Þjóðviljinn - 09.12.1943, Síða 1
VILIINN
Lesið gremina:
„Píslarvætti norsku
kennaranna“
á 4. og 5. síðu.
8. árgangur.
Fimmtudagur, 9. desember 1943
277. tölublað.
Þad á að verja þessu fé tíl að „kaupa níður" dýrtíðína(!>
með öðrutn orðum: iækka launín
Meiri hluti fjðrveitinganefndar viil
fá minnst 10 milijónir króna í upp-
bætur á útfluttar landbúnaðarafurðir
Sósíalistaflokkurinn vill takmarka slíkar uppbætur
við þá bændur, er þess þurfa. — Og ennfremur láta
fiskimenn njóta jafnréttis við bændur.
Meirihluti. jjárveitingarnefndar lagði fram í gœr breytingatillögu
>nð fjárlögin, sem liljóðar svo:
„Verðuppbœtur á útfluttar landbúnaðarvörur (kjöt, gœrur, ull og
osta), framleiddar árið 1943, þannig, að framleiðendur fái verð fyrir þær
samkvœmt, niðurstöðum landbimaðarvísitölunefndar í. áliti dags. 1S.
ágúst s. /., og greiðist verðuppbœtumar um leið og káupendur borga
vörurnar, áœtluð fjárhœð kr. 10 000 000“.
Verðuppbætur á útfluttar land
búnaðarafurðir fyrir árið 1942
urðu sem kunnugt er um 15
rnilljónir króna. Nú á að bæta
við þetta fé uppbótum, er nema
minnst 10 milljónum, getur eins
°rðið 15—16 milljónir króna.
Þrír þingmenn Sósíalista-
flokksins, þeir Lúðvík Jósefs-
son, Þóroddur Guðmundsson og
Brynjólfur Bjarnason lögðu
fram breytingartillögu við
þessa tillögu meirihluta fjár-
veitinganefndar, um að tillagan
orðaðist svo:
„Til að verðbæta útfluttar
landbúnaðarafurðir (kjöt, gær-
Fraxnhald á 8. síðu.
Tito nwtap bFáOabiroOa-
í iiíoóslaoíu
Afstaða brezku stjórnarinnar vinsamieg
Tito hershöfðingi hefur myndað bráðabirgðastjórn í
júgoslavnesku landshlutunum, sem eru á valdi þjóðfrels-
ishersins. — Hefur það vakið mikla eftirtekt í löndum
Bandamanna. Brezka stjómin lýsti í gær á þingfundi af-
stöðu sinni til hinnar nýju stjómar og hersveita Titos
yfirleitt. Sagði stjómin að það væri regla sín að styðja
öU þau öfl, sem berðust gegn Þjóðverjum. Hefði brezka
stjórnin undanfarið veitt Tito miklu meiri stuðning en
Mihailovits, eins og eðlilegt væri, þar sem her Titos hefði
veitt Þjóðverjum langtum meiri mótspyrnu.
Júgoslavneska stjómin í Kairo Brezka blaðið Daily Mirror seg-
Kairo
er mjög gröm þessari nýju stjórn-
m-myndun. Segja talsmenn hennar,
uú þessi nýja stjórn njóti ekki
stuðnings neins stjórnmálaflokks í
Júgoslavíu nema Kommúnista-
flokksins.
ir:
„Aðstaða Mihailovits hershöfð-
ingja vcrður nú óeðlileg, þar sem
ekki eru lengur neinir sambands-
Framhald á 8. síðu
Ríkisstjórnin lagði í gær nýtt frumvarp fyrir Alþingi.
Það er stutt og hljóðar svo:
„Frumvarp til laga um tekjuöflun vegna dýrtíðarráð-
stafana.
1. gr. Til ársloka 1944 er ríkisstjórninni heimilt að
leggja sérstakt 2% gjald á cifverð allra innfluttra vara.
Skal það innheimt á sama hátt og tollar.
2. gr. Á árinu 1944 er heimilt að imiheimta tekju-
og eignaskatt með 15% viðauka.
3. gr. Tekjunum samkvæmt 1. og 2. gr. skal varið til
dýrtíðarráðstafana.
4. gr. Þessi lög öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta: Það er nú ljóst
orðið, að ekki verður nægilegur tekjuafgangur á f járlög-
um uæsta árs til þess að standa straum af nauðsynlegum
ráðstöfunum vegna dýrtíðar. — Verður því ekki hjá því
komizt að afla nýrra tekna í þessu skyni“.
Þetta frumvarp þarf ekki margra skýringa við:
Það á að hækka tollana — til að lækka dýrtíðina!!
Það á að innheimta tekju- og eignaskatt meS' 15% við-
auka, — og nota hann til þess að kaupa niður------laun
manna!!
Hér mætti ætla, að hrein Klepps-
vinnubrögð væru viðhöfð, ef aðoins
er litið á yfirborðið og eklci gáð að
tilganginum með þessu frumvarpi.
En tilgangurinn er, eins.og svo oft
hefur verið sýnt fram á hér: að láta
launþegana sjálfa borga niður laun
sín, — ræna þá á tvennan Iiátt:
Fyrst á að láta þá borga hærri
tolla og hærri skatta. Það á að inn-
heimta 2% gjald af allri nauðsynja-
vöru, 2% toll á hveiti og rúgmjöli,
kaffi og sykri. Það á að innheimta
15% viðauka af tekjum, einnig
brýnustu þurftartekjum manna. —
Þetta á svo að nota til að kaupa
uiður verðið á landbúnaðarafurð-
um, til þess að vísitalan lækki. Og
tilgangurinn með því að lækka vísi
töluna er sá, að lækka launin hjá
launþegum. — Og kostnaðinn við
þcssa lækkun eru launþegarnir sjálf
ir látnir borga! Kosturinn við þess-
ar aðferðir — fyrir stóratvinnurek-
endur — er auðsær. Og þeim þjón-
ar ríkisstjórnin með svona tillög-
um í dýrtíðarmálunum.
Það mun nú sýna sig.í þingiifu
hvaða flokkar og valdaklíkur það
eru, sem standa að svona pólitík
í dýrtíðarmálunum, hverjir það
eru, sem vilja byrja á ný á tolla-
pólitík þjóðstjórnarinnar og tengja
hana við jafn vitskertar aðferðir í
dýrtíðarmálum og hér cr um að
ræða.
Sósíalistaflokkuriun berst ein-
dregið gegn bessari afturhaldspóli-
tík. Og verklýðshreyfingin mun öll
verða að athuga aðstöðu sína alla
mjög rækilega, ef svona. aðfarir á
að hafa í frammi. (I forustugrein
blaðsins í dag, á 4. síðu, er nánar
rætt um þetta mál).
Þýzkir verkamenn í
Bandaríkjunum með
í baráttu gegn Hitler
„Sigumefnd“ þýzk-amerískra
verkamanna, sem heldur ráð-
stefnu þessa dagana í New
York með 91 fulltrúa frá ame-
rísku verkamannasamböndun-
um (AFL og CIO), hefur skuld-
bundið sig til að styðja fyrir-
hugaða alþjóðaráðstefnu verka-
manna sem bezta ráðið til að
hjálpa þýzkum verkamönnum í
baráttu þeirra gegn Hitler og
til að tryggja stöðu hinna end-
urreistu þýzku verklýðsfélaga
innan verklýðshreyfingar heims
ins.
Ráðstefnan skorar á hermála-
ráðuneyti Bandaríkjanna að
leyfa útbreiðslu andfasistiskra
bókmennta meðal þýzkra her-
fanga í bandarískum fangabúð-
um.
Hitaveitan komin í
á annað hundrað hús
Á annað hundrað húsa hafa nú
fengið lieita vatnið frá Reykjum.
Eru þau i Norðurmýrinni, og erv
það flest öll húsin í því hverfi.
Næst vcrður heita vatninu hlcypt
á í húsunum við Egilsgötu, Iæifs-
götu og Eiríksgötu. ,
Lokið er nú við um 85—90% af
götuleiðslunum.
Rússar taka N. Praga og Jelitavetkofka
í miðnæturtilkynningu
sovétherstjórnarinnar i
gær var í annað sinn aðeins
minnzt á bardagana á tveim
stöðum vígstöðvanna, nefni
lega í Dnépr-bugðunni og
á Kieff-vígstöðvunum.
Rauði herinn hefur rofið þýð-
ingarmestu járnbrautarlínuna,
sem liggur um Snamenka. Er
það sii braut, sem liggur á milli
Snamenka og Krivoj Rog. En
hún stenduv í sambandi við
brautina til Nikopol. Um leið
hafa Rússar rofið síðustu jám-
brautariinu Þjóðverja til vesturs
úr Dnépr-bugðunni fyrir norð-
an Krivoj Rog. Náðu Rússar
þessum árangri með því að taka
bœinn Novoja Praga. Auk þess
tóku Rússar bæinn Jelitavet-
kofka, sem er sunnar, og mörg
þorp.
Rússar hrundu í gær hörðum
gagnáhlaupum Þjóðverja fyrir
vestan og suðvestan Kremen-
sjúg. Novoja Praga er rúmum
20 km fyrir suðvestan Sna-
menka. Fréttir í gærdag hermdu
að rauði herinn væri um 4 km.
frá áður nefndri borg. Sunnar
í Dnépr-bugðunni hefur rauði
herinn unnið talsvert á.
Fréttaritarar í Moskva telja,
að með þessum sigri hafi Rúss-
ar lamað svo mjög samgöngu-
kerfi Þjóðverja 1 Dnépr-bugð-
FramhaJd af 1. síðu