Þjóðviljinn - 28.03.1945, Side 2
2
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 28. marz 1945
Frá Yinnustöðvum
og verklýðsfélögum
Aðalfundur Hins ís-
lenzka prentarafélags
Stefán Ögmundsson.
Síðastliðinn sunnudag hélt
Hið íslenzka prentarafélag að-
alfund sinn.
Lýst var stjórnarkosningu.
Ur stjórninni áttu að ganga for-
maður, ritari og 2. meðstjórnandi,
en eftir áttu að sitja til næsta árs
gjaldkeri og 1. meðstjórnandi.
Fráfarandi ritari baðst undan
endurkosningu.
Þessir voru kosnir:
Formaður: Stefán Ogmundsson
(endurkosinn).
Ritari: Árni Guðlaugsson.
2. meðstjórnandi: Gunnar Sig-
urmundsson (endurkosinn).
Stjórnin er nú þannig skipuð:
Stefán Ögmundsson formaður,
Árni Guðlaugsson ritari, Magnús
Ástmarsson gjaldkeri, Helgi
Hóseasson 1. meðstjórnandi og
Gunnar Sigurmundsson 2. með-
stjórnandi.
Mörg mál bíða framhaldsaðal-
fundar.
Fyrning orlofsfjár:
í orlofslögunum segir svo um
fyming orlofsfjár:
í 13. gr. segir: „ ... Nú er or
lofsbók ekki lögð fram í póst-
stöð til innlausnar fyrir 15.
september fyrir næsta orlofsár
á undan, og fellur þá andvirði
orlofsmerkjanna til ríkissjóðs,
nema sérstök heimild sé í lög-
um þessum eða reglugerð sam-
•kvæmt þeim til þess að fresta
innlausn bókarinnar, þó getur
, ráðherra, þegar sérstaklega
stendur, veitt frest í þessu efni I
til loka yfirstandandi orlofs-
árs“.
15. gr. orlofslaganna hljóðar
svo:
„Kröfur á hendur vinnuveit-
endum samkvæmtlögumþessum
falla úr gildi fyrir fyming, et
þær hafa ekki verið viðurkennd
ar eða lögsókn hafin innan loka
næsta orlofsárs eftir að kröf-
umar stofnuðust“.
Samkvæmt þessu falla allar
kröfur um greiðslu orlofsfjár
af vinnu á fyrsta orlofsári úr
gildi eða fyrnast, ef ekki hefur
verið hafin málsókn út af kröf-
unum fyrir 14. maí 1945. En
undir fyrsta orlofsár fellur öll
sú vinna sem unnin var á tíma-
bilinu frá 24. maí 1943 til 14.
maí 1944.
Þeir launþegar/sem eigi hafa
enn fengið greitt orlofsfé fyrir
orlofsárið 1943—1944, þurfa því
að gera ráðstafanir til þess að
fá það greitt. Þ. P.
1. maí nefndin
Félag blikksmiða hefur kosið
Bjama Ólafsson í l.-maínefnd
verkalýðsf élaganna.
V erkak vennaf élagið Fram-
sókn hefur kosið Hólmfríði
Ingjaldsdóttur í sömu nefnd.
Hið íslenzka prentarafélag
, hefur kosið Sigurð Eyjólfsson
í sömu nefnd.
Fundur Sveinafélags
húsgagnabólstrara
Sveinafélag húsgagnabólstr-
ara heldur félagsfund á morg-
un (skírdag), kl. 2 e. h. á Hverf
isgötu 21.
Samningar Farsæls á
Hofsósi
Undirritaðir voru 21. marz
s. 1. nýir kjarasamningar millí
verkamannafélagsins Farsæls á
Hofsósi og Kaupfélags Austur-
Skagfirðinga.
Með þessum samningi fengu
verkamenn margar nýjar kjara
bætur, t. d. er 8 stunda vinnu
dagur viðurkenndur í fyrsta
skipti. Verkamenn fá 7 daga
greidda í slysatilfelli. Grunn-
kaup í almennri landvinnu
(dagvinnu) er kr. 2.10 á klst.;
í skipavinnu kr. 2.65; í kola-
salt- og sementsvinnu kr. 3.00.
Tímakaup unglinga er kr. 1.65.
Á eftirvinnu greiðist 50% álag,
á næturvinnu 75% og helgidaga
vinnu 100% álag. Ráði menn
sig fyrir mánaðarkaup er það
kr. 420 og miðast við 8 st. vinnu
dag. — Dýrtíðaruppbót greið-
ist á allt kaup samkvæmt út-
reikningi kauplagsnefndar.
Aðalfundur verka-
mannafélags Fljóta-
manna
Verkamannafélag Fljóta-
manna hélt aðalfimd sinn um
miðjan marz.
Þessir voru kosnir í stjóm:
Formaður: Jón Hermannsson.
Varaform.: Sæmundur Her-
mannsson.
Ritari: Valberg Hannesson.
Gjaldkeri: Haraldur Her-
mannsson.
Fjármálaritari: Jón K. Ólafs
son.
Aðalfundur Verklýðs-
félags Grýtubakka-
hrepps ,
Á aðalfundi Verklýðsfélag.
Grýtubakkahrepps voru þessir
menn kosnir í stjóm:
Formaður: Vilhelm Vigfús-
son.
Varaform.: Alfreð Pálsson.
Ritari: Þórður Jakobsson.
Gjaldkeri.: Arthur Vilhelms-
son.
Meðstjórnandi: Kristinn Jóns
son.
Handknattleiks-
mótið
Á fimmtudagskvöld för fram úr-
slitaleikur í kvennaflokki og sigr-
uðu Haukar eftir jafnan leik við
Ármann, sem var meistari s.l. ár.
Fengu Haukar 6 stig, Ármann
4 stig.
Á föstudag sigruðu Ilaukar einn-
ig í II. flokki, fengu 8 stig, F. H.
6 stig, Ármann 3 stig, í. R. 2 stig
og Víkingur 1 stig.
Á laugardagskvöldið áttu svo að
fara fram úrslit í I. flokki milli
Hauka og Víkings, en jafntefli
varð, en við það urðu þrjú félög
jöfn, Haukar, Ármann og I. R.
og keppa þau félög til lirslita næstu
kvöld.
Ármann vann Víking með 20:18
mörkum, eftir nokkuð jafnan leik,
og þar mcð meistaratitil í meistai’a-
flokki. Ármann fékk 12 stig, Valur
10, í. R. 6 Haukar og Víkingur 5
hvort og F. H. og Fram 2 stig
hvort.
Síðar verður ef til vill nánar
greint frá þessu móti.
Forseti í. S. í. afhenti verðlaun.
Afmælisdagabókin
Maður er orðinn svo óvanur því,
að fá í hendur íslénzka bók, vel-
prentaða á góðan pappír í vönd-
uðu og traustu bandi, að fyrir það
eitt er Afmælisdagabókin, sem
bókaútgáfan „Huginn“ gaf út ný-
lega, merkileg bók.
Bókin er með svipuðu sniði og
Afmælisdagabók Guðmundar
Finnbogasonar, sem notið hefur
mikilla vinsælda rneðal íslenzkrar
alþýðu. Ragnar Jóhannesson hef-
ur valið kvæðin í þessa útgáfu og
farizt það verk, sem er hreint ekki
vandalítið, prýðilega úr hendi. Eg
og aðrir kunningjar gömlu Afmæl-
isdagabókarinnar söknum að vísu
ýmissa kvæða, sem voru í gömlu
útgáfunni, en það er fyllilega bætt
upp með kvæðum eftir mörg af
beztu ungu skáldunum okkar. —
Þarna kveða sér hljóðs Tómas
Guðmundsson, Steinn Steinarr.
Guðmundur Böðvarsson og marg-
ir fleiri við hlið Steingríms, Matt-
híasar og Jónasar.
12 teikningar eftir Tiyggva
Magnússon listmálara prýða bók-
ina. , A.
Skákmótið
í fyrrakvöld var tefld 5. umferð
í meistaraflokki og urðu úrslit
þessi:
Hermann vann Bcnóný. Sturla
vann Óla. Lárus vann Pétur.
Magnús vann Einar. Guðmundur
og Hafsteinn gerðu jafntefli. Bið-
skákir milli Bjarna og Aðalsteins,
og Kristjáns og Steingríms.
Frjáls verzlun, 2. h. 1945, er ný-
komið út. Efni: Framtíð. heimsvið-
skiptanna; Á verzlunarháskóla í
Bandaríkjunum; Borðeyrarverzlun,
gömul frásögn er Ludvig Hjálmtýs-
son hefur sent; Eigum við að fara í
stríðið, eftir einhvern er nefnir sig
Friðarr og virðist óneitanlega hafa
skrifað grein þessa „undir áhrifum“
slúðursagnanna er gengu um bæinn
fyrir nokkru. Þá er smágrein: Her
mannaglettur og að lokum í lífsins
ólgusjó, nýr liður í blaðinu þar sem
rætt er um allskonar málefni á
innlendum vettvangi.
Arásin á Shellhúsið
Nánari fregnir hafa nú borist af flugvélaárásinni á Shell
húsið í Kaupmaimahöýn, sem gerð var nýlega.
Árásin var þrískipt og sterk
flugsveit Spitfire- orustuflug-
véla var í fylgd með Mosquito-
flugvélunum. Það er ekki full-
vitað, hve margar flugvélar
tóku þátt í árásinni, en talið er
að þær hafi verið um 30.
Sex sprengjur hittu Shellhús-
íð og voru tvær þeirra tíma-
sprengjur og sprungu nokkrum
m'ínútum á eftir hinum. Önnur
álma Shellhússins eyðilagðist
fullkomlega, en hin álman varð
fyrir miklum skemmdum vegna
loftþrýstingsins frá sprengjum
sem féllu í garðinn við húsið.
í fyrstu var álitið að aðeins
tvær Mosquitoflugvélar hefðu
farizt í loftárásinni, en sam-
kvæmt síðari upplýsingum voru
flugvélamar fleiri, sem fórust.
Ein flugvélanna rakst annað
hvort á eitthvað á þaki bygg-
Ot* rbo»*gínn!
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030.
Ljósatími ökutækja er frá kl
19.10 til kl. 6.00.
Næturvörður er í Laugavegs Apó-
teki.
Næturakstur í nótt annast Bif
reiðastöðin Hreyfill,, sími 1633.
Útvarpið í dag:
18.30 íslenzkukennsla, 2. flokkur
19.00 Þýzkukennsla, 1. flokkur
19.25 Hljómplötur: Söngvar úr ópef
um.
20.20 Leikrit: „Paul Lange og Thora
Parsberg" eftir Björnstjerne
Björnson (Leikfélag Reykja-
víkur. — Leikstjóri og gest-
ur í hlutverki Thoru Pars-
berg: frú Gerd Grieg).
FRAKKLANDSSÖFNUNIN. Eftirfar-
andi peningagjafir hafa borizt auk þhss
sem áður er auglýst og fjölda fatagjafa:
Frá starfsfólki Félagsprentsmiðjunnar kr.
325; Safnað af frú Sigrúnu Laxdal og
ungfrú Soffíu Daníelsson meðal starfs-
manna pósts og síma kr. 1700,00; G. J.
Hlíðdal póst- og símamálastjóri kr. 200,00;
Guðbrandur Jónsson prófessor kr. 300,00.
Albert Guðmundsson frá Tálknfirðingum
kr. 285,00; Gísli Sveinsson alþingisfor-
seti kr. 100,00; Guðný Guðmundsdóttir
kr. 15,00; Mæðgur kr. 100,00; Gróa kr.
150.00; S. B. kr. 100,00; Jóna Bjarnad.
10 kr. Sigríður 10 kr. Páll Einarsson
hæstaréttardómari kr. 100,00; Ónefnd
kona kr. 100,00; L. M. kr. 50,00; Ár-
mann Guðnason kí. 20,00; Stefán Skúla-
son kr. 50,00; Helgi H. Eiríksson kr.
100,00. — Kærar þakkir.
Menntamál, 2. hefti 18. árg. eru
nýkomin út. Efni: Heimsóknir í
skóla eftir Stefán Júlíusson, fjallar
þessi grein um Hessianhæðaskólann
í Ameríku. Þá eru tværstuttar grein
ar um bækur, Fyrstu árin, „hand-
bók um bamauppeldi og sálræna
meðferð ungbarna, sem nýlega hef
ur verið þýdd á íslenzku, og Fönd-
ur, bók. er Lúðvík Guðmundsson
skólastjóri Handiðaskólans hefur
samið um verklegt nám. Ennfrem-
ur smágrein um launamálið á A1 ■
þingi og áframhald af skrá yfit
starfandi kennara 1944—’45.
ingarinnar eða varð fyrir skoti
frá loftvarnarbyssu, því að ann-
ar vængur hennar varð fyrir
skemmdum, og eftir að hún
íiafði losað sig við nokkrar
sprengjur reyndi hún að lenda
í Frederiksbergsgarðinum, en.
heppnaðist það ekki og hrapaði
niður á Söndre Boukvard Önn-
ur Mosquitoflugvél hrapaði nið-
ur í sænska landhelgi milli
Hven og Landskrona. Ókunnugt
er um afdrif áhafnarinnar.
Álitið er, að tvær þýzkar or-
ustufiugvélar hafi verið skotn-
ar mður.
Það er talið að 120 Danir hafi
farizt í árásinni. Mikill hluti
ábyrgðarinnar fyrir því hvílir
á Þjóðverjum, þar sem eins og
þegar loftárásin var gerð á að-
alstöðvar Gestapos í Osló létu
ekki gefa loftvarnamerki, áð-
ur er sprengjurnar byrjuðu að
falla, jafnvel þó að þýzka loft-
varnaliðið hefði tekið eftir flug-
véiunum yfir Korsör eða jafn-
vel fyrr. En óhætt er að full-
yrða að fjöldi Þjóðverja, sem
fórust í árásinni, er a. m. k.
helmingi. meiri en Dana eða
jafnvel þrisvar sinnum meiri
Það voru aldrei færri en 500
manns bæði um nætur og daga
í Shellhúsinu, og oftast miklu
fleiri, enda voru þar ekki ein-
ungis bækistöðvar Gestapos.
heldur voru þar einnig bæki-
stöðvar morð- og ógnarflokka
Þjóðverja. Enn bíða menn nán-
ari frétta um, hve mörgum
dönskum föðurlandsvinum, sem
voru hafðir á þakhæð Shellhúss
ins sem gislar gegn sprengju-
árásum, hafi verið bjargað.
Strax þegar loftárásin byrj-
aði safnaðist stór hópur vopn-
aðra föðurlandsvina saman í
miðbiki borgarinnar og sótti
hratt fram til Shellhússins, þeg-
ar er sprengjurnar tóku að
falla. Álitið er, að þeim hafi
heppnazt að brjótast í gegnum
gaddavírsgirðingamar og kom-
ast að Shellhúsinu. Stuttu síð
ar kom flokkur Hipomanna úr
lögregluliðinu og sló í harðan
bardaga við Shellhúsið.
Danska þjóðfrelsishreyfingin
tekur það sérstaklega fram í
frásögn sinni af atburðinum, að
brezki loftflotinn hafi rétt
henni hjálpandi hönd með því
að eyðileggja Shellhúsið og hið
mikla skjalasafn Gestapos, sem
var geymt í Verkfræðingahús-
inu við hliðina á því, en það
brann til grunna. Eitt það mikil
vægasta við árásina er e. t. v.
það, að allmargir danskir þef-
arar er héldu sig að staðaldri
í Shellhúsinu fórust í henni.
Þjóðverjar gera allt sem þeir
geta til að halda hinum raun
verulegá tilgangi árásarinnar
leyndum, a. m. k. utan Kaup-
mannahafnar. Blöðin utan
Kaupmannahafnar hafa fengið
skipun um að nota fyrirsögnina:
„Loftárás Breta á Kaupmanna-
höfn.‘
.(Frá danska sendiráðinu).