Þjóðviljinn - 04.09.1945, Page 8
r ■
Aðalbygging Yinnuheimilis S.I.B.S, verður
að komast upp fljótt
r
S.I.B.S, efnir til glæsilegs happdrættis til að afla fjár til bygg-
ingarmnar ~ Aðalsöludagur verður um allt land í dag
Samband. íslenzkra berklasjúklinga efnir til happ-
drœttis til ágóða fyrir vinnuheimili sitt að Reykjaíundi.
Ágóðanum af happdrætti þessu á að vetja til að koma
upp aðalbyggingunni í byggðahverfinu að Reykjalundi.
Happdrœtti þetta mun véra eitt það glæsilegasta
á árinu, meðal vinningánna er, tveggja sæta flugvél á
50 þús. kr., skemmtisnékkja, flugferð til Nevo York og
ferð til Norðurlanda — alls 20 vinningar.
Aðalsöludagur happdrœttismiðanna er i dag.
Þeir Árni Einársson, for-
maður Vinnuheimilisstjórnar-
innar og Oddur Ólafsson yfir
læknir og framkvæmdastjóri
vinnuheimilisins skýrðu
fréttamönnum frá þessu í
gær.
Á síðastliðnu ári var hafin
bygging húsa fyrir vist-
menn heimilisins, var lokið
við 10 og tók heimilið til
starfa 1. febr. á þessu ári.
Auk fleiri íbúða fyrir vist-
menn þarf að reisa þarna
aðalbyggingu er verði mið-
stöð starfseminnar, verða þar
skrifstofur, lækningastofa,
eldhús, borðstofa, dagstofa,
íbúð 40 vistmanna o. fl. og
verður þessi bygging reist
næst, og til að afla fjár til
þeirrar byggingar hefur verið
efnt til þessa haþpdrættis.
Undirbúningur að þessari
byggingu er nú langt komið,
hafa teikningar verið gerðar,
— og liggja fyrir til samþykk
is heilbrigðismálastjórnar-
innar.
Verður hús þetta 1. til
þriggja hæða hús. Verið er að
b,yggja læknisbústað, starfs-
mannahús og 1 vistmannbú-
stað, en alls er ráðgert að
reisa 24 vistmannabústaði.
ÁÐUR ÓNOTAÐIR
STARFSKRAFTAR —
FUNDIÐ FÉ
Vinnuheimilið að Reykja-
lundi tókt sem fyrr segir til
starfa 1. febrúar s.l. og dveija
þar nú 40 vistmenn. Hafa
þeir dvalið þarna uppfrá 7
mánuði og karlmenn unnið
að rennismíði, leikfangagerð
og léttri járnsmíði, en konur
að prjóna- og saumaskap.
Styttsti vinnutími er 3 stund-
ir, lengsti 6 stundir. Unnið er
frá kl. 9—12, þá kvíld til kl.
3 og þá unnið til kl. 6.
Hefur komið í ljós að fólk
Misskilningur
leiðréttur
Framhald at 5. síðu.
skólanefndar gagnfræðaskól-
ans og fræðslumálastjórnar
um þetta mál, og samkomu-
lag orðið um tilhÖgún og
rekstur skólans í vetur,' sér
fraeðslumálastjórnin ekki á-
stáeðu til þess að taka fleira
fram þessu viðvíkjandi.
þetta afkastar ótrúlegá góðri
vinnu, en flest af þessu fólki
hefði orðið að dvelja iðju-
laust á hælum, þar sem það
þolir ekki almenna né lengri
vinnu við venjuleg vinnuskil
yrði. Er þarna því um fundið
fé að ræða, starfskráfta sem
annars hefðu ekki verið not-
aðir, um leið og vistmönnum
veitist tækifæri til að vinna
fyrir dvöl sinni, sem þeim
hefði verið ókleift annars
staðar.
AÐ ALB Y GGINGIN —
NÆSTA ÁTAKIÐ
Auk þess að vinna að lækn-
isbústaðnum og starfsmanna-
húsi hefur í sumar verið unn
ið að því að hreinsa til á
staðnum og fegra hann, en
þarna var áður herskála-
hverfi, og hefur Reykjalund-
ur tekið miklum stakkaskipt-
um í sumar.
En nœsta átakið er að
koma upp aðalbyggingunni
er verður miðstöð starfsem-
innar þarna, og hefur S. í.
B. S. efnt til fyrrnefnds happ-
drættis í fjáröflunarskyni.
Starfsemi S.Í.B.S. hefur
notið mikilla og almennra
vinsælda og heitir samband-
ið nú á vini sína að bregðast
vel við, og styðja starfsemina
með því að kaupa miða, en á
þann hátt styrkja þeir ekki
aðeins gott málefni, heldur
leggja einnig fé til hagrænnar
starfsemi, um leið og þeir
sjálfir eiga þess kost að eign
r—r-% -
Up boi»giDnI
Nætarlæknir er í læknavarð-
stofunni Austurbæjarskólanum,
sími 5030.
Ljósatím ökutækja er frá kl.
20.10 til 4.40.
Næturakstur: Bifröst, sími
1508.
Næturvörður er í Ingólfsapó-
teki.
Trúlofun. Síðastliðinn laugar-
dag opinberuðu trúlofun sína’
ungfrú Guðrún Pálsdóttir, Njáls-
göfcu 72 og Bjarni Magnússon
Skólavörðustíg 19.
ast góða hluti, eins og flugvél
flugferð til Ameríku og far-
miða til Norðurlanda.
(Auglýsirig um vinningana
er á 7. síðu blaðsins í dag.).
FYRIRKOMULAG
HAPRÐRÆTTISINS
Aðalsöludagur happdrætt-
isins verður í dag, verður selt
á götunni og gengið á vinnu-
staði, verða miðarnir seldir
um allt land samtímis:
Það sem óselt verður í
kvöld af miðum mun liggja
frammi í verzlunum, en á-
kveðið er að dráttur fari
fram á ársafmæli heimilisins,
1. febr. næstkomandi.
Skákkeppni milli
Reykvíkinga og
V estmannaeyinga
í fyrradag fór fram skák-
keppni milli Taflfélags Vest-
mannaeyja og Taflfélags
Reykjavíkur. — Sigraði Tafl-
félag Reykjavíkur. Taflfélag
Vestmajmaeyja með 61/2
vinningi gegn 21/á.
Ýfirlýsing Fiskimála-
nefndar
Framhald af 1. síðu
þar sem ákveðið er í samningn
um að mánaðarleigur skulu
greiddar af skipunum fyrir-
fram, og ábyrgð ríkisins á yfir-
drættihum er því bein afleið-
ing þess að ríkið gerði samn-
inginn, enda hefur ríkið engin
skilyrði sett fyrir ábyrgðinni.
Þó að reksturshalli verði á
útgerð skipanna (sem ekki er
hægt um að segja fyrr en
leigutímabilinu lýkur), þá ber
Fiskimálanefnd ekki ábyrgð á
því, hún hefur aðeins tekið að
sér að framkvæmt þann samn-
ing sem þing og stjórn hafa
talið óhjákvæmilegann.
6. Það er fullkominn misskiln-
ingur að deila á Fiskimála-
nefnd fyrir að færeyski skipa-
leigusamningurinn var gerður.
Fiskimálanefnd gerði ekki
samninginn, en Alþingi og rík-
isstjórn gerðu hann með sam-
hljóða ákvörðun.
Og öll ríkisstjórnin hefur
talið skipin svo ómissandi við
fiskflutningana, að hún hefur
ekki talið fært að segja þeim
upp.
Reykjavík, 3. sept. 1945.
Fiskimálanefnd
Lúðvík Jósepsson Pálmi Loftsson
Þorl. Jónsson.“
4tvinnumálaráðhe
athugunar á afkonrn útgerðarinnar
Á að gera tillögur um aðgerðir til hjálpar
útgerðinni vegna aflabrests á síldarvertíðirlni
Að tilhlutun atvinnumálaráðherra hefur verið skipuð
fimm manna nefnd til þess að athuga og gera tillögur
um á hvern hátt hægt er að verja útgerðina skakkaföllum
sém orsakast af aflabresti og öðrum áviðráðanlegum orsök-
um.
Útgerðin hefur orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni vegna
aflabrests á síldarvertíðinni og mun nefndarskipun þéssi
mælast vel fyrir.
Fulltrúa í nefndinni eiga eftirfarandi félagasamtök:
Alþýðusambandið, Farmanna- og fiskimannasambandið,,
Fiskifélagið og Landssamband ísl. útvegsmanna.
Svohljóðand frétt um
nefndarskipun þessa barst
Þjóðviljanum í gær:
„Þar sem síldveiðin hefur
brugðizt að mestu leyti þetta
ár, sem hlýtur að hafa í för
með sér stórfelld fjárhagsleg
skakkaföll fyrir útgerðina,
taldi atvinnumálaráðuneytið
nauðsynlegt að athugað væri
hvað tiltækilegast þætti að
gera til þess að hjálpa út-
gerðinni yfir þessi vandræði.
Með tilliti til þessa hefur
ráðuneytið skipað nefnd til
athugunar á þessum málum
og til þess að gera tillögur
um aðgérðir.
Verkefni nefndarinnar er
að gera tillögur um trygging
ar er miði að því að verja út-
gerðina skakkaföllum sem or-
sakast af óviðráðanlegum á-
stæðum, svo sem aflabresti o.
fl.
Ætlast er til að nefndin
geri sem allra fyrst tillögur
um aðgerðir til hjálpar út-
gerðinni vegna aflabrests á
síldárvertíð þeirr sem nú er
lokið.
í nefndina hafa verið skip-
aðir:
Kr. Guðmundur Guðmunds
son, tryggingafræðingur, sem
r-------
Hefur þú skilað)
Flokksmenn eru alvar
lega minntir á að skila
strax eftirtöldum gögn-
um í skrifst. miðstjórnar
eða félagsins:
Söínunarlistum frá 8
síðu söfnun Þjóðviljans
(gulir listar með rauöri
fyrirsögn, Söfnunar-
blokkum frá prentsmiðju
söfnun Þjóðviljans og
könnunarlistum þeim,
sem öllum flokksmönn-
voru sendir i pósti fyrir
skömmu
Þaö er mjög áríðandi
aö flokksfélagarnir geri
þá sjálfsögöu skyldu sína
að draga ekki lengur að
skila þessum gögnum og
géra ekki skrifstofum
flokksins erfiðara fyrir
í starfi en þörf er á.
>.---------------- j
jafnframt er formaður nefnd-
arinnar. Bjarni Þórðarson
sjómaður, Neskaupstað, sam-
kvæmt tilnefningu Alþýðu-
sambands íslands, og vara-
maður fyrir hann Guðmund-
ur Vigfússön, erindreki,
Reykjavík. Ólafur Magnússon
skipstjóri, Borgarnesi, sam-
kvæmt tilnefningu Farmapna
og fiskimannasambands ís-
lands, og varamaður fyrir
hann Guðmundur Jónsson,
skipsstjóri, Vesturgötu 52 B,
Reykjavík, Davíð Ólafsson
fiskimálastjóri, samkvæmt
tilnefningu Fiskifélags ís-
lands, og varamaður fyrir
hann Arnór Guðmundsson
skrifstofustjóri, Reykjavík og
Ólafur B. Björnsson útgerð-
armaður Akranesi, samkv. til-
nefningu Landssambands ísl.
útvegsmanna.“
Nefndin tók til starfa í
gær..
Walterskeppnin:
Valur vann KR
með 4:1
W alterskeppnin hófst í
fyrradag, með leik milli Vals
og KR. Er þetta meistara-
flokkskeppni. Leikar fóru
þannig að Valur sigraði KR
með 4 mörkum gegn 1.
de Gaulle hehhir
fast við afturhads-
fyrirkomulag
kosninganna
de Gaulle hefur neitað að
rœða við fulltrúa franska
verkalýðssambandsins og
vinstriflokkanna um breyt-
ingu á kosningatilhöguninni,
en talið er að róttæku öflin
í Frakklandi séu staðráðin að
láta ekki þar við sitja.