Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 Iþróttir unglinga GuU- og silfurmóti Breiðabliks í Kópavogi lauk á sunnudag: Glæsilegasta mótið til þessa - var samdóma álit þátttakenda sem voru um 1000 talsins, fleiri en í fyrra Ellefta Gull- og silfurmót Breiðabliks hófst 13. júlí með stórfenglegri skrúð- göngu frá Digraneskirkju að hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi. Veður var alveg frábært alla dagana og spillti það ekki fyrir hinni glæsilegu umgjörð. Um 700 keppendur mættu til leiks að þessu sinni og er það fjölg- un frá því í fyrra. í aUs er áætlað að séu þjálfarar og aðrir aðstandendur liðanna teknir inn í dæmið hafi verið Umsjón Halldór Halldórsson um 1000 þátttakendur að þessu sinni. AUs voru spilaðir 180 leikir á 10 keppnisvöllum. A fóstudag var haldin kvöldvaka sem stóð til kl. 22.00. Allir keppendur fengu boh og húfur og frítt í sundlaug Kópavogs, sem er stærsta sundlaug landsins. Og að lokum var öllum boðið í risagrillveislu á sunnudaginn eftir verðlaunaafhendingu en um þann þátt sá Bjarni Felixson. Breiðablik og Týr unnu ítveim flokkum í 2. og 3. flokki sigraði Breiðablik. í 4. flokki (A) vann Valur. í 4. flokki (B) sigraði Stjaman. í 5. flokki (A) sigraði Týr, Vestmannaeyjum (á hlutkesti gegn KR). Leiknum lauk 0-0. í 5. flokki (B) vann Stjaman og í 6. flokki sigraði Týr, Vestmannaeyjum. Blómvöndur frá Dalvíkingum Formaður knattspymudeildar Breiða- bliks, Sveinn Ingvason, kvað þátttak- endur hafa verið mjög ánægða með alla framkvæmd mótsins. „Þetta gekk eins og vel smurð vél,“ sagði Sveinn. Til marks um það er ekki úr vegi að minnast þess aö við verðlaunaf- hendinguna barst Breiðabliki blóm- vöndur frá þátttakendum Dalvíkur og hamingjuóskir í tilefni af góðri fram- kvæmd mótsins. Frábær aðstaða Aðstaðan 1 Kópavogi til mótshédds af þessu tagi er alveg einstök og hvergi betri á öllu landinu. Hér eru knatt- spyrnuvellir úti um allt, nýtt og ömgg- lega fullkomnasta íþróttahús landsins, skóláhús á næsta leiti og örstutt í stærstu sundlaug landsins. Breiða- bliksfólk og aðrir Kópavogsbúar geta svo sannarlega verið stoltir af þessum stórglæsilegu mannvirkjum. Háttvísiverðlaun VISA og KSl Háttvísi- og prúðmennskuverðlaun VISA og KSÍ voru veítt fyrír skemmtilegustu og prúðmamrlegustu fram- komu innan vallar sem utan en þau féllu þannig: 2. flokkur: Dalvík. 3. flokkur: Keflavík. 4. flokkur(A): Haukar. 4. flokkur(B): 'l’indastóll. 5. flokkur(A): KA. 5. flokkur(B): BreiðablikU). 6. flokkur: Ix>r, V.,lið 1 og2. Mikil stemning var á hinu vel heppnaða Gull- og silfurmóti Breiðabliks sem lauk síðastliðinn sunnudag. Frábært veður var alla daga mótsins. Hér sést yfir hluta áhorfenda. Inni i myndinni eru stelpurnar i A-liði 5. flokks Aftureldingar, sem urðu í 9. sæti, sem er góður árangur. DV-myndir Hson Hinir frábæru markverðir KR og Týs eftir úrslitaleik A-liða 5. flokks, til vinstri er Anna Úrsula Guðmundsdóttir, KR, og Andrea Gísladóttir, Tý, Vestmannaeyjum. Þaö var meiri háttar stemning í úrslitaleiknum í 5. Gokki A-liða, milli Týs og KR, en honum lauk með jafntefli, 0-0. í framlengingu var ekkert mark skoraö og þurfti því dómarinn, Sigurður Þorsteins- son, að varpa hlutkesti og hlaut Týr sigurinn. I samtali við markveröi liðanna eftir þetta allt saman voru þeir sammála um að þaö ætti að klára leikinn með vítakeppni en ekki lúutkesti. „Það ætti að banna aö varpa hlut- kesti. Kf við fáum að reyna allt til þess að sigra þá er þaö langréttlát- ast," sögðu stelpurnar. Til vinstri er hin flinka Margrét Lára Viðarsdóttir, 8 ára, fyrirliði 6. flokks Týs, og til hægri er hin stórgóða Rakel Ásgeirsdóttir, 10 ára, fyrirliði 6. flokks Breiðabllks. Týr, Vestmannaeyjum, varö meistarl í 6. flokki. Liðið er þannig skipað: Sæunn, Svala, Hafdís, Guörún Lena, María, Margrét Lára, Karítas, Berglind, Arna og Anna Fríða. - Þjálfari stelpn- anna er Ema Þorleifsdóttir. Týr, Vestmannaeyjum, sigraði í 5. flokki eftir mjög spennandi úrslitaleik gegn góðu KR-liði. í fremri röð eru KR-ingar og í þeirri aftari Týrarar. Það varð að varpa hlutkesti um hvort liðið yrði meistari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.