Þjóðviljinn - 07.06.1945, Side 1
10. árgangur.
Fimmtudagur 7. júní 1945.
124. tölublað.
1
í blaðinu í dag: — á 4.—
5. síðu — hefst pólitísk
ferðasaga eftir Einar Braga
Sigurðsson „Hálfan fór ég
hólmann um kring“.
faha Hi i ii iiðs stjópaíiRi
kommúnistamir í fylkiogarbrjósti þjóðfrelsishreyfingarinnar
Loftárás á Okinava
Eins og Þjóðviljinn sagði frá í gær, mun gamla
Stórþingið norska verða kallað saman kringum 14. júní.
„Arbeiderbladet“ segir, að þar sem stjórnmálaflokkarnir hafi
nú lýst sig fylgjandi því, að Stórþingið verði kvatt saman, muni
það verða mjög bráðlega. Áður en Stórþingið kemur saman
munu flokkarnir halda ráðstefnur og samningaumleitanir fara
fram milli þeirra. Samþykktin sem gerð var á síðasta fundi
Stórþingsins 9. apríl 1940, gerði ráð fyrir því, að áður en Stór-
þingið kæmi saman aftur myndi fara fram ráðstefna milli ráð-
herranna, forseta þingsins og leiðtoga heimavígstöðvanna til
þess að ræða um ástandið.
Eins og blaðið sagði frá í gær,
er norski Kommúnistaflokkur-
inn reiðubúinn til að taka þátt
í ríkisstjórninni og hefur hann
gefið út yfirlýsingu þess efnis.
Eftir að hafa lagt áherzlu á,
að norskir komúrftstar hafi jafn-
an staðið í fremstu fylkingu mót
stöðuhreyfingarinnar, er skýrt
fram tekið, að það sé vilji flokks-
ins að styðja öll framfaraöfl og
lýðréttindahreyfingar með þjóð-
inni.
Kommúnistaflokkurinn hefur
kjörið nefnd til að leita sam-
bands við .Nygaardsvold, for-
sætisráðherra og viðtals hjá Há-
koni konungi, þegar hann kemur
heim til Noregs til að gefa þeim
nákvæmar skýrslur um starf-
semi flokksins á hernámsárun-
um og kynna þeim viðhorf
flókksins til núverandi viðfangs
efna. Nefndin hefur einnig um-
boð til að ræða við norska verk-
lýðssambandið og Verkamanna-
flokkinn um sameiningu verka-
lýðsins, og, ef unnt reynist, að
fá grundvöll fyrir sameiningu
Verkamannaflokksins og Komm
únistaflokksins. Hið nýja komm-
únistablað: „Friheten“ leggur
megináherzlu á að norski Komm
únistaflokkurinn sé byggður á
„stjórnlagagrundvelli" og telur
brýna nauðsyn að öll framfara-
öfl sameinist um að mynda
stjórn, er sé raunveruleg „stjórn
fólksins“ og sem hefur það mark
mið að tryggja velferð allrar
norsku þjóðarinnar, stjórn, þar
sem afturhaldsöflin séu með
öllu áhrifalaus.
Verkamannaflokkurinn norski
hefur birt stefnuskrá, sem muu
vara fyrst um sinn og fjallar
Kosningabaráttan hafin í Bretlandi
S. í. laugardag flutti Chur-
chill fyrstu útvarpskosningaræð-
una í Bretlandi. Atlee, forseti
Verkamannaflokksins, hélt aðra
útvarpsræðu í fyrradag og svar-
aÖi Churchill.
Eftir þessum útvarpsræðum
virðast báðir flokkarnir sam-
mála í utanríkismálum, en mjög
greinir á í innanlandsmálum.
Íhaldsflokkurinn vill láta allt
hverfa í sama horf og var fyrir
styrjöldina, en Verkamanna-
flokkurinn lofar víðtækri þjóð-
nýtingu, fari svo að hann kom-
ist 1 stjórnaraðstöðu.
Atlee sagði m. a.: Verka-
mannaflokkurinn er nú ekki ein
ungis orðinn fulltrúi verklýðs-
stéttarinnar eins og hann var
eftir síðasta stríð, heldur fulltrúi
allrar þjóðarinnar. Hins vegar
er íhaldsflokkurinn aðeins full-
trúi einnar .stéttar, brezku auð-
kýfinga- og forréttindastéttar-
innar.
Verkamannaflokkurinn vann
að því eftir megni eftir síðustu
styrjöld, að gera Þjóðbandalag-
ið að stofnun, sem gæti tryggt
frið og öryggi 1 heiminum. Það
mistókst. Nú vill Verkamanna-
flokkurinn vinna að því að skapa
nýtt þjóðabandalag, sem sé þess
megnugt að vinna það hlutverk
er fyrirrennara þess mistókst.
En það er ekki nóg. Til þess að
unnt sé að tryggja frið í heim-
inum þurfum við að sigrast á
fátæktinni, hungrinu, menntun-
arskortinum og öryggisleysinu.
r
Utflutningur Breta
minnkaði — Bandaríkj-
anna jókst
Oliver Lyttleton, verzlunar-
málaráðherra Breta hefur skýrt
frá því að útflutningur Breta
hafi nfinnkað um 20Ó millj.
sterlingspunda á stríðsárunum.
Hins vegar sagði Lyttleton að
útflutningur Bandaríkjanna
á stríðsárunum hefði aukizt
um 3000 millj. sterlingspunda,
aðallega vegna láns- og leigu-
samninganna.
um stjórnmálastefnu flokksins
eftir stríð. í upphafi stefnu-
skrárinnar er lögð áherzla á, að
norsk stjómmál verði fyrst um
sinn að byggjast á þeirri þjóðar-
einingu, sem myndaðist á her-
námsárunum, og þess vegna sé
rétt á meðan aðkallandi málum
er skipað, að stuðla að myndun
samsteypustjórnar á svo víðura
grundvelli sem unnt er. í hinni
nýju stjórn verður að skipa
ráðherrastólana í sama hlut-
falli og var milli flokkanna
fyrir stríð, og enn fremur verða
að eiga sæti í stjóminni menn,
sem framarlega hafa staðið á
heimavígstöðvunum og víg-
stöðvunum utan Noregs. Það er
tekið fram í framhaldi stefnu-
skrárinna:, að gera verði fljóct
og réttilega upp sakir við bá
sem unnið hafa þjóðinni hvers
konar tjón og haft samstarf við
fjandmennina. • Stríðsglæpa-
menn verður að setja í hendur
norskum stjómarvöldum, sem
sjái um, að þeir verði dæmdír
að norskum lögum. Aðstandend
um fallinna heranna, þeirra
sem drépnir voru fyrir leyni-
starfsemi eða sem gíslar, verði
veitt heiðurslaun. Norsk lög,
réttarfar og ýmis réttindi
verði að öllu endurreist. Inn-
og útflutningur verður fyrst um
sinn háður ströngu ríkiseftir-
liti, nauðsynjavörur verða að
sitja í fyrirrúmi, en hvers kon-
ar munaðarvara sitji á hakan-
um. Til þess að skipuleggja o°:
auka framleiðsluna innan lands
á hinum ýmsu sviðum verður
myndað framleiðsluráð og skip-
aðar sérstakar nefndir til að
f jalia um vandamál hinna ýmsu
iðnaðargreina. Réttur sérhvers
borgara til atvinnu verður
tryggður með lögum á sama
hátt og önnur mannréttindi.
Hvað félagsmálum við kemur,
krefst flokkurinn fullkomins
félagslegs öryggis allra manria.
(Norsk Telegrambyra)
<
Mest framlag til
merniingarmála
Æðstaráð Sovétríkjanna kom
saman í gær. Fyrír því liggur
að afgreiða fjárlög fyrir árið
1946.
Heildarupphæð fjárlaganna
er 28.7 milljarðar rúblna.
Stærsti liðurinn er til menn-
ingarmála rúml. 4 milljarðar
rúblna, og er það Vz milljarð
meira en árið 1940.
Harðir bardagar hafa staðið yfir að undanförnu á jap-
Önsku eyjunni Okinava. Bandaríkjamenn eru nú að sigr-
ast á herliði Japana á eynni, og er jþað ekki sízt að þakka
flugvélastyrk þeirra.
Góður árangur í
loftárásinni á Kóbe
Ljósmyndir, sem könnunar-
flugvélar tóku af Kóbe eftir
risaflugvirkjaárásina í fyrra-
dag sýna, að ágætur árangur
hefur orðið í árásinni.
Loftárásir voru í gær gerðar
á Japanseyjar frá syðstu til
nyrztu eyjanna. Einnig voru
gerðar árásir á jámbrautina
milli Bangkok og Singapore.
Kínverjar hafa nú tekið aft-
ur samgöngumiðstöðina Ljútsjá
í Suður-Kína.
í Burma eru enn skærur
milli útvarða og hrinda Bretar
öllum gagnáhlaupum Japana.
Innrásarinnar
minnzt í gær
I gær, 6. júní, var liðið ár frá
því að innrás var gerð í Vestur-
Evrópu.
í tilefni af því voru hátíðahöld
víða í Evrópu, en hvergi meiri
en í Normandí, en þar gengu
innrásarsveitir fyrst á land.
í Caén, borginni, sem einna
mest var barizt í fyrstu vikurn-
ar, gengu franskir hermenn og
sjóliðar fyrir franska hermála-
ráðherrann.
Einnig voru mikil hátíðahöld
á hernámssvæði 2. brezka hers-
ins í Þýzkalandi.
Stalín þakkar
brezkum sjómönnum
Stalín marskálkur hefur þakk-
að brezka kaupskipaflotanum
hinn mikla þátt, sem hann átti
í því, að sigur vannst yfir Þýzka
landi.
Sérstaklega þakkaði Stalín
hina mikilsverðu flutninga
brezka kaupskipaflotans til Sov-
étríkjanna á alls kyns mikils-
verðum hernaðarverðmætum.
Gúséff, sendiherra Sovétríkj-
anna í London, bar þakkirnar
fyrir brezku stjórnina.
Sovétblöð ánægð
yfir hernámssamn-
ingnum
í blöðum í Sovétríkjmium í
gær var fagnað mjög samningi
Bandamanna um hemám Þýzka
lands.
Kort voru birt, þar sem' voru
sýnd hernámssvæði hvers hinna
f jögurra xdkja fyrir sig, en
fram kom á kortunum að ein-
ungis hernámssvæði Sovétríkj-
anna er fullákveðið.
Eins og sagt var fra í frétt-
um í gær, verður Berlin skipt
niður í fjögur hernámssvæðí og
fara stórveldin fjögur, Sovét
ídkin, Bretland, Bandaríkin og
Frakkland með hemámsstjórn-
ina í hverju hverfi fyrir sig.
Enn eru þó aðeirxs sovéthersveit
ir í borginni.
H