Þjóðviljinn - 28.06.1945, Side 7
Fimmtudagur 28. júní 1945.
ÞJÓÐVILJINN
1
Söngför Breiðfirðingakórsins
Hörmulegt slys
Aðalfundur Landssambands íslenzkra
utvegsmanna
■ Eins og áður hefur verið
getið í fréttum, fór Breið-
firðingakórinn 1 Reykjavík
söngför um Dali og Breiða-
fjörð dagana 22.-25. júní.
Lagt var af stað úr Reykja-
vík að morgni hins 22. júní
og ekið til Búðardals. Þar
var sungið kl. 7 siðdegis fyr-
ir fullu húsi og við ágætar
undirtektir áheyrenda. Söng-
skemmtun jaessi og einnig
þær, er síðar yoru haldnar,
hófust með ávarpi fararstjór-
ans, Jóns Emils Guðjónsson-
ar og kynnti hann kórinn og
starf hans og tilganginn með
förinni. Að söngnum loknum
ávarpaði Jóhannes Ólafsson
kórinn nokkrum orðum og
þakkaði honum komuna og
ágæta skemmtun, en farar-
stjóri þakkaði móttökumar.
Áður en söngurinn hófst var
drukkið kaffi í boði ung-
mennafélagsins Ólafur Pái og
talaði þá Jóhann Bjarnason,
verzlunarmaður, og bauð kór
inn velkominn. Þegar kórinn
hafði sungið, .bauð sama fé-
lag honum til kvöldverðar
og töluðu þá m. a. sr. Pét-
ur T. Oddson, prófastur i
Hvammi, fararstjóri kórsins,
formaður hans, Sigurður Guð
mundsson og Snæbjörn G.
Jónsson. Móttökur allar og
undirtektir áheyrenda voru'
hinar beztu.
Prá Búðardal var farið um
kvöldið vestur að Kirkjuhóli
í Saurbæ og sungið þar í
sóknarkirkjunni. Þótt þá
væri orðið áliðið kvölds,. en
þá var komið fast að mið-
nætti, var fjöldi manns þar
samah kominn til þess að
hlýða á kórinn og var söng
hans tekið hið bezta. En Hall
dór Sigurðsson, formaður U.
M. S. Dalamanna, ávarpaði
kórinn og þakkaði honum
ánægjulega heimsókn og á-
gætan söng, fararstjóri þakk-
aði. Að loknum söngnum
var setzt að kaffidrykkju í
boði Ungmennafélagsins
Stjaman. Daginn eftir var
komið við í Stórholti og Ól-
afsdal og kórnum þar véitt
af mikilli rausn. Þann dag
var ekið vestur í Berufjörð
og sungið þar kl. 7 síðdegis.
Þar talaði Theodór Daníels-
son og þakkaði kórnum kom-
una.
Frá Hofsstöðum við Þorska
Ijörð var siglt til Flateyjar
og komið þangað um nóttina
kl. 2. En þótt komin væri
hánótt, beið margt fólk niðrí
á bryggju til þess að fagna
kórnum og söng hann eitt
lag um leið og komið var að
landi. Síðan var stigið á land
undir íslenzka fánanum og
fána Breiðfirðingafélagsins.
Ferðafólkinu var skipt niður
á nokkur heimili í þorpinu
og þar biðu þess borð hlað-
in allskonar kræsingum. Dag
inn eftir, sem var sunnudag-
ur, söng kórinn í Flateyjar-
kirkju kl. 2 eftir hádegi fyr-
ir fullu húsi og við mjög góð
a- undirtektir áheyrenda.
Steinn Á. Jónsson þakkaði
kórnum fyrir komuna og þá
óvenjulegu og ágætu skemmt
un,\ er bánn flutti þangað í ’
eyna. ÞesS má.geta,. að elzti
áheyrandinn þarna í Flatey
var hálfsystir Jóns heit.
Sveinssonar (Nonna), Krist-
ín Guðmundsdóttir. Hún er
nú 94 ára en hefur lítt
skerta heyrn og kvaðst hafa
haft óblandna ánægju at
söngnum.
Úr Flatey var farið kl. 4
og söng kórinn að skilnaði
eitt lag á bi'yggjunni áður
en stigið var á skipsfjöl, en
fararstjóri árnaði Flateyjar-
búum allra heilla og þakkaði
ágætar móttökur. Næsti á-
fangi var Stykkishólmur.
Þegar lagzt var þar að
bryggju, blasti íslenzki fán-
inn og fáni Breiðfirðngafé-
lagsins í stafni, en kórinn
söng lagið: Brúum sundin,
Breiðfirðingar. Karlakór
Stykkishólms stóð á bryggj-
unni og heilsaði með því að
syngja eitt lag. K1 8 var
gengið fylktu liði undir fán-
um frá hótel Helgafell, þar
sem kórinn hafði aðsetur, og
til samkomuhússins. En þar
söng kórinn tvisvar með
stuttu millibili. Aðgöngumið-
ar að fyrri söngskemmtun-
inni seldust upp á örfáum
mínútum, svo að ákveðið var
að endurtaka sönginn. Kór-
inn hélt þannig þrjá sam-
söngva sama daginn og mun
það vera eingöngu fyrir dugn
að söngstjórans og kórfélag
anna, að það var hægt.
Áður en sÖngurinn hófst í
Stykkishólmi ávarpaði séra
Sigurður Lárusson kórinn og
bauð hann velkominn, farar-
stjóri þakkaði. Undirtektir
áheyrenda voru prýðilegar.
Þegar kórinn hafði sungið I
var drukkið kaffi í boði
Stykkishólmshrepps. Þar töl-
uðu m. a. Kristján Bjart-
marz, oddviti, Ólafur Jóns-
son frá Elliðaey, frú Sesselja
Konráðsdóttir, Jón Eyjólfs-
son, söngstjóri kirkjukórsins.
Bjarni Andrésson, söngstjóri
karlakórs Stykkishólms, far-
arstjóri Breiðfirðingakórsins
og formaður hans.
Morguninn eftir var lagt
af stað til Reykjavíkur og
komið þangað kl. tæplega 10
á mánudagskvöldið. Ferðin
hafði í alla staði gengið að
óskum og verið hin ánægju-
legasta. Söngskemmtanirnar
voru yfirleitt ágætlega sóttar
og undirtektir áheyrenda hin
ar ákjósanlegustu. Ferðafólk-
ið rómar mjög móttökurnar
alls staðar. þar sem það kom
og hlýhug þann og velvild,
er því var hvarvetna sýnt
í Breiðfirðingakórnum eru
nú 34 söngmenn og konur,
söngstjóri hans er Gunnar
Sigurgeirsson, en einsöngvar
ar bau ungfrú Kristín Ein-
arsdóttir og Haraldur H.
Kristjánsson. Fararstjóri í
férðinni var Jón Emil Guð-
jónssori, formaður Bréiðfirð-
Það hörmulega slys vildi
til í Norðurárdal í Borgar-
firði í fyrradag, að ung kona,
frú Helga Aðalbjörg Ingi-
marsdóttir frá Þórshöfn, varð
undir bifreið og beið bana.
Nánari málsatvik eru þau,
að á þriðjudagsmorgun lagði
bifreið frá Þórshöfn af stað
norður á land. I bifreiðinni
voru 9 manns. Skömmu áður
en slysið vildi til fór bifreið
in framhjá hættumerki og
ók úti á vinstri vegarkanti.
Kom þá í ljós brú, sem lá
yfir ræsi í veginum og var
brúin það mjó, að bifreiða-
stjórinn þurfti að beygja
talsvert til hægri til að kom-
ast á brúna. Mun þá hafa
komið kast á bílinn því að
hann valt á hægri hliðina.
Helga heitin sat fram í
bílnum hjá Björgvin, manni
sinum, er stjórnaði bifreið
inni. Við hlið hennar sat syst
ir hennar. Hafði hurðin opn-
azt og lentu systurnar út um
dyrnar. Varð Helga heitin
undir bílnum, sem fyrr seg-
ir, og beið þegar bana. Aðra
í bifreiðini sakaði ekki, svo
vitað sé.
Helga Bogga, eins og hún
var jafnan kölluð var dóttir
hjónanna Oddnýjar Ámadótt
ur og Ingimars Baldvinsson-
ar, símstöðvarstjóra og póst-
meistara á Þórshöfn. Hún var
aðeins 30 ára gömul, er hún
lézt. Helga og maður hennar
áttu tvo drengi, báða á barns
aldri.
Voru ýmsir nánustu ætt-
ingjar herinar með í bifreið-
inni, er Björgvin hafði ný-
keypt og var- að aka heim.
Bæjarpósturinn
Framhald af 4. síðu.
ferðalagi, voru ýmsir pólitískir lodd-
arar annarra tlokka, svo sem formað-
ur Alþýðuflokksfé^ag^ háskcf'astú-
denta o. fl.
Góða nótt!
Er fast var liðið að óttu, reikaði ég
til. tjaldbúðanna hress í anda og á-
nægÖur með kvöldið. Alls staðar var
fólk að koma sér fyrir í tjöldum sín-
um, sumir voru þegar lagztir til
hvíldar, aðrir stóðu fyrir „karldur-
um“ og litu til lofts, eins og þeir
gætu úarla fengið það af sér að
hverfa inn úr þessu unaðslega veðri.
Austur í gjárendanum gekk unglings-
piltur með glaðværa tátu við hlið
sér. Látum þau í friði fara og um-
fram allt „engan drottinn á þau kalla
með öfundsjúkri heiftarraust".
Ég leggst til hvíldar og sofna brátt
við óm af manólínleik úr næsta tjaldi
og lágt hvískur unga fólksins á
næstu „bæjum".
ingafélagsins í Reykjavík.
Að lokum hefur blaðið ver-
ið beðið fyrir hugheilar kveðj
ur og þakkir frá kórnum til
allra þeirra Breiðfirðinga,
sem veittu honum af rausn
og höfðingsskap og stuðluðu
á allan hátt að því að gera
ferðafólkinu förina gem ó-
gleymanlegasta.
, Jt \'
Aðalfundur Landssambands’
íslenzkra útvegsmanna var
haldinn í Kaupþingssalnum
hér í Reykjavík, dagana 18.
til 20. júní síðastliðinn. Fund
inn sátu 52 fultrúar frá 25
sambandsdeildum, en af sér-
stökum ástæðum gátu nokkr-
ir fulltrúar ekki mætt.
Fundurinn hófst með því
að formaður sambandsins,
Sverrir Júlíusson, Keflavík,
flutti skýrslu stjórnarinnar.
Fundarstjóri var Ólafur B.
Bjömsson, Akranesi. Fundar-
ritari var Baldvin Þ. Kristj-
ánsson, erindreki sambands-
ins.
Á fundinum voru flutt þrjú
ágæt og fróðleg erindi um
hagnýtingu sjávarafurða. Jón
Gunnarsson, forstjóri, flutti
erindi um nýjungar 1 þurrk-
un fisks. Dr. Jakob Sigurðs-
son um niðursuðu á sjávaraf-
urðum og Hafsteinn Berg-
þórsson, útgm. um för sína
til Bandaríkjanna og skipa-
byggingar þar.
Þá mætti einnig á fundin-
um Nýbyggingarráð og flutti
formaður þess Jóhann Þ.
Jósefsson alþm. ágætt er-
indi um tillögur og fyrirætl-
anir ráðsiris í sambandi við
stofnlán til útvegsins og
vaxtagreiðslur, en um þetta
Ur borginni
UtvarpiS í dag:
19.25 Hljómplötur : Söngdansar.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20,20 Utvarpshljómsveitin (Þórarinn
Guðmundsson stjórnar).
a) Raymond-forleikurinn eftir
Thomas.
b) Lítill lagaflokkur eftir Coatez.
r) Slavnesk rapsódía eftir Fride-
mann.
20,50 Frá útlöndum (Jón Magnússon).
21,10 Hljómpl.: Frægir fiðluleikarar.
21.25 Upplestur : Kvæði (Sigríður Ein-
arsdóttir frá Munaðarnesi).
21.40 Híjómpíötur: Einsöngur :
a) Camilla Proppé syngur.
b) Brynjólfur' lngólfsson syngur.
Frá BreiSJiriSingafélaginu. Laugar-
daginn 30. þ. m. verður farin skemmti
ferð á Esju. Lagt verður af stað kl.
14 frá Iðnskólanum. Tjaldað verður
hjá Móagilsá og gengið um nágrenn-
ið. Á sunnudagsmorgun verður geng-
ið á Esjuna. — Farmiðar seldir í
Hattabúð Reykjavíkur, Laugaveg 10,
sími 2123, í dag og á morgun. Nán-
ari upplýsingar í síma 2978.
FERÐANEFNDIN
Ferðafélag: fslands fer
skemmtiför í Þjórsárdal. yfir
næstu helgi. Lagt af stað frá
Austurvelli kl. 3 síðdegis á
laugardag og ekið að Ásólfs-
stöðum og gist þar í tjöldum.
Á sunnudagsmorgun verður
ekið inn Dal, fyrst að Hjálp-
arfossi og síðan inn að Gjá
Þá verður gengið að Háa-
fossi (130 m.) og svo með
Fossá niður fyrir Stangarfjall.
Allt hið merkasta skoðað í
Dalnum. Fólk þarf að hafa
með sér tjöld, viðleguútbún-
að og mat. Farmiðar seldir
á föstudaginn til kl. 6 á skrif-
stofu Kr. Ó. Skagfjörðs, Tún-
götu 5.
Höfnin. „Egill“ fór í gær áleið
is til Englands.
mál hafa fulltrúar frá sam-
bandinu átt samvinnu og
samræður. við Nýbyggingar-
ráð.
í stjóm sambandsins voru
kosnir:
Formaður: Sverrir Júlíus- .
son. Aðalstjórn: Kjartan
Thors, Ásgeir G. Stefánsson,
Loftur Bjarnason, Ólafur B.
Björnsson, Ingvar Vi'hjálms-
son, Þorbergur Guðmunds*
son, Finnur Jónsson og Jó-
hann Þ. Jósefsson. — Varafor
maður: Finnbogi Guðmunds-
son. — Varastjórn: Þórður
Ólafsson, Ólafur H. Jónsson,
Ólafur Tr. Einarsson, Oddur
Helgason, Hafsteinn Berg-
þórsson, Beinteinn Bjarna-
son, Valtýr Þorsteinsson,
Sturlaugur H. Böðvarsson —
Endui'skoðendur: Ólafur Jóns
son, Sandgerði og Óskar Jóns
son, Vestmannaeyjum. —■
Varaendurskoðandi: Tómas
Guðjónsson, Vestmannaeyj-
um.
Afmælishljómleikar
Kristjáns Kristjáns-
sonar
Hinn vinsæli söngvari,
Kristján Kristjánsson, á
fertugsafmæli nú á næstunni
og 'jafnframt tuttugu ára
söngafmæli. í tilefni þessará
tveggja afmæla efnir söngv-
arinn til söngskemmturiar í
Gamla Bíó í kvöld kl. 11,30.
Tónlistamennirnir: Fritz
Weisshappel (píanó), Þórir
Jónsson (fiðla) og Þórhallur
Árnason (celló) munu að-
stoða.
Á sÖngskránni eru lög bæði
eftir erlenda og innlenda höf-
unda og mörg æði vandasöm
eins og sjá má:
Puccini: Recondita armon-
ia, úr óperunni Tosca.
Mascagni-Schipa: Inter-
mezzo úr Cavalleria Rusti-
cana. Einsöngur og tríó.
Caludi: Serenade. Einleikur
á celló: Þórhallur Árnason.
Silesu: Just a little love a
little kiss. Einsöngur og celló.
Wieniawsky: Dudziarz,
Chanson Polonaise. Einleikur
á fiðlu: Þórir Jónsson.
Kahn: Ave María. Einsöng-
ur og fiðla.
Emil Thoroddsen: Til skýs-
ins.
Kristján Kristjánsson: Til
fánans.
Árni Thorsteinsson: Þar
sem háir hólar.
Ernesto Lecuona: Cordoba
y Malaguena, úr Andalucia
(Suite Espagnole). Einleikur
á píanó: Fr. Weisshappel. .
Puccini: Che gelida manina
úr óperunni La Bohéme.
Denza: Melodia (Musica
p»-oibita).