Þjóðviljinn - 28.06.1945, Síða 8
Skógræktarfélag Islands fimmtán ára í gær
Félagatala hefnr aukizt ór 390 í 4 þúaondir - Laud-
græðslusjóðiir er nii 387 þiisuíid krómir
ViÖtal við Hákon Bjarnason, skógræktarstjóra
Kvöldið 27. júní 1930 safnaðist hópur manna saman
í Almannagjá á Þingvöllum. Þetta kvöld var milt, skýj-
aður himinn, en austan gjárbakkans hrannaðist fólks-
straumur Alþingishátíðarinnar. Einn í þessum hópi kvaddi
sér hljóðs og ræddi um að stofna félag til þess „að klæða
Iandið“ og greiða á þann hátt gamla og nýja skuld við
ættlandið. Þessi maður v-ar Sigurður Sigurðsson búnaðar-
málastjóri. — Þetta kvöld var Skógræktarfélag íslands
stofnað. Það varð því 15 ára í gær.
Fréttamaður Þjóðviljans hafði í gær tal af Hákoni
Bjamasyni skógræktarstjóra og skýrði hann frá starfi
félagsins á þessa leið:
IÓÐVILJINN
Áfengissala ríkisins er suiánarMettur
á menningu þjóðarinnar
Stórstúka íslands ákveður að berjast fyrir
algjöru banni
— Skógræktarfélag íslands
var stofnað á alþingishátíð-
inni á Þingvöllum 1930, fyrir
forgöngu Sigurðar Sigurðs-
s'onar búnaðarmálastjóra og
Magga Júl. Magnúsar lækn-
is, sem nú eru báðir fallnir i
valinn, og auk þeirra gengust
fyrir stofnuninni nokkrir
menn aðrir, sem enn eru á
lífi. — Um 300 manns gerð-
ust félagar.
ERFIÐUR FJÁRHAGUR t-
UPPELDISSTÖÐIN í
FOSSVOGI
— Hvernig gekk starfið til
að byrja með?
— Fyrstu tvö árin má heita
að starfsemin lægi að mestu
í dái, en 1933 hófst starf-
ræksla stöðvarinnar í Foss-
vogi, en vegna fjárskor.ts var
ekki hægt að starfrækja hana
með þeim krafti sem skyldi.
Nú er verið að undirbúa fram
tíðarstarfrækslu stöðvarinnar
og verður sennilega hægt að
hefja á næsta vori starf sam-
kvæmt þeim fyrirætlunum.
Árið 1934 tók félagið að sér
friðun Bæjarstaðaskógs og
leysti það starf vel af hendi.
Það gekkst einnig fyrir sam-
skotum til Heiðmerkurgirð-
ingarinnar, og -fyrir tilstyrk
margra góðra einstaklinga og
fyrirtækja var hægt að kaupa
girðingarefnið 1940 en vegna
þess að enn stendur á mati á
löndum og einnig vegna
skorts á vinnuafli hefur enn
ekki verið girt.
FÉLAGATALA HEFUR
VAXIÐ ÚR 300 í 4000
— Frá og með 1937 fjölg-
ar félögum 'og starfið eykst.
Flest héraðsskógræktarfélög-
in eru stofnuð eftir þann tíma.
Nú eru 17 slík félög starfandi
með um .2500 meðlimi og í
Skógræktarfélagi íslands eru
nú í Reykjavík og Hafnar-
firði um 1650 einstakir félag-
ar.
Héraðsskógræktarfél. hafa
fengið 60 þús kr. styrk, en
láta' mun nærri, að fyrir
hverja krónu, sem félögin
hafa fengið í styrk hafi þau
sjálf lagt fram tvær krónur,
og hafa mörg þeirra unnið
mikið og gott starf/t. d. Skóg
ræktarfélag Eyfirðinga, Borg-
firðinga og Austurlands. Skóg
ræktarfélag Suður-Þingeyjar-
sýslu hefur t. d. tekið sér það
mark að koma upp trjálundi
á hverjum bæ.
Ætlunin er að breyta skipu-
lagi. héraðsskógræktarfélag-
anna og koma á nánara sam-
starfi á milli. þeirra.
ÁRSRIT SKÓG-
RÆKT ARFÉL AGSIN S
— Félagið hefur gefið árs-
rit sitt út frá 1932. Fyrst muri
upplag þess; hafa verið 1000,
en lækkaði síðan niður í 800.
Síðan hefur það- verið smá-
aukið og er nú 4.500 og sýnir
það, hve áhugi manna fyrir
skógrækt hefur aukizt.
LANDGRÆÐSLUSJÓÐUR
387 ÞÚS. KR.
— Hvað er að segja um
Landgræðslusjóðinn?
Landgræðslusjóðurinn var.
eins og allir vita stofnaður í
sambandi við ■ lýðveldiskosn-
ingarnar og hann er nú í dag
387 þús. kr.
Um markmið sjóðsins seg-
ir svo i skipulagsskrá: „Mark
mið sjóðsins er hverskonar
landgræðsla og gróðurvernd,
en aðalhlutverk hans er þó að
klæða landið skógi“. Fé sjóðs-
ins skal ávaxtað með útlánum
til þeirrar landgræðslu sem á
hverjum tíma er talin nauð-
synlegust. Lán eru veitt gegn
lágum vöxtum og ábyrgð rík-
isins. Hafa nú verið lánaðar
300 þús. kr. til að flýta fyrir
uppeldi trjáplantna. Eftir er
að ráðstafa 87 þús. kr. og hef-
ur komið til mála að lána ein-
hvern hl-uta þeirrar upphæð-
ar til sandgræðslu, en hinn
hlutann til framkvæmda hér-
aðsskógræktarfélaganna.
— Rétt er að geta þess, sagði
Hákon ennfremur, að einn
Vestur-íslendingur hefur gef-
ið 50 þús. kr., er skal vera
deild í sjóðnum og varið til
trjáræktar á æskustöðvum
hans.
FYRSTA OG NÚVER- #
ANDI STJÓRN
— Hverjir voru í fyrstu
stjórn og hvernig er núver-
andi stjórn skipuð?
— Fyrsta stjórn Skógrækt-
arfélagsins var þannig skip-
uð: formaður: Sigurður Sig-
urðsson, búnaðarmálastjóri,
gjaldkeri: Maggi Júl. Magnús
læknir ritari: H. J. Hólmjárn
— og er hann það enn — með-
stjórnendur voru: Einar Árna
son fyrrverandi ráðherra og
Jón Ólafsson alþingismaður.
Núverandi stjórn er þann-
ig skipuð: formaður: Valtýr
Stefánsson, ritstjóri, ritari: H.
J. Hólmjárn, gjaldkeri: Guð-
mundur Marteinsson, með-
stjórnendur: Ingvar Gunnars-
son og Guðbrandur Magnús-
son..
I
NÝ SÓKN
— Hvað má segja um starf
félagsins nú?
— Auk undirbúnings ým-
issa framkvæmda erum við nú
að senda út hálft níunda þús-
und bréfa til einstakra manna
með ósk um að þeir gerist fé-
lagar. Þeir sem óska að ger-
ast félagar, geta. sett bréf-
spjöldin, sem við sendum
þeim í póstkassann. Þegar
hafa 12% svarað játandi, en
við Vonum að sú tala eigi eft-
ir að hækka þegar öll bréfin
hafa komið til viðtakenda og
frá líður. Við vonum, að sem
flestir vilji leggja fram sinn
skerf til þess að klæða land-
ið. ’
J. B.
Ovenjumikil þátttaka
í drengjamóti
r
Armanns
Hið árlega drengjamót Ár-
manns hefst á íþróttavellin-
um nœstkomandi mánudag.
Þátttaka er óvenjulega mikil,
yfir 50 keppendur frá níu
íþróttafélögum.
Þessi félög senda 'keppend-
ur á mótið:
Héraðssamband Þingeyinga,
Ungmennafél. Selfoss, Ung-
mennafél. Hvöt, Ungmenna-
fél. Skallagrímur, Iiaukar,
Hafnarfirði, Fimleikafélag
Hafnafrjarðar, Ármann, ÍR
og KR.
Keppt verður í þessum
hlaupum: 80 metra; 400 m.;
1500 m. og 3000 m. Ennfrem-
ur verður keppt í 1000 m. boð
hlaupi.
Keppt verður í þessum
stökkum: hástökki, lang-
stökki þrístökki og stangar-
stökki.
Þá verðu.r einnig keppt í
kúluvarpi, kringlukasti og
spjötkasti.
Búast má við övenju harðri
keppni, en hámarksaldur þátt
takenda hefur nú verið hækk-
aður upp í 19 ár.
45. þing Stórstúku íslands
lauk á sunnudag. Meðal til-
lagna, sem þar voru sam-
þykktar voru eftirfarandi:
Fertugasta og fimmta þing
Stórstúku íslands lítur svo á,
að áfengisneyzla landsmanna
sé orðið sjúklegt fyrirbæri,
sem þrátt fyrir alla fræðslu
og bindindisstarfsemi bæði
Reglunnar og annarra bind-
indismanna í landiriu, áger-
ist stöðugt, og áfengissala nk
isins sé sá smánarblettur á
menningu þjóðarinnar, að
þessu verði ekki unað, og þar
sem komið hafa fram fjöl-
margar áskoranir frá um-
dæmisstúkunum bæði sunn-.
anlands og norðan. fjölmenn-
um einstökum stúkum, bæjar
stjórnum og ýmsum fundum
og íélagasamtökum manna,
er allar - kref jast skjótra og
markvissra aðgerðá, þá leyn-
ir það sér ekki, að það er
vilji mikils hluta landsmanna
að reistar verði skorður hið
allra bráðasta gegn þessum
þjóðarvoða', sem áfengis-
neyzla og sala þjóðarinnar
er orðim
Stórstúka íslands samþykkir
því:
1. Að taka upp markvissá,
ákveðna og skipulagða bar-
áttu fyrir algeru banni á
innflutningi og sölu áfengis.
2. Að krefjast þess, að sú
undanþága frá áfengislög
gjöf þjóðarinnar, er lejdi til-
búning áfengra drykkja og
sölu að einhverju leyti, sé
tafarlaust numin úr gildi.
3. Að krefjast þess að
stjórnarvöld landsins láti lög
in um héraðabönn koma taf-
arlaust til framkvæmda.
4. Að það sé rækilega brýnt
fyrir templurum á öllum
stigum Reglunnar að vinna
■eindregið að því, að komizt
geti á sem allra fyrst algert,
áfengisbann, í landinu.
5. Unnið verði að því frá
Reglunnar hálfu, að sameina
alla þá krafta utanreglu-
manna í landinu, sem fáan-
legir eru, til ' markvissrar
samvinnu um algert áfengis-
bann.
6. Að krefjast þess af stjórn
arvöldum landsins, 1) að
komið verði tafarlaust alger
lega í veg fyrir allar áfengis-
veitingar á félagssamkomum
og öllum almennum mann-
fundum og skemmtunum, 2)
að allir embættismennþjóðar
innar setji hið ákjósanlega
fordæmi um reglusemí í hví-
vetna og skyldurækni til við-
lialds góðum siðum í land-
inu, og að alvarlegt brot
gegn slíku varði embættis
missi.
Stórstúkan ályktar að fela
framkvæmdanefnd sinni, að
láta athuga gildandi löggjöf
áhrærandi ofdrykkjumenn, og
beita sér • fyrir umbótum á
þeirri löggjöf; einkum til
verndar fjölskyldum drykkju
manna og þeim til hjálpar.
Stórstúkan beinir, því til
framkvæmdanefndar sinnar
að. hún leiti eftir að ná sam-
vinnu við félög og félagasam-
bönd í landinu, um að þau
leyfi . ekki áfengisneyzlu á
skemmtunum sínum og sam-
komum.
Stórstúkuþingið beinir því
til framkvæmdanefndar, að
hún hlutist til um við eftir-
litsmenn kvikmyndasýninga,
að börnum og unglingum sé
ekki leyfður aðgangur að
þeim kvikmyndasýningum,
sem sýna og reka. áfengisáróð-
ur.
Stórstúkuþingið beinir því
til f-ramkvæmdanefndar. að
beita sér fyrir sameiginlegum
fræðslufundum með þeim fé-
lögum í hverju byggðarlagi,
sem vinna að bindindismál-
um eða eru hlynnt þeim.
Stórstúkuþingið lýsir á-
nægju sinni yfnr bindindis-
málasýningunni, sem haldin
var s. 1. vetur og þar sem séð
er, að hún hefur gefið góða
raun, ályktar Stórstúkan að
fela framkvæmdanefnd sinni
undirbúning annarrar bindind
ismálasýningar, sem haldin sé
á þessu Stórstúkuári eða því
næsta eftir því, sem ástæður
leyfa. Skal í því sambandi
leitað samstarfs við þau fé-
lagakerfi, er ásamt' Stórstúk-
unni stóðu að síðustu sýningu.
Á þinginu var skipuð fimm.
manna nefnd til þess að fara
á fund útvarpsráðs og ræða
við) það um útvarp í þágu
Reglunnar og bindindismáls-
ins.
Þingið sendi Gísla Sigur-
björnssyni forstjóra Elliheim
ilisins þakkarskeyti fyrir á-
gæta samvinnu hugkvæmni
og dugnað við að koma á fót
bindindismálasýningunni.
Á sunnudagskvöld bauð
Þingstúka Reykjavíkur að-
komufulltrúunum til samsæt-
is í Góðtemplarahúsinu og
sátu það hátt á annað hundr-
•að manns.