Þjóðviljinn - 07.06.1945, Page 8
8
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 7. júní 1945
SlippfélagiD hefur í byg^ju að
byggja 2 nýjar dráttarbrautir
Stætrri braufin á ad faka 1200 fonna
skip — hin braufin 600 fonna skip
Hvað gerir dómsmáiaráðherra í .slippmáiinu'?
Þjóðviljinn hafði í gær tal af Valdimar Stefáns-
syni fulltrúa, en hann hefur haft með höndum rann-
sókn „slippmálsins“ svokallaða.
Yfirheyrslum í málinu er nú lokið og er verið að
senda málið til dómsmálaráðuneytisins.
Þjóðviljinn hafði einnig tal af Sigurði Jónssyni,
framkvæmdastjóra Slippfélagsins.
Kvað hann Slippfélagið standa í sambandi við verk-
smiðjur í Ameríku og Englandi og hefði fengið tilboð
í tvær dráttarbrautir, aðra 600 tonna, hina 1200 tonna,
og myndi lögð áherzla á stærri slippinn og gæti hann
komizt upp á 4—6 mánuðum ef ekki stendur á efni frá
verksmiðj unum.
Þegar dráttarvagninn brotn-
aði í seinna skiptið var rann-
sókn á fyrra brotinu ekki að
fullu lokið.
Þegar vagninn brotnaði i
seinna skiptið sKrifuðu Dags-
brún og Félag járniðnaðar
manna sakadómara og ósknðu
rannsóknar. Sakadomari skip-
aði til þeirrar rannsóknar sömu
menn og í fyrra ssiptið, þá Ás-
geir Sigurðsson forstjóra og M.
E. Jessen vélstjóraskólastjóra
og framkvæmdu þeir rannsókr.-
ina dagmn eftir.
í semna skiptið brotnaði biti
í dráttarvagninum og munu
rannsóknarmennirnir hafa kom-
-izt að þeirri niðurst.öðu að um
„þreytu“ í járninu hafi verið
að ræða.
Yfirheyrslum í s'ambandi við
báðar þessar bilanir er nú lok-
ið og verður rnáíið sent til
dómsmálaráðunevtisins.
TVÆR NÝJAR DRÁTTAR-
BRAUTIR FYRIRHUGAÐAR
Þá hafði Þjóðv'lUrui einnig
tal af Sigurði Jónssyni, tram-
kvæmastjóra Slippfélagsins.
Kvað hann félagið standa í
sambandi við verksmiðjur x Eng
landi og Ameríku um efni i
nýjar dráttarbrautir og hefði
það fengið tilboð í tvær, aðra
fyrir 600 tonna skip, en hina
fyrir 1200 tonna skip.
Efnið í minni brautina væri
nú á leiðinni og hefði útvegun
þess staðið yfir í 2 ár. Upp
haflega hefði verið ætlunin að
koma minni slippnum upp fyrst,
en eftir að viðhorfið breyttist,
við bilun slippsins, myndi meg-
ináherzla lögð á að koma stærri
siippnum upp fyrst. Ef ekki
stendur á afhendingu véla frá
verksmiðjunum myndi vera
hægt að gera sér vonir um að
hann kæmist upp á 6 mánuðum.
Slippfélagið sótti um inn-
flutningsleyfi fyrir efnj í minni
slippinn árið 1937, en var ,þá
neitað og fékk ekki innflutn-
ingsleyfi fyrr en 1939.
Dráttarvagninn sem bilaði
mun, í samráði við vélaeftirlit-
ið, verða styttur töluvert, og
því ekki hægt að taka upp í
honum nema smærri skip.
NMar MHrflr fiMnlar! anar
Vegavinna fyrir aakkrn lialin ani alli land
Vinna við vegagerð er nú hafin fyrir nokkru um allt land.
Eru ráðgerðar allmiklar framkvæmdir í vega- og brúagerð í
sumar. Hefur yfirieitt gengið vel að fá vinnuafl til þessara fram-
kvæmda.
Vjnna var hafin við Krýsu-
víkurveginn um miðjan maí og
er unnið bæði að austan og
vestan. Verður unnið beggja
megin frá með vélum og mun
lögð áherzla á að komast sem
lengst með veginn á þesisu
sumjri, en ólagðir munu nú
vera um 54 km.
Að austan verður í sumar
lagt út Hlíðarhraun og að Sel-
vogsheiði. Að vestan er byrjað
við Grænavatn rétt hjá Krýsu-
vík og haldið áfram þaðan aust
ur í Krýsuvíkurhraun.
Fram að þessu hefur einkum
verið um undirbúningsvinnu
að ræða að vestanverðu, en í
byrjun þessarar viku hófst
vinna fyrir alvöru með 30
manna flokki.
Yfirleitt hefur gengið vel að
fá nægjanlegt vinnuafl til vega
vinnu, einkum á Austurlandi.
Allmargar brúagerðir liggja
fyrir á þessu sumri, en ekki
mun enn fullvst að nægjan-
legt efni fáist til allra hinna
fyrirhuguðu framkvæmda.
Skipafélagið Fold h. f.
Nýtt siglingajélag, Skipafélagið
Fold h.f., var stofnað hér í hœn-
unn lý. apríl s.l.
Tilgangurinn er siglingar og
annar skyldur atvinnurekstur.
Hlutafé er kr. 600.000 og skiptist
í 5 þús. kr. hluti. Stofnendur eru 6.
Stjórn skipa: Óskar Norðmann
kaupm., Rvík, formaður; Geir
Zoega, Hafnarfirði, varaform.;
Baldvin Einarsson, Tungu Hafn-
arfirði, ritari, Framkvæmdastjóri
er Baldvin Einarsson. i
Flugfélag Islands ætlar ðð auka
hlutafé sitt í i mllljónir króna
Á aðalfundi Flugfélag-s íslands s. L þriðjudagskvöld, var
samþykkt að auka hlutafé félagsins úr 1.5 millj. kr. upp í 6
millj. kr.
Flugfélagið hyggst að auka mjög starfsemi sína á næstunni,
bæði hvað snertir innanlandsflug og hefur einnig í hyggju að
taka upp millilandaflug.
Flokkurinn
Deildarfundur verður í 2. deild í
.kvöld kl. 8.30 á veujulegum stað.
6. landsþing Kvenfé-
iapsambands fslands
6. landsþing Kvenfélagasam-
bands íslands var sett í Skíða-
skálanum s.l. mánudag.
Þingið sitja 39 fulltrúar frá 9
samböndum.
Þinginu verður sennilega lokið
næstkomandi föstudag.
Aðalstarfsemi U.l.A. og félaga
þess hefur verið á sviði íþrótta-
mála. Annars er aðstaða til slíkrar
starfsemi mjög óhæg víðast hvar,
vegna strjálbýlis, atvinnuhafta og
húsnæðisskorts.
í ÞRÓITAKE NNARAR.
Fjórir íþróttakennarar störfuðu
á vegum sambandsins s.I. ár. Að-
alkennari var Guttormur Sigur-
björnsson, en aðrir Axel Andrés-
son knattspj'rnukennari, Óskar
Agústsson skíðakennari og Kjart-
an Bergmann glímukennari. Héldu
þeir námskeið á ýmsum stöðum,
og varð af þeim tiltölugóður ár-
angur.
ÍÞRÓTTAMÓT.
Sambandið gekkst fyrir fjórum
íþróttamótum á Austurlandi s.l.
ár. Aðalmót sambandsins var
haldið að Eiðum í byrjun ágúst.
Auk þess var haldið handknatt-
leiksmót kvenna á Eskifirði seint
í ágúst. Varð U.M.F. Austri Eski-
firði, hlutskarpastur. Knattspymu-
mót á Reyðarfirði í september, og
sigraði þar íþróttafélagið Huginn,
Seyðisfirði, í fyrsta flokki, Enn-
fremur gekkst. sambandið fyrir
fþróttamóti í samibandi við fjöl-
þættari hátíðahöld 17. júní
ÝMIS STARFSEMI.
BINDINDISMÁL.
16 félög lögðu stund á leikfimi
og frjálsar í'þróttir að verulegu
leyti. Leikstarfsemi var nokkur.
Örfá félög unnu að skógrækt og
örnefnasöfnun og eitt starfrækti
námsflokka. Samkomúhald hefur
verið allmikið, en uppvöðslusemi
ölvaðra manna veldur nokkrum
áhyggjum, og samþykkti þingið
m. a. eftirfarandi tillögu um bind- i
indismál:
„U.í A, vítir þá notkun áfengis,
sem gert hefur vart við sig á sam-
komum og mótum æskulýðsfélag-
anna víðsvegar um landið. Þingið
telur, að ríkinu beri siðferðileg
skylda til að vernda þjóðfélags-
þegnana og menningarsamtök
landsins fyrir ágangi ölvaðra
manna.
Því skorar fjórða þing U.Í.A.
fastlega á ríkisstjórnina að verja 1
Eimskipafélag íslands hefur
ákveðið að kaupa hluti í Flug-
félaginu fyrir hálfa milljón,
króna, og jafnframt samþykkt
nokkru af ágöða áfengissölunnar
til að halda uppi reglu og ró á al-
mennurn og opmberum sarukom-
um í landinu“.
Ennfremur skoraði þingið á rík-
isstjórnina og bæjarstjórn Seyðis-
fjarðarkaupstaðar, að hætta áfeng-
isverzlun á Austurlandi fyrir fullt
og allt.
FYRIRHUGUÐ GRÓÐRAR-
STÖÐ OG ÍÞRÓTTAMANN-
VIRKI AÐ EIÐUM.
U.Í.A. hefur í hyggju að eignast
land Gróðrarstöðvarinnar á Eið-
um, þar eð starfræksla hennar hef-
ur verið lögð niðúr, og koma þar
upp sambandslieimili með nauð-
synlegum byggingum og íþrótta-
mannvirkjum, meðal annars með
þá hugmynd til hliðsjónar að þar
rísi upp íþróttaskóli fyrir Austur-
land í framtíðinni.
SAMBANDSBLAÐ
Þá samþykkti þingið tillögur
varðandi stofnun sambandsblaðs,
eflingu leik- og söngstarfsemi með-
al félaganna, íþróttamót, þátttöku
í meistaramóti Í.S.Í. og hqndknatt-
leiksmóti íslands, gagnkvæma
samvinnu og fjárhagslegan stuðn-
ing við Skógræktarfélág Austur-
lands o. fl. viðvíkjandi framtíðar-
starfsemi sambandsins.
Þinginu barst heillaóskaskeyti
frá Þóroddi Guðmundssyni, skóla-
stjóra, Reykjane*, en hann var
ritari sambandsins þar til hann
fluttist af Austurlandi s.l. sumar.
Stjórn sam'bandsins skipa nú:
Formaður: Skúli Þorsteinsson,
skólastjóri, Eskifirði.
Ritari: Ármann Ilalldórsson,
kennari, Eiðum.
Gjaldkeri: Þórarinn Bveinsson,
kennari, Eiðum.
Meðstjórnendur:
Gunnar Ólafsson, kennari, Fá-
skrúðsfirði.
Þorvarður Árnason, verzlunar-
maður, Seyðisfirði.
Stefán Þorleifsson. íþróttakenn-
ari, Neskaupstað.
Þinginu lauk siðla dags 13. maí.
Forsetar voru Jóhannes Stefáns-
son og Þónarinn Þórarinsson, en
ritarar Guðmundur Pálsson og
Ármann Halldórsson.
heimild til þess að lána Flug-
félaginu eina milljón króna til
starfrækslu þess. Örn Johnson
framkvæmdastjóri félagsins,
skýrði frá þessu á framhalds-
aðalfundinum.
Starfsemi Flugfél. íslands
jókst allmjög á s. 1. ári og ætti
þessi síðasta samþykkt um hina
stórkostlegu aukningu hlutafjár
þess að verða til þess að ger-
breyta starfsháttum þess í fram
tíðinni.
Á fundinum voru einnig
gerðar nokkrar lagabreytingar.
en þvínæst fór fram stjómar-
kosning og voru þessir kosnir:
Agnar Kofoed-Hansen, Bergur
Gíslason, Guðmundur Vil-
hjálmsson, Jakob Frímannsson
og Richard Thórs. Varamenn
voru kosnir: Jón Árnason fram
kvæmdastj. og Svanbjöm Fn-
mannsson. Endurskoðendur
voru kosnir Magnús Andréssson
og Eggert P. Briem.
Guðmundur Vilhjálmsson hef
ur verið kjörinn formaður
Flugfélagsins. Öm Johnson
flugmaður verður áfram fram-
kvæmdastjóri félagsins.
r
Boðhlaup Armanns
umhverfis Reykja-
vík
Boðhlaup „Áranns“ umhverf-
js Reykjavík fer fram í kvöld
og hefst á íþróttavellinum k!.
20.30.
í hlaupinu taka þátt 3 sveit-
ir, samtals 45 keppendur, frá
þessum þremur félögum: „Ár-
manni“, í. R. og K. R.
Vegalengdin, sem hlaupin er,
er samtals 6750 m„ og verður
endað aftur á íþróttavellinum.
Keppt verður um .Alþýðu-
blaðsbikarinn“, sem í. R. vann
í fyrsta skipti í fyrra. Vinnst
hann til fullrar eignar, ef hann
er unninn þrisvar í röð eða
fimm sinnum samtals. Öllum
er heimill aðgangur.
Vestri, nýtt útgerðar
félag
Nýtt útgerðarfélag, Vestri h.f.,
var stofnað hér í bœnum 27 marz
s.l.
Tilgangur jélagsins er að reka
útgerð með eigin sldpum eða leigu-
skijmm og annar skyldur atvinnu-
relcstur, svo og verzlun með ís-
lenzlcar sjávarafurðir.
Stofnendur eru 4. Hlutafjárupp-
hæð er 50 þús. kr.
Stjórn skipa: Jón Franklín skip-
stjóri, Önundarfirði, formaður;
meðstjórnendur: Þorvaldur Step-
liensen um'boðsmaður og Jón
Kjartansson framkvæmdastjóri. —
Framkvæmdastjóri félagsins er
Sigurjón Sigurðsson.
Starfsemi Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands
Fjórða ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Austur-
lands hófst að Eiðum 12. maí s. 1. Þingið sóttu auk stjómar
samhandsins 30 fulltrúar frá 19 félögum í Múlasýslum, en
alls em í sambandinu 26 félög með 1692 meðlimi. Fjögur
félög hafa gengið í sajmbandið á árinu: Ungmennafélögin
Báran, Berufjarðarströnd, Þjálfi, Mjóafirði, Viðar, Völlum og
skíðafélagið Svanur, Fáskrúðsfirði.