Þjóðviljinn - 05.10.1945, Page 7
Föstudagur 5. okt. 1945.
7
felOPVILJINN
Skyldur og starfsleysi
í daglegu tali er íþróttahreyfingin nefnd áhugamanna-
hreyfing um íþróttamál. Það þýðir, að þeir kraftar sem
bera hana uppi bæði sem keppendur og stjórnendur, gera
það án endurgjalds af einskærum áhuga. Þeir trúa því að
slík starfsemi sé uppalandi og þroskandi þeim er við hana
bindast, að hún sé þjóðholl. Þessir menn, sérstaklega þeir
sem standa utan við leikinn, — gamanið, — og taka starf
sitt alvarlega, sýna þegnskap sem verður er þakklætis.
Það hefur oft borið á góma hverjar skyldur áhugamanns-
ins séu í raun og veru og hvers sé hægt að krefjast af
honum.
ÍÞRÓTTIR
Ritstjóri: FRÍMANN HELGASON
i
Sundmót Hafnarfjarðar
J
Um þetta munu nokkuð skiptar skoðanir. Margir bein-
línis afsaka starfsleysi sitt í stöðum sem þeir eru valdir til,
með því að þetta sé nú aðeins áhugastarf og ekki sé
hægt að ganga eins hart eftir hlutunum þegar svo stendur
á. Aðrir líta aftur á móti á störf þau sem íþróttahreyfingin
felur þeim, sem hrein skyldustörf sem verði að leysa eins
samvizkusamlega af hendi sem fulllaunuð væru. Þáð eru
þessir menn sem hægt er að treysta og þeir sem bera uppi
starfið.
Hversu oft eru ekki kosnar nefndir til starfa í hinum
merkilegustu málum með slæmum árangri. Það má gott
kallast ef tíunda hver nefnd kryfur málið til mergjar með
þeirri ábyrgðartilfinningu sem skyldan knýr fram, sem þó
hefur áhugann á bak við sig.
Ahugamaðurinn hefur rétt til að skorast undan að
taka að sér störf ef tími eða áhugi er ekki fyrir hendi.
Aftur á móti hefur hann ekki rétt til að taka að sér
störf sem hann fyrirfram veit að hann hefur ekki tíma
til að sinna eða vantar áhuga. Það er misskilinn áhugi að
taka við svo og svo miklum störfum, a<5 hvergi er heilt
til verks gengíð, og má þar nefna mörg nefndarstörf, stjórn-
arstörf og fleiri. Þessir menn standa í veginum fyrir öðrum
sem ef til vill hefðu orðið betri starfsmenn, ef þeir hefðu
fengið tækifæri.
Taki áhugamaðurinn á sig störf hefur hann skyldur
gagnvart þeim sem um launaða stöðu væri að ræða. Menn
verða að leggja það niður að taka á sig störf í fullkomnu
ábyrgðarleysi, vitandi vits að það er nafnið eitt sem aðeins
getur farið vel á prenti og búið. Ef þið haldið að hér sé of
hart að kveðið, þá athugið bara ýmsar starfandi nefndir.
Athugið þið hvort allir stjórnarmenn félaga taka jafnan
þátt í þeim skyldustörfum sem þeir eru kosnir til að sjá
um framkvæmd á. Athugið líka hve margir af félagsmönn-
um skilja þær skyldur sem þeir hafa við félagið. Vafalaust
komizt þið að þeirri niðurstöðu að áhugamaðurinn verður
Sundmót Hafnarfjarðar fór fram í Sundlaug Hafn-
arfjarðar dagana 16. og 17. sept. Keppt var í 15 greinum.
Þátttakendur voru um 60 frá Fimleikafélagi Hafnarfjarð-
ar og Sundfélagi Hafnarfjarðar. Jón Magnússon form. F. H.
setti mótið. Hallsteinn Hinriksson flutti stutt erindi, síðan
hófst keppnin.
50 metra skriðsund, karlar,
16 ára og eldri
1. Gunnar Þórðarson F. H.
23.1 sek.
2. Jón Pálmason, S. H. 37.0
sek. ,
3. Jóhann Björnsson, F. H.
39.9 sek.
25 metra sund, frjáls aðferð,
14 ára og yngri stúlkur:
1. Engilráð Óskarsdóttir F.
H. 23.5 ,sek.
2. Ingigerður Karlsdóttir F.
H. 24.0 sek.
3. Sigrún Þórðardóttir F.
H. 24.7 sek.
200 metra sund, frjáls aðferð,
fyrir konur 16 ára og eldri:
1. Þorgerður Gísladóttir F.
H. 4 mín. 10.0 sek.
2. Vilborg Emilsdóttir F. H.
4 mín. 18.0 sek.
Tími Þorgerðar í fyrra var
4 mín. 28.5 sek.
50 metra sund, frjáls aðferð,
drengir 14—16 ára:
1. Jón Kr. Gunnarsson F.
H. 46.2 sek.
2. Anton Jónsson S. H. 47.5
sek.
Gunnar Þórðarson náði
þarna beztum tíma, 43.5 sek.
en var dæmdur úr leik vegna
feils í snúningi.
25 metra sund fyrir drengi,
14 ára og yngri, frjáls aðf.:
1. Þórhallur Jónsson, F. H.
21.2 sek.
2. Björn Eiríksson, F. H.
21.6 sek.
3. Ágúst Sigurðsson, F. H.
25.0 sek.
100 metra frjáls aðferð karla,
16 ára og* eldri:
1. Gunnar Þórðarson F. H
1 mín. 18.5 sek.
2. Jón Pálmason, S. H. 1
mín 27.2 sek.
3. Ólafur Eyjólfsson S. H.
1 mín. 44.9 sek.
50 metra báksund, drengir,
14—16 ára:
1. Jón Kr. Gunnarsson F.
H. 50.9 sek.
2. Markús Kristinsson, S.
H. 51.5 sek.
3. Vilhelm Jensson, S. H.
62.2 sek.
Síðari daginn hófst mótið
kl. 8.30 e. h. stundvíslega.
að hafa skyldur og framkvæma störf sín fyrir málefni
íþróttanna með þeirri einlægni og þeim áhuga sem manns
eigið starf væri. Þeir sem ekki gera það, villa á sér heim-
ildir, svíkja gott málefni, velta af sér byrðum á aðra — flýja
frá ábyrgðinni. .
Reykjavíkur- og íslandsmeistarar 1945: Talið frá vinstri:
Ellert Sölvason, Jóhann Eyjólfsson, Gunnar Sigurjónsson,
Sveinn Helgason, Hafsteinn Guðmundsson, Geir Guðmunds-
son, Björn Ólafsson og Guðbrandur Jákobsson. í knéstöðu:
Sigurður Ólafsson, Hermann Hermannsson og Frímann
Helgason.
3. Markús Kristinsson S. H.
50.5 sek.
25 metra björgunarsund,
karla, 16 ára og eldri:
1. Jón Pálmason S. H. 50.5
sek.
2. Ólafur Eyjólfsson, S. H.
59.3 sek.
-3. Ragnar Björnsson, S. H.
65.8 sek.
Tími Jóns í fyrra var 59.4
sek.
50 metra baksund kvenna, 16
ára og eldri::
1. Hanna M. Guðmunds-
dóttir F. H. 51.2 sek.
2. Torfhildur Steingríms-
dóttir S. H. 70.9 sek.
50 metra sund, frjáls aðferð,
stúlkur 14—16 ára.
1. Sólveig Björgvinsdóttir,
F. H. 50.1 sek.
2. Steinvör Sigurðardottir
S. H. 57.1 sek.
50 metra báksund fyrir karla,
16 ára og eldri:
1. Jón Pálmason S. H. 48.8
sek.
2. Ragnar Bjömsson S. H.
49.7 sek.
8x25 metra boðsund karla.
Fyrst varð svéit Sundfélags
Hafnarfjarðar á 2 mín. 28.2
sek.
Önnur varð sveit Fimleika-
félags Hafnarfjarðar á 2 mín.
30.1 sek.
200 metra sund fyrir karla 16
ára og eldri
1. Gunnar Þórðarson F. H.
3 mín. 17.0 sek.
2. Jón Pálmason S. H. 3
mín. 25.0 sek.
3. Þorleifur Grímsson, S.
H. 4 mín. 05.0 sek.
í þessu sundi var Halldór
Baldvinsson fyrstur í fyrra á
2 mín. 59.4 sek.
50 metra sund, frjáls að-
ferð konur, 16 ára og eldri:
1. Vilborg Emilsdóttir F.
H. 51.3 sek.
2. Eygló Eyjólfsdóttir F.
H. 51.9 sek.
3. Sólveig Björgvinsdóttir
F. H. 54.0 sek.
100 metra sund frjáls aðferð
fyrir karla 40 ára og eldri:
1. Gísli Sigurðsson S. H.
2 mín. 3.0 sek.
2. Guðbjartur Ásgeirsson F.
H. 3 mín. 0.2 sek.
8x25 metra boðsund fyrir
konur:
1. Sveit F. H. 3 mín. 16.0
sek.
2. Sveit S. H. 3 mín. 33.1
sek.
10 mínútna þolsund, frjáls
aðferð fyrir karla, 16 ára og
eldri:
1. Jón Pálmason S. H. synti
527.5 metra.
2. Ólafur Eyjólfsson S. H.
synti 468.0 metra.
3. Ragnar Björnsson S. H.
synti 415.0 metra.
Þar með lauk þessu sund-
móti, sem er annað í röðinni,
sem haldið hefur verið í
Sundlaug Hafnarfjarðar. Mót-
ið gekk með prýði, svo aldrei
þurfti að biða eftir að ein
greinin hæfist, er annarri
lauk. F. H. og S. H. sáu um
mótið undir yfirstjórn í. B.
H. Mptið var allyel sótt, sem
sýnir vaxandi skilning fólks
í Hafnarfirði fyrir sundíþrótt-
inni og mikla ánægju með
Sundlaugina sem þó myndi
vera enn meiri væri hún yf-
irbyggð. Að því hlýtur að
koma á næstunni. Enginn efi
er á því að það myndi stór-
auka aðsókn.
Margir áhugamenn hafa
gefið bikara til þess að keppt
væri um þá. Skal þar fyrstan
telja Grím Kr. Andrésson,
sem gaf tvo bikara. Annan
fyrir konur, 200 metra, og
hinn fyrir karla, 200 metra.
Þeim fylgja titlarnir Sund-
drottning Hafnarfjarðar og
Sundkóngur Hafnarf jarðar.
Þá gaf Einar Halldór Hall-
grímsson björgunarsundsbik-
arinn til minningar um sjó-
drukknaða menn úr Sjó-
mannafélagi Hafnarfjarðar.
Loftur útgerðarmaður Bjarna
son gaf þolsundsbikarinn og
Þorleifur Jónsson bæjarfull-
trúi gaf bikar fyrir karla 40
ára og eldri vegna þess að
mikill meirihluti þeirra sem
sáu um bygginguna á Sund-
laug Hafnarfjarðar voru 40
ára og þar yfir.
Hafnfirðingar, styrkið
heilsu ykkar og sækið vel
þessa heilsulind, Sundlaug-
ina. Aukið vellíðan ykkar og
sækið Sundlaugina. Látið
gleðina búa í sálum ykkar til
hinzta andardráttar og sækið
Sundlaugina.
• G. S.