Þjóðviljinn - 22.12.1943, Side 1
Tób yfír 100 bœí og þorp í gaer. Þjóðvcrjar hrabfír úr
síðasfa varnarvírbí sínu í Ubraínu austan Dnépr
Ekkert lát er á sókn rauða hersins á Eystrasalts-
vígstöðvunum. Hélt hann áfram að sækja suður frá
,Nevel í gær og tók yfir 100 bæi og þorp. Hefur hann
því tekið nál. 700 bæi og þorp í vikusókn á þessum víg-
stöðvum. í sókninni frá Nevel er rauði herinn kominn
innan við 35 km. frá Vitebsk og er álíka langt frá borg-
inni fyrir austan hana. Er talið yfirvofandi, að Vitebsk
verði umkringd. Einkum stafar þýzka setuliðinu þar
mikil hætta af sókn Rússa norðvestur af borginni, en
hún miðar að því, að rjúfa undanhaldsleið þess, jám-
brautina vestur til Polotsk. — Þjóðverjar gerðu hörð
gagnáhlaup þama í gær, en þeim var öllum hrundið.
í nágrenni Slobins gerðu
Þjóðverjar harðar gagnárásir,
en náðu engum árangri.
Á Kieff-vígstöðvunum gerðu
Þjóðverjar öflugar árásir í gær
með miklum liðsafla skriðdreka
og fótgönguliðs, í nánd við Kor-
osten. Var árásunum öllum
hrundið við mikið tjón í liði
Þjóðverja.
Árásir Þjóðverja í nágrenni
Kirofograds, í Dnépr-bugðunni,
báru og engan árangur.
Rússar hafa nú upprætt síð-
ustu varnarvirki Þjóðverja í
Ukrainu á eystri bakka Dnépr.
Voru þessar stöðvar Þjóðverja
suður undir ósum Dnépr and-
spænis bænum Kerson. Var
þarna öflugt rúmenskt og þýzkt
lið til varnar. Urðu verjendum-
ir fyrir feikilegu tjóni á mönn-
um og hergögnum.
Utvarpið í Moskva tilkynnir,
að Sovétríkin muni taka upp
sérstakan þjóðsöng frá og með
15. marz næstkomandi.
Víst má telja, að sama lagið
verði nótað eftir sem áður.
Þýzka útvarpið hefur ekki
ennþá sagt þýzku þjóðinni frá
réttarhöldunum í Karkoff. En
í útvarpi til útlanda segja naz-
istar, að réttarhöldin séu tóm
blekking.
SMaielli í landabroaei
Kannsóknarlögreglan fann í fyrrinótt stórframleiðslu á „landa“.
Eru það 3 bræður sem að henni standa og höfðu þeir aðalfram-
leiðsluna austur í Fljótshlíð og fundust þar 250—300 lítrar í gerjun.
itDOl iBltsðhn gean Wmdi
20flB laDDUii SDreHina larpifl á Franhiurí
Síðastliðinn sólarhring var varpað næstum 4000 tonnum
sprengna á Þýzkaland.
Brezkar sprengjuflugvélar gerðu í fyrrakvöld feikiharða loft-
árás á borgina Frankfurt. Var varpað á hana meira en 2000
tonnum sprengna á tæpum hálftíma Komu upp geisimiklir eldar.
Skömmu eftir aðalárásina
voru léttar sprengjuflugvélar af
Moskito-gerð látnar ráðast á
Frankfurt og urðu þær slökkvi-
liði borgarinnar til hins mesta
trafala. — Hörð árás var einn-
ig gerð á tvíburaborgirnar Mann
heim og Ludvigshafen.
í gærdag gerðu svo ame-
rískar sprengjuflugvélar afar
harða árás á hafnarborgina
Bremen. Vörpuðu þær á borg-
ina 1200 tonnum sprengna og
komu upp miklir eldar við höfn-
ina. Meiri fjöldi bardagaflug-
JólaleiKritlð: Vopn guðanna
mmmsm
Eftir Davið Stefánsson frá Fagraskógi
Umfangsmesta vark sem Leikf él a gi ð h ef u r sý nt
véla var i fylgd með amensku
sprengjuflugvélunum en nokk-
urn tíma hafa verið sendar inn
yfir meginland Evrópu í einu.
Auk þess voru gerðar árásir
á marga staði í Vestur-Þýzka-
landi og lagt tundurduflum.
Misstu Bandamenn samtals í
öllum. þessum árásum 65
sprengjuflugvélar og 8 orustu-
flugvélar. A. m. k. 52 þýzkar
flugvélar voru skotnar niður.
Frankfurt'er ein af mestu iðn
aðarborgum Þýzkalands og mið-
stöð kemiska iðnaðarins.
Leikfélag Reykjavíkur hefur á annan dag jóla frumsýningu
á hinu nýja leikriti Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi: Vopn
guðanna- v
Lárus Pálsson skýrði blaðamönnum frá þessu í gær. Verður
þetta umfangsmesta leikrit, sem sézt hefur á íslenku leiksviðL
Leikendur eru 30 og koma i allt 40—50 manns fram á sviðið.
Höfundur leiksins er kominn til bæjarins og verður viðstadd-
ur frumsýninguna.
FRAMLEIÐSLA FYRIR
REYKJAVÍKURMARKAÐ
Seint í fyrrakvöld gerði rann-
sóknarlögreglan húsrannsókn í
kjallaraherbergi á Hverfisgötu
59.
Funduzt þar 23 heilflöskur .og
7 hálfflöskur af fullgerjuðum
landa.
Var auðséð að vara þessi var
framleidd fyrir Reykjavíkur-
markað, einhversstaðar utan
'bæjarins því flöskurnar voru í
slíkum umbúðum.
Eigendur vörunnar reyndust
vera þrír bræður, frá bæ einum
austur í Fljótshlíð.
ÚTIBÚIÐ í GRENND VÍFILS-
STAÐA
Tveir þessara bræðra höfðu
haft til umráða sumarbústað við
Vífilsstaðaveginn og var því
einnig gerð rannsókn þar.
Fannst þar landi í gerjun í
þrem ílátum. Ennfremur brugg-
unartæki.
LÖGREGLAN HEIMSÆKIR
AÐALVERKSMIÐ JUN A
Það virðist venja bruggara að
hafa stöðvar sínar sem fjarzt
ferðum lögreglumanna, líkt og
hergagnaverksmiðjur eru hafðar
sem fjarst loftárásum.
Björn Blöndal, ásamt mönn-
um úr rannsóknarlögreglunni
fóru því austur í Fljótshlíð og
fundu þar aðalframleiðsluna.
Var þar landi í gerjun í 4
1 tunnum, samtals 250—300 lítr-
ar.
HVER LEGGUR TIL HRÁ-
EFNIÐ?
Ófróðir leikmenn í iðju þess-
ari, sem hefur verið fortalið að
aðalhráefnið sem notað er til
þessarar framleiðslu, sé sykur,
spyrja í einfeldni sinni: Hver
leggur til hráefni til þessarar
stórframleiðslu?
Talið hefur verið að sykur-
skömmtunin gerði landabrugg
óframkvæmanlegt.
Þessi bruggfundur virðist gera
allóþægilegt strik í reikning
þeirra manna er hafa boðað að
flóðgáttir löglegrar áfengissölu
skyldu opnaðar, þá hyrfi brugg-
ið, því enginn áfengishörgull
virðist enn vera í „dýra-ríkinu“.
Bumieister & Wain
veröur fyrir árás
Ný skemmdarverkaalda flæð-
ir nú yfir Danmörku. Ber mest
á árás þeirri, sem gerð var á
skipa- og vélsmíðastöðvar Bur-
meister og Wains. Ruddust
vopnaðir menn inn í aðalafl-
stöð fyrirtækisins og komu þar
fyrir sprengjum, sem eyðilögðu
hana alveg. — Er farið var að
slökkva eldana var hringt í
síma og tilkynnt að fleiri
sprengjur væru eftir ósprungn-
ar. Forðuðu allir sér þá burtu,
og eldurinn fékk að geisa á
Sétnikar stofna „ráð“ með
Þjó&verjum.
í hernaðartilkynningum frá
aðalstöðvum Titos marskálks er
sagt, að harðir bardagar geisi
um alla Júgóslavíu. Hefur þjóð-
frelsisherinn unnið marga stað-
bundna sigra — sérstaklega fyr-
ir sunnan Svartfjallaland. Sagt
er, að tekist hafi að frelsa tölu-
verðan hluta af Kordun-héraði.
Þýzka útvarpið játar, að
skæruliðar hafi gert öfluga
landgöngutilraun nálægt Split,
stórum hafnarbæ á Dalmatíu-
strönd.
Útvarpsstöð þjóðfrelsisfylking
arinnar hefur ráðist heiftarlega
á svo kallað „þjóðráð", sem
Þjóðverjar hafa komið á fót 1
Svartfjallalandi, og um leið á
Mikhailovits og stjórnina í Ka-
iro. Er þetta „þjóðráð“ m. a.
skipað átta svikurum, sem hafa
gegnt foringjastöðum í Sétnika-
sveitum Mikhailovits.
í þessu sambandi má geta
þess, að Mikhailovits sagðist fyr
•ir nokkrum vikum hafa Svart-
fjallaland á sínu valdi.
Flóttamannastjórnin í Kairo
hefur veitt brezkum blöðum og
útvarpi átölur fyrir ummæli
þeirra um júgoslavnesk mál.
meðan, en engar fleiri sprengj-
ur sprjungu.
Burmeister & Wain er heims-
frægt fyrirtæki. Framleiðir það
ýmislegt fyrir Þjóðverja, mj a.
dieselvélar í kafbáta.
Leikrit þetta fjallar um hina
eilífu baráttu mannsandans
gegn kúgun og harðstjórn.
Það er ótímabundið, nema gef
ið er í skyn að kristnin sé að
ryðja sér til rúms í landinu þar
sem það gerist, en leikritið er
heldur ekki staðsett, né látið ger
ast í neinu ákveðnu landi.
Aðalhlutverkið — konung —
leikur Jón Aðils, en auk hans
leika stór hlutverk þeir Þor-
steinn Ö. Stephensen, Haraldur
j Björnsson, Indriði Waage, Æv-
j ar Kvaran, Valdimar Helgason
j Brynjólfur Jóhannesson og Lár-
us Pálsson.
Smærri hlutverk leika þeir
Lárus Ingólfsson, Haukur Ósk-
arsson, Vilhelm Norðf jörð, Ragn
ar Árnason, Klemens Jónsson,
Stefán Haraldsson og Sveinn
Stefánsson.
Kvenhlutverk eru fá. Það
stærsta leikur Alda Möller, en
auk hennar leika þær Þóra Borg
og Gunnþórunn Halldórsdóttir.
Auk þess koma fram útlagar,
hermenn og þjónar. Er þetta
umfangsmesta verk sem Leikfé-
| lagið hefur tekið til meðferðar
og koma alls fram á sviðið
40—50 manns.
Fá menn í þetta sinn á einu
og sama kvöldi að sjá leik
Framh. á 5. síðu.
Virðir Skipaútgerðin
Alþingi að vettugi
Framkvæmdastjóri Skipaút-
gerðar ríkisins, Pálmi Loftsson
og atvinnumálaráðherra, lögðu
til við fjárveitinganefnd Alþing-
is, að varðskipið Þór yrði selt.
Meirihluti fjárveitinganefndar
flutti þingihu þessa tillögu, en
þar var hún felld með nokkr-
um meirihluta atkvæða, og hef-
ur þingið þannig beinlínis bann-
að að selia skipið að svo stöddu.
Það vakti því ekki litla furðu,
þegar hádegisútvarpið í gær
flutti auglýsingu frá Pálma
Loftssyni, um að Þór væri til
sölu og gætu listhafendur sent
tilboð á skrifstofu hans.
Ætlar Pálmi að hafa sam-
þykkt Alþingis að engu?