Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 25 Fréttir Leikhús Víðidalsá í Húnavatnssýslu: 25 punda á fluguna Þeir veröa líka nokkuð margir stórlaxarnir, sem veiðast á þessu sumri, en núna eru stærstu laxarnir 25 pund, 24 pund og tveir 22 punda. Vænir fiskar hafa sést í veiðiá eins og Mýrarkvíslinni en þeir fást ekki til að taka agn veiðimanna ennþá. Rífandi veiöi hefur verið í Víðidalsá og eru komnir um 300 laxar á land. - stærsti lax sumarsins í Vatnsdalsá eru komnir 110 laxar og í Miðfjarðará eru komnir 222 lax- ar. í Laxá á Ásum hefur veiðst vel og eru komnir 450-460 laxar á þurrt. „Þetta var hörkubarátta við laxinn og æth baráttan hafl ekki staðiö yfir í 45 mínútur," sagði Jóhann Rafns- son, leiösögumaður við Víðidalsá, í gærkveldi en erlendur veiöimaður veiddi fiskinn væna sem var 25 pund. „Fiskurinn tók svarta tommu fran- ses og það var Harðeyrarstrengurinn sem gaf þennan fisk. Það er hrikalega kalt við Víðidalsá núna og hvasst en það reytist inn af fiski,“ sagöi Jóhann ennfremur. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stórasviðkl. 20.30. Rokkóperan Jesús Kristur SUPERSTAR eftir Tim Rice og Andrew Loyd Webber Miövikud. 19/7, örfá sæti laus, föstud. 21/7, örfá sæti laus, laugard. 22/7, flmmtud. 27/7, föstud. 28/7, laugard. 29/7. Miðasalan verður opin alla daga frá kl. 15-20 og sýningardaga til kl. 20.30. Tekið er á móti miðapöntunum i síma 568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga. Greiöslukortaþjónusta. Gjafakort - frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur- Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. Tilkyiuiingar Kjartan Busk úr Hveragerði með 12 punda lax, veiddan á flugu i Rangánum, en baráttan var snörp og skemmti- leg. Rangárnar eru komnar yfir 400 laxa. DV-mynd G. Bender Útleiga á málmleitartækjum Tjaldaleigan Skemmtilegt hf„ Bíldshöfða 8, hefur hafið útleigu á málmleitartækj- um til leitar á sjó og vötnum. Ýmis sveit- arfélög, fyrirtæki og einstaklingar hafa notfært sér þessa þjónustu, meöal annars hafa fundist bílar frá stríðsárunum. Sögusagnir herma að setulið Breta hafi misst niður tvo bíla við keyrslu á ísi lögðu vatni í nágrenni Reykjavíkur á stríðsár- unum. Fundist hafa tveir bílar og er nú veriö að leita eftir fjárstuöningi við að ná bílunum upp. Yf ir 400 laxar úr Rangánum „Veiöiskapurinn gengur mjög vel hérna í Rangánum og eru komnir 400 laxar úr báðum ánum. Ytri-Rangá hefur gefið 300 laxa og Eystri-Rangá 100,“ sagði Þröstur Elliðason í gær- kvöldi. „Við vorum að veiða fjögurhundr- asta laxinn rétt áðan og þetta eru 20 laxar á land úr báðum ánum á hverj- um degi. Rangárflúðimar gefa lang- Veiðivon Gunnar Bender best þessa dagana og flugan er sterk þar. Laxinn er farinn að dreifa sér meira um ána en hann hefur gert. Stærstu laxinn í Ytri-Rangá er 15 punda en einn 18 punda hefur veiðst í Eystri-Rangá. Silungsveiðin er sæmileg og veiðimaöur sem var uppi við Galtalæk um daginn veiddi fjóra á stuttum tíma. Þetta voru frá þriggja upp í fimm punda fiskar," sagði Þröstur í lokin. Elliðavatn: Fyrsti laxinn tók f lugu „Þetta ' var feiknalega skemmtilegt en laxinn fékk ég fyrir neðan Elliðavatnsbæinn í gær á flugu sem faöir minn hnýtti. Maður átti þetta svo sannarlega skilið eftir frekar rýra veiði í vatninu það sem af er sumri,“ sagði Smári Magnús- son í gærkveldi en hann á heið- urinn af fyrsta laxinum í Elliða- vatni á þessu sumri. ,-,Baráttan stóð yfir í 15-20 mínútur en ég þorði ekkert að taka á fisknum því ég var með mjög grannan taum. Eg sá fljót- lega að þetta var lax,“ sagði Smári í sjöunda himni í gær- kveldi. Smári Magnússon með fyrsta laxinn úr Ell- iðavatni í gærkveidi, 4 punda fisk á flugu sem faðir hans hnýtti. DV-mynd G.Bender Leiðrétting-Jón á heiðurinn! í umsögn um rokkóperuna Su- perstar í DV í gær kom fram sé leiði misskilningur að orgelleikur í verk- inu væri að hluta til gamlar upptök- ur frá uppsetningu verksins í Aust- urbæjarbíói 1972. Hið rétta er aö undirleikur sinfóníuhljómsveitar er ættaður úr verkinu frá 1972 en Jón Ólafsson tónlistarstjóri á hins vegar allan heiöur af glæstum leik á Hammond-orgelið í sýningunni. Er hann beðinn velvirðingar á þessum mistökum. -SÞS- Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Arnarklettur 1, Borgarnesi, þingl. eig. Ólafur Þór Jónsson, gerðarbeiðendur Húsnæðisstofnun ríkisins, Remaco hf., Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Sýslu- maðurinn í Borgarnesi, 20. júlí 1995 kl. 10.00. Sýslumaðurinn í Borgamesi 17. júli 1995. Stefán Skarphéðinsson Félag austfirskra kvenna færði björgunarsveitum Slysavamafé- lags íslands á Austurlandi 500 þúsund krónur að gjöf 1. júh sl. Björgunarsveitir félagsins eru 13 talsins á Austurlandi, frá Djúpavogi til Bakkafjarðar. Gjöfln er ætluð til kaupa á snjóflóðaýlum fyrir sveitimar en slík tæki geta skipt sköpum í snjóflóðaleit, fjallaferðum og ef fólk grefst undir fargi. Sportveiðiblaðið 1. tbl., 14 árg. 1995 er komið út. Meðal efnis er viðtal við Sigga Sigurjóns, vor- hugleiðing frá Veiðimálastofnun, fjallað um Hítará og Hofsá, rætt við meistara fluguveiðinnar, Kolbein Grímsson, sagt frá dagsstund í lúxussmiðju Browning, hreindýraveiðum og veiðiástríðu, viðtal er við Ragnar Bjömsson og margt fleira. Styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku Eins og undanfarin ár verða styrkir veitt- ir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ung- menni geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Að öðm jöfnu njóta eftirtaldir for- gangs um styrk úr sjóðnum: 1. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, fóður eða móður og einstæðar mæður. 2. Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun. 3. Ef engar umsóknir em frá Vestfjörðum koma umsóknir vestfirskra búsettra ann- ars staðar til álita. Félagssvæði Vestfirö- ingafélagsins er ísafjarðarsýslur, ísa- fjörður, Stranda- og Barðastrandarsýsl- ur. Umsóknir skal senda fyrir lok júlí til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Sigríður Valdimarsdóttir, Birkimel 8b, 107 Reykjavík, og skulu meðmæli fylgja frá skólastjóra eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda hans, efni og að- stæður. Sýningar Listasetrið Kirkjuhvoli á Akranesi Fjórtán hstamenn frá Akranesi em með samsýninguna „Skagarek" í Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi. Opiö daglega kl. 14-16.30 til 20. ágúst. Sagegraphite II (álhulstur) kr. 16.900 Neoprenevöðlur (filtsólar) - 13.500 Stangahaldarar (sogskálar) - 4.990 jgi Silungaflugur Straumflugur - 200/240 - 80/100 - 120/160 Armót sf. Flókagötu 62, s. 552 5352 Sérverslun fyrir fluguveiðimenn AIIIXK DV 904-1700 Verö aöeins 39,90 mín Fótbolti 2 1 Handbolti [3 [ Körfubolti 4 [ Enski boltinn _5| ítalski boltinn 61 Þýski boltinn 7 [ Önnur úrslit 8 j NBA-deildin JL| Vikutilboð stórmarkaöanna 2 j Uppskriftir 1[ Læknavaktin 2 [ Apótek 3 1 Gengi 1 [ Dagskrá Sjónvarps 2J Dagskrá Stöðvar 2 3 [ Dagskrá rásar 1 4J Myndbandalisti vikunnar - topp 20 5 [ Myndbandagagnrýni 61 ísl. listinn -topp 40 71- Tónlistargagnrýni 8 Nýjustu myndböndin 9 [ Gervihnattardagskrá Smrnrriúyrnm 1 Krár 2 [ Dansstaðir 3 1 Leikhús 4j Leikhúsgagnrýni _5j Bíó 6j Kvikmyndagagnrýni nningsnumer 11 Lottó 2 j Víkingalottó 3 [ Getraunir AIRIH 904-1700 Verö aöeins 39,90 mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.