Þjóðviljinn - 22.08.1945, Blaðsíða 4
4
ÞJÓÐVILJINlN
Miðvikud. 22. ágúst 1945.
þlÓOVILJINN
Utgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmólaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstræti 12, sími 2270. (Eftir kl.
19.00 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustig 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusimi 2184.
Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Sannarlega eru þær orðnar
miklar framfarirnar hér í Reykja
vík, að því er Vísir til frétta-
blaðs í Reykjavík segir í fyrra-
dag. Hann svipast um eftir fram-
förum og sjá: allar fallgryfjur
Afhending flugvallanna
og skurðir í götunum hafa verið
fylltir, svo nú getur það ekki
hent lengur „jafnvel stökustu
SAMÞYKIÍTIR SEM ÞARF AÐ
SÉRPRENTA
A. B. skrifar bæjarpóstinum
eftirfarandi:
„Það er nokkuð til sem heitir
lögreglusamþykkt Reykjavikur
og annað sem nefnist bygginga-
samþykkt Reykjavíkur. Þessar
samþykktir varða svo að segja
mjóik þannig meðfarinni eins og
ég hef lýst, geti borizt sóttkveikj-
ur miður heilsusamlegar til
neyzlu? Við þessu væri gott. að
fá svar, ásamt þeim spurningum
öðrum, sem að framan segir“.
ENN ÞÁ NOKKUR ORÐ UM
MANNINN, SEM „GETUR ALLT
NEMA GENGIÐ"
r
til Islendinga
Eftir að stríðinu er lokið nálgast sá tími óðum að
flugvellirnir hér á landi verði afhentir íslendingum. Bíður
þjóðin þess eðlilega með óþreyju, því sú afhending er af
hálfu Bandaríkjanna og Breta lokaviðurkenning á sjálfstæði
íslenzku þjóðarinnar, á valdi hennar og sjálfsforræði á
eigin landi.
Flugvellir þessir eru, — einkum þó Keflavíkurflugvöll-
urinn, — hin mestu mannvirki og gildi þeirra fyrir oss
er eigi aðeins pólitískt, þ. e. það að ráða sjálfir landi voru,
heldur og fjárhagslegt, þar sem hér er um að ræða hin
þýðingarmestu fyrirtæki. Vér vonumst til þess að flug-
ferðir verði mjög tíðar og rekstur flugvallanha er því mjög
veigamikið atriði fyrir oss íslendinga. Það er þess vegna
nauðsynjamál að undirbúa rekstur þeirra sem bezt og til
þess er m. a. nauðsynleg góð samvinna við hinar erlendu
herstjórnir á meðan þær enn stjórna völlunum.
Fyrstu flugferðiimar til útlanda með íslenzkum flugvél-
um hafa verið farnar nú fyrir skömmu. Það vantar því
ekki áhugann hjá íslendingum að taka þátt í alþjóðlegu
flugi, auk þess, sem flugið innanlands væri rekið af full-
um krafti. Og ekki mun draga úr þeim áhuga eða mögu-
leikum, þegar flugvellirnir eru komnir í hendur íslendinga.
Hvað skyldi vera pólitík Framsóknar ?
Það er áreiðanlega, fyrir óbreyttan kjósanda, einhver
erfiðasta gáta að ráða, hvað sé eiginlega pólitík Fram-
sóknar, — eða réttara sagt: hvaða pólitík Framsóknar-
menn ætlist til að menn haldi að sé þeirra pólitík.
Fyrir síðustu kosningar lýsti Hermann Jónasson því
yfir: að nú væri auðvaldsskipulagið dauðadæmt, nú yrðu
verkamenn og bændur að taka höndum saman undir
forustu Framsóknar!! — Verkamenn spurðu eðlilega hvort
það væri um launalækkun og atvinnuleysi, ríkislögreglu og
þrælalög, sem þeir ættu að sameinast Framsókn.
Á fundinum á Hólmavík í sumar lýsti Hermann Jón-
asson því yfir að það skyldi verða auðmönnunum dýrt
þegar þeir yrðu að semja við Framsókn! — Þá var hann
sem sé ekki lengur „verakamannaleiðtoginn mikli“ frá
kosningunum 1942, — þá var hann að leika í huganum
hlutverk Mussolinis frá 1922, er sá pólitíski braskari seldi
sig auðmönnum Ítalíu.
En hver er þá meiningin hjá þessum pólitísku „Kam-
eljónum“ Framsóknar?
Meiningin er sú að reyna að semja við einhverja stétt
um að komast til valda aftur, — vera „hægra“ megin
við atvinnurekendur í dag, „vinstra megin“ við verka-
mannastéttina á morgun! Tilgangurinn er auðsær: að
reyna að eyðileggja þá þjóðareiningu, sem tekizt hefur.
Mennirnir, sem einu sinni þóttust leika hlutverk
Þorgeirs Ljósvetningagoða, sjá nú einu von sína um völd
í því að reyna að rægja einn hluta þjóðarinnar svo gegn
öðrum að takast mætti að veikja þjóð vora og sundra
henni, svo sem á Sturlungaöld.
bindindismenn“(!) að lenda í
fallgryfjum og slasast stórlega.
En sú náð að menn skuli geta
gengið um göturnar hér í bæn-
um án bess að eiga á hættu að
slasast í skurðum og fallgryfj-
um!! Það hefur oft verið skrif-
aður leiðari af minna tilefni.
En Reykvíkingar eru ákaflega
vanþakklátt fólk, að dómi Vísis,
og hann gefur þessu fólki hóg-
værlega ráðleggingu: „lífið yrði
bærilegra, ef menn kvörtuðu
ekki stöðugt yfir alls konar vand
kvæðum."
Þarna hafið þið það, þið sem
búið í bröggum, skúrum og
kjöllurum. Lífið yrði ykkur bæri-
legra, ef þið væruð ekki alltaf
að kvarta yfir þeim vandkvæð-
um að vera sett í slíka bústaði.
Takið eftir þvf sem Vísir segir,
og þakkið fyrir allar framfar-
irnar í Reykjavík. ‘Þakkið fyrir
það hve mikið er byggt í Reykja-
vík.
' •
Fyrir nokkrum árum kom
hingað erient herlið og hrúgaði
upp braggahverfum í og umhverf
is bæinn. Bæjárbúar horfðu með
hálfgerðri undrun á þessar
byggingar og hjartagóðar konur
ræddu um það með hryllingi
hve það ýrði kalt og einmana-
legt fyrir aumingja hermenn-
ina að liafast við „í þessum
bröggum“ þegar vetrarkuldarnir
kæmu.
En jafnóðum og herinn yfirgaf
þessi bráðabirgðaskýli sín voru
þau fyllt af reykvískum konum
og börnum. Hvílíkar framfarir?
Er ckki ástæða til að þakka?
Finnst ykkur, sem búið í
þvottahússlausum, skolpleiðslu-
lausum, ryðguðum, lekum og
skítugum braggaliverfum, það
ekki vera satt sem Vísir segir,
að það megi „dæma stjórn borga
eftir því, livernig þær líta út“?
•
Það er ekki að undra þótt
Vísir segi að ;,almenningur mætti
hafa opin augun fyrir því sem
vel er gert“ — ,,og haga sér
eftir því í framtíðinni"!
Það er alveg víst, að almenn-
ingur mun hafa opin augun fyr-
ir því sem gert er í bænum.
Vísir getur verið alveg rólegur.
Það liafa vissulega orðið fram-
farir í Reykjavík. Mikilvægustu
framfarirnar eru einmitt þær að
almenningur hefur nú opnað
augun fyrir því hvernig hann
vill að bænum sé stjórnað og
„hagar sér eftir því í framtíð-
inni“.
hvern einasta bæjarbúa. En er
efni þeirra nægilega kunnugt al-
menningi? Eg er viss um að svo
er ekki. — Ástæðan er sú, að
almenningur hefur ekki aðgang
að þessum samþykktum, í það
minnsta ekki í aðgengilegu formi.
Það má fullyrða það, að
j ósjaldan stafa brot á fyrirmælum
téðra samþykkta einvörðungu af
skorti á kunnugleika á þeim. Úr
þessu mætti auðveldlega bæta
með því að sérprenta áðurnefnd-
ar samþykktir og e. t. v. fleiri,
sem almenningi eru að litlu kunn
ar, og senda þær inn á hvert
einasta heimili í bænum, með á-
skorun um að menn kynni sér
þær sem bezt.
Það er ekki nokkur vafi á því,
að sú ráðstöfun myndi gefa
nokkurn árangur í þá átt að
draga úr brotum á þessum
samþykktum og leiðinlegu þrasi,
sem af þeim stafar“.
MJÓLKURSALAN í BORGINNI
J. K. skrifar:
„Þegar ég kom inn í eina
mjólkurútsöluna hér um daginn
þá gat ég ekki annað en undr-
azt hvað hægt er að bjóða Reyk-
víkingum upp á mikinn sóðaskap.
Það er ekki nóg með að mjólkin
sé seld úr opnum ílátum, þar
sem hrært er og gutlað í fram
og aftur með ausu, heldur lekur
líka af mjólkurblautum höndum
stúlknanna stundum niður í þessi
ílát. Svo þegar þar við bætist, að
stundum er helt til baka úr ílát-
um kaupendanna í mjólkurdúnk-
ana, hafi verið mælt of mikið,
þá ætti hverjum meðalmanni að
vera nóg boðið. Því náttúrlega
geta þessi ílát eins verið frá
sóðaheimilum, eins og þeim sem
hreinleg eru. Eru engin yfirvöld
i í þessari borg, sem ber að hafa
eftirlit með sölu matvæla, að hún
fari fram eins og hjá siðuðum
mönnum? Hvar er héraðslæknir-
inn? Hvar er heilbrigðisnefndin
og heilbrigðisfulltrúinn? Er
mjólkursalan fyrir utan verka-
hring þessara velmetnu borgara?
Eða gera þessir aðilar ekki
skyldu sína?
Þegar súrfýluna leggur út úr
mjólkursölubúð þvert yfir breiða
götu, þá ætti það varla að fara
framhjá yfirvöldunum, ef þau
eru nokkur til, sem hreinlæti og
þrifnaður heyrir undir í þessari
borg. Hvernig væri annars að
nýi forstjórinn við Mjólkursam-
söluna kynnti sér þetta ástand,
og gerði ráðstafanir til úrbóta?
Eða er það máski ekki meining-
in að hér verði aftur tekin upp
mjólkursala á flöskum, eins og
allstaðar tíðkast meðal siðmennt-
áðra þjóða? Hvað er í veginum
fyrir þessu? Og svo þetta í við-
bót. Eru þeir góðu menn, land-,
læknir og héraðslæknir Reykja-
víkur ekkert hræddir við, að í
K. skrifar mér eftirfarandi
bréf:
„Þegar ég las frásögn Einars
Braga um manninn, sem getur
allt nema gengið, þá rifjaðist
upp fyrir mér dálítið atvik frá
í fyrra vetur. Við hjónin vorum
þá stödd í húsi upp á Bókhlöðu-
stíg að kvöldlagi og þar sáum
við tvær útskornar vegghillur,
sem vöktu sérstaka athygli okk-
ar, fyrir það hve haglega þær
voru gerðar. Þegar við spurðum
húsfreyjuna hvar hún hefði náð
í slíka dýrgripi, þá sagði hún
okkur að þær væru gerðar af
manni norður í Ólafsfirði, sem
hefði fengið máttleysisveikina og
gæti hann ekki gengið. Mig undr-
ar því ekkert, þó Einar Bragi
hafi orðið hrifinn af lista hand'-
bragði og kunnáttu þessa snill-
ings, ef mörg af verkum hans eru
gerð með jafnmikilli snilli og
hillurnar voru.“
EIGUM VIÐ MARGA SLÍKA
„En fyrst ég er farinn að tala
um þessa hluti, þá vil ég einnig
segja ykkur frá öðrum álíka
manni, gem býr líka á Norður-
landi. Eg á þar við Jóhann
Björnsson á Húsavík. Hann var
um fjölda ára berklasjúklingur,
en hefur nú náð nokkru starfs-
þreki aftur, eftir langa loft-
brjóstsaðgerð. Þessi maður getur
líka flesta hluti eins og hinn, og
vil ég hér telja upp nokkuð af
því sem mér er persónulega
kunnugt um að hann fæst við.
Hann gerir margskonar teikning-
ar, listmálar, mótar myndir í ieir,
smíðar húsgögn, sker út í tré,
bein og horn og skrautritar. Á
bókmenntasviðinu er hann líka
heima í flestum greinum, og
skrifar svo fallega rithönd að
unun er að lesa skriftina. Eg hef
séð nokkuð af verkum þessa
manns, og eru þau öll með hand-
bragði snillingsins. Það væri gam
an að vita hvort ísland á marga
fleiri slíka menn úti á lands-
byggðinni“.
TRYGGING FYRIR ÁGÆT-
UM ÚTISKEMMTUNUM
Bjarni skrifar eftirfarandi:
>,... Þeim, sem vilja fræðast
um framkvæmdir í landi Rauð-
hólaskálans, síðan Æskulýðsfylk-
ingin tók skálann á leigu fyrir
rúmu ári síðan, vil ég, í fullri
alvöru gefa það ráð, að heim-
sækja unga fólkið á næstu
skemmtun, sem haldin verður í
Rauðhólum. Þeim, sem unna úti-
skemmtunum, gefst áreiðanlega
hvergi annars staðar betri kostur
þess, að kynnast úrvalsútiskemmt
unum og hvernig þær eiga að
fara fram. í Rauðhólum fer
saman fagurt útsýni og sér-
lega gott fyrirkomulag á
skemmtistaðnum sjálfum og
reynslan hefur þegar sýnt, að
nafn Æskulýðsfylkingarinnar er
næg trygging fyrir ágætum
skemmtiatriðum og fyrsta
fiokks stjómsemi á öllum hlut-
um ... “