Þjóðviljinn - 23.06.1945, Qupperneq 1
10. árgangur.
Laugardagnr 23. júní 1945.
138. tölublað.
VILIINN
t----------------------
FANGABÚÐIR DAUÐANS
nefnist grein eftir Willi-
am Bust, ritstjóra Daily
Worker, sem birt er á 4.
síðu blaðsins í dag.
______________________*
Kommúnísfarniir Johan Sfrand Johansen og Kersfín
Hansfeen eíga sæfs í nýju norshu sfíórnínni
Einar Gerhardsen, hinn ungi og ötuli leiðtogi norska
Verkamannaflokksins, hefur nú myndað fyrstu ríkis-
stjórnina á norskri grund eftir frelsun landsins.
Gerhardsen lagði ráðherralista sinn fyrir konung í
gær. Samkvæmt fregnum frá Norsk Telegrambyrá eiga
fimmtán ráðherrar sæti í stjóminni, sex úr Verka-
mannaflokknum, tveir úr Kommúnistaflokki Noregs,
og sjö samtals úr Hægri flokknum, Vinstri flokknum og
Bændaflokknum.
Kommúnistarnir í stjóminni em Johan Strand
Johansen, Osló, verkamálaráðherra, og frú Kerstin
Hansteen ráðherra án sérstakrar stjómardeildar, —
ekkja Viggo Hansteens hæstarréttarlögmanns, sem naz-
istar myrtu. Hún er fyrsta konan sem gegnir ráðherra-
embætti í Noregi.
Önnur ráðherraembætti eru
þannig skipuð:
Trygve Lie utanríkisráðherra,
Oscar Torp Iandvarnarráðherra,
Lars Evensen verzlunarráðherra.
Kaare FostervaM kirkju- og
kennslumálaráðhcrra, Sven Offe-
dal félagsmálar'áðherra (allir úr
Verkamannaflokknum), Gunnar
Jahn (vinstri) fjármálaráðherra,
Johan Cappelen (hægri) ,dóms-
málaráðherra, Egil Offeniberg
birgðamálaráðherra, Tör Skjöns-
berg siglingamálaráðherra, , Arne
Rostad landbúnaðarráðherra, H.
J. Gabrielsen og Conrad Bonnevie
Svendsen ráðherrar án sérstakrar
stjórnardeildar.
Elestir ráðherrarnir í hinni nvju
stjórn eru leiðtogar heimavíg-
stöðvanna.
Morgenbladet í Osló segir m. a.
að fáir þekktir og virkir stjórn-
málamenn taki sæti í nýju stjóm-
inni, en flastir ráðherranna séu úr
hópi þeirra, sem á hernámsárunum
urðu að taka á sig stjórnarstörf og
ábyrgð.
Um fcrrsætisráðherrann Einar
Gerhardsen segir blaðið, að hann
hafi ekki tekið mikinn þátt í
stjórnmálum opinberlega fyrir
stríð, en hið einstæða framlag hans
í stjórn baráttunnar á heimavíg-
stöðvunum valdi því, að alþjóð
muni með trausti og ánægju taka
hann sem forsætisráðherra.
Ráðstefna ind-
verskra stjórnmála-
manna að hef jast
Sir Archibald WaveU, landstjori
Breta í Indlandi, er lagður af stað
frá Delhi tU Sivúa, þar sem ráð-
stefna hans og indverskra stjóm-
málamanna á að hefjast á mánu-
dag.
Aður en ráðstefnan hefst, mun
Wavell ræða við Gand'hi og Asad,
San Franciscoráð-
stefnunni að ljúka
með samliomuagi um
nýtt þjóðabandalag
A mánudaginn munu fuUtrúar
fimmtíu þjóða undirrita í San
Francisco sáttmála saviemuðii
þjóðanna um hið nýja þjóða-
bandalag, er tryggja á að friður
haldist.
Gert er ráð fyrir að þegár að
þeirri athöfn lokinni slíti Truman
Bandaríkjaforseti San Francisco
ráðstefnunni með ræðu.
Framkvæmdanefnd sú, er ráð-
stefnan mun kjósa hinni nýju ör-
yggisstöfnun mun hafa aðsetur
sitt í London, a. m. k. þar til rík-
isstjórnir og þing þeirra landa sem
fulltrúa eiga á ráðstefnunni hafa
lagt fullnaðarsamþykkt' á gerðir
hennar.
Alyktun ráðstefnunnar um að
útiloka ríkisstjórnir, sem hafa
komizt til valda fyrir hjálp öxul-
ríkjanna, hefur komið illa við fas-
istastjórn Francos á Spáni, sem
reynir nú með yfirlýsingum að
breiða yfir samband sitt og þjón-
ustu við Hitlers-Þýzkaland.
tvo af helztu leiðtogum Kongress-
flokksins.
Kongressflokkurinn hefur sam-
þykkt ályktun þar sem lýst er á-
nægju með störf San Francisco-
ráðstefnunnar, og áherzla lögð á
að afnema verði siðustu leifar
heimsvaldastefnunnar í alþjóða-
viðskiptum.
im sfðostu lilfem eazismens
Nontgomery telur hættu á hungursneyð í hýzkalandi
Berlínarútvarpið tilkynnti í gær að Konunúnistaflokkur
Þýzkalands og þýzki Sósíaldemókrataflokkurinn hafi komið sér
saman um samstarf til þess að uppræta nazismann í Þýzkalandi.
Er ætlun flokkanna að mvnda lýðræðisbandalag á breiðum grund •
velli og safna að sér öllum lýðræðisöflum þýzku þjóðarinnar.
Montgomery hershöfðingi |
skýrði svo frá í ræðu sem hann
hélt í gær, að bannið við því að
vingast við Þjóðverja yrði enn
í gildi nokkum tíma. Háttset;-
ir þýzkir hershöfðingjar yrðu
einangraðir og þeirra stranglega
gætt, og stormsveitarmenn
yrðu sennilega hafðir 1 fangelsi
um tuttugu ára skeið. Nákvæm
ar gætur yrðu hafðar á þýzkum
hermönnum, sem nú er verið
að senda heim.
Montgomery sagði að hæt :a
væri á hungursneyð í Þýzka-
landi í vetur, en allt hugsanlegt
yrði gert til að afstýra hörm-
ungum. Mikill fjöldi þýzkra
stríðsfanga hefðu verið leystir
úr haldi* og ynnu nú landbún-
aðarvinnu og í kolanámura.
Miklir erfiðleikar væru á flutri-
ingum, t. d. væri víða tilfinn
anlegur kolaskortur en í Ruhr
lægi nóg af kolum, sem ekki
kæmist þangað sem þörf væri
fyrir það.
Talið er að Rínarfljót verði
að fullu skipgengt á ný 1 sept-
ember 1 haust.
\
HERNÁMSSKIPTING
ÞÝZKALANDS FRAM-
KVÆMD 0
Brezk hernámsyfirvöld tóku í
gær við borginni Köln, af Banda-
ríkjamönnum.
Sovéther er í þann veginn að
taka við stjórn alls hernámssvæð-
is síns í Þýzkalandi.
Brezkar og bandarískar liðs-
sveitir eru væntanlegar til Berlín-
ar.
Ástralskur her í inn-
rás á Sarawak
Astralshur lier hefur gengið í
land á Sarawak á norðurströnd
Borneás, um 100 km suður af
Brunei, án þess að mótspyrna vœri
veitt. Tóku Astralíumenn olíu-
hreinsunarstöðvar skammt frá
ströndirmi og sœkja hratt inn í
landið)
Saraicak á að heita sjálfstcett
riki, en er undir brezkri „ve.rnd1.
Loftárásirnar á aðalstöðvar
japanska hergagnaiðnaðarins halda
áfram með vaxandi þunga. í gær-
morgun gerðu 450 risaflugvirki
harðar árásir á fimm japanskar
iðnaðaiborgir og flotastöðvar, með
miklum árangri.
Á Okinava eru bandariskar
veitkfræðingasveitir önnum káfnar
við byggingu flotahafnar og flug-
haifna til undirbúnings stórárás-
um á heimaland Japana.
Áttundi bandariski flugherinn,
sem verið hefur í Evrópu, verður
nú sendur til Austur-Asíu-víg-
stöðvanna. Doolitle hershöfðingi,
sá er stjórnaði fyrstu loftárásinni
á Tokyo. er kominn til Asíu-víg-
stöðvanna.
r
I kvöld hefst á Þingvöllum Jónsmessumót Sósíalistafélaganna og Æskulýðsfylkingarimiar
Enginn reykvískur sósíalisti, sem með nokkru móti kemst >úr bænum þessa helgi, má missa af kvöldvök-
unni á Þingvöllum í kvöld og fjölbreyttum skemmtunum á Jónsmessumqtinu á morgun.
Þátttakan er orðin mikil, og er vissara að panta fyrir hádegi í dag ef menn ætla að komast í kvöld, i
síma 4757 eða 4824 (eftir hádegi aðeins í síma 4757).
Skrifstofur miðstjórnar flokksins og Æskulýðsfylkingarinnar á Skólavörðustíg 19 verða opnar í dag, og
eru þar gefnar allar upplýsingar og farmiðar seldir. Verð farmiðanna er 30 kr. báðar leiðir, hálft gjald fyrir
9—13 ára börn og frítt fyrir 8 ára börn og yngri.
Veitingar til sölu á mótinu: Mjólk, rjómi, skyr pylsur, kaffi, gosdrykkir, sælgæti, tóbalc — en ekki mál-
tíðir.
Allir sem eiga tjöld, eru beðnir að hafa þau með sér.
Hittumst heil á Þingvöllum í kvöld!