Þjóðviljinn - 07.06.1945, Page 2
2
Ný efnalaug
Þann 1. J>. m. var opnuð í
Hafnarfirði, að Strandgötu 39,
kemisk fatahreinsunar- og
pressustofa, sú fyrsta sem stofn
uð hefur verið í Hafnarfirði.
Forstjóri þessarar efnalaugar,
Stefán Sigurðsson, kaupm.,
bauð fréttamönnum blaða og út
varps að skoða húsakynni og
vélar hins nýja fyrirtækis.
Hann kvað hið nýja félag
hafa tekið þetta húsnæði á
leigu síðari hluta vetrar, og þá
þegar hafizt handa um að gera
nauðsynlegar breytingar á hús-
inu til þess að koma fyrir þess-
ari starfrækslu.
Innréttingar annaðist Guðjón
Arngrímsson trésmíðameistari
í Hafnarfirði.
Uppsetningu vélanna annað-
ist Vélaverkstæði Einars Guð-
Míðahöldjj sjómanna
á (safirði
Hátíðahöld sjómannadagsins á
Isafirði hófust kl. 9,30 með hóp-
göngu sjómanna frá bæjarbryggj
unni og var gengið í kirkju og
hófst messa þar kl. 10. Sjó-
mannakór söng í kirkjunni und-
ir stjórn Jónasar Tómassonar,
en Högni Gunnarsson hafði æft
kórinn.
Skemmtun hófst við bátahöfn-
ina kl. 1 og setti Kristján H.
Jónsson hana.
Fór þá fram reiptog milli
skipverja af Huginn III. og skip-
verja af Morgunstjörnunni og
unnu skipverjar af Huginn III.
og fengu verðlaunabikarinn til
fullrar eignar.
Þá fór fram keppni í 50 m.
bringusundi, keppendur voru 9.
1. Kristján A. Kristjánsson á
55,2 sek.
2. Engilbert Ingvarsson á
56,9 sek.
3. Þórólfur Egilsson á 57,2 sek.
Þá fór fram kappróður, 10
skipshafnir kepptu. 'Vegalengd
var 500 m. Skipverjar á Sæbirni
unnu á 3 mín. 15,2 sek. 2. skip-
v^rjar af Valbirni á 3 mín. 16,0
sek. 3. skipverjar af Bryndísi á
3 mín. 19,8 sek. — Keppt var um
verðlaunabikar. Huginn III.
vann þessa keppni í fyrra.
Knattspyrnukeppni hófst á í-
þróttavellinum kl. 5 milli sjó-
manna og starfsmanna hjá ís-
húsfélagi ísfirðinga og unnu
starfsmenn íshúsfélagsins. — Á
sama tíma var kvikmyndasýn-
ing í Alþýðuhúsinu.
Um kvöldið var skemmtun í
Alþýðuhúsinu og flutti Arn-
grímur Fr. Bjarnason ræðu. Kór
undir stjórn Jónasar Tómasson-
ar söng.
Verðlaun voru afhent. Foreldr
ar drengsins sem Jón Björnsson
bjargaði frá drukknun á ísafirði
s. 1. vetur, afhentu þar silfur-
skjöld til hans í viðurkenningar-
skyni fyrir þetta mikla afrek
hans.
Um kvöldið var einnig kvik-
myndasýning. Ennfremur
skemmtanir á tveim öðrum
stöðum í bænum.
Þátttaka í hátíðahöldunum
var mjög fjölmenn og almenn.
I Hafnarfirði
mundssonar Beýkjavík. Einnig
voru þar smíðaðar flestar vél-
amar á því verkstæði, nema
skilvindur og pressan, og svo
þurrkarinn en hann var smíð-
aður í Vélsmiðjunni Steðjinn,
Reykjavík.
Raflögn annaðist Glói h.f.
Hafnarfirði.
Alger nýjung er það, að gufu-
ketillinn í sambandi við press-
una, er hitaður með olíukynd-
ingu, og er hvorttveggja sparn-
aður og þrifnaður við það, en þar
sem sams konar katlar eru kynt
ir með kolum.
Stefán kvað það ráðgert seinna
ef fært væri að setja á stofn
þvottahús í sambandi við fata
pressuna, því 'hann kvað mikla
nauðsyn, sem og satt er, að starf
rækja þvottahús í Hafnarfirði.
Við fyrirtækið vinna fjórir
menn til að byrja með.
Þennan fyrsta dag, sem búið
var að vera opið, hafði þegar
borizt mikið af fatnaði, og er
óhætt að fullyrða að þessari
starfrækslu verði vel tekið hér
í bænum, því erfitt er fyrir fólk
að þurfa að flækja hverri flík út
úr bænum sem það þarf að fá
hreinsaða og pressaða, enda kvað
forstjórinn áherzlu lagða á fljóta
afgreiðslu.
Sumarferðalög
BreiðffrðiDgafél.
Eins og undanfarin sumur stofn
ar félagið til nokkurra ferða. Nú
þegar hefur ein ferð verið farin,
var það gönguför um Seltjamames
á annan í Hvítasunnu. Þátttak-
endur voru 22.
Onnur ferð verður 9. og 10. júní
í Jósefsdal. Tjaldað verður í daln-
um og gengið þaðan á nærliggj-
andi fjöll.
30. júní og 1. júlí Esjuferð:
Henni verður hagað þannig, að
tjaldað verður hjá Mógilsá á laug
ardag og umhverfið skoðað en á
sunnudagsmorgun gengið á fjallið.
7.—9. júlí Hveravallaferð- Ekið
verður á laugardaginn í Árskarð
við Kerlingafjöll og tjaldað þar. Á
sunnudaginn verður gengið á fjöll
in og í Hveradali en um kvöldið
ekið að Hveravöllum og tjaldað.
Á mánudag verður ekið heimleiðis
og komið við í Hvítárnesi og hjá
Gullfossi, gengið verður í Pjakxa
21. júh' til 3. ágúst sumarleyfis-
ferð í Búðarhraun á Snæfellsnesi:
Er Iþað í fvrsta sinni sem félagið
stofnar til sumarleyfisferðar Þótti
því ekki heppilegast að hafa mjög
dýra ferð. Þessi staður er valinn
með það fyrir augum að hægt
verði að njóta fullrar hvíldar og
hressingar.
Búðarhraun er eitthvert fjöl-
skrúðugasta hraun landsins.
Þar er ágætur baðstaður við
ströndina, skammt að ganga til
fjalls og á jökúl. Ennfremur tiltölu
lega auðvelt að skoða hinar fornu
verstöðvar undir Jökli.
4.-6. ágúst (verzlunarmanna-
helgin) Dalaferð: Á laugardaginn
verður ekið að Kjarlaksstaðaá á
Fellsströnd og tjaldað þar. Á
sunnudaginn verður farið á hest-
um fyrir Klofning og inn Skarð-
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 7. júní 1945.
Teikningar af hinum nýja Gagn-
fræðaskóla Reykjavikur
Teikning af Gagnfræðaskóla Reykjavíkur. Hliðin se mveit að Skólavörðutorgi.
GrunnmymL af 1. hœð gagnfrœðaskólans. (Sjá grein á 8. síðu Þjóðviljans í gœr).
Wgrm-.
Nýtt tónverk eftir
Askel Snorrason
Nýlega er komin út Fantasía
fyrir píanó eftir Áskel Snorra-
son á Akureyri. Hefur höfundur
'gefið hana í landssöfnunina til
hjálpar nauðstöddu fólki í Nor-
egi og Danmörku. ..
Fantasían er í þrem köflum:
Allegro, Antante eantabile og
Finale. — Forsíðan er prentuð
en nóturnar e.ru fjölritaðar.
Áskell Snorrason er löngu
þjóðkunnur fyrir söngstjórn og
söngkennslu á Akureyri. Hann
hefur áður gefið út sérprentuð
þrjú sönglög, en auk þess hafa
birzt eftir hann lög í „Samhljóm
um“ og tímaritum, en mest af
tónsmíðum hans munu þó vera
óprentuð.
strönd með viðkomu á Skarði inn
að Tjaldanesi í Saurbæ. Þaðan ek-
ið heim á mánudag.
18.—19. ágúst Þingvallaferð: Ek
ið á laugardag austur að Hof-
mannaflöt, tjaldað þar gengið í
Goðaskarð og um nágrennið.
Síðasta ferðin verður sunnudag
inn 2. septem'ber: Berjaferð í
Botnsdal (Ef leyfi fæst).
Að undantekinni berjaferðinni
hefjast allar ferðir frá Iðnskólan-
um kl. 2 e.h. á laugardögum.
Aðgöngumiðar verða seldir í
Iíattabúð Reykjavíkur, Laugaveg
10.
Nánari upplýsingar gefnar ef
óskað er alla virka daga í síma
2978. Ferðanefndin.
Niðurjöfnun út-
svara á Norðfirði
Niðurjöfnun útsvara í Nes-
kaupstað á Norðfirði var lokið
síðast í maí.
Jafnað var niður kr. 656 þús.
580 á 443 gjaldendur, og er það
um 20% hækkun frá síðasta ári.
Hæstu útsvör bera þessir
gjaldendur:
H. f. Sæfinnur 45 þús. kr.
Kaupfélagið Fram 29 þús.
Samvinnufélag útgerðarm.
23-þús.
Verzlun Sigfiísar Sveinssonar
20 þús.
Þórður Einarsson 16.5 þús.
M. s. Magnús 15.1 þús.
M. s. Stella 15 þús.
PAN 13.5 þús.
Gísli Kristjánsson 10 þús.
Dvalarheimili í
Hafnarfirði
Dagheimili verkakvennafé-
lagsins Framtíðin í Hafnarfirði
tók til starfa í fyrradag.
Verða þar 32 börn á aldrinum
3—7 ára.
Dagheimili þetta hóf starf-
semi sína 1932 á Hörðuvöllum
við Hafnarfjörð og var starf-
rækt þar þar til stríðið hófst, en
hefur legið niðri á stríðsárunum
þar til nú.
Dagheimilið nýtur styrks úr
bæjarsjóði Hafnarfjarðar.
Nætui-Jaekair er í læknavarðstoí-
unni í Austurbæjarskólanum.
Sími 5030.
Næturakstur: Hreyfill, sími 1633
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunn.
Útvarpið í dag:
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar):
a) Lagaflokkur úr óperunni
Carmen eftir Bizet.
b) Krolls-valsinn eftir Lum-
bye.
c) Marz eftir Heinecke.
20.50 Sögur og sagnir (Guðni Jóns-
son magister).
21.15 Hljómleikar: Frægir fiðlu-
leikarar.
21.25 Frá útlöndum (Björn Franz-
son).
21.45 Hljómplötur: Chaliapine syng
ur.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir skop
leikinn „Gift eða ógift“, annað
kvöld kl. 8.
Frá höfninni:
„Hedera“ kom í fyrrinótt og
lestar hér.
Færeyskur kútter fór í gær út á
land.
„Thurid“ kom í gærmorgun frá
Amarstapa með vikur.
„Lyra“ fór í gær til útlanda.
„Víðir“ og „Sigríður“ ganga alla
daga nema mánudaga milli Reykja-
víkur og Akraness og Borgamess.
FLOKKURINN
Deildarfundur verður í 2. deild i
kvöld kl. 8.30 á venjulegum stað.