Þjóðviljinn - 12.05.1945, Síða 1
10. árgangur.
Laugardagnr 12. maí 1945.
Æ.F.R.
Félagar! Farið verður til vinnu í
Rauðhóla um helgina frá Skólav.-
st. 19 kl. 3 í dag og með strætis-
vagni frá Lækjartorgi kl. 9 í fyrra-
málið. Hafið með hamra og nagl-
104. tölublað. bíta. Framkvæmdaráðið.
Leífar þýzka hersíns i Evrópu gcfasf upp
Fulif
Stimson, hermálaráðherra Bandaríkjanna,
skýrði í gær frá þvr að Bandamenn hafi komizt
að fullkomnu samkomulagi um hernám og stjórn
Þýzkalands.
Þýzkaland verður hernumið af Sovétríkjun-
um, Bretlandi, Bandaríkjunum og Frakklandi sam-
eiginlega. Stimson sagði enga þá menn vera til í
Þýzkalandi, sem Bandamenn gætu viðurkennt sem
fulltrúa þýzku þjóðarinnar og öll mál þess mundu
verða undir strangri hernaðarstjórn.
Fjórir meðlimir þýzka herforingjaráðsins, 10 lægra settir
þýzkir herforingjar og 35 óbreyttir þýzkir hermenn eru komnir
til aðalbækistöðva Eisenhowers til að hafa milligöngu tun fram-
kvæmd uppgjafarskilmálanna.
Herstjórn Ban darík janian na
verður í 12 deildum, og fer hver
þeirra með sín sérstöku mál, t. d.
ábvinnumál, fjármál. og uppeldis-
og menntamál.
Eisemhower verður yfifforingi
bandaHísku herstjórnarinnar.
„Verkalýðsfélög“ nazista — die
Arbeitsfront — verða leyst upp
og ný verkalýðshreyfing mynduð
á lýðræðislegum grundvelli. Sér-
Stok stjórnardeild mun sjá um
f'réttaiþjónustu, hafa eftirlit með
blöðum og útvarpi.
Stimson sagði ennfremur að all-
ur framleiðslumáttur Þýzkalands
mundi notaður til að framleiða
vörur 'handa þeim þjóðum, sem
Þjóðverjar ha'fa arðrænt og kúg-
að og reynt verður að láta Þýzka-
land verða sein mest sjálfu sér
nóg i ðfnalegu tilliti.
Churchill hefur einnig gefið yf-
irlýsingu um hernám Þýzkalands.
Var hún á sömu leið og yfirlýsing
Stinrsons. Churtíhill kvað ringul-
reiðina vera svo mi'kla í Þýzka-
landi, að ekkcrt nema ströng hern-
aðarstjórn gæ'ti komið í veg fvrir
ógurlegar hörmungar.
r
Hnefaleikamót I.R.
/. R. efndi til hnefaleikakeppni
1 gœrlcvöld í Andrewhöllinni við
Hálogaland.
Úrslit urðu þessi:
í jjaðurvigt sigraði Guðjón Guð-
jónsson.
1 léttvigt sigraði Bjarni Gott-
skáHksson.
/ veltivigt sigraði Guðmundur
Ilalldórsson.
/ miUivigt sigraði Ingólfur Ólafs-
son á knock out.
/ lettþungavigt sigraði Grétar
Árna'son.
I þungavigt gaf andstæðingur
Vigfúsar Tómassonar leikinn eftir
2 lotur.
Tveir aukaleikir fóru fram milli
brezkra flugmanna I fyrfi lcikn-
um sigraði Stark, en i seinni ledkn-
um Harleglhty. Virtust leikirnir-
frekar sýnileikir en keppni, eink-
um fyrri leikurinn, enda vakti
hann mikinn hlátur.
FUNDUR HINNA ÞRIGGJA.
Talið er víst. að fundur Stalíps,
Ohurchills og Trumans muni eiga
sér stað innan skamms. Aðalvið-
l'angsofni þeirra að þessu sinni
mun verða hernám Þýzfkalands og
öll þau mörgu vandamál sem við
það eru bundin.
ÞVÍ HEFUR EKKl
VERIÐ GLEYMT.
Bandamenn láta í Ijós þá skoð- 1
un, að tilraunir Dönitz til að sverja
af sér samvinnu sína við nazista,
séu þýðingarlausar. Því hafi ekki
verið gleymt, að það var hann
fyrst og fremst sem sök átti á
hinum ótakmarkaða kafbátahern-
aði og hann sé því í tölu stríðs-
glæpamanna.
Síðan uppgjafarsamningurinn
var undirritaður hafa síðustu
leifar þýzka hersins í Evrópu
gefist upp, en þó halda enn
nokkrar einangraðar hersveitir
í Tékkoslóvakíu vörninni á-
fram. Rauði herinn heldur á-
fram að uppræta þessar her-
sveitir og verður vel ágengt.
í gær gáfust hersveitir Þjóð-
verja á Ermarsundseyjunum,
eina brezka landsvæðinu, sem
Þjóðverjar náðu á vald sitt í
styrjöldinni upp skilyrðislaust.
Einnig gáfust hersveitir Þjóð-
verja á Eyjahafseyjunum, þ. á
m. Krít og Rhodos, upp í gær.
Þýzka setuliðið í St. Nazaire
gafst upp í gær.
Þýzka herskipið „Leipzig11
gafst upp í gær í Kaupmanna-
höfn.
STALÍN SENDIR
HEILLAÓSKASKEYTI.
Stalín hefur fyrjr hönd sovét-
þjóðanna sent Chúrchill heilla-
óskaskeyti í tilefni af sigrinum yfir
Þýzkalandi og læ'tiiL' í Ijós þá vissu
sína, að vinátta 'sú, sem þróast
hafi milli brezku þjóðarinnar og
sovétlþjóðanna á styrjaldarárun-
i.m, megi styrkjast báðum þjóð-
unum til heilla í framtíðinni.
Georg Bretakonungur hefur
einnig sent Kalinin, forseta æðsta
ráðs Sovétríkjanna, heillaóska-
skeyiti í tilefni af sigrinum.
Frá Noregi
1. brezka loftfluitta herfylkið er
komið til Osló, og fer afvopnun
þýzku herjanna í Noregi vel fram.
Þýzku hermönnunum hefur nú
verið komið fyrir í hertbúðum ut-
an borga og bæja Noregs og verða
þeir íátnir ha'fast þar við, þangað
til þeir komast h’eim til Þýzka-
lands. í Noregi voru um 400 þús.
þýzkir hermenn.
Norðmenn halda áfram hand-
töku kvislinganna og eru allir
helztu leiðtogar kvislinga nú und-
ir lás og slá, nema Jonas Lie. Bú-
ízt er við að mála/feilin gegn Kvis-
ling muni htífjast bráðlega.
Yfirforingi brezka hersins í Nor-
egi sagði samvinnuna við rauða
herinn hafa verið framúrskarandi,
en rauði h'erinn mundi nú hverfa
aiftur frá Noregi.
2000 stríðsglæpa-
menn á valdi
Bandamanna
Bandamenn hafa tekið um
2000 háttsetta þýzka nazista
gestapoforingja og aðra stríðs-
glæpamenn.
Meðal þeirra eru Falken-
horst, sem áður var yfirforingi
þýzka hersins, sem stjórnaði
vörnum Þjóðverja á vesturvíg-
stöðvunum auk þeirra, sem áð-
ur hefur verið skýrt frá. Falk-
enhorst kvað Bandamenn hafa
bjargað Þýzkalandi úr höndum
glæpaklíku, sem sett hefði svi-
virðingarblett á pýzku þjóð-
ina(!)
Yfirleitt koma þessir nazistar
og stríðsglæpamenn fram með
miklum hroka, kenna hver öðr-
um um glæpaverkin og þykjasi
enga ábyrgð á þeim bera. Eii
það er látið ótvírætt í Ijós i
löndum Bandamanna, að þeir
muni ekki komast hjá verð-
skuldaðri refsingu.
Kyrrahafsstyrjöldin
Með endalokum Evrópustyrj-
'aldarinnar hefst nýr kafli í
stríðinu við Japani.
Þangað munu nú Bandamenn
beina öllum hernaðarmætti síri
um, og kemur það fram í þeirri
yfirlýsingu, sem Doolittle yfir-
foringi 8. bandaríska flughers-
ins gaf í gær. Han sagði að
8. flugherinn eða hluti hans
mundi sendur til Kyrrahafsvíg-
stöðvanna innan skamms.
Sókn Bandamanna á Kyrra-
'hafi hélt áfram í gær. Þeir
'héldu áfram að reka flótta Jap-
ana í Burma. Á Okinava sóttu
þeir á og einnig á Tarakaneyjj.
Loft'árásirnar á Japan héldu
áfram í stærri stíl en áður.
I stuttu máli
Felis, yfirmaður Gestapolög-
reglunnar í Noregi hefur fram
ið sjálfsmorð.
13 þýzkir kafbátar gáfust upp í
gær og voru 8 þeirra komnir til
Bretlanids í gær.
ítalska stjórnin hefur nú feng
ið í hendur alla stjóm Ítalíu
innan Florenze, en á því svæði
búa 24 millj. af 45 millj. íbúa
Ítalíu.
Tilkynnt hefur verið að enn
muni skipalestir í vernd her-
skipa halda áfram siglingum
um AtlanZhaf. Er það vegna
þess, að ekki þykir öruggt að
allir þýzkir kafbátar séu hæt.t-
ir baráttunni.
Ekkert er enn vitað um hvar
nazistaíforin.gjarnir Ley, Rosen-
berg, Himmler og Ribbentrop
halda sig.
Danski flotinn hélt í gær til
Kaupmannahafnar. Brezk her-
skip, sem þar voru fyrir, heils-
1 uðu honum. Hefur hann orðið
fyrir miklu tjóni í styrjöldinni
og er nú ekki annað en hrað-
bátar og tundurduflaskip.
80 þús. brezkir stríðsfangar,
sem voru í fangabúðum í Þýzka
landi eru nú komnir til Eng-
lands.
2000 manns hafa látizt í Ams-t-
erdam síðus'tu 8 mánuðina af
völdum hungurs. Hungursneyðin
var eingöngu að kénna ráðstöfun-
um þýzku herstjórnarinnar, sem
taldar munu vcrða til s'tríðsglæpa.
Brezkur fréttaritari, sem.kom til
Flensborgar með brezka hernum,
skýrði frá því í Lundúnaút.'Varp-
inu í gær, að ringulreiðin þar hefði
verið . óskapleg. Tók það hann
lan-gan tíma að komast að raun
um hvar aða'lbækistöðvar Dönitz
j væru.
Kristján Danakonungur, Hákon Nor-
egskonungur og Christmas Möller
svara kveðjum Islendinga
Forseta íslands bárust í dag eftirfarandi þakkarskeyti
frá konungum Danmerkur og Noregs:
„Fyrir hönd dönsku þjóðarinnar og sjálfs mín flyt ég
yður, herra forseti, alúðarfyllstu þakkir mínar fyrir
kveðju yðar vegna frelsunar Danmerkur. Sömuleiðis fyrir
ámaðaróskir yðar og íslenzku þjóðarinnar, sem eg endur-
geld af einlægu hjarta.
CHRISTIAN R.“
„Eg flyt yður alúðarþakkir fyrir vinsamlegar kveðjur
og ámaðarósltir út af endurheimt frelsis Noregs.
HAAKON R.“
I
j 1 ' ■ \ *
Frá danska utanríkisráðheiTanum, J. Cliristmas Möller,
barst þetta þakkarskeyti:
„Herra forsætis- og utanríkisráðherra Ólafur Thors,
Reykjavík.
Eg færi yður hjartanlegustu þakkir fyrir hinar fögru
kveðjur yðar til Danmerkur. Konungur vor lýsti hugar-
fari gervallrar dönsku þjóðarmnar í garð ístendinga hinn
17. júní. Beztu óskir til íslands og íslendinga.
Yðar einlægur
CHRISTMAS MÖLLER“.