kjörum hinna lægstiaunuðu niðri miðað við aðra. Er reyndar með ólíkingum hversu lengi sá fjölmenni hópur launafólks hefur sætt sig við slíkt vinnulag. Færa má sterk rök fyrir því að kjör láglaunafólksins muni ekki batna fyrr en skipulagi vinnumarkaðarins verði gjörbreytt og vinnustaðurinn gerður að grunnein- ingu við gerð kjarasamninga. Þá yrði gengið frá kaupi og kjörum allra sem starfa hjá sama fyrirtæki í einum og sama samningnum. Slíkar skipulagsbreytingar hafa af og til komið til umræðu innan sem utan verkalýðsfélaganna. Fram til þessa hefur hins vegar skort þrek og þor forystumanna til að taka á málinu. Á meðan hefur launabilið í landinu aukist og hinn almenni félagsmaður í stéttarfélögunum í reynd misst allan áhuga á félagsskapnum. Að öllu óbreyttu mun forysta samtaka launafólks og vinnuveitenda halda áfram að semja um minnstar kjara- bætur til þeirra sem lægst hafa launin en umbuna þeim hópum sem neita að axla þjóðfélagslega ábyrgð og beita hnefaréttinum til að knýja fram mun meiri hækkanir. Elías Snæland Jónsson Fjöldi einstaklinga 4000 3500 3000 2500 2000 1500 1000 500 tn FJöldi starfandi i Staksverkefnum borgarinnar ® Skráðir atvinnulausir síöasta dag mánaöar Q in i DV „Á þessum sama tíma i fyrra náðu átaksverkefni Reykjavíkurborgar að draga úr atvinnuleysinu um 15%. Nú er hlutur átaksverkefna óverulegur." Atvinnuleysi í Reykjavík 30% meira en í fyira Atvinnuleysi í Reykjavík hefur aukist um 30% frá lokum júnímán- aðar í ár borið saman við sama tíma í fyrra. Samkvæmt skrá Vinnumiðlunar Reykjavíkur voru skráðir atvinnulausir alls 3.104 þann 30. júní sl. en voru 2.374 á sama tíma í fyrra. Þessar stað- reyndir virðast koma núverandi valdhöfum í Reykjavík, R-Ustan- um, verulega á óvart. Sá Usti lofaði að kippa atvinnumálunum í Uðinn á örskammri stundu. Líklega hélt hann þó að hann þyrfti ekkert að gera því ljós efhahagslífsins hefur tekið að skína skærar undir ríkis- stjóm Davíös Oddssonar. Vandinn er sá að enn skín ljósið ekki á 570 atvinnulausa verkamenn eða aðra atvinnulausa Reykvíkinga. Það skín á aðgerðaleysi R-Ustans. Skattar hækkaðir R-Ustinn ætlaði að leysa atvinnu- vandann með skjótvirkum hætti. í stað þess hefur R-Ustinn aukið á atvinnuleysið í Reykjavík. Það er vegna þess að undir forystu R-Ust- ans hafa skattar á fyrirtækin í borginni verið hækkaðir ekki síður en á borgarbúa. 550 miUjóna króna holræsagjald var sett á fasteignir og nýtt heilbrigðiseftirlitsaald nemur 30 núlljónum á ári. Áfram er sérstakur skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Slík gjöld gera fyrirtækin tregari til fjárfest- inga og nýrra verkefna. Átaksverkefnin Við sjálfstæðismenn töldum brýnt að horfa til tvíþættra aðgerða gegn atvinnuástandinu. Til skammtímaaðgerða töldust m.a. „átaksverkefni", þar sem fjöldi fólks fékk vinnu tengda gmnnskól- um borgarinnar og ýmsum um- hverfisverkefnum. Þannig hélt Reykjavíkurborg uppi fram- kvæmdum 1992-1994, umfram ár- KjaUarinn Árni Sigfússon oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn lega getu borgarsjóös. Markmiðið var að mæta tímabundnum sam- drætti í framkvæmdum fyrirtækj- anna. Þegar fyrirtækin næðu sér að nýju bæri borginni að draga saman og greiða skuldirnar. Þann- ig var taUð mögulegt að draga úr þunga atvinnuleysisins og alvar- legum afleiðingum þess. Þessar aðgerðir byggðu á að atvinnuleysið yrði ekki viðvarandi. Á árunum 1993 og 1994 veitti Reykjavíkurborg yfir 1 milljarð króna í slík verk- efni. Á þessum sama tíma í fyrra náðu átaksverkefni Reykjavíkur- borgar að draga úr atvinnuleysinu um 15%. Nú er hlutur átaksverk- efna óverulegur. Lægri skatta Til skjótvirkra aðgerða töldust einnig hugmyndir okkar um að- gerðir á þessu ári sem gætu hraöað uppbyggingu fyrirtækja og hvatt þau áfram. Þær tengdust breyttum fimingarreglum varðandi fjárfest- ingar fyrirtækja og lægri skatt- heimtu á skrifstofu- og verslunar- húsnæði. Lægri skattbyrði á fyrir- tækin er ekki aöeins skjótvirk lausn. Hún er forsenda þess að fyr- irtækjunum sé skapað lífvænlegt umhverfi til framtíðar. Slíkt um- hverfi er forsenda fleiri vel laun- aðra starfa. Þessu svaraði R-listinn meö því að hækka skatta . Undanfarin ár hafði Reykjavík- urborg náð að draga úr atvinnu- leysinu án meiri skattheimtu. Nú eru lausnarorðin samdráttur í átaksverkefnum og meiri skatt- heimta. Þessi leiö R-listans er ekki leiðin út úr ógöngunum. Sú leið er vandrötuð. Hún er fólgin í hóflegri skattlagningu og endurskoöun á hlutverki Reykjavíkurborgar í margvíslegum rekstrarverkefnum sem hún hefur tekið að sér. Árni Sigfússon „R-listinn ætlaði að leysa atvinnuvand- ann með skjótvirkum hætti. I stað þess hefur R-listinn aukið á atvinnuleysið í Reykjavík. Það er vegna þess að undir forystu R-listans hafa skattar á fyrir- tækin í borginni verið hækkaðir ekki síður en á borgarbúa.“ Skoðanir aimarra Stjórnkerfi og neysluvenjur „Röksemdirnar, sem lengi hafa verið hafðar uppi í íslenskri stjórnmálaumræðu, að sjálfsagt sé og rétt- lætanlegt að önnur lögmál gildi um verslun, við- skipti og þjónustu á íslandi en annars staðar, eru á hröðu undanhaldi.Ýmis dæmi eru um að neyslu- og lífshættir þorra almennings í landingu eru í raun komnir mörgum skrefum á undan ákvörðunum stjórnvalda. Eitt af nærtækari dæmunum um þetta er hvemig breytingar á neyslumynstri almennings þrýsta á um breytingar á landbúnaöarkerfmu.“ Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 16. júlí. Starfsgreinasamningar „V.R. hefur á undanfomum áram barist fyrir því að færa samningagerðina til starfsgreinanna og fá samtök vinnuveitenda til að gera kjarasamninga á starfsgrundvelli. Hefur skipulagi félagsins veriö breytt í þeim tilgangi. Þetta samningsform myndi leiða til þess að starfsfólkið myndi verða í meiri snertingu við samningagerðina.Enginn vafi er á því, að slíkt samningsform myndi auka skilnig beggja aðila, launþega og vinnuveitenda á högum hvors annars. Það er líklegt til að auka traust milli aðila og stuðla að auknum vinnufriði í landinu." M.L.S. í forystugrein 7. tbl. VR-blaðsins. Samráð um varnarmá! „Ég tel ekki ástæður til að hafa neinar áhyggjur af þessari æfmgu vegna þess að okkar stefna er mjög skýr gagnvart kjamorkuvopnum. Það er stefna ís- lenskra stjórnvalda að þetta sé kjarnorkulaust svæði, bæði landið, landhelgin og lofthelgin. Þetta vita aör- ar þjóðir og Bandaríkjamenn þar á meðal....Sam- kvæmt okkar varnarsamningum við Bandaríkja- menn á aö hafa samráð um búnað og fjölda her- manna og annað slíkt. Það samráð hefur verið virt.“ Siv Friðleifsdóttir í Tímanum 15. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.