Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1995, Síða 6
22
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
Ér ^
^XSngar
Sýningar
Á næstu grösum
Laugavegi20b
Þar stendur yfir myndlistarsýning Helgu Sig-
urðardóttur. Sýningin stendur til 30. septemb-
er og er opin á sama tíma og matstofan. Sýn-
inguna kallar Helga Nýja sýn og er hún 12.
einkasýning hennar.
Ásmundarsafn
Sigtúni
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina
„Stíllinn í list Ásmundar Sveinssonar". Sýn-
ingin er opin fram á haust, kl. 10-16.
Ásmundarsalur
Freyjugötu 41
Kristján Davíðsson opnar málverkasýningu í
dag kl. 18-20. Á sýningunni eru olíumálverk
unnin á undanförnum árum. Sýningin ersölu-
sýning og er opin daglega kl. 16-20. Henni
lýkur 1. október.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Strandgötu 50
Þar stendur yfir sýningin „Hafnarfjörður frá
landnámi til hernáms". Sýningin er opin alla
daga kl. 13-17 og stendur til 17. september.
Café List
v/Klapparstig
Þar sýna Irsku myndlistarmennirnir Amanda
Dunsmore, Dougal Mc. Kenzie og Aisling
O'Beirn. Sýningin stendur út septembermán-
uð.
Djúpið
v/Hafnarstrœti
Á morgun opnar Þór Ludwig Stiefel málverka-
sýningu. Sýningin samanstendur af ollumál-
verkum sem öll eru unnin á þessu ári. Sýning-
in er opin alla daga og stendur til 7. október.
Gailerí Álafoss
Á morgun opnar Hanna Bjartmars Arnardóttir
málverkasýningu. Öll málverkin á sýningunni
eru unnin á þessu ári. Þau einkennast af ein-
földum formum og gríðarlegri litagleði.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvik
Þar stendur yfir sýning á verkum Erlu Axels-
dóttur, Helgu Ármannsdóttur, Elínborgar
Guðmundsdóttur, Sigrúnar Gunnarsdóttur og
Margrétar Salome. Galleríið er opið alla virka
daga kl. 12-18.
Gallerí Birgir Andrésson
Vesturgötu 20
irsku myndlistarmennirnir Vivien Burnside og
Dougal McKenzie sýna verk sín. Sýningin
stendur út september.
Gallerí Fold
Laugavegi 118 d
Þar stendur yfir sýning á blek- og vatnslita-
myndum eftir Lu Hong. í kynningarhorni gall-
erísins eru sýndar myndir eftir Gunnar Á.
Hjaltason. Sýningunum lýkur á sunnudaginn.
Opið daglega kl. 10-18 nema sunnudaga kl.
14-18.
Gallerí Guðmundar
Ánanaustum 15, sími 21425
Galleríið er opiö virka daga kl. 10-18.
Gallerí List
Sklpholti 50b
Galleríið er opiö alla daga kl. 11-18 nema
laugardaga kl. 11-14. Sýningar í gluggum á
hveiju kvöldi.
Galleri Ríkey
Hverfisgötu 59
Sýning á verkum Ríkeyjar. Opiö kl.
13-18 virka daga en laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
Gallerí Stöðlakot
Bókhlöðustlg 6
Þar stendur yfir sýning á vatnslitamyndum
eftir Eirík Smith frá árunum 1963-1965 sem
ekki hafa verið sýndar áður. Sýningin er opin
daglega kl. 14-18 til 25. september.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
i dag opnar Eygló Harðardóttir sýningu á inn-
setningu. Sýningin er opin á verslunartíma kl.
10-18 virka daga.
Gerðarsafn í Kópavogi
Guðrún Kristjánsdóttir sýnir málverk. Verkin
eru flest stór olíumálverk. Sýningin stendur til
17. september og er safniö opið daglega kl.
12-18 nema mánudaga.
Gerðuberg
Á morgun opnar Inga Ragnarsdóttir sýningu
á skúlptúrum í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi og ber hún yfirskriftina „Hörgur".
Hafnarborg
Þar stendur yfir sýning á nýjum málverkum
eftir listmálarann Eirík Smith. Á sýningunni
er að finna bæði olíumálverk og vatnslita-
myndir, allt verk sem Eiríkur hefur unnið á sl.
tveimur árum. Sýningin stendur til 25. sept-
ember og er opin frá kl. 12-18 alla daga nema
þriðjudaga en auk þess til kl. 21 á fimmtudög-
um.
Kaffi Mílanó
FaxafeniH
Guöbjörg Hákonardóttir sýnir verk sín til 15.
september.
Kjarvalsstaðir
Á morgun kl. 16 verða formlega opnaðar fjór-
ar sýningar: Sýningin Kjarval - mótunarár
1885-1930, sýning á verkum Kristínar Gunn-
laugsdóttur, sýningamar Forn leirlist frá Perú
og konur og vídeó. Sýningin á verkum Kjarv-
als verður opin fram I desember en sýningam-
ar á verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur og
Leirlist frá Perú verða hins vegar opnar dag-
lega til 15. október frá kl. 10-18. Kaffistofa
og safnverslun veröa opnar á sama tíma.
Listasafn Islands
Stórsýning á Norrænni aldamótalist. Umrædd
sýning var stærsti menningarviðburður í viöa-
mikilli norrænni hátíö sem skipulögö var á
Spáni nú I vor. Sýningin kemur hingað frá
Barcelona og verður hór fram til 24. septemb-
er. Á sýningunni eru 81 málverk, einkum frá
tímabilinu 1890-1910.
Hanna Bjartmars í Gallerí Álafoss:
Einföld ÍFonn og
gríöarleg litagleði
Þetta er fyrsta alvöru einkasýningin mín, segir Hanna Bjartmars.
DV-mynd ÞÖK
Sex konur í
Norræna
húsinu
Myndlistarmennirnir Anna Þóra
Karlsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Birna
Kristjánsdóttir, Guðrún Gunnars-
dóttir, ína Salóme og Ólöf Einars-
dóttir opna sýningu á verkum sínum
í Norræna húsinu á morgun. Á sýn-
ingunni verða nytjahlutir unnir í
margvísleg efni og endurspegla
verkin sýn myndlistamannsins á
nytjahluti. Heiti sýningarinnar er
„Þetta get ég nú gert“.
Sjósetning eftir Kjarval. Máluð 1924.
Fjórar sýn-
ingar á Kjar-
valsstöðiun
Á morgun verða opnaðar íjórar
sýningar á Kjarvalsstöðum. Sýning-
in Kjarval - mótunarár 1895-1930
verður í austursal, Kristín Gunn-
laugsdóttir verður með sýningu í
miðsal, Leirlist frá Perú er heiti sýn-
ingar í vestursal og í vesturforsal er
sýningin Konur og video 1970-75.
Sýningin á verkum Kjarvals verð-
ur opin fram í desember en verk
Kristínar og leirlistin frá Perú verða
á Kjarvalsstöðum fram í miðjan okt-
óber. Verkin frá Perú eru úrval
fomra leirlistaverka frá Þjóðminja-
safninu í Lima. Sýndir eru munir frá
ýmsum menningarhópum sem voru
uppi fyrir tima Inkanna, þar á meðal
nokkrir munir frá 5. öld fyrir Krist.
Verk Kjarvals í austursal eru frá
Reykjavíkurárum hans, áður en
hann hélt utan til náms, verk frá
námsárum hans í London og Kaup-
mannahöfn, svo og námsferð hans
til Ítalíu. Einnig verða sýnd verk frá
íslandsferðum hans meðan hann bjó
erlendis auk verka frá íslandi og
Frakklandi frá tímabiiinu 1922-30. A
sýningunni verður leitast við að end-
urspegla þá breidd í myndmáli, stíl-
brigðum og verkefnavali sem ein-
kenndi þetta mótunarskeið hsta-
mannsins.
Myndlist á
AJkranesi
Daiúel Ólafeson, DV, Akranesi:
Hrönn Eggertsdóttir heldur mál-
verkasýningu í listahomi upplýs-
ingamiðstöövar ferðamála á Skóla-
braut 31 á Akranesi og stendur sýn-
ingin til 15. október. Hrönn, sem út-
skrifaðist frá MHÍ 1974, sýnir röð 12
vatnslitamynda sem heita Á heið-
inni. Hún hefur áður haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum.
Þá hefur Bjami Þór Bjamason
myndlistarmaður opnað gallerí aö
Stillholti 23 á Akranesi. Auk þess að
opna nýja vinnustofu mun hann
bjóða upp á myndlistamámskeið.
Fyrsta sýning
Þorsteins
Víkings
Á Veitingastaönum 22 við Lauga-
veg stendur nú yfir sýning á verkum
Þorsteins Víkings en þetta er fyrsta
málverkasýningin sem listamaður-
inn hefur haldiö. Á 22 sýnir Þor-
steinn Víkingur sjö olíumálverk og
tvær vatnslitamyndir.
„Þetta er mikið af sófum og lifandi
púðum eða tröllum í sófunum, jafn-
vel bara lausum eða sér. Þetta er eins
og þegar maður var lítill en við höf-
um öll upplifað það að þurfa að gista
annars staðar en heima hjá okkur.
Maður er kannski settur undir sæng
inni í stofu eða á einhveiju hótelher-
bergi. Ljósin eru slökkt og maður
horfir í kringum sig og þegar augun
fara að venjast myrkrinu þá sér
maður púða og það em kannski
hnappar í þeim og þetta verður allt
svohtið lifandi," segir hstakonan
Hanna Bjartmars Arnardóttir sem á
morgun opnar málverkasýningu í
Gallerí Álafoss í Mosfehsbæ.
Hanna útskrifaðist úr kennara-
dehd MHÍ1981 og stundaði grafíkn-
ám við sama skóla 1981-83 og fram-
haldsnám við Grafikskolan í Forum
í Svíþjóð 1985-87. Þetta er fyrsta
málverkasýning hennar en Hanna
hefur á undanfömum árum aðallega
unnið í grafík.
„Á sýningunni em um 25 verk en
þetta er fyrsta málverkasýningin
mín. Áður hef ég verið með svona
Utla skólasýningu. Á námsárunum
sýndi ég t.d. í Jónshúsi. En þetta er
fyrsta alvöru einkasýningin," segir
Hanna en hún starfar sem aðstoðar-
skólastjóri Gagifræðaskólans í Mos-
fellsbæ.
ÖU málverkin á sýningunni em
unnin á þessu ári en þau einkennast
af einfoldum formum og gríðarlegri
Utagleði.
Þórsteinn Víkingur, sem sækir
fóng sín tíl Eddu Snorra Sturluson-
ar, nam þrjá vetur á myndhstarbraut
Fjölbrautaskólans í Breiðholti og
nokkur ár við Myndhstaskólann í
Reykjavík.
Sýning Þorsteins Víkings á 22
stendur yfir fram í október.
Skúlptúr í
Gerðubergi
Inga Ragnarsdóttir opnar í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi á
morgun sýningu á skúlptúrum sem
ber yfirskriftina „Hörgur". Að þessu
sinni bregður hins vegar svo við að
verkunum hefur verið komið fyrir í
anddyri hússins í stað gangsins á
jarðhæðinni eins og áður hefur tíðk-
ast.
Þetta er sjötta einkasýning Ingu en
hún vinnur í anda hinnar klassísku
skúlptúrhefðar þar sem efniskennd
og skýr myndbygging er í fyrirrúmi.
Sigríður Júlia stundaði framhalds-
nám í San Francisco Art Institute.
Renningarvið
Hamarinn
Á morgun opnar Sigríður Júha
Bjamadóttir sýningu á verkum sín-
um í sýningarsalnum Við Hamarinn
að Strandgötu 50 í Hafnarfirði.
Sigríður Júha útskrifaðist úr
Myndhsta- og liandíðaskóla fsiands
1988 og stundaði nám í San Francisco
Art Institute 1989-90.
Yfirskrift sýningarinnar er Renn-
ingar en hún stendur til 1. október.
Opið er alla daga frá kl. 14-18.
Sýningar
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, sími 13797
Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn alla
daga. Inngangur er frá Freyjugötu.
Listasafn Kópavogs
Þar stendur yfir sýning á verkum írsku lista-
mannanna, þeirra Aisling O'Beirn, Sean Tayl-
or, Tony O'Gribin, Una Walker og Amanda
Dunsmore. Sýningin stendur til 17. septemb-
er.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga
Sýningu á textílverkum norsku listakonunnar
Greta Borgersrud lýkursunnudaginn 17. sept-
ember. Safnið er opið laugardaga og sunnu-
daga kl. 14-17. Kaffistofa safnsins er opin á
sama tíma.
Listhús 39
Strandgötu 39, Hafnarfirði
Þar stendur yfir sýning á verkum Sigurborgar
Jóhannsdóttur. Verkin á sýningunni eru olíu-
málverk unnin á þessu ári. Sýningin stendur
til 25. september og er opin virka daga kl.
10-18, laugardaga kl. 12-18 og sunnudaga
kl. 14-18.
Listhúsið í Laugardal
Engjateigi 17, simi 680430
Þar stendur yfir myndlistarsýning á verkum
eftir Sjofn Har. Sýningin ber yfirskriftina „ís-
lensk náttúra, íslenskt landslag." Opið er virka
daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-16. I
Listacafé sýnir Eva Benjamínsdóttir ný mál-
verk, unnin með olíu og striga á akrýl. Opið
er mánudaga-laugardaga kl. 10-18 og
sunnudaga kl. 14-18.
Ljósmyndagalleríið
Myndás
Laugarásvegi1
Leifur Þorsteinsson Ijósmyndari sýnir
svart/hvítar Ijósmyndir. Sýningin stendur til
6. október og er opin virka daga kl. 10-18
og laugardaga kl. 10-16.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Á morgun opna fjórir ungir myndlistarmenn
sýningu. Listamennirnireru Hekla Dögg, Hild-
ur Jónsdóttir, Erling Klingenberg og Valborg
Salóme Ingólfsdóttir (Valka) ásamt Erlu
Franklíns. Þá sýna einnig fjórir Frakkar, þau
Vydia Gastaloon, Michel Wicker, Christopher
Terpent og Serge Comte (Philippe Dorían)
verk sín. Sýningin stendur til 15. október.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið á sunnudögum, þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 13-17.
Norræna húsið
„Þetta get ég nú gert'' er heiti á myndlistarsýn-
ingu sem 6 myndlistarmenn opna á morgun
kl. 16. Myndlistarmennirnir eru Anna Þóra
Karlsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Birna Kristjáns-
dóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, ina Salóme og
Ólöf Einarsdóttir. Á sýningunni verða nytja-
hlutir unnir í margvísleg efni og endurspegla
verkin sýn myndlistarmannsins á nytjahluti.
Sýningin stendur til 1. október og er opin
alla daga nema mánudaga kl. 14-19.
Nýlistasafnið
v/Vatnsstíg
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir, Hulda Ágústs-
dóttir og Andreas Karl Schulze opna sýningar
í Nýlistasafninu á morgun kl. 16. Gestur safns-
ins er Jón Laxdal Halldórsson. Sýningarnar
standa til 24. september og eru opnar alla
daga frá kl. 14-18.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarf., sími 54321
Opið sunnud. og þriðjud. kl. 15-18.
SPRON
Álfabakka 14
Þar eru til sýnis verk Berglindar Ýrar Sigurðar-
dóttur. Sýningin stendur til 29. september og
er opin frá mánudegi til föstudags kl. 9.15-16.
Við Hamarinn
Strandgötu 50, Hafnarfirði
Á morgun opnar Sigríður Júlía Bjarnadóttir
sýningi á verkum sínum. Yfirskrift sýningarinn-
ar er Renningar. Sýningin stendur til 1. októb-
er og er opið alla daga kl. 14-18.
Listasafnið á Akureyri
Þrír listamenn sýna í Listasafninu. i austursal
sýnir Aðalsteinn Svanur Sigfússon málverk,
máluð á léreft. i miðsal sýnir Jónína Guðna-
dóttir myndverk unnin í leir, járn. blý, torf, silki
og gler. I vestursal sýnir Sigtryggur Bjami
Baldvinsson verk unnin með olíu á striga.
Sýningarnar standa til 8. október.
Myndlistarsýning
á Akranesi
Bjarni Þór Bjarnason heldur myndlistarsýn-
ingu í Galleríinu Stillholti 23 á Akranesi. A
sýningunni eru verk sem eru unnin i olíu á
striga, vatnslitir og dúkþrykk. Sýningin ar opin
alla daga kl. 13-18.
Málverkasýning á
Stokkseyri
Sigurbjöm Eldon Logason sýnir málverk i
kaffihúsinu Við fjöruborðið á Stokkseyri. Sýn-
ingin er opin daglega kl. 13-23 til 23. sept-
ember.
Málverk og grafík á
Akranesi
Elías B. Halldórsson sýnir málverk og grafík
i Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi. Sýningin
stendur til 24. september og er opin virka
daga kl. 16-18 og um helgar kl. 15-18.
Málverkasýning á Akranesi
Hrönn Eggertsdóttir myndlistarmaöur heldur
málverkasýningu í listahorni upplýsingamið-
stöðvar ferðamála á Skólabraut 31, Akranesi.
Sýningin stendur til 15. október. Á sýning-
unni er röö 12 vatnslitamynda sem heita á
heiðinni.
Tolli sýnir á Siglufirði
Listamaðurinn Tolli sýnir í Ráðhúsinu á Siglu-
firði. Tolli sýnir 30 ný olíumálverk auk nok-
kurra steinþrykksmynda.