Þjóðviljinn - 22.06.1944, Page 2
2
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 22. júní 1944»
Landnám ,Dagsbrúnar‘
á Stóra-Fljóti
Þar ð fyrsta orlofsheimlli fslenzhra vprkamanoa að standal*
Eg hygg, að ekki sé ofmælt,
þótt sagt sé að landkaup Dags- 1
brúnar á Stóra-Fljóti í Biskups-
tungum séu meðal þeirra mála
félagsins, sem mesta athygli
hafa vakið og beztar undirtekt-
ir hafa fengið meðal verka-
manna. Er það líka að vonum.
Með orlofslögunum hefur verka
mönnum og öllum launþegum
verið tryggður réttur til orlofs
árlega. En þessum rétti fylgja
í raun og veru nokkrar skyldur
aðrar en þær, sem felast í sjálf-
um orlofslögunum. Þessar skyld
ur eru m. a. þær, að séð verði
um, að alþýðan, sem orlofa nýt-
ur samkvæmt lögum í fyrsta
sinni í sögu landsins, gefist færi
til þess að hagnýta sér þau á
hollan og hagnýtan hátt. Al-
menn orlof verkafólks er nýtt
fyrirbæri í íslenzku þjóðlífi.
Alt frá landnámstíð hefur vinn-
andi fólk á íslandi verið bundið
við störf sín, án þess að mega
frá þeim víkja nokkurn dag.
Af slíku ástandi leiðir það, að
oss skortir í rauninni allt eða
a. m. k. flest það, sem þarf til
þess að hin f jölmenna laúnþega-
stétt geti auðveldlega með þægi
legum hætti notið orlofs síns að
sumrinu. Við höfum litla æf-
ingu í nútíma ferðalögum, eng-
in sumarheimili og mjög tak-
áMÍ
uðum yfirgangi í hlé við lífs-
stríð framleiðslustéttanna.
í vitundinni um þetta festi
verkamannafélagið Dagsbrún í
vetur kaup á 30 ha. landsvæði
á Stóra-Fljóti í Biskupstungum.
Með þessum landkaupum er
stigið fyrsta sporið af hálfu
' verklýðssamtakanna til þess að
greiða fyrir því, að verkamanna
fjölskyldurnar í Reykjavík geti
notið orlofa sinna að sumrinu
í fögru umhverfi fjarri önnum
hversdagslífsins heima fyrir.
Þessi tilraun Dagsbrúnar til
þess að fullnægja ríkri þörf
verkamanna hefur mætt mikl-
um velvilja Dagsbrúnarmanna
og áhugi margra þeirra er vak-
inn fyrir því, að á landi félags-
ins megi hið fyrsta rísa upp
myndarlegt sumardvalarheim-
ili. En til þess að úr slíkum
framkvæmdum geti orðið verða
Dagsbrúnarmenn að leggja
nokkuð að sér, þó ekki meira
en svo að þeim ætti að vera
það auðvelt, ef þeir legðust allir
á eitt um það, eins og þeir hafa
oft áður gert í öðrum málum,
þegar sameiginlegir hagsmunjr
þeirra hafa legið við.
. Stuðningur Dagsbninarmanna
við þetta fyrirtæki þeirra
sjálfra er hugsaður m. a. og
aðallega á tvennan hátt: f fyrra
lagi með sjálfboðavinnu við'vega
markaðan útbúnað til langferða | gerð að landinu, girðingu um
eða langdvalar á fjarlægum ] landið, framræzlu og síðan fegr-
'' ’ - un þess. í öðru lagi með fjár-
stöðum. Okkur skortir kerfis-
bundin vel skipulögð sumar-
ferðalög, sem verkafólki gæfist
færi á að notfæra sér á sem
ódýrastan hátt. Nú kunna ýms-
ir að segja, að ríki og bæjarfé-
lögum beri nokkur skylda til
þess að bæta úr öllu þessu og
sjá svc fyrir þessum málum,
að orlofslögin njóti sín að fullu
í framkvæmd. Og vissulega ber
þessum opinberu aðilum rík
skylda til þess að greiða fyrir
fólki í þessum efnum, m. a. með
því að styrkja verkalýðsfélögin
í viðleitni þeirra til þess að
nema sér sumardvalarlönd í
sveit og skipuleggja sumarferða
lög samkvæmt fyrirfram gerðri
áætlun, er svari sem bezt þörf-
um og ástæðum launastéttanna.
En þótt svo sé mega verklýðs-
samtökin ekki sitja auðum
höndum. Þau verða að treysta
sjálfum sér fyrst og fremst til
þess að koma viðeigandi skipan
á þessi mál. Orlofslögin sjálf
eins og öll önnur velferðarmál
almennings hafa náðst fyrir
langa og markvissa baráttu
verkalýðssamtakanna. Vana-
bundnu réttleysi verður ekki
hrundið án baráttu né sigrar
unnir án starfs og nokkurra
fórna af hálfu þeirra, sem við
órétt búa og skarðan hlut móts
við þá, er borist hafa annað-
hvort í skjóli auðs og erfða eða
með meira og minna lögvernd-
framlögum í sérstakan land-
námssjóð félagsins. Þennan tví-
þætta stuðning eru Dagsbrúnar-
menn byrjaðir strax að veita.
Tvær ferðir hafa þegar verið
famar austur með sjálfboðalið
til þess að vinna að undirbún-
ingi hins raunverulega land-
náms. í hvorri ferð hafa um 20
félagsmenn tekið þátt. Hafa
þegar verið unnin um 50 dags-
verk og er nær því lokið vega-
gerð, sem nauðsynleg er til þess
að koma flutningum með bif-
reiðum að og frá landinu. Nær
30 Dagsbrúnarmenn hafa lagt
fram tillag til Landnámssjóðs-
ins, kr. 100,00 hver og nemur
því fjárhæð sjóðsins nú þegar
á þriðja þúsund krónur. Þetta
er í raun og veru góð byrjun
en betur má ef duga skal. Fram
kvæmdir allar eru dýrar nú og
mikið fé þarf til þess, sem gera
þarf. I Dagsbrún eru nú um
3000 félagsmenn. Ef hver ein-
stakur félagsmaður legði kr.
j Þegar um sameiginlegt nauð-
1 synja- og menningarmál Dags
brúnar er að ræða, eins og land-
námsmálið er, þá verða allir
Dagsbrúnarmenn að leggja sitt
af mörkum, hver eftir getu
sinni og ástæðum. Hver ein-
stakur Dagsbrúnarmaður verð-
ur jafnan að finna sjálfan sig
ábyrgan fyrir öllu því, sem fé-
lagsheildin sjálf af frjálsum
og fúsum vilja tekur sér fyiir
hendur. Við megum engir liggja
á liði okkar, né hugsa sem svo,
að aðrir geti verið þar á verði,
sem við eigum sjáifir að standa
í félagslífinu. Hin stærstu við-
fangsefni geta orðið auðveld, ef
samstillt og einhuga sveit stend
ur að lausn þeirra. Hver getur
t. d. sagt nú, að það sé ofvaxið
nokkrum vinnufærum félags-
manni í Dagsbrún að leggja
fram kr. 100.00 til landnáms á
Stóra-Fljóti og byggingar orlofs
heimilis fyrir hann sjálfan og
aðra Dagc-brúnarmenn. Og þó
gæti það nægt, ef hver einstak-
ur félagsmaður léti þetta til-
tölulega litla framlag af hendi
rakna. Þannig getur félagsskap-
ur eins og Dagsbrún unnið stór-
virki 1 þágu meðlima sinna og
vandafólks þeirra, án þess að
um tilfinnanlegar fórnir sé að
ræða. Svo er það í hverju máli,
að áhugi og einhugur félags-
manna ræður jafnan góðum úr-
r.litum, en sundrung og sér-
hlífni þeirra teflir hinsvegar oft
góðum málum í tvísýnu og verð
ur öllum hlutaðeigendum dýr-
ast að lokum. í þeirri trú, að
Dagsbrúnarmenn skilji, að þetta
er rétt ályktun,. dregin af marg
endurtekinni reynzlu úr starfs-
sögu Dagsbrúnar, þykist eg
mega vænta þess, að hver og
einn einasti Dagsbrúnarmaður,
sem er fullhraustur og vinn-
andi, leggi sitt af mörkum,
svo að hann og við allir getum
fljótlega séð rísa af grunni veg-
legt sumardvalarheimili fyrir
verkamenn á landi félagsins á
Stóra Fljóti.
Við vitúm allir, að „Dags-
brún“ er fjölmennasta verka-
lýðsfélag landsins vegna að-
stöðu sinnar í höfuðstaðnum,
þar sem f jölmenni er mest sam-
ankomið á einum stað á Islandi.
líka að Dagsbrún eigi þeirri
sveit manndóms, samhugs og at
orku jafnan á að skipa í hverju
því máli, er hún helgar sér, að
önnur félög fái ekki betur gert,
100,00 til Landnámssjóðsins yrði heldur geti þau sótt til hennar
fjárhæð sjóðsins kr. 300.000.00
— þrjú hundruð þúsund krónur
—. Þeir, sem þegar hafa lagt
fram fé til sjóðsins hafa ekki
einungis gefið hinum, sem eftir
eru eftirbreytnisvert fordæmi,
þeir hafa einnig í raun og veru
skapað þeim skyldur, sem góðir
félagar í Dagsbrún munu ekki
víkja sér undan að fullnægja.
uppörfun, styrk og fordæmi, er
þeim ljggur mest á. Þetta er
ekki sagt af yfirlæti. Dagsbrún
er þannig í sveit sett, að hún
á að geta verið öðrum verkalýðs
félögum til nokkurs fordæmis
um félagslegt íramtak, er bezt
og auðveldast fær rutt nýjar
leiðir að bættum lífsskilyrðum
og lífskjörum vinnustéttanna.
Notkun fánans
t»að hefur jafnan þótt bera nokk-
um vott um menningarástand hverr
ar þjóðar, hvemig hún meðhöndlar
fána sinn. Við íslendingar höfum
nokkrum sinnum sætt ávítum fyrir
skeytingarleysi um notkun þjóðfána
vors. Þar með er ekki jsagt að ver
misnotum hann að yfirlögðu ráði,
heldur mun þar um að kenna kæru-
leysi og skorti á nákvæmni 'og hirðu
semi.
Aldrei hefur íslenzki fáninn blakt
að á jafnalmennan og viðhafnarmik-
inn hátt yfir höfuðborg vorri og á
hinni nýafstöðnu lýðveldishátíð. fs-
lenzki fáninn er vort helgasta tákn
um sjálfstæði þjóðarinnar og hverj-
um góðum íslendingi ber skylda til
að sýna honum fullkomna virðingu,
sem og fánum annarra þjóða. Al-
þingi hefur nú sett lög um notkun
og gerð þjóðfánans og ættu allir að
kynna sér þau itarlega. Eg veitti því
eftirtekt, að nokkrir þeirra góðu
rrjanna, sem hafa flaggstengur á
húsum sínum eða við þau, drógu
ekki niður fánann nóttina milli 17.—
18. júnj. Hvort þeir hafa gert þetta
ai ásettu ráði og viljað þannig
tengja saman þessa tvo hátíðisdaga,
eða að hér er um gáleysi að ræða,
er mér ekki kunnugt. En slíkt og
þvílíkt má aldrei sjást, að fáninn
blakti yfir borginni að næturlagi.
Það er jafnóviðeigandi og að þeir,
sem hafa fánastengur í umsjá sinni,
láti þær standa naktar þegar al-
mennt tilefni er til að draga fána.
að hún. Við íslendingar erum svo
hamingjusamir, að við þurfum eigi
að berast á banaspjót og heyja
blóðug: stríð við aðrar þjóðir. Lát-
um því í lenzka fánann ,vera veg-
legt merki þess sem hann er, sjálf-
stæðismerki friðclskandi smáþjóðar.
Og verum þakkiát fyrir að mega
draga hann á stöng yfir fósturjörð-
inni fagurri og ósnortinni, á meðan
aðrar þjóðir fylkja gér nauðugar,
viljugar undir fánum sínum, fram
til þátttöku í hinum grimmasta hild
arleik. Ó. Þ.
Fáninn sem verzlunarvara
Fáir eða engir munu horfa í þann
skilding, sem þeir eyddu til kaupa
á fánum og fánastöngum fyrir lýð-
veldishátíðina. Þó hafa margir eytt
talsverðu fé í slíkt. En svo er mál
með vexti, þótt ljótt sé frá að segja,
að bæði fánastengur til notkunar
innan og utanhúss og efni í fána
og tilbúnir fánar, var selt með ok-
urverði, nær undantekningarlaust.
Það er leiðinlegt og mjög óviðeig-
andi. þar sem fáninn er alþjóðar-
eign, að fáeinir menn skuli geta
gert sér að féþúfu að verzla með
hann. Eg vildi því eindregið beina
þeirri ósk til þlutaðeigandi manna
að hvorki efni í fána né tilbúnir
fánar væru seldir í verzlunum held-
ur tæki ríkið að sér útvegun á þeim
til þeirra, sem með þyrftu, og seldu
þá með kostnaðarverði. Sömuleiðis
þyrfti að tryggja það að einstakl-
ingar, sem ætla að fá sér flaggsteng-
ur og ekki smíða þær sjálfir, eigi
greiðan aðgang að þeim með sann-
gjörnu verði og verði sú sala einnig
á vegum ríkisins.
Ó. Þ.
Umgengnin um grasvellina
Á undanförnum árum hefur bæj-
arstjórn Reykjavíkur legið undir á-
Bygging orlofsheimjlis verka-
manna á Stóra-Fljóti er eðlileg
og sjálfsögð afleiðing af þeim
réttindum, er verkamenn öðl-
Framhald á 5. síðu.
mæli fyrir tómlæti sitt um fegrun'
bæjarins — og ekki að ástæðulausu.
Nokkuð hefur áunnizt í þessu efni
— en eftir er hlutur almennings að'
meta og vernda það, sem vel er gert.
Umbætur á Arnarhóli og Austur-
velli, og fjölgun og fegrun barna-
leikvalla, sýnir vaxandi skilning
bæjarstjórnarinnar á því, að höfuð-
borgin má ekki líta út eins og fá-
tækt og menningarsnautt fiskiþorp..
Umgengnin um Arnarhól og Aust-
urvöll er ekki með endemum — eni
mætti þó vera miklu betri. Þrátt
fyrir gangstíga, sem hafa verið lagð-
ir um Arnarhól, hafa menn þó ekki,
hlífst við að ganga grasið og gera
götur og troðninga í grænan gras-
svörðinn. Tugir þúsunda króna haía
verið lagðir í grasgeirana í Hring-
braut. Settu þeir vinalegan svip á.
þessa breiðu götu. En hvernig er .
þar nú umhorfs? Segja má, að þar
blasi hvarvetna við viðurstyggð eyði
leggingarinnar. Meginið af græna
grassverðinum er orðið að útspörk-
uðu svörtu flagi.
í Austurbænum bar fljótt ás
skemmdum á grasgeirum Hring-
brautarinnar, og var þá sá háttur
upp tekinn að gera þá að bjlastæði.
Vesturbæingar gengu í fyrstunni
betur um blettina og fengu þeir að>
gróa í friði. Mátti því vona, að þeir
væru komnir yfir byrjunarörðug-
leikana. En gangir þú lesari góður
meðfram Hingbrautinni milli Ljós-
vallagötu og Bræðraborgarstígs,.
sérð þú hryllilega sjón, það, sem.
ég nefndi áður viðurstyggð eyði-
leggingarinnar. Bílar hafa farið yfir-
grasgeirana, ýmist þvert yfir eða.
í sömu áttu og gatan, og valdið
djúpum skorningum. Ekki verður-
séð hver nauðsyn bar til þessa, því
nóg er gatan. Almenningur hefur-
svo fullkomnað eyðileggingarstarfið>
með því að traðka á grasinu og gera
að flagi þar sem áður var gróim
jörð.
Það sem gera þarf
Miklu fé þarf að verja til þess.
að bæta um þessar skemmdir, en
hjá því verður ekki komizt. Hugs-
anlegt væri að duga mundi að valta
þá og setja lága girðingu úr slétt-
um vír meðan þeir væru að gróa
upp. Annars þekja þá á ný, en það>
kostar mikið fé.
En svo um vörzlu blettanna, svo-
allt færi ekki j sömu níðsluna.
Reynandi væri að vekja áhuga
þeirra mörgu heimila, sem liggja að
Hringbraut fyrir verndun þessarar-
götu, sem er hvað breidd og skipu-
lag snertir glæsilegasta gata bæjar-
ins. Þetta er íyrst og fremst þeirra
gata og gott viðhald hennar yrði
þeirra stolt og gleði.
Einnig mætti fela lögregluþjóni,.
sem hefði eftirlit í Suðurbænum,
vörzlu blettanna, þyrfti hann að;
hafa mótorhjól til umráða. Milli
hans og heimilanna við Hringbraut,.
þyrfti að vera góð samvinna. Beita
þyrfti sektum við hvern þann, sem
skemmdi blettina. Eg held að þetta.
bæri nokkurn árangur.
Kennarar við skólana hér í bæn-
um myndu orka mikið á fegurðar
skynjun nemenda sinna, ef þeir
færu með þá á skemmtigöngur að
vorinu, sýndu þeim muninn á góðri
umgengni og vel hirtum blettum og
hinum, sem illa eru hirtir og niður-
níddir af hirðulausum almenningi.
Það mundi vissulega vekja hjá þeim
virðingu fyrir lífi og gróðri.
Landgræðslan er fögur hugsjón og:
mannbætandi. En hvað verður um
framkvæmd hennar, ef rifið er nið-
ur og eyðilagt það, sem aðrir byggja.
upp?
10. júnf 1944.
B. M.