Þjóðviljinn - 21.06.1945, Side 4
ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 21. júní 1945
þJÓÐVILJINN
Útgefandi: Samáningarjlokkiíi alþýSu — SóHalútajlokkurinn.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sig'trður GuSmundsson.
StjórnmálariLUjórar: Emar Olgeirsson, Sigjús Sigurhjartarson.
Ritstjómarskrifstofa: Austíirstrœti 12, sími 2270.
Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19. sími 218i.
Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja: Víkingsprent h.j., GarOastrœti 17.
Þeir ætluðu að koma af stað þriðju
heimsstyrjöldiimi
Það er mikið rætt um það í heiminum, hvort það takist að af-
stýra heimsstyrjöld nr. III. Og það er feðlilegt. -Það er til lítils fyrir
mennina að búa nú út fagrar fyrirætlanir um byggingu verksmiðja og
fbúðarhúsa, um atvinnutæki handa öllum og betri heim og fara að
framkvæma þær, — ef meiningin er að leggja allt í rústir með afkasta-
meiri drápsvélum og eyðileggingartækjum en þeim, sem notuð voru í
þessu stríði. Þá er eins gott fyrir mannskepnuna að skríða niður í jörð-
ina strax og búa sér þar sprengjuhelda hella, til þess að reyna að tóra
næstu tortímingarstyrjöld af.
En baráttan fyrir því að afstýra heimsstyrjöld nr. III er þegar
hafin af fullum krafti. Sú barátta ct ekki aðeins háð í San Francisco
með því starfi, sem Iagt er fram tii þess að skapa öryggisstofnunina.
Hún er líka háð í réttarsölunum í Moskva sem stendur.
Aður en heimsstyrjöldin nr. II hófst, sem nú er lokið í Evrópu,
var lfka háð barátta til þess 'að afstýra þeirri skelfingu. Sú barátta
var eigi aðeins háð af þúsundum manna mn allan heim og t. d. af
utanríkisráðherra Sovétríkjanna, Litvinoff, í Genf. Hún var líka háð
í réttarsölunum í Moskvu 1936 og 1937, þegar verið var að uppræta
fimmtu herdeildina í Sovétríkjunum, sem átti að tryggja sigur Hitlers
í stríði við þau, líkt og fimmta herdeild hans í Frakklandi og víðar
tryggði honum sigurinn. Þá skildu fáir gildi þeirra réttarhalda, þótt
fjöldmn skilji þau nú.
Nú er í Moskva verið að fella dóminn yfir þeim pólsku fasistum
eða erindrekum fasista, sem ætluðu að koma þriðju heimsstyrjöldinni
af sLað í kjölfar þeirrar, er nú Iauk.
Pólverjarnir 16 eru sannir að því að hafa háð baráttu gegn rauða
hemum með ýmsu móti og það eftir fyrirmælum pólsku stjómarklfk-
unnar í London. Þessi pólska stjórnarklíka er nú sönn að því að hafa
ætlað sér raunverulega styrjöld gegn rauða hernum, — með aðstoð
þýzka hersiws, ef hægt væri að ná slíkum samningum, — og svo langt
hefur hún gengið í blindu sinni og ofstæki, að hún hefur m. a. s. búizt
við liðveizlu brezkra og amerískra herja, — m. ö. o.: ætlað sér að
koma af stað heimsstyrjöld, til þess að viðhalda veldi fasismans og
landaðalsins í Póllandi.
Fyrirætlanir þessara ofstækismanna eru nú runnar út í sandinn.
Pólska fa'sista'klíkan í London og erindrekar hennar eru nú berir að
því að hafa ætlað sér að koma af stað þriðju heimsstyrjöldinni nú
þegar, — en það heftir strandað á því að stórveldin þrjú standa vörð
um friðinn, sem fenginn er eftir allar þessar fómir.
En það mun engan undra það hér heima, þótt Alþýðublaðsklíkan
Qg Timinn standi með þessum fasistum. Einmitt þessi blöð hafa heimt-'
að stríð Bretlands og Bandaríkjanna gegn Sovétríkjunum — og hafa
fram á síðustu stund lifað í þeirri v.on að sú versta hrakspá, sem fjend-
ur mannkynsins geta spáð því, rættist. — Vonbrigðin eru því skiljanleg.
Samfylking kaupmanna og kaupfélaga
Ritstjóri Samvinnunnar hefur sem kunnugt er Iagt á það mikla
áherzlu, að takast yrði samvinna milli kaupmanna og kaupfélaga, til
þess að berjast gegn þeim samvinnumönnum, sem að'hyllast sósíalism-
ann. Þessu samfyíkingarboði virðist vera vel tekið a'f kaupmönnum,
enda ekki illa boðið frá þeirra sjóriarmiði séð, þeim er hvbrki meira né
minna en boðið að stuðla að sundrungu meðal samvinnumanna til þess
að veikja kaupfélögin og gera þau að þróttlitlum keppinautum. Er ekki
von að þeir táki boðinu?
Á Siglufirði gengur kaupmaðurinn Sigurður Kristjánsson fram fyrir
skjöldu. Hann tekur boði Samvinnunnar, gerir bandalag við nokkra
Jónasar-dindla í. kaupfélaginu til þess að vekja þar sundrung og deilur.
Svo langt gengur hann með lið sitt að það hvggst að brjóta í senn lög
félagsins og landslög til að ná völduin i félaginu.
Þessari samfylkingu kaupfélagsfjandnianna hefur nú verið svarað
á réttan hátt, þeim hafa verið sýndár dyr þess félags sem þeir ætluðu
að eyðileggja.
HÁLFAN FÓR £G HÓLMANN UM KRING. —Pólitísk ferðasaga ^V. —
Frá Fáskrúðsfirði
Að afliðandi óttu aðfaranótt
sunnudagsins 6. maí eru landfest-
ar leystar. ,,Esja“ sígur frá
bryggju, snýr við „á punktinum“
og þýtur út Fáskrúðsfjörðinn í
dumlbungslegu hægviðri. Þarna
liggnr Andeyjan, lág og gróin, og
minnir helzþá risavaxinn krókódíl,
marandi í fjarðarmynninú. Fram
undan grilfir í Skrúðinn, lukinn
hálfgagnsæju húmi og skolgrárri
slæðu Austfjarðaþokunnar. —
Nokkru norðar liggur Seley. Það-
an reru sjómenn frá ýmsum stöð-
um við Reyðarfjörð til fiskjar um
langan aldur, einkum var þó það-
an stunduð hákarlaveiði mikii.
Hefur' hinn merki fræðaþulur, Ás-
mundur Helgason frá Bjargi við
Reyðarfjörð, ritað mjög ýtarlega
frásögn af ,.útilegunum“ í Seley,
og eigum við Austfirðingar þess-
um aidna afliragðsmanni mikið
upp að inna fyrir að hafa forðað
frá gleymsku ýmsum fróðleik um
líf og starf forfeðra okkar. Er það
von mín, að þessi heillakarl okkar
haldi sínu merka menningarstarfi
áfram, meðan honum endist aldur
og heilsa. Sýna þessag lýsingar Ás-
inundar, að oft hefur vermönnum
í Seley verið vistin erfið og dauf,
og ber sízt að harma, þó að slíkir
atvinnuhættir þoki fyrir öðrum
hagkvæmari og hættuminni. En
oft hefur þar einnig verið glatt á
Hjalla, og vona ég, að Ásmundur
stefni mér ekki fvrir steinbitsrétt,
þó að ég steli hér smákafla úr þess-
ari frásögn haris:
,,Eins og eðlilegt er með smá-
eyju úti í hafsauga, komu þar
margir landlegudagar. Voru menn
þá að skemmta sér og iðka ýmsar
iþróttir og leiki, svo sem glímur,
höfrungahlaup, reiptog, krók, kefli
o. fl. Einnig voru lesnar sögur og
kveðnar rímur, ef raddmenn voru
til þess. Þar var oft gleðs'kapur
mikill og fjörugt líf, sem ekki var
að undra, þar sem voru saman
.komnir um 60 inenn á léttasta
skeiði. Páll Ólafsson, skáld, gaf
stutta en gagnorða Iýsingu af Sel-
evingum í bréfi til kunningja síns:
„Skrúðurinn er sœlusjón að sigla kriuj;um,
og rnargt er sagt al' Seleyingum.
að )>eir séu að sér bezt í Andrarímum,
og boli mest í bætndaglímum.
Sumir eru sagðir nokkuð sopafengir.
en gestrisnir og góðir drengir".
Frásögn gamla mannsins er bæði
vísindaleg og fjörleg. Ættu Aust-
firðingar að sjá sónia sinn í því að
heiðra þennan aldna heiðursmann,
áður en hann er gonginn til íeðra
sinna.
í norðri gnæfir Gerpir, útvörð-
ur íslands í austri, en á bakborða
rís Reyður, sem Reyðarfjörður ber
nafn af. Fjallsnafnið Reyður er
þannig til komið, að til að sjá er'
það lí'kast því sem sjái á bak reyð-
arhval, er slær upp sporðblöðk-
unni. Néfniát blöðkuendinn Hala-
klettur og er kunnur þeim, sem
Ijóð lesa, úr kvæði Jóns Ólafsson-
ar, skálds, er hann orti um yfir-
seturnar á bernskustöðvum sínum,
Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði:
„Halaklett ég upp komst á,
ennþá koman þar mig gleður,
þá var bjart og bezta veður,
út um hafið allt ég sá,
sá á Papey suður þá,
eygði svo í einum svip
fjörutíu franskar duggur,
fimmtán róðrarskip".
Hefur þá verið fjörugt fiskilíf við
Austfjörðu sem annars oft.
Skömmu eftir dagmál er „Esja“
lögzt að bryggju á Reyðarfirði. Á
Reyðarfirði er Kaupfélag Iléraðs-
búa. Það er orðið risavaxið fyrir-
tæki og jafnvel ennþá meiru ráð-
andi á Reyðarfirði en K. E. A. á
Akureyri, og er þá mikið sagt. Ég
hfeld, að það séu hreint engar ýkj-
ur, þó að sagt sé, að nú í dag
snerti starfsemi kaupfélagsins að
einhverju leyti lif hvers einasta
manns, sem á Reyðarfirði býr. Þar
með er þó ekki sagt; að atvinnu-
líf þorpábúa falli með kaupfélag-
inu, þó að það standi að mjög
miklú Feyti með því eins og nú
hagar til, því að þetta er staður
mikilla möguleika. En ef kaupfé-
lagið væri horfið á braut. þyrfti þó
margar og dýrar breytingar eða ný
fyrirtæki til að skapa þar blóm-
legt atvinnulíf. Meginkostir Reyð-
arfjarðar eru þessir: Þar eru all-
góð skilyrði til rafvirkjunar, og
mætti því hugsa sér, að þar gæti
blómgazt ýmiss konar iðnrekstur,
þegar næg raforka væri fengin.
Ræktun er nokkur umhverfis
kauptúnið, einkum inn af firðin-
um, og ræktunarmöguleikar eru
afar miklir. Enn fremur má telja
þar góða aðstöðu til stórútgerðar
að því leyti, að þar eru hafnar-
skilyrði ágæt. En útgerð smærri
vélibáta, sem stunda dagróðra, er
'hins vegar að því leyti óhentug, að
fjarðarstím er þar ákaflega langt,
eins og raunar víðar á Austfjörð-
um. Það er af þessu sýnt, að á
Reyðarfirði eru öll höfuðskilyrði
fyrir hendi, til þess að þar gœti í
framtíðinni risið upp blómlegt
sjávanþorp, og það er kannski ein-
mitt það, sem Reyðfirðingar hugsa
sér að stefna að, því að þeir hafa
nú þegar fest kaup á einum Sví-
þjóðarbátanna. Það er því með
hálfum hug, að ég áræði að koma
fram með tillögur, sem hníga í allt
aðra átt:
Hið risavaxna kaupfélag á
Reyðarfirði heitir ekki Kaupfélag
Reyðfirðinga, heldur Kaupfélag
Héraðsbúa, og það er algert rétt-
nefni, því að vöxtur þess og við-
gangur er fyrst og fremst háður
verzlun með markaðsvörur bænd-
anna á Fljótsdalshéraði og Öorum
viðskiptum við þá. Hingað til hafa
bændur á Héraði rekið nær allt
sitt fé niður á Reyðarfjörð til slátr-
unar, og er að því mjög mikið ó-
hagræði fyrir þá alla, og fyrir þá,
sem lengst eiga að, má slíkt heita
frágangssök, þó að ill nauðsyn hafi
knúið þá til þess hingað til. Nú er
alveg sýnt, að á Fljótsdalshéraði
mun í framtíðinni rísa upp lang-
stærsta byggðaihverfi á Austur-
landi og eitt hið stærsta á öllu
landinu. Og þá virðist eðlilegast,
að Kaupfélag Héraðsbúa flytji að
lajjgmestu leyti núverandi starf-
semi sína í hinn nýja landibúnað-
aribæ, sem sennilega mun verða í
Valla- og Eiðahreppum á Fljóts-'
dalshéraði. Þá myndu að minnsta
kosti flestir þeir, sem teljast fastir
starfsmenn kaupfélagsins, færa sig
um set, frá Reyðarfirði og upp á
Hérað. En það fólk, sem jafnhliða
ýmiss konar landbúnaðarvinnu
hefur stundað daglaunavinnu hjá
kaupfélaginu, yrði að styrkja til
þess að nema land í hinum nýja
landbúnaðarbæ á Héraði, ef það
vildi taka þátt í uppbyggingu hans.
Auðvitað yrði hinn nýi landbún-
aðaibær byggður eftir fyrirfram
gerðri áætlun og skipulagi, en ekki
áf handahófi umhverfis einhverja
götuslóða eða krákustígi, svo að
þar yrði langtum skemmtilegra og
haganlegra að setjast að heldur en
í krákustígslþorpskrípunum, sem
foreldrar okkar tóku þátt í að
mynda vegna síldargangnanna
fyrir tæpum mannsaldri síðan.
Þá er vitað, að nú þegar sam-
göngur við önnur lönd færast. í
heilbrigt horf og viðskipti við
Evrópu aukast stórum, verður á
Austurlandi, sem í öðrum lands-
fjórðungum, ein aðalumhleð'slu-
höfn. þar sem vörum úr þeim skip-
um, er sigla milli landa, verður
skipað upp 4til dreifingar með
smærri skipum i eða bifreiðum til
hinna ýmsu hafna og ^veita. Hér
á Austfjörðum er Reyðarfjörður
ekki aðeins líklegastur sem urn-
hleðsluhöfn, heldur liinn eini stað-
ur, sem til mála getm- koinið, ef
h rá Egilsstöðum á Vóllum. Ilér um slóðir mun byggðahverfið
rísa upp. Laggrfljót til vinstrí. (Ljósm.: Svcinn Guðnason).
Eftir Einar Braga Sigurðsson
\ ■ '
til Eskifjarðar
Reyðarfjörður. (Ljósm.: Sveinn Guðnason).
skynsemin verður látin ráða, þar
eð hann liggur bæði bezt allra
þorpanna við hinum kauptúnun-
um og er auk þess eini staðurinn,
sem getur allt árið staðið í vega-
sambandi við aðallandbúnaðar-
svæðið austan lands, Fljótsdals-
héraðið.
Þegar Reyðarfjörður væri orð-
inn umhleðsluhöfn. myndi skap-
ast þar mikil vinna við upp- og út-
skipun og vörudreifingu, svo að
þeir, sem staðinn byggja, ættu að
geta komizt hér vel af. þó að starf-
semi kaupfélagsins yrði að mestu
leyti flutt upp á Hérað og ekki
yrði að því stefnt að gera Reyðar-
fjörð að útgerðarstöð.
Ég þykist vita, ef ég þekki
mannfólkið rétt í höfuðdráttum,
að einhver muni kofna með þá at-
hugasemd, að það væri hæpin ráð-
stöfun að flytja núveraridi starf-
semi kaupfélagsins upp á Hérað,
þar eð það hafi nú þegar lagt stór-
fé í ýms mannvirki á Reyðarfirði,
scm þá yrðu verðlaus eign. Og nú
mun einkum verða bent á hið ný-
byggða og stóra verzlunarhús, sem
sennilega hefur kostað nokkur
hundruð þúsund krónur. Hér er
okkur hollt að hugleiða eitt. þjóð-
hagsatriði: Er það heilbrigt sið-
gæði að láta eitt hús ráða heill
heils bvggðarlags um langa fram-
tið? Nei, það er þjóðfélagslegt sið-
leysi eða með öðrum orðum stcin-
runnin franxsóknarforneskja í við-
horfi til atvinnuhátta.
Eri hér er því alls ekki til að
dreifa, að eignir Kaupfélags Hér-
aðríuia á Rcyðarfirði þvrftu að
falla neitt í verði vegna þessara
ráðstafana. Þegar Reyðarfjörður
væri orðinn umhleðsluhöfn fyrir
Austurland, þyrfti þar mjög mikl-
ar vöruákemmur, og. er vafasamt,
að geymsluihús kaupféélagsiris
myndu hrökkva til þeirra nota.
Enn fremur myndi skipaafgreiðsl-
an þurfa á talsverðu húsnæði að
halda fyrir skrifstofur o‘. fl. Þá
myndi tollgæzlan hér stórum auk-
ast og þurfa talsvert húsnæði til
umráða. Og auk þessa yrði kaup-
félagið alltaf að hafa nokkra starf-
semi niðri á Reyðarfirði. þar eð
vörum þess yrði eftir sem áður að
mestu skipað þar upp og út, og
það myndi sennilega einnig hafa
sénstakt útibú á Reyðarfirði. Er
því sýnt, að skipaafgreiðslunni,
tollgæzlunni og kaupfélaginu
myndi áreiðanlega ekki veita gf
hinu nýja húsi kaupfélagsins fyrir
starfsemi sína.
Ef mínurn ágætu grcinnum,
Reyðfirðing.um, kynni að finnast
ég hafa unnið mér til algerrar ó-
helgi fvrir að koma fram með til-
lögur að slrkri gerbyltingu í lífi
þeirra, bið ég þá að láta sér ekki
yfir það sjást, að ég ympra á þessu
í fnllri viðurkenningu þess, að
Reyðarfjörður hefur flest hin
prýðilegustu skilyrði til þess að
\ erða veglegur stórútgerðarbær, ef
hentara þætti.
En ég þori þó ekkert undir þeim
að eiga í bili. því að einmitt vegna
þess, að þeir em taldir dagfars-
góðir hæglætismenn og h'tt 'fyrir
býltingar allar, get ég búizt við
pústrum og ætla því að forða mér
á næsta fjörð. Hér er líka kominn
18 manna bíll, sem ætlar að flytja
okkur út á Eskifjörð. Og hver
haldið þið að eigi þennan bíl? Auð-
vitað Kaupfélág Héraðsbúa.
*
Við ökum af stað út með firð-
inum. Brátt erum við komin út
undir hið forna prestsetur, Hólma
í Reyðarfirði. Hér •fæddist skáldið
og lærdómsmaðurinn mikli. Gísli
Brynjólfsson. En frægari munu þó
Hólmar sennilega af þjóðsögunni
um prestsdótUirina, sem bergnúm-
in var af bóndanum sem í Skrúðn-
uni bjó. Hefur þessi þjóðsaga unn-
ið mörgum öðrum meiri vinsældir
Hólmamir, sem prestsetrið er við kennt. Myndin er tekin
sunnan í Hólmahálsi út fjörðinn. (Ljósm.: Sveinn Guðnason).
Hafa jieir einir
vaidið og réttinn?
Framhald af 2. siðu.
kenna á hinni takmarkalausu
fyrirlitningu, sem vissir fjár-
aflamenn geta sýn.t þeim sam-
borgurum sínum, sem þeir telja
sig ekki hagnast nóg á. Auðvit-
að kvað hann bílstjórann, sem
við fjögur áttum skipti við, hafa
í öllu farið eftir sínum fyrir-
mælum, og ég undraðist, að
hann skyldi ekki heimta af okk-
ur gjald fyrir að fara með tösk-
ur okkar vestur að Staðarstað.
Voru öll tilsvör Helga þessa
þannig, að enginn Steindór hefði
getað sýnt mannvöru þeirri, sem
við hann eiga skipti, óduldari
fyrirlitningu. en Helgi gerði, né
látið betur skína í stórmennsku
þess, sem einn hefur valdið og
réttinn.
Arnfinnur Jónsson.
Arnessýsla gefur
vinnulieimili SÍBS
5000 krónur
Sýslunefnd Árnessýslu ákvað á
síðasta sýslufundi að gefa Vinnu-
heimili S.Í.B.S. 5000 krónur.
Stjórn Vinnuheimilisins flytur
íbúum Árnessýslu beztu þakkir
fyrir þennan rausnarlega stuðning
við Vinnuheiinilið.
með þjóðinni og orðið ýipJsum af
skáldum hennar hugljaift yrkisefni.
Náfn sitt dregur prestsetrið af
hólmum nokkrum skammt undan
landi. Eru fjölmörg örnefni á þess-
um slóðum af þeim dregin:
Hólmatindur nefnist hátt og
tígulegt fjall milli Reyðarfjarðar
og Eskrfjarðar, og er hann einn
reglulegasti blágrýtistindur á land-
inu. Hólmanes heitir nesið,, sem
skilur firðina, og á því er allstór
hraunborg, sem heitir Hólmaborg.
— Bílvegurinn milli Reyðrir-
fjarðar og Eskifjarðar liggur yf-
ir lágan. en brattan háls, sem
nefnist Hólmaháls. Þaðan er for-
kunnarfögur útsýn yfir Reyðar-
fjörð og Éskifjörð og út um þá
allt til hafs. Er þar einn bezti sjón-
arhóll. sem ég hef stigið á í þessu
unaðsfagra landi. A Hólmahálsi er
leiði völvu nokkurrar, sem á að
hafa ltáið leggja bein sín þar með
þeim ummælum, að meðan eftir
væri af þeim nokkur ófúin flis,
skyldi engum auðnast að fara um
Reyðarfjörð með ránum. A þetta
að hafa farið c-ftir, er Tvrkir fóru
um Aust'fjörðu með ránum á öncl-
verðri 17. Öld. Þeir rændu suður-
firðina. en er þeir komu í mynni
Reyðarfjarðar, rak á rok svo mik-
ið af norðvestri, að þeir urðu frá
að hverfa, og sluppu Reyð'firðing-
ar allir við vágest þann. Og enn
þá virðist eitthvað ófúnað af bein-
unl þeirrar gömlu, því að nú á
stríðsárunum bar hér þýzka flug-
vél að garði, en hún rakst á fjall
skammt upp af Krossanesi út við
mynni fjarðarins að norðan og
fórst þar, og er lítt að efa,sað kella
muni hafa varnað henni inngöngu
og búið áhöfninni þar aldurtila.
Héðan af Hólmahá'Isinum blasir
hinn margrómaði Eskifjörður við
,-jónum, og er hlaðspretturinn f'ljót-
runninn.
(Meira).
Hreppsstjórinn á
Hraunhamri
Framh. af 3. síðu.
Valg. Óli Gíslason. Gervi hans
er gott, en heldur fer hanr.
dauflega með hlutverkið.
Þorbjörg Magnúsdóttir leikur
hreppstjóradótturina, Eyrúnu,
sem hefur dvalizt á kvenna-
skóla í Reykjavík og flekast
nokkuð af glaumnum. Herbert
Holt, slæpingsbraskara og
kvennaflagara, sem téygir
heimasætuna til fylgislags við
sig í þeim tilgangi að lokka fé
út úr föður hennar, leikurHelgi
Hjálmtýsson.
Kaupamaður er á heimilinu
á Hraunhámri, sem Bergur heit
ir og hafði verið í þingum við
Eyrúnu, áður en Holt kom til
sögunnar. Berg leikur Sigurður
Kristinsson. Þá er aðeins ótalin
Stella Strömviken, bamsmóðii
Herberts Holt, síðar lauslætis-
drós eða ,,bransa“-dama og lok.-.
unnusta Bjarnþórs um stundar-
sakir. í leikslok ná þau saman
Herþert og Stella, og virðist
fara vel á því: Herbert stundar
heildsölu, en Stella „hefur Iítil-
lega fengizt við smásölu“. El-
inborg Magnúsdóttir fer með
hlutverk Stellu og gerir það á
margan hátt ágætlega.
Annars verður að segja þi
sögu eins og hún er, að bæði
leikritið og meðferð leikaranna
á því er nær gersnevdd öllu líst
bragði, en þrátt fyrir allt þart
enginn að sjá eftir tíma til að
horfa á leikritið eina kvöid-
stund, því að manni getur óvíða
betur liðið en í hinu prýðisgóða
leikhúsi í Hafnarfirði.
Einar Bra-gi.
Þjóðhátíðin
Framhald af 2. síðu.
Seyðisfjörður
Hátíðahöldin á Seyðisfirði
hófust með skrúðgöngu barna
og íþróttafólks kl. 1.50, var
gengið í kirkju, þar prédikaði
sr. Erlendur Sigmundsson.
Að guðsþjónustu lokinni var
gengið á hátíðasvæðið. Þar
fluttu ræður Jóhannes Am-
grímsson sýsluskrifari og E>
lendur Bjömsson bæjarstjóri.
Fimleikaflokkur karla úr
Huginn, undir stjórn Björns
Jónssonar sýndi fimleika.
Stúlknaflokkar; stúlkur úr
Huginn, kepptu í handknatt-
leik.
Síðast fór fram reipdráttur
milli landmanna og sjómanna:
sjómenn unnu.
Dansleikur hófst í bamaskól-
anum kl. 9 um kvöldið og stóð
langt fram á nótt.
Veður var frekar slæmt um
daginn, rigning öðru hvoru og
stundum nokkuð mikil.
Fimmtúdagur 21. júní 1945 — ÞJÓÐVILJINN
Samúdarhort
Slysavamafélags íslands
kaupa flestir.
Fást hjá slysavamadeildum!
!um allt land, í Reykjavík af-!
Igreidd í síma 4897. 1
Mannpekking
Þjóðviljanum hefur borizt mikil bók eftir Símon Jóhann
Agústsson, er hann nefnir Mannþekkingu. í formála bókarinnar
segir höfundurinn: „í bók þessa hef ég valið nokkur erindi, sem
ég hef flutt á undanfömum árum á kennaranámskeiðum í Ha-
skóla Islands ... Þau f jalla öll um gagn það, sem sálarfræðin
veitir okkur í umgengni við aðra meim og í viðleitni okkar til
betri sjálfsstjórnar. Því hef ég valið ritinu heitið Mannþekking.
Bókin er ætluð almenningi til lestrar, en jafnframt vona ég,
að kennaraefni og stúdentar geti haft hennar not við nám“.
Bókin er í átján köflum, og heita þeir svo: Inngangur, Dul-
vitund, Sefjun, Dáleiðsla, Sálgerðir, Gáfnapróf og hæfileika-
könnun, Nám, Starf og þreyta. Stöðuval, Andleg heilsuvemd,
Vani, Andstæður í sálarlífi manna, Ótti, Reiði, Karl og kona,
Maður og múgur, Áróður.
Símon Jóh. Ágústsson er öllum landslýð löngu kunnur sem
merkur visindamaður og rithöfundur og einkum þó af útvarps-
erindum sínum. Er þvi hiklaust óhætt að hvetja fólk til að
kaupa þessa bók og lesa sér til gagns og ánægju.
Útgefandi er Hlaðbúð í Reykjavík og er þessi bók hin fyrsta
í flokki fræðirita, sem Hlaðbúð hyggst að gefa út undir nafninu
Hugur og heimur, og mun flokkurinn „birta alþýðlegar greinar-
gerðir um þau efni, sem efst eru á baugi í vísindum, listum og
hugsun samtíðarinnar“.
Bókar þessanar mun getið nánar hér í blaðinu síðar.
Listamannaskálinn
er til leigru í sumar til alls konar sýninga, funda-
halda og skemmtana.
Allar nánari upplýsingar í Listamannaskálanum
frá kl. 3—6 daglega. — Símar 6369 og 3607.
^vn^wvrwrwpwwvwwwwn wvvnwvnwvrwvnwvrwvrknwvwrvrtarwvrvvrvwvPwrwvryvsrvrw-
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
Ragnar Ólafsson
Hæstaréttarlögmaður
og
löggiltur endurskoðandi
Vonarstræti 12, sími 5999.
Skrifstofutími 9—12 og 1—5.
»
Daglega
NV EGG, soðin og hrá
Kaffisalan
HAFNARSTRÆTI 18.
Lúðrasveitin Svanur leikur í
Hljómskálagarðinum i kvöld kl 'J
ef veður leyfjr. Stjórnandi: Karl O.
Runólfsson.
Hjónaband. Á laugardaginn voru
gefin saman í hiónaband af séra
Jóni Thorarensen ungfrú Oddn>-
Friðrikka Ingimarsdóttir frá t>órs-
höfn og Jóhann Friðriksson, feld-
skeri frá Efri-Hólum í N.-Þing.
FÉLAGSLlF
Ferðafélag íslands
fer skemmtiför að Gullfoss
og Geysi næstk. sunnud.
Lagt á stað kl. 8 árdegis
frá Austurvelli. Komið
verður að Brúarhlöðum.
Sápa látin í Geysi og
reynt að ná fallegu gosi.
í bakaleið ekið austur fyr-
ir Þingvallavatn til Reykja
víkur. Farmiðar seldir á
föstudag og til hádegis á
laugardag á skrifstofu Kr.
Ó. Skagfjörðs, Túngötu 5.
Ferðafélag íslands
Fyrsta sumarleyfisferð
félagsins hefst 30. júní og
er það 9 daga ferð norður
í land. Komið verður á
alla merkustu staði, svo
sem að Mývatni, Dettifossi,
Ásbyrgi, i Axarfjörð, að
Hólum í Hjaltadal og víð-
ar.
Áskriftarlisti liggur
frammi á skrifstofu Kr. Ó.
Skagfjörðs, Túngötu 5 og
séu farmiðar teknir fyrir
27. þ. m.
Ungmennafélag Reykjavíkui
Kaffikvöld verður annað
kvöld kl. 9 i. Bröttugötu 3.
Félagar mega hafa með
sér gesti. Sérstaklega er
óskað eftir að þeir sem
fóru í skemmtiferðina
komi.
Stjórnin.