Þjóðviljinn - 04.09.1945, Blaðsíða 5
Þriðjuáagur '4? 'sept. 1945.
ÞJÓÐVILJINN
• «
Fra fræðslumálastjórninni
Misskilningur leiðréttur
í Alþýðublaðinu þann 25.
júlí síðastliðinn er grein er
heitir: „Vegið að lýðræðinu
af veitingarvaldinu í skóla-
málum“. Er þar veitzt að
menntamálaráðherra og
fræðslumálastjóra fyrir setn-
ingu skólastjóra við gagn-
fræðaskólann á Akranesi og
því haldið fram, að fræðslu-
málastjórn hafi tekið sér vald
er henni ekki bæri.
Vegna þessa vill fræðslu-
málastjórnin taka fram, að á
síðastliðnu hausti var fallizt
á það, að sr. Sigurjón Guð-
jónsson, þáverandi skólastj.,
fæli Magnúsi Jónssyni, kenn-
ara við skólann, að gegna
skólastjórastörfum fyrir sig
að svo miklu leyti, sem hann
gæti ekki sinnt þeim sjálfur.
Var þetta síðar staðfest með
bréfi ráðuneytisins, dags. 3.
okt. f. á. Helgi Þorláksson
var ráðinn til þess að vera
kennari við skólann síðastlið-
inn vetur.
Nokkru fyrir áramót sagði
sr. Sigurjón lausri skólastjóra
stöðunni og í samræmi við
áðurgrejnt bréf tók Magnús
við skólastjórn, enda var eng
inn tími t-il þess að auglýsa
stöðuna og ekki fært á miðj-
um starfstíma, enda er það
venja þegar svipað stendur á,
að sá kennari, sem lengst hef-
ur starfað við skólann, taki
við stjórn hans og er ekki lit-
ið svo á, að slík ráðstöfun sé
á neinn hátt bindandi um á-
framhaldandi setningu eða
veitingu. Samkvæmt kröfu
Magnúsar var þessi ráðstöfun
staðfest með bréfi ráðuneyt-
isins, dags. 22. des. f. á., þar
sem jafnframt .var tekið fram
að auglýsa skyldi stöðuna í
vor og var það gert.
Lögum samkvæmt gerir
skólanefnd fyrst tillögur um
val skólastjóra og kennara og
sendir þær fræðslumálastjóra.
Hann sendir svo álit sitt til
ráðuneytisins, sem svo veitir
stöðuna. Það, sem gerzt hefur
í þessu máli, verður bezt
skýrt með því að birta bréf
fræðslumálastjóra til ráðu-
neytisins, dags. 16. f. m., þar
sem hann gerir tillögur um
val skólastjóra og er það á
þessa leið:
„Hér með sendist ráðuneyt-
inu:
1. Bréf skólanefndar gagn-
fræðaskólans á Akranesi,
dags. 10. þ. m. viðvíkjandi til-
lögu nefndarinnar um val
skólastjóra að téðum skóla.
2. Umsóknir um skólastjóra
stöðuna — ásamt fylgiskjöl-
um — frá Axel Benediktssyni
kennara á Húsavík, Guð-
brandi Magnússyni, kennara
við gagnfræðaskólann á Siglu
firði, Helga Þorlákssyni, kenn
ara við gagnfræðaskólann á
Akranesi og Magnúsi Jóns-
syni, settum skólastjóra við
sama skóla.
Axel Benediktsson lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri vorið 1935
með I. einkunn (6.00). Hann
lauk heimspekiprófi við Há-
skóla íslands vorið 1937 (14.
apríl) með I. eink. og kenn-
araprófi í kennaraskólanum
sama vor með I. einkunn
(7.50). Hann hefur kennt síð-
an haustið 1937, fyrstu 2 vet-
urna farkennari, þá einn vet-
ur í forföllum annars í Haga-
nesvík og síðan 1940 fastur
kennari við barnaskólann á
Húsavík og jafnframt við
unglingaskólann þar.
Guðbrandur Magnússon
lauk kennaraprófi vorið 1935
með góðri I. eink. (8.41). Vet-
urinn 1837—38 var hann við
nám í Englandi og kynnti sér
einkum skriftarkennslu.
Kennslustörf: 1935—36 við
bændaskólann á Hvanneyri,
1936—37 stunda- og forfalla-
kennsla við Austurbæjarskól-
ann í Reykjavík. Haustið 1938
skólastjóri við barnaskólann
á Hofsósi og síðan 1. 10. 1941
kennari við gagnfræðaskól-
ann á Siglufirði.
Helgi Þorláksson lauk stúd-
entsprófi úr stærðfræðideild
Menntaskólans 1 Reykjavík
vorið#1938 með II. eink. (7.09)
og kennaraprófi sama ár með
góðri I. eink. (8.67). Sama
haustið varð hann fastur
kennari- við barnaskólann í
Vestmannaeyjum og gegndi
þeirri stöðu til haustsins 1943,
er hann varð kennari við
gagnfræðaskólann þar. Sam-
hliða barnakennslunni var
Helgi flest árin stundakenn-
ari við gagnfræðaskólann og
iðnskólann í Vestmannaeyj-
um. Síðastliðið haust réðist
hann sem kennari við gagn-
fræðaskólann á Akranesi.
Magnús Jónsson lauk kenn-
araprófi vorið 1938 með I.
eink. (7.33). Sama ár tók
hann gagnfræðapróf við
Menntaskólann í Reykjavík
í þeim greinum, er þurfti til
þess að setjast í 4. bek’* |
Menntaskólans. Síðar bjó
hann sig undir stúdentspróf
stærðfræðideildar en varð að
hætt við það 1941 sökum
augnveiki áður en því varð
lokið. Kennslustörf: 1941—42
stundakennari við barnaskól-
ann í Vestmannaeyjum, 1942
—43 kennari við gagnfræða-
skólann þar, 1943—44 kennari
við gagnfræðaskólann á
Akrapesi og áfram næsta vet-
ur á eftir þar til hann var
settur skólastjóri við þann
skóla í stað sr. Sigurjóns ,Guð
jónssonar, er sagði lausri
stöðu sinni fyrir miðjan vet-
ur.
Skólánefndin mælir öll
með því, að Magnús Jónsson
fái þessá stöðu, en aðra um-
sækjendur minnist hún ekki
á, og gerir því enga__grem
fyxir þvír hvérs vegna þeir
virðast ekki koma til greina,
enda þótt þeir hafi sumir
meiri menntun en sá, er hún
mælir með. Að vísu þekkir
skólanefnd Magnús bezt af
þeim er sóttu. Hann er mynd
arlegur og prúðmenni mikið,
stjórnsamur í kennslustund-
um og vinsæll af nemendum,
en svipað er og að segja um
hina umsækjendurna.
í umræðum milliþinga-
nefndar í skólámálum um
gagnfræðanám og menntun
gagnfræðaskólakennara var
það að vandlega athuguðu
rriáli álit allra nefndarmanna,
að mjög skorti eins og sakir
stæðu á það, að nægilega
margir vel menntaðir kenn-
arar væru við héraðs- og
gagnfræðaskólana, enda væru
engin lágmarksákvæði í nú-
gildandi lögum um menntun
þeirra. Sjónarmið milliþinga-
nefndarinnar þessu viðvíkj-
andi er markað í 38. gr. frum
varps þess, er hún hefur sam-
ið um gagnfræðanám, og fylg
ir hér með. Enda þótt frum-
varp þetta sé ekki orðið að
lögum, þá virðist mér ein-
sætt, að keppa beri að því nú
þegar, að kennarastöður verði
veittar með hliðsjón af þeim
kröfum er frumvarpið gerir,
og þá ekki sízt, þegar um
•^ólastjórastöður er að
ræða, því að þess verðpr von-
andi ekki langt að bíða, að
nægilegur fjöidi umsækj-
enda verði um þessar stöð-
ur úr hópi fólks, sem full-
nægir umræddum menntunar
kröfum. Tel ég, að það gæti
orðið til óþæginda og leið-
inda fyrir skólastjóra, ef
hann hefði mun minni mennt
un en kennarar við sama
skóla.
Enginn þeirra umsækjenda,
er þér hafa verið greindir,
fullnægja að öllu leyti mennt
unarkröfum þeim, sem gerð-
ax eru 1 áðurgreindu frum-
varpi um gagnfræðanám.
Þeir Axel Benediktsson og
Helgi Þorláksson komast
næst því. Samkvæmt framan-
Tituðu og með hliðsjón af
plöggum þeim, er fylgja um-
sóknunum og ennfremur
vegna þess, að Helgi Þorláks-
son hefur kennt lengst við
fjölmenna skóla og mun vera
einna fjölhæfastur umsækj-
endanna, þá meeli ég með hon
um fyrstum, þar næst með
Axel Benediktssyni og sem
nr. 3 með Magnúsi Jónssyni.
Setning gildi um 1 ár frá 1.
sept. þ. á. að telja“.
Ráðuneytið féllst algerlega
á sjónarmið óg tillögur
fræðslumálastjóra og setti því
Helga Þorláksson til þess að
vera skólastjóri gagnfræða-
skólans á Akranesi um 1 ár
frá 1. sept þ. á. að telja.
Þar qð viðræður hafa nú
-farið fram milli núverandi
Framh. á 8. síðu
íhlutun erlöndra ríkja um búlgörsku
kosningarnar byggð á týlliástæðum
^EGNA ÍHLUTUNAR erlendra ríkja, einkum
Bandaríkjanna, var kosningunum í Búlgaríu
frestað, og ásakanir komu fram i afturhaldsblöðum
um „kúgunarstjórn11 þar.
Sendiherra Búlgara í Stokkhólmi, Ilíeff, befur
í viðtali við sænsk blöð skýrt ýtarléga frá stjórn-
málaástandinu í landinu, og fara hér á eftir nokkur
ummæli sendiherrans.
•
^JNDANFARIÐ hafa ensk og þandarísk blöð rætt
” mjög ástandið í Suðvestur-Evrópu og þá eink-
■ um Búlgaríu. Eg vil því gefa sænskum blöðum
nokkrar upplýsingar um ástandið þar, eins og .það
er í raun og veru. Utanríkispólitík búlgörsku Ætt-
jarðarfylkingarinnar, sem stendur að ríkisstjórninni,
miðar að vináttu og samvinnu við stórveldin, Sov-
étríkin, England og Bandaríkin, við önnur Balkan-
ríki og þá fyrst og fremst við Júgpslavíu og Rúm-
eníu og allar aðrar frelsisunnandi þjóðir.
Milli Búlgaríu annars vegar og Tyrklands og
Grikklands hins vegar hafa komið upp deilur um
landamæri, en Búlgaría hefur undanfarna mán-
uði gert allt til að forðast árekstra. Enda er nú allt
með kyrrum kjörum á Balkanskaga.
í utanríkispólitík sinni leggur Búlgaría sérstaka
áherzlu á samvinnu við hinar aðrar slavnesku þjóðir,
sovétþjóðirnar, Pólverja, Tékka, Slovaka og Júgo-
slava. Er þegar komið á náið samstarf þessara þjóða,
og hefur mjög aukizt síðustu mánuðina.
•
^NNAÐ ATRIÐI í utanrikispólitík Búlgaríu er ósk
um að komast sem fyrst inn í bandalag Sam-
einuðu þjóðanna. Eftir Potsdamráðstefnuna hefur
Búlgaría og Sovétrikin á ný skipzt á sendiherrum
og væntir þess að samskonar samband við Bretland
og Bandaríkin takist á næstunni. Þessi utanríkis-
pólitísku atriði eru þáttur í kosningastefnuskrá Ætt-
j arðarfylkingarinnar.
Kjósa á eftir nýjum kqsningalögum og hafa
kosningarrétt samkvæmt þeim allir búlgarskir þegn-
ar sem náð hafa 19 ára aldri, og kjörgengi er bund-
ið við tuttugu og þriggja ára aldur. Upphaflega
ákváðu þeir fjórir flokkar, sem mynda Ættjarðar-
fylkinguna (Bændaflokkur, Kommúnistar, Sósíal-
demókratar og Frjálslyndi flokkurinn) að hafa sam-
fylkingu í kosningunum. Hlutföllin milli fram-
bjóðendatölu hvers flokks voru ákvqðin með ná-
kvæmu tilliti til styrks hvers flokks í hinum ein-
Stöku kjördæmum. Að kommúnistar fengu fleiri
frambjóðendur en sósíaldemókratar er ekki merki
um vöntun á lýðræði í Búlgaríu, heldur byggist á
þeirri staðreynd, að Kommúnistaflokkurinn er tvisv-
ar til þrisvar sinnum stærri en Sósíaldemókrata-
flokkurinn“.
^ENDIHERRANN lagði áherzlu á það mikla álit
sem Georgi Dimitroff, leiðtogi Kommúnista-
flokksins, nyti í Búlgaríu. Væri það ekki bundið við
flokk hans, heldur almenn viðurkenning fyrir bar-
áttu hans sem búlgarsks ættjarðarvinar og andstæð-
ings nazismans.
Ilíeff sendiherra lýsti loks yfir því, að marg-
víslegar ráðstafanir hefðu verið gerðar til að
tryggja lýðræðislegar kosningar, og vísaði á bug
ásökunum um að stjórnarandstaðan hefði ekki feng-
ið að taka þátt í þeim. Þrenn samtök stjórnarand-
stæðinga buðu fram. Ætt-jarðarfylkingin, þjóð-
frelsishreyfingin og önnur stjórnarvöld hefðu lagt
séi-staka áherzlu á, að fyllsta málfrelsi, ritfrelsi og
fundafrelsi ríki alls staðar í kqsningabaráttunni. ,)