Þjóðviljinn - 12.05.1945, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 12.05.1945, Blaðsíða 2
ÞTÓÐVILJINN Laugardagur 12. maí 1945. ÍSLEND/NQAR! VERIÐ ÁVERÐl! Vinir barnamorðingianna, aðdðendur níðingsverkanna, eru strax byrjaðir áróður sinn til hjálpar fasismanum „Engar nazistaofsóknir“, hrópar Vísir. — Og Alþýðu- blaðið er þegar byrjad að sverta danska födurlandsvini íslendingar! Styrjöldinni er lokið, en bar- áttunni fyrir því að hindra að fasisminn komist upp aftur, heldur áfram. Vér íslendingar höfum slopp- ið við verstu hryðjuverk þessa stríðs, en það er ekki sagt að vér sleppum eins við hryðju- verk næsta stríðs, ef fasisminn fær aftur að festa rætur. Það er því skylda vor gagnvart sjálfum oss sem gagnvart öllu mannkynjnu að hindra það vægðarlaust að fasisminn fái nokkursstaðar að festa rætur, að nokkurs staðar fáist rekinn undirróður fyrir hann, að hon- um verði nokkur linkind sýnd. Fasismjnn og illþýðið, sem hon- um fylgir, hefur sett sig utan við lög og.rétt, á ekki heima í siðuðu þjóðfélagi frekar en mannát eða brennsla lifandi manna. Þótt oss hafi verið hlíft við verstu hörmungunum, þá verð- um vér að gera oss Ijóst hvað aðrar þjóðir hafa orðið að þola — óg hvað nýr fasismi myndi þýða. fslendingar: Viljum vér láta drepa böm vor svo þúsundum skiptir, eftir að þeim hafi verið misþyrmt í fangabúðum? Viljum vér láta reisa hér manndrápaverksmiðjur, eins og í Maidanek, þar sem kven- fólk og karlmenn er afklætt og staflað saman í klefa sem síld 1 tunnur og síðan brennt? Viljum 'vér láta fylla gjámar í hraunum íslands af líkum, eins og gert var í Karkoff? Viljum vér láta svelta þús- undir íslendinga í fangabúðum unz þorrinn deyr úr hungri en þeir, sem eftir lifa, reyna að draga fram lífið með því að lifa á líkum hjnna, — eins og gert var í Belsen? ★ Þetta eru atburðirnir, sem hafa verið að gerast úti í Evrópu. Þetta er fasisminn í allri sinni ógn. Og þetta og enn hryllilegri verður hann, ef hann fær að komast upp aftur. Ef vé.r látum vjðleitni til þess að skapa þetta ástand á ný, v iðgangast, — ef vér látum nokkra linkind komast upp gagnvart böðlunum þýzku og hjálparkokkum þeirra, hvar sem er, — þá er þetta stríð til einskis háð, þá eru fómir þess órangurslaust færðar, og þá koma ógnir fasismans aftur yf- ir þjóðimar. ir íslendingur! Þú ,.lifir í lýðræðislandi. Þú hefur málfrelsi og prentfrelsi. Þú getur sjálfur ráðið hvernig þjóð þinni er stjómað. Á þér hvílir sú ábyrgð að láta þessa ógn fasismans ekki koma niður á bömum þínum, að láta nú kné fylgja kviði, svo þessi ó- freskja eigi aldrei aftuúkvæmt. ★ Líttu í kringum þig: Fasistahyskið hér heima er að byrja aftur sinn gamla á- róður. Það vonast til þess að sagan eigi að endurtaka sig, — að Maidanek, Buchenwald, Bel- sen og Dachau eigi eftir að rísa upp á íslandi, — að fasism- anum takist að lifna undir grímu mannúðar og þjóðfrelsis, unz hann er nógu sterkur til að myrða aftur í grimmdaræði ein staklinga og þjóðir. ★ „Vísir“ er búinn að búa til nýtt orð: „nazistaofsóknir". Vís- ir, eina blaðið á íslandi, ’sem gerzt hefur málsvari Gyðinga ofsókna, fer að vara menn við „nazistaofsóknum". Því berst 'blaðið ekki á mótj rottuofsókn- um, því bíður það ekki bama- morðingjum grið? Það er verið að þreifa fyrir sér af hálfu fasistanna. Það er þagað um öll hryðjuverk fas- ismans. Og í skjóli vanþekk- ingárinnar á síðan að biðjp þeim miskunnar og ráðast L þá, sem uppræta níðingana og níðingsskapinn af jörðunni. Tíminn og Alþýðublaðið, dag blað Framsóknarfasistanna, eru líka að' byrja að þreyfa. fyrir sér um hve langt sé óhætt að fara í áróðrinum fyrir fasism- ann. Menn muna feril þessara blaða — hvemig þau í sífellu hafa látið hatur sitt á sósíalism anum og Sovétríkjunum verða varaviðurkenningu sinni á lýð- ræðinu yfirsterkari einnig á yf- irborðinu. Alþýðublaðið hefur hamazt, ef erindrekar fasista og spell- virkjar hafa verið hindraðir í því að framkvæma fyrirskip- anir Himlers í Sovétríkjunum og það hefur gert slíka menn að dýrlingum sínum. Alþýðubiaðið svaraði sigri fasismans á Spáni með því að gera eina aðalkröfu fasista: bann á Sósíalistaflökkum, að kröfu sinni. Alþýðublaðið tókst á loft af fögnuði er það fékk von um að Hitler gæti unnið Sovétríkin og upprætt sósíalismann, en gerði þó til vonar og vara þá kröfu að Vesturveldin færu í stríð við Sovétríkin og upprættu kom- múnismann, ef Hitler tækist það ekki. Alþýðublaðið níddi hverja frelsishreyfingu gegn fasisman- um í Evrópu, ef það hélt a.ð nokkuð væri róttækt við hana. Það sverti Tito og de Gaulle, en hampaði svikurum eins og Mikhajlovitsj sem hetjum sín- um. Furðar þá nokkrun á því þó Alþýðublaðið sé að þreifa fyrir sér um hvort ekki sé líka hægt að rægja danska föðurlands- vini hér á íslandi? Alþýðublaðið hefur sagt það lýgi, sem önnur blöð hafa sagt satt um hryðjuvérk nazista í Kieff og Karkoff. En ef einn nazisti er veginn einhversstaðar erlendis þá býr þetta blað sig undir það — og fær vafalaust góða aðstoð í ekipulögðu slúðri fasistavina, — að gera hann að píslarvotti! íslendingar! Það er nauðsynlegt að vera á verði. Það er ófyrirgefanlegt af hvaða þjóð sem er að láta fasismanum takast að reisa sig við aftur í nokkurri mynd, eft- ir þá glæpi sem hann hefur framið, eftir þann ósigur, sem hann hefur beðið og eftir þær fórnir, sem færðar hafa verið til að leggja hann loks að velli. Næturlæknlr er í læknavarðstof- unni í Austurbæjarskólanum. Sími 5030. Næturvörður er í Ingólfsapóteki. Næturakstur: Litla bílstöðin, sími 1380. Ljósatími ökutækja er frá kl 21.45 til kl. 3.05. Gjafir til Slysavarnafél. íslands: Til Slysav. d. Ingólfur hafa eftir farandi gjafir borizt: Frá' skipshöfn inni á b. v. Hilmir kr. 1125, skips- höfninni á Rifsnesi kr. 455, frá skipshöfninni á Belgaum kr. 1600, frá skipshöfninni á Þórólfi 1135, frá ekkjunni I. E. kr. 10, frá skips- höfninni á b. v. Sindra kr. 770, frá skipshöfninni á b. v. Geir kr. 710, frá skipshöfninni á Viðey 780, frá skipshöfninni á Surprise til bjrög- unarbáts 1450, frá söngvara kr. 500, frá starfsmannafélagi og eigendum h. f. Sögin og Ingólfi B. Guðmunds- syni, starfslaun í einn dag kr. 1613, frá útvrpsnotendum í Borgarfirði eystra til minningar um Friðrik Halldórsson, loftskeytamann kr. 500 — Samtals kr. 10.708.07. Áheit til Slysavarnafélags íslands: Frá N. N. kr. 100, G. Þ. 25, N. N 100, M. 50, G. H. E. 20, Dýrfinnu Oddrifðsdóttur 20, B. B. 200, F. J. 30, Áslaugu 100, N. N. 200, G. H. 25, Hildi 40. — Samtals kr. 9.10.00. íslendingar samfagna Dönum og Norðmönnum Eins og Þjóðviljinn hefur áður sagt frá söfnuðust Keykvík- ingar heim til sendiherra Norðmanna og Dana, 8. þ. m. til að samfagna endurheimtu frelsi þessara tveggja frændþjóða. Fer hér á eftir ávarp það er formaður Norræna félagsins Stefán Jóh.. Stefánsson flutti við þetta tækifæri, svarræða Fonteney, sendi- herra Dana og stuttur útdráttur úr ræðu Ryssts, sendiherra. Norðmanna. ÁVARP STEFÁNS JÓHANNS STEFÁNSSONAR Hæstvirti sendiherra! í hugum Islendinga býr nú ó- venjuleg gleði og fögnuður yfir stríðslokunum hér í álfu. En alveg sérstaklega verða 4. og 7. maí 1945 ógleymanlegir gleðidagar allra nor- rænna manna, í mótsetningu við 9. apríl 1940, er var dagur harma og sorgar í hugum sömu manna. E'ftir fimm þung þrautaár fögnum við af atóð og emlægum hug frelsi bræðraþjóðanna á Norðurlöndum. Norræna félagið á íslandi vildi með heimsókn þessari til yðar sýna lj'tinn vott gleði sinnar og virðingar til þjóðar yðar. Og í nafni Norræna félagsins og hins mikla fjölda á íslandi. er af ein- lægum hug fagnar fielsi þjóðar yð- ar, ber óg fram hinar innilegustu árnaðaróskir til þjóðar yðar, er vaxið hefur að virðingu í ógnum ófriðarins, með hugheilum óskurn og vissu um gott gengi í framtíð- inni, og í fullu trausti um náið og vinsamlegt samstarf' á milli ís- lenzku þjóðarinnar cg þjóðar yðar. Ég bið þá, sem hér eru staddir, að hrópa ferfalt húrra fyrir frænd- þjóð vorri og hinu frjálsa fagra landi hennar. RÆ3DA SENDIHERRA DANA Kæru íslenzkir vinir. Þann 1. maí 1940, — fyrir 5 ánrni og einni viku síðan — stóðu margir okkar einnig héma augliti til auglitis. Þá vottuðu íslendingar dönsku þjóðinni samúð sína vegna her- námsins. Nú stöndum við aftur héma, Ærbók Slysa- rarnafélags Islands Árbók Slysavarnafélags íslands fyrir 1944 er komin út. Bókin er að þessu sinni tileinkuð 15 ára starfsemi kvennadeildarinnar í Reykjavík, og hefst á fróðlegum greinum um stofnun og störf kvennadei'Idanna í landinu. Þá eru í árbókinni fróðlegar greinar um skipbrotsmannaskýlin á eyðisönd- um suðurstrandarinnar. Greinar um 'hinar helztu gerðir björgunar- báta, og slysfarir og skipatjón ár- ið sem leið. Einnig eru í fcókinni samlþykktir síðasta landsþings, skýrslur tfélagsstjórnarinnar um starfeemina á árinu reikningar fé- lagsins og ótalmargt annað. Bókin er prýdd mörgum mynd- um og uppdrætti af landinu, þar sem sýndar eru deildir félagsins og björgunarstöðvar. Árbókin er vandað og handihægt heimildarrit, um hina stórfelldustu og fjölmenn- ustu mannúðarstarfsemi á íslandi, i slysavarnábaráttuna. ' | en tilfinningamar eru andstæð- ar því sem þær þá vom. Þú drjúptum við Danir höfði og létum ofviðrið geisa yfir. En — eitt er að drúpa höfði og láta ofviðrið geisa yfir, ann- að er að brotna og láta kúga sig. Við stóðum fastir um menn- ingu okkar strax frá byrjun og varðveittum andleg verðmæti okkar. Norræn menning okkar sýkt- ist ekki af kúgunar og þræi- dóms anda frá suðri; þegar nor- ræn réttarmeðvitund okkar og grundvöllur sjálfstæðisins komst í hættu, sögðum við all- ir nei, konungur, þjóð og þing.. Við tókum hörmungar og þján- ingar og fórum þyrnbraut heið- ursins. Þá vörðum við okkar eld- gömlu norrænu menningu með blóði .og mannslífum, og okkur tókst að varðveita menningu okkar óskerta. Við emm nú stoltir af þvi að hafa staðizt eldraunimar og þess vegna getum yið með góðri samvizku og fögnuði tekið 4 móti samgleði og fagnaðarósk- um ykkar. Það er mér meira gleðiefni en ég get orðum að komið að sjá ykkur fagna frelsi Dan- merkur, og ég tek það sem merki þess, að vinátta. samúð og bróðurlegt samstarf megi þroskast milli íslendinga og Dana. Eg er viss um, að þetta sam- starf mun sí eflast, og bið ykk- ur öll með mér að hrópa ferfalt húrra fyrir vaxandi vináttu milli þjóðanna. Vinátta íslendinga og Dana lengi Jifi! IJTDRÁTTUR ÚR RÆBU SENDIHERRA NORÐMANNA Norski sendiherrann hóf mál sitt. mcð því að þakka Reykvikingum þá vináttu sem þei" sýndu norsku þjóðinni með þessari heimsókn. Þá .vók hann að þeirri miklu , stund í lífi norsku þjóðarinnar er hún hdfði nú endurtheimt frelsi sitt. „Það er erfitt að túlka með orðum tilfinningar okkar Norð- manna á þessari stundu“, mæltí hann, „en í kvæðinu okkar: „Gud signe vort dyre Fædreland“ munu þær einna bezt túlkaðar“. FlutJti hann síðan nokkur erindi Jæssa, kvæðis. Að lokum lét hann í ljós þá ósk, að sá náni samhugur og ágæta. sannvinna íslendinga og Norð- manna, sem hefðu tengst enn nán- ari og trau'stari böndum á stríðs- árunum en áður var, mætti halda áfram að vaxa og styrkjast á kom- ,andi árum friðarins Kvað hann Norðmenn aldrei myndu gleyma vináttu íslendinga þessi síðustu þjáningaár.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.