Þjóðviljinn - 28.06.1945, Page 5
Fimmtudagur 28. júní 1945.
Þ JÓÐ VILJINN
5
Frá aðalfundi S. í. S.
Viðskiptavelta sambandsfélaga 143,5 millj. kr.
Fer Vilhjálmur að Sambandinu - Jón að Landsbankanum?
Jón vill láta verka kjötið eins og Bretar gerðu 1880
Klofningsfulltrúar frá Siglufirði teknir gildir
Aðaljundur Sambands íslenzkra sáwwinnufélaga var hald-
inn að Laugarvatni dagana 22.—24- þ. m.
Til jundar voru kjömir 85 julltrúar jrá 52 jélögum, en
mœttir 80 jrá h7 jélögum. Félagsmenn innan sambaridsins eru
nú 23 þús.
Viðskiptavelta allra sambandsjélaganna nam árið ID.jj 143.5
milljónum kr., en yiðskiptavelta sambandsiris 96 milljónum.
Tekjuafgangur sambandsins árið 1944 nani 1.405.189.45 kr.
og eignir samlcvœmt ejnahagsreilcningi 57.250.567.56 lcr., en eigh-
ir sambandsfélaganna 116.474-654.08 Icr. Þar aj handbœrt jé
86.780.126.70 kr. • 1
SKÝRSLUR FORSTJORA
OG FORMANNS.
Fyrsti dagur fundarins og
nokkuð af öðrum degi fór í það,
að formaður sambandsins og
framkvæmdastjóri gáfu skýrslu
hver um sitt starfssvið. Þessar
skýrslur eru gefnar munnlega,
en þeim er ekki útibýtt meðal
fundarmanna Tjölrituðum eða
prentuðum eins og tíðkast í nú-
tíma félögum og virðist sem
hinir virðulegu forstjórar séu
ekki búnir að átta sig á tækni
nútímans hvað þetta snertir.
Ekki verða þessar skýrslur
raktar hér nema hvað vikið
verður að skýrslu Jóns Arna-
sonar síðar, þess eins getið, að
formaður sambandsins, Einar
Árnason frá Eyrarlandi, gat
'þess að Sigurður Kristinsson
mundi hætta forstjórastarfi í
sumar, er iiann yrði 65 ára, og
Aðaláteinn bróðir hans muhdi
og hætta frá sama tíma. Ekki
kvað Einar tímabært að skýra
frá hvernig starfi þeirra yrði
ráðstafað. Þjóðviljanum er þó
kunnugt, að gert er ráð fvrir að
Vilhjálmur Þór verði forstjóri
S. í. S. Þetta mun þó naumást
fullráðið, því talið er að Fram-
sóknarmenn vilja trauðlega
sleppa bankastjórastárfinu úr
höndum klí'kunnar og að Jón
Árnason muni ekki fýsa að
vinna undir stjórn Vilhjálms.
Þenna tvíþætta vanda hyggj-
ast Framsóknarmenn að leysa
með því að gera Jón að banka-
stjófa í stað Vilhjálms. Það er
bankaráð sem ræður banka-
stjórana. 1 því eiga sæti fimm
menn, þar á meðal Jónas Jóns-
son, Jónas spámaður Guð-
mundsson og Jón Árnason.
Þessi þrenning á að vinna verk-
ið ef allt géngur samkvæmt á-
ætlun, Jón á að njóta cigin at-
k’væðis til að kömast i banka-
stjórasætið.
KLOFNINGSFULL-
TRÚAR FRÁ SIGLU-
FIRÐI SAMÞYKKTIR ,
Kjörbréfanefnd gaf skýrslu
og lagði lil að öll kjörbréf sem
fram voru komin yrðu metin
gild. Meðal þessara jjréfa yar
kjöi'bréf frá Siglufirði, undirrit-
að af fundarsljóra og fundarrit-
ara gervifundar þess cr aftur-
haldsmenn héldu á Siglufirði
undir forustu kaupmanns nokk-
urs. Þennan fund kölluðu þeir
aðalfund kaupfélagsins. For-
maður kaupfélagsins sem átti
að gefa kjöribréfið út hafði ekki
undirritað það. Fulltrúar
KRON mótmæltu þessu kjör-
bréfi, og kröfðust að atkvæða-
greiðslu um það yrði frestað,
þar sem vitað væri að annað
kjörbréf mundi koma á furub
inn frá þessu sama félagi. Frest-
unartillagan var felld með at-
kvæðum flestra fundarmanna
gegn atkvæðum .KRON-fuIltrú-
anna. Síðan var kjörbréfið sam-
þykkt gegn atkvæðum KRON-
manna. Síðar á fundinum barst
kjör hinna rétt kjörnu fulltrúa
frá Siglufirði, en fulltrúarnir
komu ekki til fundar.
S. í. S. NOTAR AÐ-
FERÐIR FRÁ 1880 VIÐ
FRYSTINGU KJÖTS.
í tilefni af skýrslu Jóns
Árnasonar skýrði ísleifur
Ilögnason frá tilraun þeirri,
sem KliON hefur gert með að
hraðfrysta kjöt, og bar fram
svohljóðandi tillögu:
,.Aðaljundur S. I. S. sam-
þykkir að jela stjóm sambands-
ins að láta þegar nœsta haust
gera tilraun með hraðjrystingu
kjöts jyrir innlendan markuð.
Ennjremur undirbúi sambands-
stjórn jrelcari tilraunir með
hraðjrystingu á öðrum mát-
vœlum eftir því sem ástœður
leyja".
Jón Árnason brást hinn reið--
asti við þessari tillögu, og sagði
meðal annars, að ef Isleifur
..hefði viljað haga sér eins og
maður“, hefði hann átt að tala
við sig áður cn hann lét hefja
þessar tilraunir. Ilann kvað að-
ferðir þær, sem S. í. S. notaði
við frystingu kjöts, vera vel
þekktar og þrautreyndar, því
Bretar hefðu notað þessar að-
ferðir síðan 1880! Ekki taldi
Jón þó útilokað að hann léti
gera tilraunir með að hrað-
fryst-a kjöt, en sagðist elcki gera
það „eftir neinni fyrirskipan frá
fundinum“.
ísleifur og Sigfús Sigurhjart-
arson gagnrýndu framkonui
Jóns harðlega. Meðal annars
lásu þeir umsagnir um hrað-
frystingu úr tímaritum amer-
ískra frystihúsaverkfræðinga og
tilraunástöðvar landbúnaðarins
fyrir New York fylki, en í þess-
um umsögnum er gerð ýtarleg r
grein fyrir áhrifum frystingar á
matvæli og sýnt með óyggjandi
vísindalegum rökum, að' hrað-
frysting og geymsla matvæla
við mikið frost (18—l25 stig C.)
hefur ótvíræða yfirburði yfir
hæga frystingu og geymslu við
lágt froststig (6—8 stig eins og
S. í. S. notar).
Jón varð fár við þessar upp-
lýsirigar og fundarmenn sýndu
ótvíræðan áhuga fvrir málinu.
Eysteinn Jónsson reyndi þá að
koma til hjálpar, og hóf um-
ræður um „hraunkjöt“ og
skemmdan fisk. Ekki bætti
þetta frumhlaup fyrir Jóni, og
Eysteinn þótti verða sér til
skammar.
Nú komu hinir vitrari menn
úr liði Framsóknar til skjalanna
og vildu bjarga málinu. Jörund-
ur bóndi í Skálholti gekk fram
fyrir skjöldu. Honum þótti
margt benda til að hraðfrysti-
aðferðin mundi ryðja sér til
í’úms, og væri því rétt að at-
huga málið, lagði hann síðan til,
að tillögu ísleifs yrði vísað til
stjórnarinnar. Framsóknarliðið
samþykkti það gegn atkvæðum
KRON-fulltrúanna.
Nokkrar sárabætur þótti
Framsóknarmönnum rétt að
gefa Jóni. Þeir báru fram og
samþykktu þessa tillögu:
„Fundurinn ber fullt traust
til framkvæmdastjóra útflutn-
ingsdeildar S. í. S. um að hann
gefi gætur að öllu nýjungum
itm frystingu geymslukjöts“.
Það þykja góðar dygðir
Framsóknarmanna að halda
fast við aðferðir frá 1880. Þeir
um ]>að. Þeim, sem vilja verða
að ná’tttröllum á strönd hins
nýja tíma er það ekki of gott.
Framhald síðar).
Frá vinnustöðvum og
verklýðsfélögum
Húsgagnasmiðafundur
Sveinafélag búsgagnasmiða
heldur fund í kvöld kl. 8,30
á Hverfisgötu 21.
Félagið Skjaldborg.
I. flokks deild klæðskera-
sveinafélagsins Skjaldborg
heldur fund annað kvöld,
föstudag kl. 6 e. h., og II. fl.
deild félagsins heldur einnig
fund annað kvöld, föstudags-
kvöld, kl. 8,30. Á fundunum
verða teknar ákvarðanir um
það hvort segja skuli upp
gildandi samningi félagsins
við atvinnurekendur. — Báð-
ir fundirnir verða haldnir á
Hverfisgötu 21.
Samsarf þeirra tryggði bandalag sameinuðu þjóðanna.
Heimsbandalag þjóðanna
í RANGUR San Franciscoráðstefnunnar er orðinn
mikill og glæsilegur, sáttmáli hinna fimmtíu
sameinuðu þjóða er heimssögulegt plagg, þótt
frægð þess hlióti að sjálfsögðu að mótast af þeirri
reynslu sem fæst af öryggisstofnuninni, þegar á
hana reynir við framkvæmd hinna miklu verkefna,
sem hún hefur sett sér.
IjAÐ VAR BARIZT af ákafa gegn því, að sam-
* komulag næðist á San Franciscoráðstefnunni.
Afturhaldsöfl víðsvegar um heim vonuðu, að þessi
ráðstefna mundi enda án samkomulags, mundi enda
með því að samvinna aðalríkja sameinuðu þjóðanna
rofnaði, og sér lagi a'ð nú tækist að leggja grund-
völl að nýjv oandalagi auðvaldsríkja gegn Sovét-
ríkjunum. í afturhaldsmálgögnum hefur emmitt á
þessum tíma, sem San Franciscoráðstefnan hefur
staðið, verið haldið uppi slíkri rógsherferð gegn Sov-
étríkjunum, að slíks eru varla dæmi á síðari ár-
um, Tilgangur þessarar herferðar var augljóslega
sá, að reyna að einangra Sovétríkin í alþjóðamál-
um og spilla fyrir samkomulagi í San Francisco.
þETTA TÓKST EKKI. Eins og jafnan hin siðustu
ár þegar mest hefur reynt á, tókst hinum
sameinuðu þjóðum að ná samkomulagi, enda þótt
mjög hafi á milli borið með afstöðu til einstakra
mála, bæði um skipulag hins nýja þjóðabandalags og
starfshætti og ýms önnur efni, sem rædd voru á
ráðstefnunni svo sem t. d. afstöðu til nýlendna.
Árangurinn, hin voldugu öryggissamtök sameinuðu
þjóðanna, gæti þýtt tímamót í alþjóðlegri samvinnu,
ef því fer fram, sem til er stofnað.
fjJÓÐÞING hinna einstöku landa eiga eftir að
leggja fullnaðarsamþykkt á aðgerðir sendi-
nefnda ríkjanna á San Franciscoráðstefnunni, en
ekki er ástæða til annars en að ætla, að stórveldin
fimm, Sovétrikin, Bandaríkin, Bretland, Kína og'
Frakkland verði stofnendur bandalagsins. Sú stað-
reynd verður því áhrifameiri éf þess er minnzt, að
hvorki Bandaríkin né Sovétríkin voru aðilar að
starfi Þjóða'bandalagsins lengst af (Sovétríkin að-
eins síðustu árin, þar til bandalagið framdi sjálfs-
morð með hinum einkennilega „brottrekstri" þeirra
í Finnlandsstyrjöldinni.
Svo virðist, sem dapurleg reynsla af störfum
hins fyrra þióðabandalags hafi mjög vakað fyrir
mönnum þeim, ^em ráðið hafa skipulagi hins nýja
bandalags sameinuðu þjóðanna. Þessu nýja banda-
lagi verður fengið til umráða nær takmarkalaust
hernaðarvald, en það var einn aðalveikleiki gamla
bandalagsins, að það hafði ekki yfir herstyrk að
ráða. í þessu atriði og fleirum varðandi starfshætti
Sameinuðu þióðanna eru gerðar ráðstafanir til að
þær verði starfhæfari öryggisstofnun til verndar
friði en hin fyrri.
l^YRIR SMÁÞJÓÐIR heimsins er það fagna®arefni
að samkomulag skyldi nást í San Francisco.
Styrjaldir eru komnar á það stig, að sjálf til-
vera heilla þjóða, ekki sízt smáþjóða, getur verið
í hættu. Takist öryggissamtökum sameinuðu þjóð-
anna það göfuga hlutverk gð afstýra styrjöldum,
mun San Franciscoráðstefnunnar minnzt sem eins
farsælasta viðburðar þessarar aldar.