Þjóðviljinn - 23.06.1945, Síða 8
8
ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 23. júní 1945.
Þeir börðust við hættur hafsins í nærri 6 löng ár. Vörðu
skipalestir er fluttu nauðsynjar, hergögn og herlið um höfin
svo hægt væri að vinna stríðið. — Myndin: Brezldr sjóliðar
fagna, daginn sem friði var lýst í Evrópu.
I
j
Stórstúkuþingið var
sett í fyrradag
Hefur kosið nefnd til viðræðna
við ríkisstjórnina um áfengismál
Þing Stórstúku íslands stendur yfir þessa dagana hér í bæn
um. — 87 fulltrúar frá 36 stúkum sækia þingið. — Þinginu lýkur
sennilega á morgun.
45. þing Stórstúku íslands var
sett hér í bænum í fyrradag.
Templarar söfnuðust saman í
Góðtemplarahúsinu kl. 1.30 og
gengu fylktu liði í Fríkirkjuna.
til guðsþjónustu. Prédikun
flutti séra Árelíus Níelsson, en
séra Árni Sigurðsson þjónaði
fyrir altari.
Gengið var úr kirkjunni í
Góðtemplarahúsið og var þv
vígður nýr silkifáni, sem Stór-
stúkan hefur eignazt, með mik-
illi viðhöfn. Séra Árni Sigurðs-
son vígði fánann með ræðu eri
Templarakórinn söng á undan
og eftir. — Frú Unnur Ólafs-
dóttir hefur gert fánann.
Að lokinni vígslu fánans fór
fram þingsetning. Mættir voru
87 fulltrúar, frá 15 barnastúk-
um, 14 undirstúkum, 4 þingsti'ik
um og 3 umdæmisstúkum. —
20 karlar og konur tóku Stór-
stúkustig.
Útbýtt var skýrslum frá em-
bættismönnum Stúkunnar. Fé
lögum Reglunnar hefur töluvert
fjölgað á árinú, eru nú 10138.
Tekjur Stórstúkunnar á s. 1.
ári .voru kr. 75.491.66, skattur
frá undirstúkum var krónur
11.883.65 og gjafir frá einstökum
templurum, stúkum o. fl. kr
8728.66.
Stórstúkan rekur mjög um-
fangsmikla starfsemi auk bind-
indisstarfsins. Má þar til nefna
rekstur bókaverzlunar, útgáfu á
bamablaðinu Æskan, Einingu
og Regínu. Leikfélag Templara,
skemmtifélagið f(S. G. T.) og
söngfélag templara, starfar hér
í bænum. Þá hafa templanr
í undirbúningi sumardvalar- j
heimili að Jaðri, en þar er latn
nám templara, og hafa miklar
framkvæmdir verið unnar þar í
sjálfboðavinnu. Reglan rekm
sjómanna- og gestaheimili á
Siglufirði og stendur fyrir húsa
byggingum fyrir Regluna utan
Reykjavíkur.
5 manna nefnd var kosin til
viðræðna við ríkisstjómina un;
áfengismál.
í gær var fundum þingsir.s
haldið áfram og voru tillögur
nefnda til umræðu.
Klukkan 3 í dag fara fulltrú-
amir upp að Jaðri. — Verður
þinginu væntanlega slitið á
morgun .(sunnudag), og lýkur
með hófi í Listamannaskálan-
um.
Aðalfundur S. í. S.
Vörusala nam 95 millj.
Aðalfundur Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga var
settur kl. 9 f. h. í gær, að Laug-
arvatnL — Mættir voru 77 full-
trúar á fundinum, frá tæplega
50 sambandsfélögum.
Sambandið hefúr selt vörur
á s. L ári að verðmæti um 95
millj. króna,
Einar Árnason formaður
Sambandsins, setti fundinn, er
síðan fluttu þeir framkvæmda
stjórarnir Sigurður og Aðai-
steinn Kristinssynir og Jón
Ámason, skýrslur sínar og
urðu umræður um þær á eftir.
Fundarstjóri var Bjami
Bjarnason skólastjóri á Laugar-
vatni.
Haimyrðasýning í
Húsmæðraskólan-
i
um
Stjórn Hallveigarstaða bauð
blaðamönnum í gær að skoða
haimyrðasýningu í Húsmæðra-
skólanum á Sólvallagötu 12. —
Verður sýning þessi opnuð fyr-
ir almenning í dag.
Á sýningu þessari eru um 40
munir, mjög vandaðir og fágæt-
ir. Eru það tvær spánskar man-
tillíur, enskir og írskir knippl •
ingar og blúndur af krínolí-
um. — Munir þessir eru eign
frú Ásu Guðmundsdóttui
Wright. Kvaðst frúin hafa fe:ig
ið nokkra af munum þessum
að gjöf, en aðrir hefðu gengið
að erfðum, mann fram af marnn
í ætt manns hennar.
Frú Wright, sem verið hefur
búsett í Englandi síðan 1910, er
stödd hér á ferðalagi. Er hún
á leið til Suður-Ameriku, en
þar setjast þau hjónin að.
Frú Sigríður Magnússon
komst að því að frú Wright átti
þessa fágætu muni í fórum sín-
um, og stakk upp á því við
hana að munimir yrðu sýndu
almenningi, til ágóða fyrir Hall-
veigarstaði.
Tilgangurinn með sýningunm
er þó ekki einungis að afla fjár.
heldur að gefa þeim bæjarbú-
um, sem áhuga hafa fyrir slík-
um hannyrðum, aðstöðu til að
notfæra sér þetta einstaka tæki-
færi.
Kappreiðar Fáks
verða á Skeiðvell-
inum í dag
Kappreiðar Hestamannafé-
lag’sins Fáknr, fara fram á
Skeiðvellinum við Elliðaár í
dag. Eru það aðrar kappreiðar
Fáks á þessu sumri, þær fyrri
voru um hvítasunnuna.
Á kappreiðunum í dag verða
reyndir 19 hestar í 4 flokkum.
Verða tveir riðlar stökkhesta á
350 m hlaupabraut, einn flokk-
ur skeiðhesta, einn flokkur
stökkhesta á 300 m hlaupa-
braut og loks úrslitasprettir.
Á skeiði keppa m. a. Randver
og tvær hryssur, Fluga og
Gletta, sem taldar eru mjög
efnilegar. — Má búast við mjög
harðri og spennandi keppni.
Á 300 m stökki verða reyndiv
10 hestar. Þar á meðal tveir áð •
ur óþekktir, Freyfaxi og Fálki.
Er Freyfaxi 7 vetra en Fálki 6
vetra.
Hafa þeir báðir náð góðum
árangri á æfingum í sumar og
em, ásamt öðrum hestum sem
þarna keppa, í góðri æfingu. Á
þessari hlaupabraut keppir einn
ig foli sem Moldi heitir, 5 vetra.
Var hann fyrstur í folahlaupinu
á hvítasunnunni. Er hann tal-
inn skeinuhættur þeim Fálka
og Freyfaxa.
í 350 m stökki keppa m. a
Hörður, sem jafnan hefur sigr
Enga linkind gagnvart kvislingum
JJÚSSNESKUR blaðamaður ritar í Soviet Weekly (áður
Soviet War News Weekly) um nauðsyn baráttunnar
gegn kvislingunum, og segir þar meðal annars:
. „Björgun þjóðanna verður ekki nema orðin tóm, ef
gerður er nokkur greinarmunur á fasistunoim og kvisling-
um í löndum þeim sem kvislingar hafa til skamms tíma
ráðið og fengið að útbreiða svikaeitur sitt, — ef kvisling-
unum tekst með því að setja upp auðmýktarsvip að kom-
ast undan refsivendi hins vakandi lýðræðis.
Nú, eftir ósigur Hitlers-Þýzkalands, reyna kvisling-
arnir að afneita þýzka fasismanium. Þeir búast dulargervi
og leika hvers konar kúnstir til að afsaka landráð sín.
Margir þeirra, er óttast reiði fólksins, fara sjálfviljugir í
fangelsi í þeirri von að bjarga með því lífinu.
HVAR SEM rauði herinn fer, hvar sem sovétþjóðirnar
hafa hjálpað öðrum þjóðum til frelsis, er litið þannig
á, að kvislingar beri sömu ábyrgð og þýzku fasistamir.
í fullu samræmi við yfirlýsingu Krímráðstefnunnar um
Hina leystu Evrópu, hreinsa þjóðir þessara landa burt ill-
gresi Hitlerssinna og ryðja þannig lýðræðinu braut. í
þessum löndum duga engin dulargervi.
Réttarhöldin yfir rúmensku stríðsglæpamönnunum
leiddu í Ijós hina ískyggilegu glæpi er framdir höfðu ver-
ið af rúmenskum Hitlerssinnum. Búlgarska þjóðin refsaði
harðlega kvislingum sínum. En í öðrum löndum virðist
ekki tekið á málum þessum af nægilegri festu.
J FRAKKLANDI hefur einn versti landráðamaðurinn,
Fabre Luce, verið leystur úr haldi og tekið til við
hinn viðbjóðslega fasistaáróður sinn á ný. Nokkrir kvisl-
ingar aðrir reyna að forðast refsingu með því að halda sig
í viðhafnarhótelum. Spánn er orðinn greni fasista og kvisl-
inga, sem reyna að bjarga sér. Landráðamaðurinn Laval
nýtur enn skjóls Francos.
Svíþjóð skýtur skjólshúsi yfir landráðamenn, sem kom-
izt hafa undan refsingu Eystrasaltsþjóðanna. Hitlerssinn-
inn Thomsen heldur áfram að breiða út fasistaáróður í
sænskum blöðum, eins og ekkert hafi ískorizt. Ójá, Hitl- ■
erssinnunum í Svíþjóð líður ekki sem verst. Mikill meiri-
hluti þeirra hefur sloppið hjá varðhaldi. Aðeins þeir naz-
istaagentar, sem mestum hneykslunum hafa valdið, hafa
verið handteknir. Og meira að segja þeir neita að fara eftir
venjulegum fangareglum, og sænsku yfirvöldin láta undan.
Nazistaskóli er enn opinn í Stokkhólmi.
j|YZKU iðjuhöldamir reyna enn að hnýta alþjóðleg sam-
bönd. Schacht og Thyssen, sem áttu mikinn þátt í
sköpun þriðja rikis Hitlers, eyða tímanum á fyrsta flokks
hótelum á Capri. Kallay, foringi hinnar föllnu fasista-
stjómar Ungverjalands, baðar sig í sólskininu suður við
Miðjarðarhaf.
Kvislingar sem fyrir skömmu skriðu fyrir Hitler og
Mússolini líta nú vonaraugum til brezkra og bandarískra
afturhaldssinna og grátbæna um vemd. Þeir vita, að séu
nokkur virki afturhaldsins skilin eftir í Evrópu, geta þeir
einhvern tíma komið fram úr fylgsnum sínum og hafið á
ný svikastarfsemi sína gegn lýðræðinu.
Því fyrr sem þjóðimar losa sig við kvislinga sína, því
fyrr verður öryggi þeirra fullkomið“.
að á þessari vegalengd. Skæð-
asti keppinautur hans er tal-
inn Tvistur, en hann var fyrst-
ur í 300 m hlaupinu á hvíta-
sunnunni.
Veðbanki starfar í sambandi
við kappreiðarnar.
Starfsmenn mótsins eru á-
minntir um að mæta á vellin-
um stundvíslega kl. 1 e. h.
Félag Suðurnesjamanna í Reykja-
vik efnir til sumarfagnaðar á Jóns-
messudag, sunnudaginn 21; þ. m. á
flötunum sunnan við Voga —
Hefst skemmtunin kl. 2 e. h.
Ræður flytja þeir Ólafur Thors
forsætisráðherra, séra Jón Thorar-
ensen o. fl. Þá verður flutt kv.eði,
ort í tilefni dagsins. Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur og kór syngur.
— Dansað verður á palli til mið •
nættis. — Veitingar verða seldar a
mótstaðnum.