Þjóðviljinn - 04.09.1945, Page 4
4
Þrið'judagur 4. sept. 1945.
ÞJÖÐVIt JINM
þlÓÐVILJINN
Utgefahdi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstræti 12, sími 2270. (Eftir kl.
19.00 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Næstu sporin
Það eru mjög góð tíðindi að fengist hafa samningar
um smíði 30 togara í Englandi. Með þessu og þeim báta-
kaupum innanlands og erlendis, sem þegar er samið um,
er tryggt að framkvæmd verður, á þessu og næsta ári,
stórfelld nýsköpun, á því sviðinu sem þjóðinni ríður mest á.
Endurnýjun og stórfelld aukning fiskiflotans er tryggð.
Ekki verður hér látið staðar numið, með þessu er aðeins
lögð undirstaða, tryggð framleiðsla hráefna, og er þá næsta
sporið að koma hagnýtingu þeirra í fullkomið nútíma horf.
Eftir því sem tímaritið Ægir hermir er íslenzka sjó-
mannastéttin hin afkastamesta í heimi við fiskveiðar.
Hver íslenzkur fiskimaður aflar þrefalt meira en þeir,
sem næstir koma, en það eru Bretar. En engin þjóð í heimi
fær hins vegar eins lítið fyrir hvert kg. fiskjar, að
meðaltali, eins og íslendingar. Á þessu þarf að verða algjör
breyting. Við verðum að læra að hagnýta aflann svo þjóðin
geti notið hinna miklu afkasta fiskimannanna í sem ríkust
um mæli.
Það er því tvímælalaust næsta, og næst þýðingarmesta
spor nýsköpunarinnar, að koma upp fullkomnum fiskiðnaði,
byggðum á hinni fullkomnustu þekkingu og tækni, sem
nútíminn ræður yfir. Væntanlega snýr nýbyggingarráð sér
að þessu verkefni með fullum krafti, nú þegar svo farsæl-
lega er tryggð stórfelld aukning fiskiflotans. En jafnhliða
því að þannig er hugsað fyrir aðalatvinnuveginum, er
unnið og ber að vinna að nýsköpun landbúnaðarins. Þar
er þörfin að því leyti brýnust að sá atvinnuvegur er
skemmst kominn á braut tækniþróunarinnar, og þarfnast
því gjörbreytingar.
Rakvélar og bátavélar
Það eru sænskar vélar í miklum hluta fiskiflotans
íslenzka. Öll stríðsárin var ekki hægt að endurnýja þessar
vélar. Svíþjóð var lokað land. Þörfin fyrir varahluti er
því mjög brýn, og afkoma fjölda manns er því háð að úr
henni verði bætt. Hin fræga samninganefnd Stefán Jóhanns
samdi um innfl. á þessari nauðsynjavöru fyrir aðeins 150
þús. kr. Með því er áreiðanlega ekki fullnægt meira en
tíunda hluta þarfarinnar.
En það var tekið dálítið öðruvísi á málunum þegar farið
var að semja um innflutning á rakblöðum og rakvélum.
Af þessari vöru er samið um innflutning fyrir 350 þús. kr.
í landinu eru birgðir, sem endast í 5 ár.
Sölumiðstöð sænskra framleiðenda fær ekki umboð
fyrir varahluti í bátamótora. Þau umboð eru í höndum
annara frá gamalli tíð. Með rakblöðin gegnir öðru máli,
það er ekki kunnugt að einkaumboð hafi verið fyrir hendi
fyrir þá vöru. Það er því efalítið að Sölumiðstöð Stefáns
Jóhanns hefur það umboð nú. Alþýðublaðið, sem almennt
er nú kallað „rakblaðið", ætti að biðja „prófessor“ Hagalín
að skrifa „stórmerka“ skáldsögu um þetta atriði samn-
•ingsins. . ;
wdvt&imsr \ • * 0jL •
j uJœtamrttKmi'H,
/rv5rcft«V
Alþýðublaðið, rakblaðið hans
Stefáns Jóhanns, var um daginn
að harma, að Alþýðuflokkurinn
ætti engan fulltrúa í Fiskimála-
nefnd.
En hitt gleymdist að skýra frá
hvers vegna Alþýðuflokkurinn á
ekki mann í þessari merku
nefnd.
Það var hérna á árunum með-
an Alþýðuflokkurinn var upp-
gangsflokkur, að hann gat fengið
það lögfest á Alþingi, að þrír
stærstu flokkar þingsins skildu
skipa ýmsar merkar nefndir, þar
á meðal Fiskimálanefnd. Foringj-
ar flokksins voru það bjartsýnir,
að þeim kom ekki til hugar ann-
að en Alþýðuflokkurinn þeirra
yrði alltaf einn hinna þriggja
stóru flokka. og ákvæðið var
beinlínis sett til þess að útiloka
Sósíalistaflokkinn.
En framsýni Stefáns Jóhanns og
Co. reyndist ekki áreiðanleg.
Flokkurinn er hann stjórnaði tók
óðum að minnka, loks hafði tek-
izt að gera hann að minnsta
flokki þingsins, hann hætti að
verða einn hinna þriggja stóru.
En eftir sátu ákvæðin sem Al-
þýðufiokkurinn fékk Iögfest, um
forgangsrétt þriggja stærstu
þingflokkanna, en nú urðu þau
bara til þess að útiloka Alþýðu-
flokkinn. Úr þessu varð mesta
grín þegar kosið var í rannsókn-
arráð, en þá var reynt að fjölga
í ráðinu til þess að fulltrúi Al-
þýðuflokksins ylti ekki út. Og
það er óneitanlega dálítið bros-
legt að heyra Alþýðublaðið
barma sér þegar afleiðingar af
stjórnmálafólsku og fávizku
Stefáns Jóhanns og Co. hittir
flokkinn, sem undir stjórn hans
er orðinn minnsti flokkur lands-
ins.
Uppgjöf Japana
Framhald af 1. síðu.
ann og ritaði undir. Hann var
klæddur borgaralegum klæðn
aði, en hinir fulltrúar Jap-
ana voru í hvítum fötum, en
hvítur litur táknar sorg með-
al Japana.
PERCIWAL OG WAIN-
WRIGHT VITUNDAR-
VOTTAR
Þegar japönsku fulltrú-
arnir höfðu lokið við að rita
undir, rituðu þeir Perciwal
og Wainwright, hershöfðingj-
ar, undir sem vitundarvottar,
en þeir eru nýleystir úr fanga
búðum Japana 1 Mansjúríu.
Þá ritaði MacArthur undir
skilmálana sem yfirhershöfð-
ingi alls herafla Banda-
manna. Síðan ritaði fulltrúi
hvers Bandamannaríkis fyrir
sig undir; Fyrst Nimitz flota-
foringi fyrir Bandaríkin, þá
fulltrúi Kínverja, síðan
Blamey hershöfðingi fyrir
Ástralíu, því næst Gruce
Frazer flötafóringi fyrir Bret
SJÓMANNAHEIMILIÐ Á
SIGLUFIRÐI
„Dufþakdr" skrifar:
„Norður á Siglufirði ér stofn-
un sem nefnist Sjómanna- og
gestaheimili Siglufjarðár. Heim-
ili þetta var sett á laggirnar sum
arið 1939, af stúkunni „Fram-
sókn“ þar á staðnum. Eins og
nafnið ber með sér, er stofnun-
inni ætlað að vera tómstunda-
heimili hinna mörgu sjómanna og
verkamanna og kvenna, sem
dvelja á Siglufirði um lengri eða
skemmri tíma yfir síldveiðaver-
tíðina. Ennþá sem komið er, er
Sjómanna- og gestaheimili Siglu-
fjarðar aðeins tómstundaheimili.
Þar er hvorki rekið gistihús eða
matsala, en eins og síðar mun
komið að, hafa forráðamenn
heimilisins fullan hug á, að úr
því verði bætt, svo skjótt sem
heimilið fær aukið húsrými til
umráða.“
STARFSEMIN
„Eg var nýlega að lesa árs-
skýrslu um starfsemi Sjómanna-
og gestaheimilis Siglufjarðar fyr-
ir árið 1944, sem gefin er út í
bókarformi. Eg býst við að starf-
semi heimilisins sé komin í það
fast form, að taka megi bók-
staflega sém fasta liði í starf-
seminni, þau atriði er lúta að
heimilisháttum. Þar er sagt að
heimilið hafi tekið til starfa 11.
júní, eða „lítið eitt seinna" en
venjulega, og lokið störfum 30.
sept. Stúkan „Framsókn" sá um
reksturinn og naut til þess nokk-
urs fjárstyrks úr rikissjóði, og
frá bæjarsjóði Siglufjarðar og
Stórstúku íslands, en einkum þó
frá skipshöfnum og einstakling-
um, er styrkt hafa heimilið rausn
arlega með gjöfum og áheitum.
Var því fé varið til endurbóta
á húsnæði heimilisins og hús-
Jjúnaði.
Heimilið var opið frá kl. 10
f. h. til kl. 23,30. í lesstofu gátu
menn lesið blöð og tímarit. Þar
voru pappir og ritföng, sem gest-
ir fengu að nota endurgjalds-
laust til bréfaskrifta. Bókasafn
heimilisins er um 800 bindi, og
voru bækur úr því mikið lánaðar
í lestrarsal. Auk þess voru hafðir
sérstakir bókakassar, sem lán-
aðir voru skipum, og fékk safnið
þá alla aftur með góðum skilum.
AÐSÓKNIN MIKIL
„Aðsóknin að heimilinu var
með mesta móti í fyrra. Voru
skráðir í dagbók 7404 gestir. en
flestir á einum degi, 360. Mikill
fjöldi símtala var afgreiddur frá
heimilinu og hundruðum bréfa
komið í póst. Frímerki seld. Pen-
ingar, föt og sendingar, teknar í
geymslu. Aðgangur var öllum
frjáls, sem hlýða settum um-
gengnisreglum heimilisins.
í veitingasal heimilisins voru
seldar veitingar allan daginn.
Komið hafði verið upp böðum
land og síðan fulltrúar Sov-
étríkjanna, Hollands, Frakk-
lands og Nýja Sjálands.
4 MANNA RÁÐ
MacArthur hefur lagt til,
að komið verði á fót 4 nranna
ráði til að stjórna Japan,
þangað til álitið verður, að
þeir séu hæfir að stjórna sér
sjálfir. I þessu ráði eigi sæti
fulltrar Bandarík-janna, Bxet-
'lands, Sovétríkjanna og Kína.
fyrir gesti á heimilinu, og voru
þau mikið notuð.“
FRAMTÍÐARVERKEFNI
HEIMILISINS
„Um framtíðarverkefni Sjó-
manna- og gestaheimilis Siglu-
fjarðar segir svo í ársskýrslunni:
„Þeir, sem fylgzt hafa með
starfi Sjómannaheimilisins und-
anfarin ár, munu hafa veitt því
eftirtekt, að starf þetta hefur
vaxið jafnt og þétt, enda hefur
það átt ágætum vinsældum að
fagna meðal sjómanna og orðið
til þess að styrkja það beint og
óbeint.
Allt, sem vel hefur tekizt í
þessu starfi, og öll vinsenmd og
stuðningur hefur orðið hvöt til
að efla starfið meir og meir,
enda hafa húsakynnin verið stór
um bætt og starfsemin aukin
mjög frá því, sem var fyrstu
árin. Þó skortir enn nokkuð á,
að hægt sé að fullnægja þörfum
allra, er á heimilið koma, er
það einkum tvennt, sem oft er
spurt um, og ekki er enn unnt
að láta í té, en það er fæði og
gisting. Húsakynni þau, sem
heimilið hefur nú yfir að ráða,
leyfa ekki slíka starfsemi. Þó
hefur stjórnin í hyggju að
reyna að bæta úr þessu á kom-
andi árum, annaðhvort með ný-
byggingu eða á annan hátt, er
tiltækilegt þykir. Er því í ráði að
leggja það fé, er safnast kann
á þessu ári, umfram það, er nota
þarf til reksturs og nauðsynlegra
endurbóta, í sjóð, til þess að
auka húsakynni í samræmi við
það, er áður er sagt, með það
fyrir augum að geta svo fljótt
sem auðið er, veitt mönnum gist-
ingu og fæði. Þá fyrst er hægt að
segja, að takmarkinu sé náð
með þessari starfsemi, þá er hér
orðið heimili í raun og sannleika.
St. Framsókn nr. 187, hefur
eins og að undanförnu, annazt
rekstur Sjómannaheimiltsins og
stjórn þess skipuðu, eins og áðúr
þeir Pétur Björnsson kaupm.,
Andrés Hafliðason forstjóri og
Óskar J. Þorláksson sóknarprest-
ÞETTA ÞYRFTU FLEIRI AÐ
GERA
„Það er enginn vafi á því, að
templarar á Siglufirði hafa leyst
af höndum mikið starf og gott,
með rekstri Sjómannaheimilisins
og starfsemi þess stendur vissu-
lega til bóta. Slík „heimili"
þurfa að rísa upp víðar á land-
inu, t. d. í Vestmannaeyjum og
Keflavík. Hér í Reykjavík væri
þó kannski ekki hvað minnst
þörfin fyrir slík tómstundaheim-
ili, er einnig gætu verið gistihús
og matsölur, eftir því sem henta
þætti. Er hér ekki um að ræða
verkefni fyrir hin mörgu héraða
félög, sem þotið hafa upp í
Reykjavík á síðustu árum? Hing
að til hafa þau sum hver unnið
sér það helzt til frægðar að
stofna til drykkjuveizlha að
Hótel Borg. Það væri ekki svo
fráleitt af þeim að snúa sér fram
vegis að einhverjum hagnýtari
verkefnum, eins og t. d. að koma
upp félagsheimilum. Er það kunn
Ugt að eitt þessara félaga hefur
nú þegar komið auga á þetta, og
ætti það að verða öðrum félög-
um hvatning, til að gera slíkt
hið sama- Veit ég vel að húsnæð-
isskorturinn yrði Þrándur í
Götu þeirra framkvæmda, en
fram hjá þeim vanda yrði stýrt
sem öðrum, ef margra atfylgi
kæmi þar saman."