Þjóðviljinn - 28.03.1945, Side 8
IíARMANN flugjoringi (í miðju), sem fyrstur fór í árás risa-
flugvirkja til Japan, sést liér óshað til hamingju með flug-
ferðina af Marshall hershöfðingja yfirmanni bandaríska hers-
ins og Amold yfirforingja bandarísko loftflotans.
Sferífniff
sfeæru&íðar
T'ramhald af 4. síðu.
I>eir fóru þegjandi fram hjá kou-
unum. — Hvað margir þeirra —,
þeir voru frá Hvíta-Rússlandi, —
.syrgja börn sin?
Þjóðverjar verða ekki látnir
sæta hefndarráðstöfunum, en þeir
Jvomast ekki hjá endurgjaldinu.
Þeir munu ekki brosa við þeim eða
tala við þá. Þýzkaland mun gráta
mörgum tárum áður en það getur
brætt ísinn í hjarta okkar.
í þessu stríði hafa hermenn okk-
ar lært að þekkja sönn verðmæti
frá ósönnum. Ég man, að árið 1941
störðu þeir næstum með virðingu
á hertekinn nazista, sem bar á sér
sniðuglega útbúinn vindlinga-
kveikjara eða sjálfblekung. Nú
hafa þeir séð mörg ríkmannleg i
þýzk heimili, en þeir láta nú ekki
nýtízkulegustu hakkavélar eða ís-
skápa fylla sig aðdáun. — Þeir
hata bara eigendurna ennþá meira
og hugsa sem svo: „Hvað vildu
þeir eiginlega með því að ráðast á
okkur?“ Þeir fyrirlíta ennþá meir
þetta fólk, sem gat útbúið heimili
sín svona vel, en óx ekki vit að
sama skapi og hafði hjörtu, full af
grimmd, græðgi og illmennsku.
Þýzkaland hefur ekki aðeins
beðið ósigur í orustunni um Aust-
ur-Prússland. Það er búið að glata
Austur-Prússlandi. Jtinkararnir
munu aldrei snúa heim aftur til
hinna víggirtu halla sinna. Kvik-
fjárrækt verður haldið áfram þar,
en það verður hætt að aia upp
hreinræktaða Prússa. — Þetta er
vagga þýzkrar hermennsku. Og
þetta er líka gröf hennar.
LÆRDÓMURINN.
í ágúst 1914 unnu Þjóðverjar
orustuna um Austur-Prússland.
Hreysti rússnesku hermannanna
gat ekki bætt upp íhaldssemi og
fáfræði hershöfðingja zarsins.
Sigurinn við Tannenberg steig
Þjóðverjum til höfuðs. Þeir voru
alveg sannfærðir um að þeir gætu
sigrað Rússland á stuttum tíma.
— Þeir skildu ekki breytingarnar,
sem hafa orðið í landi okkar. Þeir
skildu ekki, að rauði herinn er ekki
her Nikulásar II.
Nú ráfa þeir grátandi innan um
rústir borga sinna og mæna bænar-
augum á sovét-hermennina. — Þeir
munu aldrei gleyma þessu, og börn
Aðalfundur Þingstuku
Reykjavíkur
' < .
Aðalfundur Þingstúku Reykja-
víkur var haldinn s.l. sunnudag,
85. þ. m. Mœttir voru á annað
hundrað fulltrúar frá öllum undir-
stúkum og barnastúkum í Reykja-
vík.
Samkvæmt félagsyfirliti liefur
meðlimum Góðtemplarareglunnar
fjölgað á árinu.
Fjárhagur Þingstúkunnár er
fremur góður þrátt fyrir ýmisleg
útgjöld, meðal annars í sambandi
við upplýsinga.stöðina, en alls liafa
lienni borizt milli 50—00 mál til
meðferðar þann tíma sem hún hef-
ur starfað.
Á árinu gekkst Þingstúkan fyrir
fjölmennustu hópför á sjó sem enn
hefur verið farin hér v'ið land, var
það útbreiðslu- og skemmtiförin
til Vestfjarða um verzlunar-
mannahelgina, 5.—7. ágúst s.l., um
300 manns tók þátt í för þessari.
Framkvæmdanefndin var að
mestu endurkosin, en liana skipa
þessir: Þ.t.: Þorsteinn J. Sigurðs-
son kaupmaður. Kanslari: Einar
Björnsson skrifstofumaður. Ritari:
Guðjón Einarsson. Varat.: Ingi-
björg ísaksdóttir frú. Gæzlumaður
lögst.: Kristinn Vilhjálmsson um-
sjónarmaður. Gæzlum. unglingast.:
Böðvar Bjarnason trésmíðameist-
ari. Gæzlumaður fræðslumála: Ilar.
S. Norðdahl tollþjónn. Gjaldkeri:
Bjarni Pétursson framkvæmdastj.
Kapelán: Jarþrúður Einarsdóttir
kennari. Skrásetjari: Sverre Jo-
hansen bókbindari. F. þ.t. er Sig-
urður Þorsteinsson bókbindari.
Undanfarin ár hefur Sigurður Þor-
steinsson verið ritari Þingstúkunn-
ar, en hann baðst eindregið und-
an endurkosningu.
Pétur Benediktsson
kominn
Pétur Benediktsson, sendiherra
íslands í Sovétríkjunum, er kom-
inn hingað til lands.
þeirra ekki lieldur. Margir Þjóð-
verjar munu auðvitað lifa stríðið
af, en hér eftir verður ekki hægt
að lokka þá til að hefja styrjöld.
Skemmtun hafnfirzkra
skólabarna
Barnaskólinn i Hafnarfirði hélt
ársliátíð sína'um s.l. helgi, á laug-
ardag og sunnudag, í Bœjarbíó.
Börnin önnuðust sjálf öll
skemmtiatriðin, en þau voru: Sam-
söngur (telpnakór), sjónleikur,
upplestur, söngur með gítarundir-
leik og fleira. — Margt manna
sótti skemmtanirnar og þóttu þær
takast vel.
Tilgangurinn með skemmtunun-
um er að afla fjár í ferðasjóð skóla-
barnanna, sem starfað hefur síðan
1933. I kvöld kl. 6% ætla börnin
að endurtaka skemmtunina og
rennur allur ágóðinn til norskra
barna.
Er þess að vænta að Hafnfirð-
ingar og Reykvíkingar fjölmenni
til barnanna í Bæjarbíó. Aðgöngu-
miðar verða seldir þar eftir kl. 1 í
dag. Sími 9184.
Kvöldvaka Breiðfirð-
ingafélagsins
Breiðfirðingafélagið efnir til
kvöldvöku í Tjarnarcafé í kvöld,
miðvikudaginn 28. marz n.k., kl.
8.30.
Á dagskrá kvöldvökunnar er m.
a.: Sagnaþáttur, upplestur, skand-
erast, samtalsþáttur, kvæðalög,
draugasaga, þjóðsaga, söngur Sól-
skinsdeildarinnar og margt fleira.
Þá verður spiluð félagsvist að lok-
inni dagskránni.
Aðgangur að kvöldvökunni er
aðeins 5 ki’ónur.
Húsinu verður lokað klukkan 10.
IÐ)A fíu ára
Framhald af 4. síðu.
var stofnuð fór verkalýðurinn
í tveim fylkingum út á götuna
1. maí. Nú er þeirri baráttu
lokið með sigri einingarinnar
Þá barðist Iðja einnig fyrir
því að verklýðssamtökin losn-
uðu undan yfirráðum og skipu-
lagstengslum við einn pólitísk-
an flokk, og að stéttarsamtök
verkalýðsins yrðu byggð upp á
grundvelli stéttarlegrar eining-
ar og óháð öllum pólitískum
flokkum.
Iðja var ennfremur meðal
fyrri félaga til þess að taka upp
trúnaðarmannaráðskerfi.
Þá barðist félagið ennfrem-
ur fyrir rýmkun á innflutningí
hráefna.
H)JA STERKARI EN
NOKKRU SINNI FYRR
— Margt fleira mætti segja.
en þetta verður að nægja að
sinni.
— Hvað viltu segja um þrótt
og samheldni félagsmanna?
— Eins og ég sagði áðan voru
stofnendur félagsins 36, nú eru
félagsmenn 800 og segir það
sitt um eflingu félagsins.
Samheldni félagsmanna er
með ágætum eins og bezt
sýndi sig í hinni hörðu deilu
s. 1. haust og hefur Iðja aldrei
verið sterkari en einmitt nú.
+
Þjóðviljinn óskar iðnverka-
fólkinu til hamingju með 10
ára afmæli félags síns.
JOÐVILJINN
Ætla Bretar að beita viðskiptalönd
sín brögðum dr. Schachts?
pJÁRMÁLA- OG VIÐSKIPTARITSTJÓRI enska blaðsins
Manchester Guardian ritar nýlega um viðskipti Bret-
lands og Svíþjóðar á þann hátt, að ástæða er til að einnig
íslendingar sjái. Hann segir:
JJMRÆÐUR um fjármála- og verzlunarviðskipti Bretlands
og Svíþjóðar hafa nýlega hafizt í London. Nærri strax
urðu menn ómyrkir í máli. Svíar, sem hafa vanizt því að geta
sett báðum hernaðaraðilum skilyrði eftir vild, ráku sig ó-
þyrmilega á að þeir geta ekki lengur haft viðskipti á þeim
grundvelli. Brezka stjórnin neitaði ekki einungis uppástung-
um þeirra umsvifalaust, heldur var einnig brezki sendiherr-
ann í Stokkhólmi beðinn að skýra sænsku ríkisstjórninni
umbúðalaust frá því, hvernig aðstæðurnar væru.
Það er ekki af óvilja til Svía, að ekki er hægt annað en
að telja lofsverða þessa afstöðu ráðuneytisins. Það er hægt
að koma þessu fyrir í stuttu máli: Svíar fóru fram á að
Bretar borguðu vörur og þjónustur í gulli eða dollurum, því
þeim er ekki um áhættuna við að eiga sterlingspund. Auk
þess vilja þeir því aðeins taka að sér hinar miklu pantanir
Norðmanna um skipabyggingar og annað að Norðmenn borgi
í gulli og dollurum. Ný aðferð var reynd er Boheman, sænski
sendiherrann IParís, kom hingað og fór fram á tafarlausan
útflutning brezkra vara í staðinn fyrir það, sem Svíár láta
af hendi, ef ekki fyrir hærri upphæð. Svar Breta við þessari
málaleitun var það, að tími sé kominn fyrir Svía að eiga
nokkrar sterlinginnstæður.
Það er bein afleiðing stríðsins að Bretland þarf að tak-
marka útlán sín næstu árin.Að því leyti er gull tvímælalaust
meira virði eri sterlingspund, en nærri öll lönd Bandamanna
og hlutlausu löndin hafa undirgengizt að taka við sterlings-
pundum, sem hluttöku í hinu sameiginlega hernaðarátaki
sameinuðu þjóðanna, jafnvel þó eyðsla þess^ra pundeigna
hljóti að verða háð nokkrum takmörkunum fyrstu árin eftir
stríð. Sú var tíðin að Bretar gátu ekki neitað kröfum Svíþjóð
ar, Argentínu, Bolivíu og eins eða tveggja annarra ríkja um
borgun úr hinum nauma forða sínum af gulli og dollurum.
Sá tími er nú liðinn. Bretar verða nú að fara að hugsa framar
öðru um endurreisn síns eigin lands. Þeir sem hafa notið góðs
af örygginu verða nú að fara að borga fyrir það.
jþANNIG RITAR MANCHESTER GUARDIAN. Það er ekki
hægt að segja fyrirætlanir Breta um viðskiptaaðferðir
næstu ára hispurslausar en hér er gert. Það á að binda við-
skiptalöndin þeim böndum, að þau séu nauðbeygð til að
kaupa vörur frá Bretlandi, enda þótt þær fengjust með hag-
kvæmari kjörum annarsstaðar. Á þann hátt hugsar brezka
auðvaldið sér að láta aðrar þjóðir taka þátt í „endurreisn“
i brezkra atvinnuvega, og jafnframt fær það aðstöðu til að
tefja og hindra iðnaðarþróun viðskiptalandanna og halda
þeim á nýlendu- og hálfnýlendustigi. Það eru svipaðar að-
ferðir og dr. Schacht varð frægastur fyrir, er Þýzkaland naz-
ismans var að gera viðskiptaþjóðir sínar á meginlandinu sér
undirgefnar, og skipuleggja arðránið fyrir þýzku auðhring-
ana og hina óseðjandi hernaðarvél nazismans.
jyJTYRJÖLDIN hefur vakið alþýðu allra landa heims til vit-
undar um bölvun pólitískrar kúgunar framandi valds.
Þjóðirnar verða áreiðanlega betur á verði en áður gagnvart
viðleitni erlendra ríkja til að ná pólitískum áhrifum. En með
því meiri ákefð munu auðhringar stórveldanna heyja bar-
áttuna um fjárhags- og viðskiptaítök, og er hverri smáþjóð
þörf ýtrustu varkárni á því sviði.
J. B.