Þjóðviljinn - 22.06.1944, Síða 1
9. árgangur.
Fimmtudagur 22. júní 1944.
134. tölublað.
ffl
Rússar brjófast í gcgn mlllí Ladoga og Onega og norðan Onega
Ósk um samstarf Norður-
landa ( útvarpsmðlum
Ríkisútvarpinu barst 18. júní
símskeyti frá yfirmanni sænska
útvarpsins, Radiotjánst í Stokk-
hólmi, herra Ingve Hugo, þar sem
hann ber fram innilegar árnaðar-
óskir stofnuninni til handa í til-
efni af hinum merka viðburði í
sögu landsins og lætur í ljós þá
von, að samstarf í útvarpsmálum
megi brátt aftur hefjast á Norð-
urlöndum.
Útvarpsstjóri þakkaði fyrir hönd
stofnunarinnar á viðeigandi hátt
með símskeyti.
Ekki höfðu Rússar fyrr tekið Víborg, en rauði her-
inn hafði hafið sókn á tveimur öðrum stöðum á Finn-
landsvígstöðvunum.
Rauði herinn hefur þegar brotizt gegnum vararlínu
Finna fyrir norðan Onegavatn.
Auk þess hefur hann yfirbugað varnir Finna milli
vatnanna Onega og Ladoga, komizt yfir ána Svir og tekið
meir en 100 bæi og þorp.
fulftiyid al IH-
toldisslolniiiBnl
Óskur Gíslason Ijósmyndari sýndi
í gœr í Gamla Bíó kvilcmynd þá
sem hann hefur tekið af lýðveld-
ishátíðahöldunum og atburðum í
sambandi við lýðveldisstofnunina.
Myndin hefst á útifundi þeim
við Austurvöll, sem æskulýðsfé-
lögin héldu um sjálfstæðismálið.
Næsti þáttur er frá lýðveldis-
kosningunum hér í bænum. Kjós-
•eudur koma og fara. Atkvæða-
;greiðsla í kjördeild.
Þá hefst aðalkafli myndarinnar:
'Lýðveldisstofnunin á Þingvöllum.
Ferðalagið austur, mannfjöldinn,
þingfundurinn á Lögbergi — lýð-
'veldisstofnunin. Þá eru myndir af
jþví sem fram fór á völlunum.
Að lokum koma liátíðahbldin í
Reykjavík 18. júní, skrúðgangan
©g ræðuhöldin við stjórnarráðs-
húsið.
Það er nýjung hér að frétta-
kvikmyndir séu sýndar hér svo
skömmum tíma eftir að atburðirn-
ír gerast sem þær sýna, en vafa-
laust eiga slíkar myndatökur eftir
■að færast í vöxt hér og tæknin að
•aukast frá því sem nú er.
Myndin er tekin á mjófilmu og
■er þögul, en nú krefjast menn
hljómmynda.
Óskar Gíslason hefur sýnt
•dugnað með töku þessarar mynd-
■ar og vafalaust verður hún þó-
nokkur heimild um þenna söguleg-
•asta atburð íslandssögunnar.
Þjöðhátfðarmerklð verður
fásnlegt aftur
Þau þrjátíu þúsund af þjóð-
hátíðarmerkinu, sem hingað bár
ust fyrir lýðveldishátíðina seld-
ust upp á örskömmum tíma.
Þjóðhátíðarnefnd hefur nú
pantað fleiri merki og á von á
þeim innan mjög langs tíma.
ísland tekur fiátt í ráð-
stefnu um gjaldeyris- og
fjármál
Ráðstcfna um gjaldeyris- og
fjármál verður haldin í Bandaríkj-
unum í næsta rnánuði. Bandaríkja-
stjórn hefur boðið íslandi að taka
þátt í ráðstefnunni. Hefur ríkis-
stjórnin tekið boðinu og ákveðið
■að senda þriggja manna nefnd,
Æem þannig er skipuð:
Varnir Finna voru sterkar á
bökkum fljótsins Svir, sem renn
ur úr Laadogavatni í Onega-
vatn. En rauði herinn brauzt
yfir engu síður og er kominn
í örugga aðstöðu á hinum bakk-
anum. — í sókninni fyrir norð-
an Onegavatn hefur rauði her-
inn tekið marga bæi og þorp,
m. a. járnbrautarbæ á járn-
brautinni til Murmansk.
Finnski herinn heldur hratt
undan áleiðis til Helsinki 'eft-
ir fall Víborgar, en rauði her-
inn fylgir fast á eftir. Sögðu
fréttir í gær, að Rússar væru
komnir 25 km. vestur fyrir Ví-
borg, og er það fádæma hröð
sókn á einum sólarhring.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins, Paul Winterton, símar frá
Moskva, að harðir götubardag-
ar hafi verið háðir í Víborg.
— Segir hann stórskotalið og
sprengjuflugvélar Rússa hafa
dregið kjark úr andstæðingun-
um.
FRIÐ ARUMLEIT ANIR ?
Ostaðfestar fregir herma, að
Finnar séu þegar farnir að
þreifa fyrir sér um frið meðal
Bandamanna. — Ný stjórn hef-
ur ekki verið mynduð enn í
Finnlandi, en talið er að stjórn-
arskipti verði tilkynnt þá og
þegar.
HERSVEITIR VON DIETLS
Ekkert hefur ennþá frétzt
um hreyfingar • af hálfu hinna
■ 7 þýzku herfylkja í Norður-
Finnlandi, undir stjórn von
Dietls hershöfðingja.
Fer aðstaða þeirra brátt að
verða mjög tvísýn.
Getið er til, að þau muni e.
t. v. hörfa til Norður-Noregs.
ÞRJÚ ÁR.
í dag eru liðin þrjú ár síðan
nazistar byrjuðu hina sviksam-
legu árás sína á Ráðstjórnarrík-
in. — Á þessum árum hefur fer-
Magnús Sigurðsson, bankastjóri
Landsbanka íslands, formaður
nefndarinnar.
Asgeir Asgeirsson, bankastjóri
Útvegsbanka íslands. i
Svanbjörn Frímannsson, for-
maður Viðskiptaráðs.
ill þeirra verið óslitin röð af
glæpum, sem ekki eiga sinn
líka í sögu mannkynsins.
Nú er svo komið, að þeir hafa
sums staðar verið hraktir út
fyrir landamæri Ráðstjórnar-
ríkjanna, en Rússar hafa lýst
því yfir, að þeir muni ekki
nema staðar fyrr en þeir hafa
knúið heri nazista til skilyrðis-
lausrar uppgjafar eða útrýmt
þeim ella.
„Nazistar byrjuðu þetta
stríð“, segja þeir, „en við ætl-
um að enda það“.
Rundsted hershöfðingi hefur fyr-
irskipað verjendum borgarinnar að
verjast til síðasta manns.
Þjóðverjar láta borginmannlega
og segjast hafa lært það af bar-
daganum um Singapore að víg-
girða borgina einnig vel landmeg-
in. En herfræðingar telja aðstöðu
þeirra í Cherbourg alveg vonlausa
og varnarvirki þeirra alls ekki eins
traust og þeir láta.
Sjðorasta á Kyrratiafi
Mikil sjóorusta var háö 19.
— 20. þ. m. á Kyrrahafi, fyrir
austan Filippseyjar milli jap-
anskra og bandarískra herskipa.
Nimitz flotaforingi Banda-
ríkjanna segir flugvélar hafa á
mánudag komið auga á japönsk
orustuskip og flugvélamóður-
skip milli Filippseyja og Mari-
aneyja.
Nimitz sagði nánari fréttir af
viðureigninni ókomnar.
Hafi Bandaríkjaflotinn kom-
izt þarna í höggfæri við megin-
flotann japanska, getur þessi
orusta haft úrslitaþýðingu fyr-
ir stríðið á Kyrrahafi.
íslandsmótið:
ðrslitalelkur í kvöld
milli Fram og Vals
Leíknum milli K.R. og Vík-
ings á íslandsmótinu í fyrra-
kvöld lauk meö sigri K.R., 2
mörkum gegn engu.
í kvöld fer fram úrslitaleikur
íslandsmótsins milli Fram og
Vals. Ef Fram vinnur í kvöld
verður K.R. sigurvegari á mót-
inu, verði jafntefli verður auka
leikur til úrslita milli K.R. og
Vals, en vinni Valur Fram í
kvöld verður Valur sigurvegari
íslandsmótsins.
Síðari hálfleiknum í kvöld
verður útvarpað.
Aðalátökin um borgina eru ekki
i hafin enn, og sitja Þjóðverjar og
bíða átekta.
Bandamenn þafa varpað flug-
miðum niður yfir Cherbourg og
skorað á Þjóðverja að gefast upp
heldur en fórna lífi sínu til einskis.
Einn af hei'foringjum Eisenhow-
ers hefur ávarpað járnbrauta- og
hafnarverkamenn í Cherbourg og
skorað á þá að vera um kyrrt á
vinnustöðvum sínum og reyna að
hindra Þjóðverja í að eyðileggja
vélar og önnur mannvirki.
Bardagar eru enn harðastir ná-
lægt Cacn. — Slæmt veður hindr-
ar aðstoð af hálfu flugliðs Banda-
manna.
Iljá Tilly hrundu Bandamenn
þremur gagnáhlaupum Þjóðverja.
— Síðan bardagar hófu§t lijá Tilly,
hafa Bandamenn eyðilagt 80
þýzka skriðdreka að minnsta kosti.
Á þessum slóðum er hvert þorp
vígvöllur og oft er barizt hús úr
liúsi og stundum í návígi.
Bretar og Kanadamenn talca
smám saman hvert virki Þjóðverja
á fætur öðru.
Á Cherbourgskaga hafa Banda-
rílcjamenn tekið nolclirar af stöðv-
Vatnsfundur í Vestmanna-
eyjum
Nýlega hefur fundizt talsvert af
vatni í Ilerjólfsdal í Vestmanna-
eyjum. Vestmannaeyingar telja
þetta góðan fund, þar sem vatns-
ból í eyjunum hafa verið ófull-
nœgjandi.
Talið er að þarna geti verið um
töluvert vatnsmagn að rœða.
Að undanförnu hafa nokkuð
víðtækar tilraunir verið gerðar
með að grafa eftir vatni í Vest-
mannaeyjum, en engan árangur
borið þar til nú fyrir skömmu að
vatn fannst í Ilerjólfsdal.
Reynt hefur verið að tæma
brunninn með því að dæla úr hon-
um, en eigi tekizt, og er því á-
stæða til þess að ætla að þarna sé
um töluvert vatnsmagn að ræða,
en engar mælingar liggja enn fyrir
um vatnsmagnið. — Vatnið fannst
tiltölulega grunnt í jörðu.
um þeim, sem Þjóðverjar hafa not-
að til að skjóta frá liinum áliafn-
arlausu „flugvélum“ sínum.
Sérfrœðingar eru komnir þang-
að til að athuga, hvort nokkurn
fróðleik sé þar að finna.
Flugmenn hafa séð mikla þýzka
liðsflutninga gegnum Belgíu á-
leiðis til Parísar.
LES MAQUIS.
Frönsku skæruliðarnir (les
maquis) eru nú mjög athafnasam-
ir um allt Frakkland. — Ráðast
þeir á járnbrautir, vegi, brýr og
símalínur. — Á einum stað börð-
ust þeir í marga daga við þýzkar
úrvalshersveitir, sem voru á leið
til Normandí. — Skæruliðunum
bætast hundruð nýliða á hverjum
degi.
Framh. á 5. síðu.
Arna3aððró$kir frá
Cordel Hull
Utanríkisráðherra barst 17.
júní þetta skeyti frá Cordell
Hull, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna:
„Á þessum stórmerku tíma-
mótum í sögu íslands sendi ég
yður einlægar samfagnaðar-
kveðjur út af stofnun lýðveld-
is á íslandi.
Cordell Hull“.
ChepliDUFD iMoii al Mmmm
Mesfa loflárás stríðsíns á Berlín að degí fíl
* twi wJ
Fótgöngulið Bandaríkjamanna hefur rauriverulega
umkringt Cherbourg landmegin. Hefur það nú á valdi
sínu hæðir fyrir sunnan, suðvestan og austan borgina.
Stórskotalið Bandaríkjamanna skýtur á borgina
dag og nótt, en herskip skjóta á borgina af sjó.
Búizt er við lokaáhlaupi þá og þegar.